Morgunblaðið - 22.01.1997, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.01.1997, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 27 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. HLUTUR OPIN- BERRA STARFS- MANNA ATHYGLISVERÐAR upplýsingar komu fram í Morgun- blaðinu í gær um launaþróun í landinu. Samkvæmt útreikningum Hagstofu íslands hefur launavísitala opinberra starfsmanna og bankamanna hækkað frá fyrsta ársfjórðungi árið 1995 til loka síðasta árs um 12,6% en launavísitala fyrir almennan vinnumarkað um 7,9%. Þetta er býsna mik- ill munur. Nú er auðvitað ljóst, að ákveðnir hópar opinberra starfs- manna hafa knúið fram kauphækkanir umfram aðra m.a. með verkföllum og gert það með þeim rökstuðningi, að þeir hafi dregizt aftur úr hinum almenna vinnumarkaði í launum. Því skal ekki mótmælt og ljóst er, að ýmsir starfshópar hjá hinu opinbera búa enn við launakjör, sem engan veginn hæfa menntun þeirra og starfi. Má þar m.a. nefna háskóla- prófessora. Fyrir áramót var jafnframt gengið frá nýjum samningum um lífeyrismál opinberra starfsmanna með lagasetningu á Alþingi. Stjórnvöld halda því fram, að þar sé einungis um „slétt skipti“ að ræða frá fyrra kerfi en launþegasamtökin og vinnuveitendur telja, að lífeyrisréttindi opinberra starfs- manna hafi verið bætt frá því sem var. Þegar óumdeilt er að launakjör opinberra starfsmanna og bankamanna hafa á síðustu tveimur árum batnað umtals- vert umfram kjör almennra launþega og deilt er um það, hvort lífeyrisréttindi þeirra hafi verið aukin, er ljóst að þessi þróun mála hlýtur að hafa áhrif á kjaraviðræður þær, sem nú standa yfir á hinum almenna vinnumarkaði. Raunar þarf engum að koma á óvart, þótt sumir forystumenn launþegafé- laganna íhugi að bíða með kjarasamninga fram yfir samn- inga við opinbera starfsmenn. Alltaf má deila um, hvort einhver starfshópur í samfélag- inu hafi fyrr á tíð náð kjarabótum umfram aðra. Um hitt verður ekki deilt, að þegar launaþróun opinberra starfs- manna síðustu tvö árin er höfð í huga og lífeyrisréttindi, sem að minnsta kosti eru umfram það, sem tíðkast á hinum almenna markaði, verður ekki lengra gengið í þeim efnum. Þess vegna verða almennir launþegar að fá einhvers kon- ar tryggingu fyrir því, að ekki verði á ný samið við opin- bera starfsmenn og bankamenn umfram þá samninga, sem vonandi verða gerðir á hinum almenna vinnumarkaði á næstu vikum. Sú leiðrétting, sem opinberir starfsmenn og banka- menn hafa fengið á síðustu tveimur árum verður að duga. Launaþróun starfshópa hjá hinu opinbera og í einkageiranum verður að vera sambærileg á næsta samningstímabili. ÞJÓNUSTA VIÐ FERÐAMENN NIÐURSTÖÐUR viðhorfskönnunar sem Ferðamálaráð íslands lét gera meðal erlendra ferðamanna hér á landi á liðnu ári og greint var frá hér í Morgunblaðinu í gær, hljóta að vera skipuleggjendum ferðaþjónustu alvarlegt áhyggjuefni. En um leið ættu þær að verða hvatning um að bæta og styrkja þjónustu við ferðamenn á ákveðnum sviðum. Vissulega eru jákvæðir þættir í niðurstöðum viðhorfskönn- unarinnar, sem einnig má draga lærdóm af. Þannig er það ánægjulegt, að 90% aðspurðra treysta sér til að mæla með íslandsferð við vini sína. Það er einnig jákvætt að íslensk náttúra, hreinleiki, friðsæld og hálendið, skuli draga að svo stóran hluta ferðamanna, sem raun ber vitni. Um leið ættu þær niðurstöður að gera það að verkum, að við verðum enn frekar á varðbergi um framkvæmdir, sem gætu spillt hinni hreinu og ómenguðu ímynd íslands. Það sem hvað alvarlegast er