Morgunblaðið - 22.01.1997, Page 40

Morgunblaðið - 22.01.1997, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI GUÐMUNDUR J. GUÐMUNDSSON EINHVERN veginn finnst mér ekki nóg að biðja hlutafélagið Póst og síma fyrir hvers- dagslegt símskeyti til Guðmundar J. Guð- mundssonar á sjötugs- afmæii hans. Hann rís undir meiru og á það skilið frá minni hendi. Mér fannst aldarfjórð- ungur langur tími í kjarasamningum og vinnudeilum, þótt ég vissi ekki, sem betur fór, að ég var á Kleppi, fyrr en ég slapp út. Tvö- falt lengur stóð Guðmundur J. í eldl- ínunni og hélt sönsum allan tímann, að svo miklu leyti sem það er unnt á þeim vettvangi. Geri aðrir betur. Reykjavíkurborg hefur löngum verið langstærsti vinnuveitandi Verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Mikil voru því samskipti mín árin sem ég hafði með höndum samn- ingamál borgarinnar við forystu- menn Dagsbrúnar. Mig rámar í eitt- hvert pólitískt nagg þegar ég var að byija í kjaramálunum og líklega höfum við Guðmundur umgengizt hvor annan með varúð í upphafi. Það breyttist fljótt. Af minni hálfu réð úrslitum í því efni, að ég fann og lærði af reynslu, að þessum manni var unnt að treysta hvernig sem á stóð. Hann stóð fast, fastar en aðrir, á hagsmunum síns fólks, en þegar hann hafði sagt eitthvað eða samþykkt þá var öruggt að það stóð hvað sem á gekk. Orð hans á tveggja manna tali úti í horni undir morgun voru mér meira virði en margur samningurinn, undirritaður, vottaður og stimplaður á löggiltan skjalapappír. Ég reyndi hann aldrei að öðru en heiðarleika og drengskap. Verkföll eru afleit aðferð til að leysa vinnudeilur, en þannig fór því miður um margar þeirra. Þá ríður á að að gera ekki erfið mál verri en þau þurfa að vera. Ég þakka það góðum samskiptum við Guðmund J. og úrvalsmenn sem Dagsbrún átti hjá Reykjavíkurborg, að framkvæmd verkfalla hjá borginni fór aldrei úr böndum eða út j einhveija vit- leysu. I hita leiksins gátum við Guðmundur alltaf talað saman og með árunum komum við okkur upp leikregl- um, sem hittu kannski ekki á alla lagabók- stafi, en urðu til þess að aldrei var níðzt á þeim sem brýnt var að fá þjónustu borgarinn- ar. Mikilvæg voru þau málefni sem við Guð- mundur glímdum við og um þau var fjallað af alvöru. Samt á ég eftir að nefna það sem mér finnst mest gam- an að rifja upp. Það er ánægjan og skemmtunin sem við fengum út úr þessu samstarfi, þrátt fyrir allt. Vik- ur og mánuðir á dag- og næturlöng- um samningafundum reyna á menn, líkamlega og ekki síður andlega. Slíka þrásetu nefndum við stundum skotgrafirnar þegar ekkert gerðist langtímum saman. Þá er ómetanlegt að hafa skemmtilega menn nálægt sér. Ég átti til að ruglast í því hvar víglínan lá og lifði margar nætur á neftóbaki og skemmtisögum frá Jak- anum. Hann getur verið snillingur í munnlegri frásögn, minnugur og næmur á gott söguefni, einkum það skemmtilega. Ýmsa fundi, á borgar- skrifstofunum og víðar hófum við Guðmundur á því að segja sögur, yfirleitt af léttara tagi. Gæti ég trú- að að öðrum fundarmönnum hafi stundum þótt léttúðin fullmikil, en þeim var líka skemmt og þegar til verka var gengið, vannst betur í góðu andrúmslofti. Mér þykir gott að Guðmundur skuli loksins hafa ákveðið að kasta mæðinni eftir óguðlegan árafjölda í argaþrasinu. Vona ég hann njóti þess með konu sinni, Elínu Torfadóttur, sem er stórbrotin persóna ekki síður en maður hennar. Lifðu heill, Guð- mundur minn, og þið bæði, vel og lengi. Hjartanlegar hamingjuóskir. Magnús Óskarsson. Morgunblaðið/Arnór SVEITIN Júlli stóð sig vel í Reykjavíkurmótinu í sveitakeppni sem lauk um helgina. Sveitin spilaði til úrslita um Reykjavíkur- meistaratitilinn en hittu þar ofjarla sína, sveit Landsbréfa sem vann úrslitaleikinn með nokkrum mun. Silfurliðið var skipað eftir- töldum spilurum, talið frá vinstri: Jakob Kristinsson, Stefán Jó- hannsson, Hrannar Erlingsson, Júlíus Sigurjónsson, Hermann Lárusson og Ólafur Lárusson. