Morgunblaðið - 22.01.1997, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.01.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 19 Harðir skjálftar íKína TVEIR öflugir jarðskjálftar skóku vestustu héruð Kína, Xinjiang, með tveggja mínútna millibili í gær. Biðu að minnsta kosti 12 manns bana, 27 slös- uðust alvarlega og mörg hundruð urðu heimilislaus. Fyrri skjálftinn mældist 6,4 stig á richters-kvarða en sá seinni 6,3 stig. íbúi í borginni Jiashi sagði kippina hafa verið það kröftuga, að fólk hefði hnotið við eða hreinlega dottið. GIA herðir á hryðjuverkum ANTAR Zouabri, leiðtogi her- skárra samtaka ofsatrúar- manna í Alsír (GIA), sagði í gær, að samtökin ráðgerðu að herða á hryðjuverkahernaði sínum það sem eftir lifir föstu- mánaðarins Ramadan, sem hófst 10. janúar. 42 létust af völdum bílsprengju GIA í Al- geirsborg sl. sunnudag og hafa þá 150 týnt lífi af völdum hermdarverka í Alsír á 10 dög- um. Afstýrðu stórslysi TYRKNESKA lögreglan af- tengdi öfluga sprengju á Sirkeci-lestarstöðinni í Istanb- úl í fyrrakvöld, um hálfri klukkustund áður en hún átti að springa. Var hún í tösku sem skilin var eftir við hrað- banka. Árvökulir vegfarendur tóku eftir henni og gerðu lög- reglu viðvart. í sprengjunni voru 10 kíló af TNT-sprengi- efni og hefði mikill harmleikur átt sér stað hefði hún sprung- ið því mikil umferð er um stöð- ina á þeim tíma sem kveikju- búnaður sprengjunnar var stilltur á. Sigri hrós- andi í Súdan JOHN Garang, leiðtogi upp- reisnarmanna í Súdan, hélt því fram í gær, að sveitir hans hefðu fellt 300 stjórnarher- menn í bardaga suður af borg- inni Damazin í austurhluta landsins á sunnudag. Fregnin um bardagann fékkst ekki staðfest og heldur ekki fregn um bardaga á sunnudag milli uppreisnarmanna sunnar í landinu við al-Keili þar sem 150 stjórnarhermenn voru sagðir hafa fallið. Lofa að hækka ekki tekjuskatt BRESKI Verkamannaflokkur- inn hét því í gær, að tekjuskatt- ar yrðu ekki hækkaðir kæmist flokkurinn til valda í næstu þingkosningum. Stjómmála- skýrendur sögðu það engu skipta því flokkurinn gæti auk- ið tekjur ríkisins með alls kyns sköttum öðrum. Gæti hann til að mynda hróflað við um 200 afsláttum og undanþágum hvers konar í tekjuskatts- kerfínu. Á óvart þótti koma, að flokkurinn hét jafnframt, að halda sig við útgjaldamörk næstu tveggja fjárlagaára, sem stjórn íhaldsflokksins hefði þegar markað. ERLEIMT_______________ Kínverjar hafna gagnrýni Pattens Ætla að breyta þegnréttindalögum 1 Hong Kong Peking. Reuter. KÍNVERJAR höfnuðu í gær gagn- rýni Chris Pattens, landstjóra í Hong Kong, vegna áforma þeirra um að afnema lög um kosningar og þegnréttindi í Hong Kong eftir að breska nýlendan verður aftur hluti af Kína 1. júlí. Þeir sögðu þetta innanríkismál Kínveija. „Við getum ekki fallist á svokall- aða yfírlýsingu Pattens," sagði tals- maður kínverska utanríkisráðu- neytisins, Shen Guofang, og kvaðst vilja minna Breta á að stjórn kín- verska kommúnistaflokksins væri öflugri en stjórn Kína fyrir bylting- una árið 1949. „Við getum ekki sætt okkur við að önnur ríki reyni að segja okkur fyrir verkum.“ Mannréttindi skert Patten hafði gagnrýnt þá ákvörð- un nefndar, sem Kínverjar hafa skipað, að leggja til að 25 lögum og lagagreinum yrði breytt eftir að breska nýlendan verður hluti af Kína. Shen sagði að nefndin hefði fullt umboð til að meta hvort lög nýlendunnar samræmdust stjórn- lögum, sem Kínverjar hafa samið fyrir Hong Kong. „Þetta er aðeins innanríkismál Kínveija," sagði hann. Patten sagði áformin skerða mannréttindi íbúa Hong Kong en Shen kvað breytingarnar ekki eins miklar og landstjórinn léti í veðri vaka. Hann hvatti Patten til að reyna ekki að „villa um fyrir íbúum Hong Kong“ og valda óánægju meðal þeirra. Á meðal þeirra laga, sem Kínveij- ar hyggjast breyta eða afnema, eru lög um þegnréttindi, kosningalög- gjöf frá árinu 1992, auk laga sem heimila stofnun stjórnmálaflokka og friðsamleg mótmæli. Nicotinell 'M-, Gott bragð til að hætta að reykja! Nú er komið nýtt, ferskt og betra bragð í baráttunni við reykingarávanann; Nicotinell nikótíntyggjó. Ferska bragðið í Nicotinell nikótíntyggjóinu er einmitt bragðið sem þú þarft til þess að hætta að reykja. Nicotinell hefur sömu eiginleika og venju- legt tyggjó og fæst bæði með ávaxta- og pipar- myntubragði. Komdu í næsta apótek og fáðu bækling um það hvernig Nicotinell tyggjóið hjálpar þér best í baráttunni við tóbakið! Tyggðu frá þér tóbakið með Nicotinell! Nicotim munnlnum c tyggia lleiri aukavi konur meó fylgiseðli si hjálparefni til þess að hætta reykingum. Aðeins má nota lyfið ef reykingum er hætt. Paö inniheldur nikótín sem losnar úr því þegar tuggið er, I jegar reykingum er hætt. Tyggja skal eitt stykki í einu, hægt og rólega, til að vinna gegn reykingaþörl. Skammtur er einstaklingsbundinn e að nota lytið lengur en 11 ár. Nicotinell fæst með ávaxta- og piparmyntubragði og í 2 styrkleikum, 2 mg og 4 mg. Nikótlnlð i Nicotinell getur valdið og hlksta. Elnnig ertingu I meltingarfærum. Börn yngrl en 15 ára mega ekki nota Nlcotinell tyggigúmmí án samráðs við lækni. Bamshafa—1- Sjúktlngar meö hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota Nicotinell án þess að ráðfæra sig við lækni, Lesa skal vandlega lei Varúð - Geyma skal lyflð þar sem börn r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.