við niðurstöður könnunarinn- ar, er sú einkunn sem erlendir ferðamenn gefa verðlagi hér á landi, en hún er sýnu verst, eða 3,3 af 10 mögulegum. Þá ætti niðurstaða ráðstefnugesta haustið 1996 ekki síður að verða umhugsunarefni þeim sem standa að skipulagningu ráðstefna hér á landi. Meðaleinkunnin varð einungis 4,5 og 33% aðspurðra ráðstefnugesta gáfu þjónustu vegna við- skipta einkunn sem var aðeins á bilinu 0-1. A þessu sviði er alveg ljóst að taka þarf til hendi og það svo um munar. Takmörkuð hrifning við hugmynd um Fjárfestingarbanka Islands hf. Viðskiptabankarnir reifa valkost Finnur Ingólfsson bankaráðherra vill að fjár- festingarlánasjóðimir Iðnlánasjóður, Iðnþró- unarsjóður og Fiskveiðasjóður verði sameinað- ir í einn banka, sem rætt hefur verið um að * hljóta myndi nafnið Fj árfestingarbanki Islands hf. Agnes Bragadóttir og Helgi Þorsteins- _______son könnuðu skiptar skoðanir um_______ fyrirhugað frumvarp ráðherrans og hvaða úrræði viðskiptabankarnir og sparisjóðirnir telja sig geta boðið upp á sem valkost. FISKVEIÐASJOÐUR ÍSLANDS IÐNLANASJOÐUR IÐNÞROUNARSJOÐUR KJARTAN Gunnarsson, formaður bankaráðs Landsbankans: „Þá hugmynd verður að hugsa mjög vel, áður en ákveðið verð- ur að stofna þriðja og jafnvel fjórða ríkis- bankann." KRISTJAN Ragnars- son, formaður LIÚ: „Það sem við hjá LIÚ höfum lagt mesta áherslu á er að Fisk- veiðasjóði verði breytt í hlutafélag." SVEINN Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins: „Bankarnir eru að hugsa um að fá stærri bita af markaðinum með því að fá fjárfest- ingarlánin inn til sín.“ Morgunblaðið/Leif R. Janson HAGFRÆÐINGARNIR á blaðamannafundinum frá vinstri: Arne Jon Isachsen, prófessor við Handelshögskolan BI í Ósló, John William- son, yfirhagfræðingur fyrir Suður-Asíu í Alþjóðabankanum, Þorvaldur Gylfason, formaður nefndarinnar, prófessor við Háskóla Islands, Torben M. Andersen, prófessor við Háskólann í Árhus, Seppo Honkapohja, prófessor við Háskólann í Helsinki. Þorvaldur Gylfason fór fyrir hópi virtra hagfræðinga í úttekt á efnahagslífi Svía Er Svíþjóð úr takti við umheiminn? Á meðan Sviar haf a talað um vandamálin hafa margar aðrar þjóðir leyst þau. Þetta voru meðal annars skilaboðin sem fímm manna nefnd virtra hagfræðinga, sem ekki eru sænskir, ber Svíum í bókinni „Úr takti við umheiminn? - Sænskt efnahagslíf í alþjóðlegu samhengi“, sem kom út í fyrradag. Sigurjón Pálsson sat blaðamannafund með hagfræð- ingunum í Stokkhólmi og ræddi við Þorvald Gylfason, hagfræðing og prófessor við Há- skóla íslands, sem ritstýrði bókinni og var jafnframt formaður nefndarinnar. TALSVERÐ umræða hefur farið fram undanfarnar vik- ur á milli ákveðinna tals- manna viðskiptabankanna og sparisjóðanna, sem telja sig hafa upp á skynsamlegri og hagkvæmari valkost að bjóða, en þann sem Finnur Ingólfsson, banka- og viðskiptaráð- herra, hefur boðað boðar um breytt rekstrarform og eignarhald fjárfest- ingarlánasjóðanna, Fiskveiðasjóðs, Iðnlánasjóðs og Iðnþróunarsjóðs, en eins og kunnugt er gerir ráðherrann ráð fyrir sameiningu sjóðanna í einn banka, Fjárfestingarbanka íslands hf. í Morgunblaðinu í gær er greint frá því að stefnt er að því að leggja fram frumvarp um sameiningu fjárfesting- arlánasjóðanna fljótlega eftir að þing kemur saman á ný, eða strax upp úr mánaðmótum. Hér er síður en svo um einfalt mál að ræða og virðist lítil eining nkja um hver framtíð sjóðanna eigi að vera. Eftir því sem næst verður komist er helsta kveikja þess að tals- menn viðskiptabanka og sparisjóða