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Sveit Sigfúsar Þórðarsonar vann Suðurlandsmótið SUÐURLANDSMÓT í sveita- keppni 1997 var spilað á Hótel Flúð- um 17.-18. janúar sl., með þátttöku 10 sveita. Eftir harða baráttu stóð sveit Sigfúsar Þórðarsonar uppi sem sigurvegari. Hlaut sveitin 181 stig. Með Sigfúsi spiluðu Auðunn Her- mannsson, Brynjólfur Gestsson, Guðmundur Theódórsson og Gunnar Þórðarson: í 2. sæti varð sveit Kristjáns Más Gunnarssonar, með 174 stig. Með Kristjáni spiluðu Helgi Grétar Helgason, Björn Snorrason og Guð- jón Einarsson. Þriðja varð sveit Byggingavara Steinars með 169 stig. Sveitina skipuðu Ólafur Steina- son, Ríkharður Sverrisson, Gísli Þór- arinsson og Þórður Sigurðsson. Mótið var einnig reiknað í fjölsveita- útreikningi. Fimm efstu pör urðu: Sigfús Þórðarson - Gunnar Þórðarson 19,47 stig. Sigfús Þórðarson - Biynjólfur Gestsson 18,47 st. Guðjón Einarsson - Bjöm Snorrason 18,07 st. Siguijón Karlsson - Heimir Hálfdanarson 17,33 st. Aðalsteinn Sveinsson - Sverrir Þórðarson 17,24 st. Keppnisstjóri og reiknimeistari var Stefán Jóhannsson og stjórnaði hann mótinu óaðfinnanlega. Bridsfélag Reykjavíkur Aðalsveitakeppni Bridsfélags Reykjavíkur hefst nk. miðvikudags- kvöld og stendur 6 næstu miðviku- dagskvöld. Spilafyrirkomulag mun ráðsta f fjölda sveita. Spil verða for- gefin og reiknaður út árangur para. Að sveitakeppninni lokinni eða 5. marz hefst þriggja kvölda Butler, þar sem tvö hæstu spilakvöldin telja. Aðaltvímenningur félagsins hefst svo 9. apríl og stendur til vertíðar- loka 14. maí. IDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is Þakkir til alþingismanns ÉG VIL þakka Guðmundi Hallvarðssyni, alþingis- manni, fyrir áhuga hans á málefnum aldraðra og góð- ar tillögur hans í þeirra málum, t.d. nú síðast tillaga um umboðsmann Aiþingis. Kannski erum við búin að finna mann sem fólkið get- ur sameinast um og gefið honum aðhald til góðra verka, því lítið fær einn maður áorkað í „sirkusn- um“ en með okkar aðstoð ætti það að vera hægt. Skúli Einarsson, Tunguseli 4, Rvik. Osmekkleg ummæli ÉG HEF ekki tekið afstöðu í Langholtskirkjudeilunni svokallaðri, enda utan þeirrar sóknar. Ummæli Jóns Stefánssonar í sjón- varpinu nýlega voru væg- ast sagt ósmekkleg: „Vandamálið er farið," sagði hann. Og í DV 20. janúar sagði hann: „Frið- arspillirinn er farinn. Sá sem olli ófriðnum er far- inn.“ Þessi ummæli teljast varla kristileg en lýsa ef til vill innri manni organ- istans. Þegar ég sá nýja sóknarprestinn í sjónvarp- inu virtist hann hlýlegur og nærgætinn og ég fór að hugsa um að fara í kirkju til hans. Eftir ofan- greind ummæli organist- ans mun ég hugsa mig tvisvar um. Bima G. Bjamleifsdóttir. Tapað/fundið Dúnúlpa tapaðist BLÁ dúnúlpa tapaðist í Sundlaug Kópavogs 14. eða 15. janúar. Skilvís finnandi hafi samband í síma 554-2258 eða í Sundlaug Kópavogs í síma 554-1299. Trefill tapaðist GRÁR, breiður og langur trefill tapaðist við Faxafen, rétt við Bónus, föstudaginn 17. janúar. Skilvís finnandi vinsamlegast hafið sam- band í síma 551-9093. Stálúr fannst KVENMANN SÚR úr stáli með svartri ól fannst fimmtudaginn 16. janúar á Dunhaga. Upplýsingar í síma 552-3281. Kuldaskór fannst BLÁR barnaleðurkulda- skór nr. 26 fannst við Hey- dalsvegamót sunnanverð á Snæfellsnesi 19. janúar. Nánari upplýsingar 564-2599. Kvenúr fannst KVENÚR fannst við Tjarnargötu á fimmtudag 16. janúar. Upplýsingar í síma 553-5112. Seðlaveski tapaðist UNGUR piltur tapaði seðla- veski sínu laugardaginn 18. janúar, líklega