Morgunblaðið - 22.01.1997, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 22.01.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 49 i J J > I I ) . I 4 4 ■J I 4 í 4 4 4 4 4 ; 4 4 4 4 4 MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJONVARP * Ageng mynd sem kemur á óvart Fresh(T>es/i)___________________ D r a m a ★ ★ Leikstjórn og handrit: Boaz Yakin. Framleiðendur: Lawrence Bender og Randy Ostrow. Kvikmyndataka: Adam Holender. Tónlist: Stewart Copeland. Aðalhlutverk: Sean Nel- son, Giancarlo Esposito, Samuel L. Jackson. 115 mín. Bandarísk. Lumi- ere/Háskólabíó. 1995. Bönnuð börnum innan 16 ára. rpRESH er tólf ára bráðskarpur strákur sem reynir að fóta sig í hinum harða heimi fátæktar, eiturlyfjasölu og blóðsúthellinga í Bandaríkjunum. Vegna með- fæddra hæfileika sinna hefur hon- um tekist að temja sér vel það sem þarf til þess að vera góður eitur- íyfjasali og þegar fengið það orð á sig fyrir að vera upprennandi eiturlyfjabarón. Vegna þessarar iðju hefur hann þurft að þroskast hratt og á litla samleið með jafn- öldrum sínum sem enn ráða ekki við önnur viðskipti en að skiptast á íþróttamyndum. Á meðan þeir deila um hver sé sterkasta ofur- hetjan teflir Fresh þar að auki ýmist upp á peninga eða við föður sinn (Samuel L. Jackson), sem í gegnum skáklistina leggur honum öllu heilbrigðari lífsreglur en hann lærir af umhverfi sínu. Þannig reynir faðirinn að leiða hann úr freistni eiturlyfjasölunnar og sýna honum að lífsfyllingin felst ekki einvörðungu í peningum. Um- hverfíð hefur hins vegar kennt honum að ekkert sé eðlilegra en að vinna fyrir sér með sölu eitur- lyija. Þegar stelpan sem Fresh er hrifinn af verður fyrir skoti frá einum af hinum kaldrifjuðu eitur- lyfjasölum sem hann stundar við- skipti við opnast loks augu hans. Hann leggur því á ráðin við að hefna fyrir morðið og um leið koma helstu eiturlyfjabarónum hverfisins fyrir kattarnef en til þess þarf hann að beita allri sinni visku. í Fresh eru dregnar upp alláhri- faríkar myndir af ömurlegu lífí ungs fólks í fátækrahverfum vest- anhafs en þau áhrif eru hins veg- ar ekki nægilega mikil til þess að gera myndina eins áhugaverða og efni hennar býður upp á. Myndin fer vel af stað og tekst leikstjóran- um Yakin að skapa henni rauns- annan blæ. Þegar fram líða stund- ir fellur hann þó í þá gryfju að reyna heldur að fanga athyglina með hefðbundnum bíóhasar. Þrátt fyrir fáeina galla er Fresh í heild athyglisverð og ágeng mynd sem kemur á óvart. Skarphéðinn Guðmundsson BÍÓIIM í BORGINIMI Arna/c/ur Indriðason/Sæbjöm Valdimarsson BÍÓBORGIN KRINGLUBÍÓ Kvennaklúbburínn ★ kVi I hefndarhug ★ ★V2 Lausnargjaldið kkk Lausnargjaldið ★★★ BIossi kVi Moil Flanders ★★ Hríngjarinn íNotre Dame kkk LAUGARÁSBÍÓ SAMBÍÓIN Eldfim ást ★ ★ ÁLFABAKKA Flótti ★★ Ógleymanlegt k'/i Jólahasar ★★ Lausnargjaldið kkk Svanaprinsessan ★ ★ Jack kkVi REGNBOGINN Djöflaeyjan kkkVi Banvæn bráðavakt ★ ★ V2 Saga af morðingja k k Slá í gegn ★ ★ ★V2 Gullgrafararnir k'h Jólahasar ★ ★ Gulleyja Prúðuleikaranna ★ Reykur ★★★'/2 HÁSKÓLABÍÓ Einstimi ★ ★ ★V2 Leyndarmál og lygar ★ ★ ★ ★ Svanaprinsessan ★★ Pörupiltar ★ ★ STJÖRNUBÍÓ Brímbrot ★ ★ ★'A RuglukoIIar ★ ★ Hamsun ★ ★ ★ Matthildurk ★ ★ Drekahjarta ★★ Djöflaeyjan ★★★V2 Gosi ★ ★ . Ast í felum Af hundum og köttum (The Truth About Cats and Dogs) Ganianmyiid ★ ★ 95 mín. Bandarísk. 20th Century Fox/Skífan 1996. Leikstjóri: Mich- ael Lehmann. Handrit: Audrey Wells. Kvikmyndataka: Robert Brinkmann. Tónlist: Howard Shore. Aðalhlutverk: Uma Thur- man, Janeane Garofalo og Ben Chaplin. BANDARÍKIN á tuttugustu öld. Janeane Garofalo leikur dýra- lækninn Abby sem er bæði gáfuð og skemmtiieg, en ... vaxtarlagið er ekki_ sem skyldi; hún er lítil og þybb- in. í gegnum útvarpsþátt þar sem hún gefur dýraeigendum góð ráð, kynnist hún bráðmyndalegum ung- um ljósmyndara (Ben Chaplin), sem vill hitta hana. Áf hræðslu við að vera hafnað vegna útlitsins sendir hún nágrannakonu sína á stefnumót- ið. Það er háa og heimska blondínan Noelle, leikin af Umu Thurman. Nú hefjast mikii vandræði, því