Morgunblaðið - 22.01.1997, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.01.1997, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997____________________ MINNINGAR t Konan mín og móðir okkar, ÁSA ÞORLEIFSDÓTTIR PARNEURS frá Bolunarvík, lést á sjúkrahúsi í Eskilstuna í Svíþjóð. Gunnar Parneurs, Thorleif Parneurs, Ulla Parneurs Rosenberg og aðrir vandamenn. t (slandsvinurinn OTTO SIGURD CHRISTENSEN, Lærkevej 1, Kaupmannahöfn, lést á heimili sínu mánudaginn 20. janúar sl. Marteinn Kristinsson, Kristín Jónsdóttir — Hafliði Jónsson, Jónheiður Níelsdóttir, Njálsgötu 1. t Bróðir minn, ELLERT LEIFUR THEÓDÓRSSON, Síðumúla 21, síðast búsettur íHátúni 10B, lést mánudaginn 20. janúar. Soffía Bjarnrún Theódórsdóttir. t Ástkær sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur og afi, SIGURBERGUR ÞÓRARINSSON, Birkihlíð 4a, Hafnarfirði, lést á heimili sínu aðfaranótt 20. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðrún Sigurbergsdóttir, Anna Jóm'na Sigurbergsdóttir, Sigurður Kristjánsson, Þórarinn Sigurbergsson, Rosalia Moro Rodriguez, Einey Þórarinsdóttir, Hjalti Þórðarson og barnabörn. t Faðir minn, afi og langafi, PÁLL EINAR ÁSMUNDSSON, elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður Grundarstig 11, er lést mánudaginn 20. janúar sl., verð- ur jarðsunginn frá Árbæjarkirkju föstu- daginn 24. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Ragnheiðu t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN SIGURÐSSON húsasmiður, sem lést á Sólvangi, Hafnarfirði, 18. janúar sl., verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn 24. janúar kl. 15.00. Karólína Kristinsdóttir, Þórður Ben Sveinsson, Sigríður Kristinsdóttir, Sæmundur Gunnarsson, Kolbrún Kristinsdóttir, Engilbert Ó.H. Snorrason, Birgir Kristinsson, Katrín Gunnarsdóttir, barnabörn og barnbarnabörn. Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI SIGURÐSSON, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, sem lést mánudaginn 13. janúar, verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum laugardaginn 25. janúar kl. 14.00. Lilja Árnadóttir, Sigurbergur Guðnason, barnabörn og barnabarnabörn. SÆUNN JÓFRÍÐUR * * JOHANNESDOTTIR + Sæunn Jófríður Jóhannesdóttir fæddist í Reykjavík 18. febrúar 1908. Hún lést 14. janúar síðastliðinn, á 89. aldursári á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Foreldrar Sæunnar voru þau Málfríður Ólafs- dóttir, f. á Álftanesi og Jóhannes Krist- jánsson, f. í Borgar- firði. Sæunn var fjórða í röð sjö systkina og er eitt þeirra enn á lífi, Björgvin Jó- hannesson, f. 1914. Sæunn giftist Þorsteini Arn- berg Guðna Ásbjörnssyni, prentara, 1. júní 1929. Varð þeim átta barna auðið og lifa sex þeirra móður sína. Þau eru Jó- hannes, kvæntur Amalíu Magnús- dóttur, Helga gift- ist Friðrik Guðna- syni er Iést 1983, Guðni Arnberg, kvæntur Hallgerði Þórðardóttur, Mál- fríður Ólína, gift Matthíasi Einars- syni, Steini Sævar, kvæntur Hjördísi Alfreðsdóttur og Árni Hreiðar, kvæntur Guðnýju Sigurðardóttur. Afkomendur Sæunnar og Þorsteins eru nú sjötíu talsins. Útför Sæunnar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin kukkan 15. í dag fer fram frá Fossvogs- kirkju útför tengdamóður minnar, Sæunnar Jófríðar Jóhannesdóttur, eða Unnu eins og hún var oft nefnd. Sæunn bjó mest allan búskap sinn í Reykjavík, að undanskildum nokkrum árum í Kópavogi. Ég kynntist henni árið 1968, er ég fluttist inn á heimili þeirra Steina á Óðinsgötu, en við bjuggum fyrstu búskaparár okkar í kjallaranum þar. Hafði þar verið útbúin lítil íbúð sem átti oft eftir að koma að góðum notum, hvort heldur var fyrir okkur eða önnur börn þeirra. Sæunn pass- aði oft bamabörnin og ekki síst dætur mínar, en þær eiga margar góðar minningar um ömmu sína sem þær geyma í hjarta sínu. Sæunn var mikil hannyrðakona og bar heimili hennar þess merki. Prýddu þar veggi útsaumaðar myndir af íslenskum fossum og ýmsu öðru, listavel gerðir