Morgunblaðið - 22.01.1997, Page 6

Morgunblaðið - 22.01.1997, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Búist er við formlegri kröfu á næstu dögum um framsal bandarískra hjóna Deilt um ættleið- ingargögn og forræði GERA má ráð fyrir að formleg krafa um framsal móðurömmu bandarísku stúlkunnar, sem tekin var í vörslu félagsmálayfirvalda í Kópavogi í gærmorgun, og eigin- manns hennar berist á næstu dög- um frá Bandaríkjunum, samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðu- neytinu. Ekki liggur ljóst fyrir hvernig barnið kemst í hendur móð- ur sinnar eða hvort hún muni sækja það hingað. „Samkvæmt upplýsingum frá bandaríska sendiráðinu var móðirin látin vita á mánudag að barnið væri fundið og hún beðin um að hafa ekki hátt um málið fyrr en barnið væri í höndum íslenskra yfir- valda,“ segir Stefán Eiríksson, lög- fræðingur hjá dómsmálaráðuneyt- inu. Þungur fangelsisdómur hugsanlegur Brotið sem bandarísku hjónin eru grunuð um að hafa framið í Banda- ríkjunum er sambærilegt við 193. grein almennra hegningarlaga hér á landi, en þar segir m.a. að hver sem sviptir foreldra eða aðra rétta aðila valdi eða umsjá yfir barni, skuli „sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 16 árum eða ævi- langt". Jafnframt er unnið að með- ferð málsins hjá útlendingaeftirlit- inu og samkvæmt upplýsingum blaðsins er á vegum bandaríska sendiráðsins m.a. verið að athuga hvort fólkið hafi komið hingað til lands með fölsuð skilríki. Ytra er venjan sú að fólk sé lög- sótt í tilvikum sem þessum, sam- kvæmt upplýsingum frá bandaríska utanríkisráðuneytinu, og getur það átt þungan fangelsisdóm yfir höfði sér, þótt hvert einstak tilvik sé metið enda forsendur þeirra afar misjafnar, að sögn Ellen Conway, deildarstjóra þar. Um eitt þúsund samsvarandi til- vik koma til kasta yfirvalda í Bandaríkjunum á hveiju ári, bæði þar sem börn eru flutt óleyfilega úr landi og til landsins í trássi við vilja foreldra sem hafa forræði yfir þeim. Ekki eru veittar nákvæmar upplýsingar um einstök mál áður en til opinberrar málsóknar kemur án samþykkis hlutaðeigandi aðila, þar sem þau heyra undir bandarísk lög um einkalífsvernd, segir Nyda Budig, talsmaður upplýsingaskrif- stofu ráðuneytisins.^ Hún bendir á að íslendingar hafi undirritað samning þann sem kenndur er við Haag og tekur á einkaréttarlegum áhrifum af brott- námi barna til flutnings milli landa, og að hér á landi séu í gildi lög um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna og af- hendingu brottnuminna barna. Þeir séu því skyldugir til að skila börn- um, sem hafa verið numin á brott með ólögmætum hætti, til lög- mætra forráðamanna sinna. Framsalssamningur var gerður milli Danmerkur og Bandaríkjanna árið 1902, en ísland var þá hluti af danska konungsveldinu. íslend- ingar létu reyna á þennan samning fyrir um áratug og var einstakling- ur þá framseldur hingað til lands frá Bandaríkjunum. Stúlkan sem numin var á brott heitir Zenith Elaine Helton og verð- ur fimm ára gömul í október næst- komandi. Samkvæmt því sem fram kom í þættinum Unsolved Myster- ies, þar sem fjallað var um málið frá sjónarhóli móðurinnar, hafði móðirin, Kelly Helton, átt í útistöð- um við ömmu barnsins, Connie Jean Hanes, um nokkurt skeið og hefur eiginmaður þeirrar síðarnefndu, Donald Hanes, verið þátttakandi í þeim deilum. Hann mun