hafa að undanfömu verið að leita leiða til þess að vinna sínum hug- myndum um framtíð sjóðakerfisins fylgi sú að þeir eru mjög mótfallnir því að hér verði settur á stofn nýr ríkisbanki. Segja ákveðnir viðmæl- endur Morgunblaðsins að það skjóti skökku við að á sama tíma og ríkis- stjórnin er með á borði sínu að hf,- væða ríkisbankana, þ.e. Landsbank- ann og Búnaðarbankann, sem vænt- anlega sé undanfari þess, að ríkis- bankarnir verði seldir að hluta eða öllu leyti á markaði, sé hún að und- irbúa stofnun þriðja og jafnvel íjórða ríkisbankans því rætt er um að stofna sérstakt fyrirtæki um Stofn- lánadeild landbúnaðarins sem er eins og kunnugt er rekin innan vébanda Búnaðarbankans. Andvígir hugmyndum ráðherra Morgunblaðið hafði spurnir af því að viðskiptabankarnir, sem frá upp- hafi hafa lýst yfir andstöðu sinni við hugmyndir bankaráðherrans, hafi, fyrir frumkvæði talsmanna Lands- bankans, ekki síst formanns banka- ráðs Landsbankans, Kjartans Gunn- arssonar, mótað ákveðna leið, sem nefna má valkost viðskiptabankanna og Sparisjóðabankans. I því felst að viðskiptabankarnir og Sparisjóða- bankinn myndu kaupa ákveðinn eignarhluta ríkisins í sjóðunum og reka í sameiningu slíkan heildsölu- banka til að byija með, en skipta síðan jafnvel niður viðskiptunum á viðkomandi banka, í hlutfalli við eignarhluta þeirra. Rétt er að geta þess þegar að ís- landsbanki hefur verið lítt virkur í þessum umræðum, enda vandséð hvernig starfsmenn hans ættu að geta haft mótaðar skoðanir á þessu máli, með formann í bankaráði, Kristján Ragnarsson, sem jafnframt er formaður LÍÚ og fulltrúi í stjórn Fiskveiðasjóðs. Einfaldari leiðir til Kjartan Gunnarsson kýs að vera þagmáll um hugmyndir þessar. Hann segir þó: „Ég tel að þá hugmynd verði að hugsa mjög vel, áður en ákveðið verður að stofna þriðja og jafnvel fjórða ríkisbankann. Á sama tima og verið er að tala um að ein- falda bankakerfið, meðal annars með því að breyta ríkisbönkunum í hluta- félög. Ég tel að það séu til einfald- ari og affarasælli leiðir til þess að stokka upp og endurskoða sjóðakerf- ið heldur en að steypa því öllu sam- an í einn nýjan ríkisbanka.“ Talsmenn viðskiptabankanna og sparisjóðanna spyija m.a. hvort ekki væri ákjósanlegt fyrir ríkisstjórnina, sem vill efla lánamöguleikana til at- vinnulífsins, að nýta þetta tækifæri, til þess að breyta atvinnusjóðakerf- inu á allt annan hátt en umræðan hefur staðið um á undanförnum árum. í raun segja þeir að með þeirra útfærslu hefðu stjórnvöld tækifæri til þess að sleppa ákveðnum millistig- um og stökkva yfir með þvi að fall- ast á hugmyndir sínar. Ríkið geti tekið þær eignir sem það á, í þessum sjóðum, þótt um- deildi hlutinn sé látinn liggja milli hluta. Viðskiptabankarnir og Spari- sjóðabankinn geti í sameiningu gert ríkinu tilboð um kaup á hluta ríkis- sjóðs í sjóðunum. í því tilboði fælist að nægar eignir væru skildar eftir í sjóðunum til þess að hægt yrði að stofna Nýsköpunarsjóð atvinnulífs- ins sem beðið hefur verið eftir um nokkra hríð. