Morgunblaðið - 22.01.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.01.1997, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR _ Kvótakerfið oguppgjöf stj ómmálanna ÞÚ þarft ekki að vera hræddur Denni minn. Stjáni er búinn að setja slökkvikerfið í gang og svo heldur Dóri voða fast utan um hana . . . Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir GÍFURLEGT fannfergi safnaðist saman á skömmum tíma í Siglufirði í síðustu viku og fram að helgi. Snjórinn hjaðnaði nokkuð á sunnudag en aftur bættist við samdægurs. Hættuástandi af- lýst á Seyðisfirði HÆTTUÁSTANDI vegna snjóflóða var aflýst á Seyðisfirði í gær. Hall- grímur Jónsson snjóathugunarmað- ur fór í könnunarferð í gærmorgun og aftur síðdegis og mat að hættan væri liðin hjá. „Útlitið er gott núna. Snjórinn hefur sigið og sest og það er því ekki sama los í honum og var.“ Hallgrímur segist þó ætla að fylgjast með áfram og fara í eftir- litsferðir á hveijum degi. Við- bragðsástandi hefur verið aflýst bæði á Siglufirði og í Neskaupstað. Svanbjörg Jóhannsdóttir, starfs- maður snjóflóðadeildar Veðurstofu, segir að hvergi sé lengur hættu- ástand vegna snjóflóða. „Það fór í suðvestanátt eftir að skilin fóru yfir og rigning varð minni en á horfðist. Horfumar em einnig góð- ar á næstunni." Þijú allstór snjóflóð og nokkur smærri féllu í Siglufirði um síðast- liðna helgi. Flóðin féllu austan meg- in í firðinum og inni í Skútudal en engin byggð er á þessu svæði og ollu flóðin því ekki tjóni. Austan- og norðaustanátt hafði verið ríkj- andi og átti sér stað mikil snjósöfn- un austanmegin í Siglufirði. 3-400 metra breitt flekahlaup Nyrst í Nesskriðum, útundir Siglunesi, féll stórt flekahlaup um 3-400 metra breitt. Það átti upptök sín uppi í fjallsbrún í um 500 metra hæð og féll það alveg niður í sjó, þríklofið þar. Þetta átti sér stað um klukkan þijú síðastliðinn sunnudag og urðu margir vitni að þessu. Að sögn sjónarvotta var þama um mik- ið sjónarspil að ræða þar sem feikn- arlegt snjókóf þyrlaðist upp og flóð- bylgja reis upp er snjóflóðið náði niður í sjó, en bylgjan hjaðnaði fljótt aftur. Fornar en óáreiðanlegar sagnir herma að þessu sama svæði hafi orðið eitt mannskæðasta snjóflóð hér á landi á 15. eða 16. öld er um 50 Siglfirðingar fórust í snjóflóði á leið til messu á Siglunesi. Annað snjóflóð féll um svipað leyti á sunnudag sunnan við Hest- skarð í Pallahnjúp og var það svip- aðs eðlis og hitt flóðið en minna í sniðum. Einnig féllu þijú snjófljóð úr austanverðri Hólshymu inni í Skútudal. Orsökuðust þau flóð af miklum skafrenningi uppi á fjalls- brúninni og voru þetta svokölluð votflóð. Ekki er lengur talin hætta á snjóflóðum í Siglufirði þar sem talsvert hefur rignt og snjórinn því hjaðnað og bundist betur. Verðlaun nýsköpunarsjóðs stúdenta Geta nýtt sér námið við vinnu Haraldur Guðni EiAsson ÝSKÖPUNAR- SJÓÐUR náms- manna var stofn- aður árið 1992 að frum- kvæði námsmanna og er sjóðurinn á íjárlögum. Að sögn Haraldar Guðna Eiðs- sonar, umsjónarmanns sjóðsins, voru 25,5 milljónir kr. í sjóðnum síðastliðið sumar, þegar veittir voru styrkir úr honum, 15 millj- ónir frá ríkinu, tíu milljónir frá Reykjavíkurborg og 500 þúsund krónur frá Garðabæ. „Námsmenn eru mjög ánægðir með þann áhuga sem yfirvöld hafa sýnt starfsemi sjóðsins," segir Haraldur Guðni. 