auðvitað verður ungi maðurinn ástfanginn af huga dýralæknisins en útliti blondín- unnar. En óttist ekkert; allt endar betur en í frönsku miðaldasögunni um Cyrano de Bergerac, þaðan sem hugmyndin er fengin. Þetta er rómantísk gamanmynd með léttum farsatöktum þar sem allar aðstæður eru heldur ýktar. Þetta á einnig við persónurnar sjálf- ar, sem auk þess eru ekki nýjar af nálinni í kvikmyndum. Uma Thur- man er hálfálkuleg og passar þannig vel í sitt hlutverk, þrátt fyrir að gam- anleikur sé varla hennar sterkasta hlið. Sem heimska blondínan á hún erfitt með að velja milli einu góðu vinkonunnar, sem hún hefur eignast, og þess að njóta athygli út á fegurð- ina eins og hún hefur alltaf gert. Abby er heilsteyptasta og dýpsta persóna myndarinnar, og smeliur nýliðinn Janeane Garofalo alveg inn í hlutverkið. (Það kæmi mér ekki á óvart að hún líktist handritshöfund- inum.) Hinn snoppufríði Ben Chaplin er líka fínn sem góða og sæta bó- hemtýpan sem verður yfir sig ást- fanginn, og mjög sár er hann kemst að því að hér er ekkert nýtt á ferð- inni, en myndin er vel gerð og alit gengur upp. Ég mæli eindregið með henni fyrir rómantíska unglinga, og svei mér ef fjölskyldan, örbylgju- poppið og gosið gætu ekki átt góða stund saman fyrir framan sjónvarpið með þessa mynd í tækinu. Hildur Loftsdóttir Mjúki maðurinn Stepford eiginmennirnir (The Stepford Husbands)________ D r a m a V2 Leikstjóri: Fred Walton. Handrit: Ken og Jim Wheat. Aðalhlutverk: Donna Mills, Michael Ontkean, Louise Fletcher. 98 mín. Bandarísk. ABC/Stjörnubíó. 1996. ÞAÐ er nokkuð áhugavert að íhuga þær breytingar sem orðið hafa á samskiptum kynjanna undanfarna áratugi og virðist það vera ætlunar- verk þessarar sjónvarpsmyndar að velta upp nýstáriegum fleti á þeirri umræðu. Myndin fjallar um hjón sem eiga í erfiðleikum með að stilla sam- an strengi. Þau ákveða því að flytja til smábæjarins Stepford og hefja þar nýtt líf fjarri skarkala stórborg- arlífsins. Þau komast fljótt að því að samskipti kynjanna eru með besta móti í hinum nýju heimkynnum og eru eiginmennirnir þar mun skiln- ingsríkari og samvinnuþýðari við eiginkonur sínar en gengur og ger- ist. Kemur í Ijós að því sé að þakka hæli sem starfrækt er þar um slóðir sér- staklega ætlað til þess að betrum- bæta karlmenn, gera þá að hinum mjúku mönnum. Samlyndi hjónanna batnar lítið við komuna til Stepford og er eiginkon- unni ráðlagt að senda mann sinn á kraftaverkahælið, sem hún og gerir. Það er eins og við manninn mælt, hann kemur heim af hælinu, nýr og betri maður en eiginkonan kemst að raun um að galli sé á gjöf Njarðar. Það er nokkuð óljóst hvert verið er að fara með söguþræði þessum. Handritshöfundarnir (sem eru karl- menn) virðast vera að reyna að benda á hinar dökku hliðar á stöðu nútímakvenna og þær ósanngjörnu kröfur sem þær gera til karlmanna. Þessi hugmynd hefði í sjáifu sér getað orðið efni í ágætis háðsádeilu en hér eru efnistökin öll önnur og klaufalegri. Framreiðslan er svo há- tíðleg, máttlaus og silkimjúk að ádeilubroddinn er hvergi að finna**r Ekki bætir úr skák að þrátt fyrir fagmannlegan leik hinna þaulreyndu sjónvarpsmyndaleikara eru tilþrif þeirra lítil sem engin og fer brátt að læðast að manni sá grunur að Louise Fletcher hafi hreinlega skemmt feril sinn með stórleiknum sem hún sýndi sem hin illræmda Rached í Gaukshreiðrinu forðum. Hún hefur í það minnsta vart fengið öðruvísi hlutverk síðan. Það er er í raun óljóst hvort mynd þessari sé ætlað að vera beitt ádeila eða saklaus skemmtun og kannski er það einna helst þess vegna sem hún er hvorugt. Skarphéðinn Guðmundsson AMERÍSK RÚM OG DÝIUUR Geföu "gormur á gorm" kerfinu gaum. Það þýöir að gormastellið í undirdýnunni er eins og hið vandaða stell i yfirdýnunni. I raun sefur þú á tveimur dýnum og hryggsúlan er bein í svefninum. Þetta er ekki neitt smáatriði, því undirdýnan vinnur raunverulega 60°/o af hlutverki dýnanna. 0(t itœlt en- dtt áratigun Frábært úrval af tré- og járnrúmum SUÐURLANDSBRAUT 22 S.: 553 6011 & 553 7100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.