hafa hlotið dóm og vera á reynslulausn, sam- kvæmt því er fram kom í þættinum. Kelly eignaðist stúlkubarn, sem skírt var Tabitha, þegar hún var 26 ára, en þá bjó hún í Arizona- fylki. Um svipað leyti gekk móðir hennar að eiga Donald Hanes, en hann var barnlaus. Connie Jean vildi að sögn Kelly ákaft eignast barn og var enn sömu skoðunar þegar Kelly eignaðist aðra dóttur sína i október 1992, sem skírð var Zenith Elaine. Barnið bar ættarnafn móður sinnar, þar sem Kelly hafði slitið samvistum við föður þess meðan á meðgöngu stóð. Segist hafa verið blekkt til að skrifa undir Connie Jean og Donald buðu Kelly og dætrum hennar að dvelj- ast á heimili þeirra í Provo í Utah- ríki og þáði hún boðið. Að sögn Kellyar bauðst móðir hennar einnig til að bæta Zenith á heilsutryggingu sína og þurfti hún aðeins að stað- festa slíkt fyrirkomulag með undir- skrift sinni, sem hún og gerði, vegna slæms fjárhags að sögn. Hún heldur því fram að í raun hafi hún verið blekkt til að undirrita skjöl þar sem Connie Jean og Donald var heimilað að ættleiða Zenith. Kelly segir að hún hafi fengið þær skýringar að um tímabundna ráðstöfun væri að ræða, eða þang- að til hún kæmist á réttan kjöl fjár- hagslega. Kelly sneri aftur til Ariz- ona ásamt dætrum sínum í febrúar 1993. Tveimur dögum síðar lagði Connie Jean fram áðurnefnd ætt- leiðingarskjöl fyrir dómstól í Utah og óskaði eftir löggildingu þeirra. Fékk fullt forræði dóttur Að fengnu samþykki dómstólsins tók lögreglan í Arizona Zenith af móður sinni og afhenti Connie Jean hana. Kelly hóf málsókn á hendur móður sinni og manni hennar til að tryggja sér forræði yfir Zenith og varð niðurstaðan henni í vil. Telpan var orðin tveggja og hálfs árs þegar þarna var komið sögu. Connie Jean fékk hins vegar heim- ild til umgengni við barnið án eftir- lits í níu stundir í hverri viku, og fluttu þau hjónin frá Utah í kjölfar- ið til að eiga hægar með að um- gangast Zenith. Þau sóttu hana 17. október 1995, tæpu ári eftir að telp- unni var skilað aftur til móður sinn- ar, og fóru út út ríkinu og síðar úr landi. Olögmætt brottnám Þau voru í kjölfarið kærð fyrir ólögmætt brottnám barnsins og hefur fólk, sem kynni að geta veitt upplýsingar um ferðir þeirra, verið beðið um að hafa samband við bandarísku alríkislögregluna, FBI. í áðurnefndum sjónvarpsþætti var ennfremur gefið upp símanúmer sem áhorfendur gátu hringt í, vildu þeir koma upplýsingum á framfæri. Connie Jean Hanes segir sakargiftir rangar „Dóttir mín átti frum- kvæði að ættleiðingu“ „ÉG TÓK á móti litlu telpunni í fæðingu og hef alið hana upp sem mína eigin dóttur frá þeim degi. Móðir hennar, sem er dóttir mín, samþykkti það og að hennar frum- kvæði var gengið frá því að við myndum ættleiða telpuna," sagði Connie Jean Hanes í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Connie Jean og eiginmaður hennar, Don- ald Hanes, voru í gær úrskurðuð í farbann til 5. febrúar, sökuð um brottnám litlu telpunnar árið 1995. Connie Jean sagði að hún og maður hennar ætluðu að ráðfæra sig við lögfræðing áður en þau svöruðu þessum alvarlegu ásökun- um. „Ég get hins vegar fullyrt það núna, að allt sem fram kom í þess- um sjónvarpsþætti, Unsolved Mysteries, var vitleysa frá upphafí til enda,“ sagði Connie Jean á heimili sínu í gærkvöldi. „Þessar lygar hafa núna haft í för með sér að litla dóttir mín var tekin frá mér og íslensk stjórnvöld halda henni einhvers staðar. Þetta er allt saman rangt, hún er dóttir mín og hefur verið frá fæðingu. Ég tók á móti henni, var sú fyrsta sem hélt á henni í fanginu og hún hefur alltaf verið hjá mér. Við höfðum gengið frá ættleiðingu hennar og dóttir mín átti sjálf frumkvæðið að því. Ég er mjög miður mín vegna þessa máls og sárast þykir mér að litlu dóttur minni er einhvers staðar haldið fanginni.