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins yrði eini sjóðurinn sem yrði að grunni til rekinn á allt öðrum forsendum en hinir er þessi: Hann er hugsaður sem eins konar áhættusjóður at- vinnulífsins þar sem það er undir hælinn lagt hvort framlög úr honum verða nokkurn tíma endurgreidd, vegna þess að eðli málsins sam- kvæmt er slíkur sjóður hugsaður sem leið til leitar að nýsköpunartækifær- um í íslensku atvinnulífi; þannig er um áhættusjóð að ræða, sem rekinn yrði á allt öðrum forsendum en Tjár- festingarlánasjóður. Talsmenn bankastofnana telja að ef farið yrði að þeirra hugmyndum um kaup og yfirtöku á hluta ríkisins í fjárfestingarlánasjóðunum yrði það til þess að bankarnir kæmu mun sterkar inn í Iangtímalán til atvinnu- lífsins sem þær þegar hafa hafið í meira eða minna mæli. Umtalsverð hagræðing? Með þessu fengist að þeirra mati fram umtalsverð hagræðing í banka- kerfinu og lækkun á rekstrarkostn- aði þess. I þeim efnum er bent á að lánastarfsemi þeirra fjárfestingar- sjóða sem hér er við lýði, er í höfuð- atriðum heildsölulán, þ.e.a.s. lang- tímalán. Talsmenn bankanna benda á að með því að starfsemi fjárfesting- arlánasjóðanna færist undir við- skiptabanka og sparisjóði hefði slíkt í för með sér umtalsverða lækkun rekstrarkostnaðar bankakerfísins. Þannig sjá forsvarsmenn bank- anna fyrir sér að ef langtímalánin til atvinnuveganna, eða svokölluð heildsölulán fjárfestingarlánasjóð- anna, yrðu daglegur hluti af starf- semi viðskiptabanka og sparisjóða í framtíðinni væri hægt að ná fram umtalsverðri hagræðingu í banka- kerfinu í heild. Ekki rætt í bankaráði íslandsbanka Hagsmunaaðilar í atvinnulífínu eru raunar andvígir báðum hug- myndum, hvort sem er þeirri sem feíst í fyrirhuguðu frumvarpi banka- ráðherrans eða útfærslu ákveðinna forystumanna bankakerfisins. Kristján Ragnarsson, formaður LÍU og bankaráðs íslandsbanka, segir að þessar hugmyndir bankanna hafi ekki verið ræddar innan bankar- áðsins. „Tillögur ríkisstjórnarinnar um að stofna Pjárfestingabanka ís- lands er það sem liggur á borðinu og það er það sem hagsmunaaðilarn- ir eru kvaddir til til að fjalla um. Svo eru einhveijar hugmyndir um þátttöku viðskiptabankanna í slíku, en meðan bankaráð íslandsbanka hefur ekki heyrt eða séð þau áform vil ég ekki tjá mig um það. Þær hug- myndir sem uppi eru um málið verða ræddar á fundi í næstu viku. Það sem við hjá LÍÚ höfum lagt mesta áherslu á er að Fiskveiðasjóði verði breytt í hlutafélag. Þá væri einnig eðlilegt að breyta iðnlánasjóðunum í einn sjóð og gera þá að einu hlutafélagi. Við viljum fyrst og fremst að opnað verði fyrir það að sjóðimir geti lánað til annarra atvinnuvega. Það er ekki tímabært að taka afstöðu til þess hvort þeir muni síðan í framtíðinni sameinast bönkum. Við leggjum höf- uðáherslu á að sérhæfíng sjóðanna verði afnumin og til dæmis að fellt verði úr lögum ákvæði um að ekki megi veita lán nema gegn fyrsta veð- rétt í fiskiskipum.“ Samtök iðnaðarins lítt hrifin Sveinn Hannesson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, segist vera lítið hrifín af hugmyndum bank- anna eins og þeim er lýst hér. „Við höfum heyrt um áhuga bankanna á að fá sjóðina til sín, en þetta hefur ekki komið upp á borð í viðræðum okkar við ráðuneytið. Þessar hug- myndir ganga út á að selja lánasjóð- ina nánast til niðurrifs til bankanna. Atvinnulífið er búið að vera að borga í áratugi til að byggja upp sjóði sem gætu þjónustað það með fjárfesting- arlánum. Við viljum halda þessari uppbyggingu áfram og sameina sjóð- ina í einn öflugan fjárfestingarlána- sjóð sem getur sinnt íslensku at- vinnulífi. Við styðjum hugmyndir sem ganga út á að breyta honum síðan í almenningshlutafélag.