útsaum- aðir stólar og margt fleira. Þá var Sæunn einkar lagin pijónakona og voru það ófáar stundir er hún sat við prjónavélina og prjónaði skjól- góð föt á börn og barnabörn. Sæ- unn var mikið fyrir tónlist og spil- aði á orgelið á heimilinu. Hún hafði mikið yndi af bæði orgel- og harm- onikkutónlist, enda var mikið spilað á heimilinu, og endurspeglast sá t Jarðarför elskulegrar móður okkar og tengdamóður, VILBORGAR SIGURÐARDÓTTUR, Blöndubakka 1, Reykjavík, áöurtil heimilis á Gilsbakkavegi 5, Akureyri, ferfram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 24. janúar kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeir, sem vildu minnast hinn- ar látnu, láti líknarstofnanir njóta þess. Rósa Pálsdóttir, Eiríkur Eiríksson, Margrét Pálsdóttir, Helgi Þórðarson, Sigríður G. Pálsdóttir, Svanur Karlsson, Álfhildur Pálsdóttir, Bárður Halldórsson. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÞORGEIRSDÓTTIR, áðurtil heimilis í Hvassaleiti 28, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 23. janúar kl. 13.30. Edda Hólmfrfður Lúðviksdóttir, Sigurður Vignir Sigurðsson, Valdemar Loftur Lúðviksson, Helga Svdinsdóttir, Þórir Lúðvíksson, Anna Margeirsdóttir, Ólavia Stefania Lúðvíksdóttir, Gunnlaugur Þór Hauksson, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför ástkærs sonar okkar og föður, ÞORSTEINS FRIÐRIKSSONAR frá Hálsi, Dalvík, sem lést á Akureyri laugardaginn 18. janúar, fer fram frá Möðruvalla- kirkju í Hörgárdal laugardaginn 25. janúar kl. 14.00. Friðrik Magnússon, Guðrún Þorsteinsdóttir, Arnar Þorsteinsson, Guðrún Björk Þorsteinsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ áhugi í ýmsum afkomendum henn- ar, en tveir synir hennar og sonar- dóttir eru gott tónlistarfólk. Alltaf var gott að koma upp og fá sér kleinur, flatkökur og nýbak- aðar kökur, en hún átti ávallt eitt- hvað ljúffengt til sem hún hafði nýlokið við að baka. Árið 1971 lést Þorsteinn og var það mikið áfall fyrir Sæunni, þar sem þau voru mjög samrýnd. Sæunn bjó síðustu ár ævi sinnar á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, og vil ég færa starfsfólkinu þar þakkir fyrir. Elsku Sæunn mín, ég þakka þér fyrir allar okkar samverustundir í gegnum árin. Blessuð sé minning þín. Mig langar að kveðja þig með sálmi Matthíasar Jochumssonar: Villist ég vinum frá vegmóður einn, köld nóttin kringum mig, koddi minn steinn, heilög skal heimvon mín. Hærra, minn Guð, til þín, hærra til þín. Árla ég aftur ris ungur af beð. Guðs hús á grýttri braut glaður ég hleð. Hver og ein hörmung min hefur mig, Guð, til þín, hærra, minn Guð, til'þín, hærra til þín. (MJoch.) Guðný Sigurðardóttir. Nú er komið að kveðjustund, amma okkar, hún Sæunn, er látin. Hún lést á Elli- og hjúkrunarheimil- inu Grund hinn 14. janúar sl. Við munum sakna þín sárt, en elsku amma, við vitum að þér líður vel þar sem þú ert af því að þú ert loks hjá honum afa. Þegar þú bjóst á Oðinsgötunni fórstu stundum með okkur í vinnuna, þá vannst þú í prentsmiðjunni. Það var alltaf svo gott að koma til þín, elsku amma. Alltaf frá því að við munum eft- ir okkur varst þú hjá okkur um jólin. Þegar þú komst heim til okk- ar fórst þú að hjálpa okkur að setja á rúmin, síðan fórstu í græna stól- inn hans afa, fékkst þér sæti og við sátum hjá þér. Við munum allt- af þau orð sem þú sagðir við okkur þegar við systurnar sváfum heima hjá þér allar þtjár á dýnu á gólf- inu, eftir að þú varst búin að spila fyrir okkur á orgelið þitt: „Góða nótt og megi Guð geyma ykkur,“ og kysstir okkur á ennið. Það virð- ist ekki langt síðan, en þó eru liðin 15 ár. Við vitum að þér finnst gott að fá hvíldina þína, nú ertu komin á betri stað og þín bíða önnur verk- efni. Viljum við votta pabba, Guðna, Steina, Jóa, Helgu, Fríðu og fjöl- skyldum dýpstu samúð okkar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Helga Sæunn, Katrín og Steinunn Árnadætur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.