130 verkefni styrkt Styrkir em veittir úr nýsköpunarsjóði á hveiju vori í tengslum við sumarvinnu náms- manna á sviði nýsköpunar sem tengist námi þeirra. Síðastliðið vor voru 130 verkefni styrkt með framlögum úr sjóðnum. Umsóknarfrestur um styrk á þessu ári er til 10. mars næst- komandi. Á síðasta ári var tekin upp sú nýbreytni að verðlauna sér- staklega þá sem þykja ná fram- úrskarandi árangri í verkefni sem styrkt er af nýsköpunar- sjóði. Um er að ræða heiðurs- skjal sem forseti íslands veitir. Nefnd á vegum sjóðsins vinnur þessa dagana að því að tilnefna 5-10 verkefni til verðlaunanna, sem veitt verða á Bessastöðum 1. febrúar næstkomandi. Metnaðarfullar rannsóknir - Eru úthlutanir úr sjóðnum bundnar við nemendur íHáskóla íslands? „Nei, þetta er sjóður sem styrkir fyrirtæki, stofnanir, há- skólakennara eða aðra sem hafa sérþekkingu á viðkomandi rann- sóknarsviði. Markmiðið sjóðsins er samt að fyrirtæki og stofnan- ir geti ráðið til sín nemendur á háskólastigi yfir sumartímann, svo þeir öðlist reynslu á fræði- sviði sínu og taki þátt í nýsköp- un í atvinnulífinu. Mikill fjöldi námsmanna hefur fengið að vinna að metnaðarfullum rann- sóknum á sínu fræðisviði fyrir tilstuðlan sjóðsins. Frumkvæði námsmanna skiptir miklu máli, en umsóknir hafa verið frá miklum fjölda fyrirtækja, stofnana og einnig frá fulltrúum allra deilda Háskóla ís- lands.“ - Hvaða kröfur eru gerðar til þeirra sem fá styrki úr sjóðnum? „Helstu skilyrði fyr- ir styrkveitingu að verkefni feli í sér nýsköpun á fræðasviði og/eða fyrir atvinnulífið. Einnig er eitt af skilyrðum að námsenn vinni sjálfstætt." Yfir 300 umsóknir um styrki úr sjóðnum á síðasta ári - Er sjóðurinn vel kynntur meðal námsmanna og fyrir- tækja? „Umsóknirnar vantar í það minnsta ekki. Ég held að sjóður- inn sé nokkuð vel kynntur með- al nemenda, stofnana og fyrir- tækja, en enn frekara kynning- arstarf er fyrirhugað á næst- ►HARALDUR Guðni Eiðsson er umsjónarmaður nýsköp- unarsjóðs námsmanna, sem veitt hefur styrki frá árinu 1992. Hann fæddist í Reykja- vík 24. maí 1972 og lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólan- um við Sund árið 1992. Sama haust hóf hann nám í heim- speki við Háskóla íslands, en tók sér ársfrí 1994 og hélt þá til Montpellier í Frakklandi þar sem hann lærði frönsku. Haustið 1995 tók hann aftur upp þráðinn í háskólanámi og hefur siðan stundað nám í viðskiptafræði við HÍ. Harald- ur Guðni hefur setið í stjórn Röskvu og á nú sæti i stúd- entaráði fyrir Röskvu. unni. Á síðasta ári var nýsköp- unarsjóður námsmanna sérstak- lega kynntur fyrir forsvars- mönnum Háskólans á Akureyri, Kennaraháskóla íslands, Sam- vinnuháskólanum að Bifröst og Tækniskólanum. Sú kynning skilaði sér meðal annars í því að nokkur fjöldi umsókna barst frá þessum skólum strax síðast- liðið vor o g fengu verkefni þaðan styrki.“ - Hversu margar umsóknir um styrki berast nýsköpunar- sjóðnum að jafnaði á ári? „Þeim fjölgar með hveiju ár- inu. Á síðasta ári bárust alls 330 umsóknir um styrki og var það talsverð aukning frá árinu áður, en þá voru þær um 260 talsins." - Hversu háir eru þessir styrkir? „Við miðum við að geta greitt náms- mönnum laun fyrir sumarvinnu sína og getur hver stúdent fengið allt að þriggja mánaða launum. Með- alkostnaður sjóðsins við greidd mánaðarlaun er um 82 þúsund krónur, sem er miklu minna en sambærilegur kostnaður ýmissa sveitarfélaga við hefðbundin átaksverkefni í atvinnumálum skólafólks." - „Hverjir eru duglegastir að sækja um styrki úr sjóðnum? „Hingað til hafa nemendur í verkfræði- og raunvísindadeild- um átt flestar umsóknirnar en nemendur og kennarar úr öðrum deildum eru að gera sér grein fyrir þeim möguleikum sem styrkveitingar úr sjóðnum bjóða upp á.“ Miðaðvið að námsmenn fáí laun fyrir sumarvinnu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.