“ Sveinn segir afstöðu bankanna ráðast af eiginhagsmunum. „Þeir eru að hugsa um að fá stærri bita af markaðinum með því að fá fjárfest- ingarlánin inn til sín. Fyrst og fremst held ég að þeir séu að hugsa um að losna við samkeppni. Það er ekki í þeim anda sem ríkisstjórnin hefur talað um að auka samkeppni á lána- markaði. Við teljum að þessi stofn- un, eins og við hugsum hana, myndi geta veitt erlendum aðilum sam- keppni um lán til stærri fyrirtækja hér á landi. Vaxtamunur í fjárfest- ingarlánasjóðunum er allt annar en í bönkum. í Iðnlánasjóði er vaxta- munur innan við tvö prósent nú, en í bönkunum er hann mun hærri, að minnsta kosti tvöfaldur. Ef bankarn- ir fá sjóðina til sín mun það verða til þess að jafna þann vaxtamun en það verður í þá átt að hækka hann í stórum fjárfestingarlánum." BÓK sem þessi, þar sem gerð er úttekt á sænsku efna- hagslífí, kemur út árlega í Svíþjóð og vekur ávallt nokkra athygli og umræðu. Það sem gerir bókina í ár frábrugðna fyrri út- gáfum er að enginn hagfræðinganna í nefndinni var sænskur. Bók þessi ætti að vekja áhuga íslendinga því eins og Þorvaldur segir sjálfur hér annars staðar á síðunni má lesa um ísland milli linanna í nánast öllum köflum bókarinnar. Atvinnuleysi og hægur hagvöxtur Þorvaldur Gylfason hóf blaða- mannafundinn þar sem niðurstöður bókarinnar voru kynntar með þvi að segja að umræðan í Svíþjóð hefði til- hneigingu til að vera of mikið inn á við. Reynt væri að fínna sérsænskar lausnir í stað þess að draga lærdóm af því sem gert væri annars staðar. Hagfræðingahópurinn segir Svía eiga við þijú höfuðvandamál að stríða. í fyrsta lagi mikið atvinnuleysi en það var 12% árið 1996. í öðru lagi hægan hagvöxt en hann hefur verið 1,6% á ári frá árinu 1970. I þriðja lagi skort á tilhneigingu til umbóta. í bókinni er sýndur samanburður við ríki eins og Tékkland þar sem ekkert atvinnu- leysi er og Tæland þar sem mikill hagvöxtur er. Stífni hins sænska vinnumarkaðar gerir atvinnuleysið verra að mati hag- fræðinganna. Skoðun þeirra er að hraðari hagvöxtur dugi ekki einn og sér til að minnka atvinnuleysið heldur verði að losa um atvinnumarkaðinn og draga úr miðstýringu. Þorvaldur sagði að á þetta hefði oft verið bent áður en tíminn, sem í Svíþjóð hafí verið notaður til að tala, hafí verið notaður til aðgerða víða annars staðar. í máli Torbens M. Andersens, pró- fessors við Háskólann í Árhus og eins nefndarmanna, kom fram að það væri ekki nóg að hafa hátt hlutfall menntunar eins og er í Svíþjóð, þegar stór hluti menntamanna fái ekki menntun, sem gerir þá hæfa fyrir vinnumarkaðinn. Hann benti líka á að 60% þeirra sem bestu menntunina hafi starfi í opinbera geiranum. Efna- hagsleg arðsemi af menntun væri lítil í Svíþjóð. Svíar flytja einnig of lítið út, aðeins 33% af vergri þjóðarframleiðslu miðað við 38% heimsmeðaltal. Sama gildir um fjárfestingu Svía sem er 14% af vergri þjóðarframleiðslu miðað við 30t40% í Austur-Asíu. Án róttækra umbóta mun Svíþjóð halda áfram að dragast aftur úr um- heiminum og til þessara umbóta verður ekki að grípa einhvem tímann í fram- tíðinni heldur svo fljótt sem mögulegt er. Þetta sagði John Williamson, yfír- hagfræðingur hjá Alþjóðabankanum fyrir Suður-Asíu svæðið og einn nefnd- armanna. John sagði að til að koma mætti á umbótum væri lykilatriði að hafa samhenta forystu, sem öll tryði á breytingamar. AUt of oft gerðist það að leiðtogar sem tryðu á breytingar og vildu vinna þeim framgang skipuðu ráðherra sem ekki deildu sömu sann- færingu og kæmu þannig í veg fyrir að hugmyndimar næðu fram að ganga. Kynningarherferð „Úr takt við umheiminn?" var unnin að frumkvæði SNS - Studieförbundet Náringsliv och Samhálle. SNS er svo- nefndur „think-tank“, nokkurs konar ** hugmyndabanki sem starfar sjálfstætt og óháð öllum hagsmunasamtökum, stjórnamálaflokkum, ráðuneytum eða stjómvöldum. Blaðamannafundurinn sem haldinn var í Stokkhólmi í gær og hér er sagt frá er aðeins fyrsta skrefíð í markvissri kynningu á niður- stöðum bókarinnar. Þannig rökræddi Þorvaldur í gærkvöldi við ráðuneytis- stjóra fjármálaráðuneytisins og fram- undan eru rökræður við Erik Asbrink fjármálaráðherra Svíþjóðar sem og fundir víða um Svíþjóð. LESA MÁ um ísland milli linanna í bókstaflega öllum köflum bókarinnar „Úr takti við umheim- inn?