“ Morgunblaðið/Ásdls Ásgeirsdóttir Kvöldlestur í MR Vigdís Finnbogadóttir les Passíusálmana • • Ommurnar höfðu Pass- íusálmana á náttborðinu FRÚ Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Islands mun lesa Passíusálma Hallgríms Pét- urssonar í Ríkis- útvarpinu að þessu sinni og hefst lestur hennar 27. jan- úar næstkom- andi. í samtali við Morgunblaðið segist Vigdís vera af þeirri kynslóð sem er alin upp við að þekkja Passíu- sálmana vel og að henni hafi alla tíð þótt afar vænt um þá. „Hallgrímur er mér líka einkar hjartfólginn. Annars vegar vegna þess boðskapar sem hann flytur okkur og hins vegar fyrir það hve mikið stórskáld hann er og meistari íslenskrar tungu,“ segir hún. „Mér er það £ bernskuminni að ömmurnar mínar báðar höfðu Passíusálmana á nátt- borðinu hjá sér og ég met mik- ils að vera falið að lesa þá, því þeir standa hjarta mínu nærri,“ segir hún að siðustu. GÆGST inn um glugga úr myrkrinu utan við Menntaskól- ann í Reykjavík. Nemendur í þriðja bekk sátu enn yfir skóla- bókunum á mánudaginn þó að klukkan væri orðin sex og áttu þá klukkutíma kennslu eftir og svo kvöldgönguna heim. Ástæðan er húsnæðisskortur skólans. Ragnheiður Torfadóttir rektor segir að áratugum sam- an hafi verið beðið eftir ný- byggingu ofan við gamla skólahúsið. Nemendur í MR eru 946, en færri komast að en vilja. „Aðsókn að skólanum er mikil, og við þurfum að vísu mörgum frá, en við reynum að taka eins marga og við frek- ast getum. Þess vegna er kennsla frá átta á morgana til klukkan sjö á kvöldin," segir Ragnheiður. Grundartangi Vantar mat á fleiri valkostum UMHVERFISMATIÐ fyrir álverið á Grundartanga er gallað að mörgu leyti og stenst ekki þær kröfur sem gera á til umhverfismats. Sérstak- lega vantar mat á fleiri valkostum, bæði staðarvaii og tækni, eins og kveðið er á um í tilskipun Evrópu- bandalagsins og Esbo-samningnum. Þá virðist almenningur ekki hafa tekið þátt £ að gera umhverfismatið og ekki fengið tækifæri til að hafa áhrif á hvað metið var. Þetta kemur m.a. fram í greinar- gerð Högna Hanssonar, líffræðings og forstöðumanns hollustu- og heil- brigðiseftirlits í Landskrona í Sví- þjóð, en greinargerðin er úttekt á starfsháttum við gerð umhverfís- mats fyrir álverið á Grundartanga og var unnin að beiðni hreppsnefnd- ar Kjósarhrepps í byijun þessa árs. í greinargerðinni bendir Högni ennfremur á að aukin losun koltví- oxíðs sé í andstöðu við rammasamn- ing Sameinuðu þjóðanna um loft- slagsbreytingar og túlkun umhverf- isráðuneytisins á samningnum um hið gagnstæða sé óskiljanleg. Einnig segir í greinargerðinni að útblástur brennisteinstvíoxíðs frá fyrirhuguðu álveri á Grundartanga sé tuttugu sinnum meiri en frá álver- inu í Sundsvall í Svíþjóð og að minnsta kosti þijár hreinsiaðferðir séu til sem hefði átt að meta tækni- lega og fjárhagslega, en engin þeirra valdi sjávarmengun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.