á Bláflalia; svæði eða við Rauðalæk. í veskinu voru um 5.000 krónur og mynd af pabba hans. Skilvís finnandi vin- samlega hringið í síma 553-9762 eða 898-4321. Gleraugu töpuðust GYLLT lítil kvenmanns- gleraugu töpuðust 11. jan- úar sl. á leiðinni frá Frosta- fold 20 í Selvogsgrunn. Skilvís finnandi er vinsam- lega beðinn að hringja í síma 588-7801 eða 555-4688. Dýrahald Angórukisa hvarf KOLSVöRT angórulæða, frekar stygg, hvarf á fimmtudagsmorgun frá Njálsgötu 40b. Fólk er beð- ið um að líta í kringum sig og athuga hvort það verði vart við kisu, því hún er stygg og fer ekki inn í hús. Uppl. í síma 552-5243 eftir kl. 16.30. Trýna er týnd! FREKAR lítil, grábröndótt læða, merkt með rauðu spjaldi á svartri ól, hvarf sporlaust af heimili sínu, Skipasundi 44, sl. laugar- dag. Allar upplýsingar varðandi örlög hennar þegnar í síma 553-4870. HÖGNIIIREKKVÍSI COSPER BORÐAÐU súpuna þína svo þú verðir stór og sterkur eins og mamma. Víkveiji skrifar... AÐ ER engin furða að menn velti því fyrir sér þessar vik- urnar hvort við séum að upplifa einstaka undantekningu að því er varðar vetur á Islandi, eða hvort veðurfar hér á og við ísanna land sé eitthvað að mildast og breytast, a.m.k. sunnanlands og á suðvestur- horninu. Víkveiji man ekki eftir öðrum eins desember- og janúar- mánuði og þessum. En hvort sem veðurfar er að breytast eða þetta sé ánægjulega undantekningin frá reglunni er bara um að gera að njóta þessa ástands á meðan það varir. Að vísu var komin snjóföl í höfuðborginni á mánudagsmorgun, og í gærmorgun var alhvít jörð hér í Reykjavík, en þegar menn eru orðnir blíðunni svo vanir sem nú, reikna sjálfsagt fæstir með því að snjórinn sé kominn til að vera. xxx ENNILEGA er Víkveiji í hópi dyggustu aðdáenda Spaug- stofumanna og við endurkomu þeirra á skjáinn á laugardagskvöld- um nú í janúar hefur engin breyting orðið þar á. Satt best að segja er það afar hressandi að fá atburði liðinnar viku í spéspegli Enn einnar stöðvarinnar. Á laugardagskvöldið sviku þeir félagar ekki frekar en fyrri daginn. Vegna deilna Stöðvar 2 og Stöðvar 3 voru öll málefni Stöðvarinnar orðin að lögreglumál- um og félagarnir Geiri og Grani voru orðnir fréttaþulir. Ekki dró úr gamninu þegar Pálmi Gestsson brá sér á sinn hátt í gervi Steingríms Hermannssonar og lýsti skoðunum hans á því hvar staðsetja beri ál- ver, að sjálfsögðu á Keilisnesi, en ekki í Hvalfirði. Fíkniefnalögreglan fékk sinn skammt af gráu gamni, þegar lögreglumennirnir gáfu út byssuleyfi handa dópistanum, svo hann færi nú að lögum með byssu- eign sína og Brimborg fékk sinn skammt vegna auglýsinga sinna um Fislétta fjármögnun og hafði nú hlotið nafnið Brambolt! xxx AÐ eru mikil umskipti til hins betra, að fá Enn eina stöðina aftur inn í stofu til sín á laugardags- kvöldum og vera laus við hinn mjög svo mislukkaða þátt „Örninn er sestur". Raunar telur Víkverji að Spaugstofumenn geri það að verk- um, að það sé ekki jafn óþolandi og ella að þurfa að reiða af hendi skylduáskriftargjald að útvarpi og sjónvarpi. XXX TÓRTENÓRINN Luciano Pava- rotti yljaði sjónvarpsáhorfend- um um hjartarætur og gladdi eyru þeirra síðdegis á sunnudag, þegar Ríkissjónvarpið sýndi upptöku frá tónleikum í Ferrara á Ítalíu. Tenór- inn söng við undirleik Evrópsku kammerhljómsveitarinnar undir stjórn Claudio Abbado. Víkveija varð hugsað til fregna heimspress- unnar, sem að undanförnu hefur látið í veðri vaka að rödd Pavarott- is væri að gefa sig og væri ekki söm og áður. Víkveiji er ekki sér- fróður á þessu sviði, en hvað sem líður sögusögnum um að rödd stór- söngvarans sé að gefa sig, gat Vík- veiji í engu greint það og hafði hina mestu ánægju af söng hans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.