“ að sögn Þorvaldar Gylfasonar, sem rit- stýrði henni. Hann segir tvímælalaust vera þörf fyrir svipaða úttekt á Islandi. Þótt atvinnuleysi sé minna á íslandi en í Sví- þjóð bendir Þorvaldur á að það hafi samt tífald- ast undanfarin fimm ár. „Vinnumarkaðsskipanin heima,“ segir hann, „hefur að mörgu leyti svip- aða galla og hér í Svíþjóð. Ef langtímastöðnunin heima heldur áfram, þá horfi ég framþjá þessari tímabundnu uppsveiflu sem er núna vegna stór- iðjuframkvæmda, þá er hætt við því að atvinnu- leysið á íslandi geti mjakast enn hærra. Ég held þess vegna að rökin, sem eiga við í Svíþjóð, fyr- ir því að færa kjarasamninga frá miðstýrðum risavöxnum heildarsamtökum yfir á vinnustaðina sjálfa eigi jafn vel við heima,“ segir Þorvaldur. Eru sömu upplýsingar til staðar á íslandi og þið fenguð hér í Svíþjóð viðgerð bókarinnar? „Nei, því miður vantar mikið upp á að þess konar upplýsingar sem við höfðum aðgang að hér, séu til heima. Svíþjóð er háþróað land sem á sér virðulega hefð og sögu í efnahagsmálum og í efnahagsumræðu yfirhöfuð. Þessu fylgir mjög vandleg kortlagning á sænsku efnahags- lífi. Þess vegna eru allar hagtölur hér í hæsta Er Island úr takti við umheiminn? gæðaflokki sem þekkist. Það auðveldar mjög vinnu af því tagi sem við höfum unnið." Hvar myndirðu set/a menntun & íslandi í sam- anburði við menntun í Svíþjóð? „Ég óttast það að þegar nauðsynlegra upplýs- inga verður aflað muni koma í ljós að ástand menntamálanna á íslandi sé slæmt.“ Hvað um samanburð á íslenska ogsænska vinnumarkaðnum ? „ Vinnumarkaðurinn á Islandi er að mörgu leyti sveigjanlegri en haim er hér i Svíþjóð og víða annars staðar í OECD-löndunum. Það stafar af þvi að við höfum þessa sérstöku blöndu af tiltölu- lega lágum grunnlaunum og siðan viðbótargreiðsl- um, ofan á gruiuilaunin, sem eru sveigjanlegar. Eftir stendur hitt að um gninnlaunin er samið af risavöxnum heildarsamtökum, sem hafa til þess vald að sprengja launin upp úr öllu valdi og -f hafa notað vald sitt til þess oftar en einu sinni og oftar en tvisvar undanfama áratugi. Þessu valdi þarf að dreifa. Það þarf að gera vinnumark- aðinn líkari öðrum mörkuðum, á Islandi líka, ekki síður en í Svíþjóð eða öðrum Evrópulöndum." Það kom fram í úttektinni að í Svíþjóð hefði verið ofmikið talað og oflítiðgert. Hvernig myndirðu lýsa ástandinu á íslandi í þessu tilliti? „Það er stundum orðað á rússnesku að Svíar hafi haft glasnost en ekki perestrojku. Okkur vantar ennþá hvorutveggja: glasnost og per- estrojku. En þetta kemur smám saman.“ Undirstöður hagvaxtar feysknar „Það sem við segjum um hagvöxt í Svíþjóð á að miklu leyti við um ísland líka,“ heldur Þorvaldur áfram. „Það er að segja að íslend- ingar og Svíar fjárfesta allt of Iítið, fiytja allt of lítið út og hafa vanrækt menntun. Þetta eru þessar þrjár mikilvægustu undirstöður hagvaxtarins til langs tíma og ef þær eru feysknar allar þijár horfir ekki vel um hag- vöxtinn. Ég er hins vegar bjartsýnn á að ís- lendingum takist að taka sig á,“ segir hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.