Morgunblaðið - 11.02.1997, Qupperneq 1
96 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
34. TBL. 85. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bílsprengja og skotárás í Madrid og Granada
ETA grunuð um morðin
Malaga. Morgunblaðid.
DOMARI við hæstarétt Spánar var
skotinn til bana fyrir utan heimili
sitt í miðborg Madrid í gær. Fyrr
um daginn hafði bílsprengja
sprungið í miðborg Granada í suð-
urhluta landsins. Seint í gærkvöldi
hafði enginn lýst yfir ábyrgð á
ódæðisverkum þessum en spænsk
stjórnvöld sögðust sannfærð um að
aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA,
hefði verið þar að verki.
Talið er að tveir ungir menn
hafi skotið dómarann, Rafael Mart-
inez Emperador. Hann var skotinn
í höfuðið af stuttu færi og lést
skömmu síðar. Talsmenn lögreglu
sögðu skothylki sem fannst á morð-
staðnum vera þeirrar tegundar sem
hryðjuverkamenn ETA nota. For-
seti hæstaréttar Spánar sagði í yfir-
lýsingu í gærkvöldi að tilræðið
væri „árás á réttarríkið í landinu".
Sprengja, sem komið hafði verið
fyrir í bifreið í miðborg Granada,
sprakk í gærmorgun með þeim af-
leiðingum að einn óbreyttur borgari
lést og þrír særðust. Þótt enginn
hafi lýst yfír ábyrgð á tilræði þessu
beinist grunurinn að ETA.
Ekki er ljóst hvernig grimmdar-
verk þessi tengjast dauða eins af
leiðtogum Baska, Eugenio Aran-
buru, sem fannst látinn á heimili
sínu í gær, skömmu áður en hann
átti að mæta fyrir rétti. Yfirvöld
sögðu hann hafa framið sjálfs-
morð.
Þótt nokkuð hafi dregið úr
hryðjuverkastarfsemi ETA á und-
anförnum misserum þykja tilræðin
í gær sanna að samtökin séu enn
fær um að skipuleggja stórvægileg
grimmdarverk. Þá hefur aukin
spenna þótt einkenna samskipti
Herri Batasuna, hins pólitíska arms
ETA, og spænskra stjórnvalda að
undanförnu. Sögðu fréttaskýrendur
að voðaverkin í gær yrðu til þess
að auka enn frekar á spennuna og
sögðu gærdaginn „sérlega dimm-
an“ i þessu tilliti.
t Reuter
ÖFLUG bílsprengja sprakk í miðborg Granada í Andalúsíu-hér-
aði á Spáni í gærmorgun og varð einum manni að bana.
Krefjast
betra
veðurs
ÍBÚAR norska smábæjarins
Hasvik í Finnmörku hafa fengið
nóg af vetrarhörkum og um
helgina gekk um fjórðungur
þeirra með spjöld á lofti og
krafðist betra veðurs. Fremst í
flokki fór snjóruðningstæki,
enda ekki vanþörf á í snjó-
þyngslunum sem hafa verið
með mesta móti í vetur.
Um 400 manns búa í Hasvik
og hefur veðrið í vetur gert
þeim lífið leitt og erfítt; flugvöll-
urinn hefur hvað eftir annað
lokast, svo og vegir til bæjar-
ins, feijan legið bundin við
bryggju og margir hafa neyðst
til að fara á skíðum til vinnu.
Dimmviðrið hefur verið svo
mikið að íbúarnir hafa ekki enn
séð til sólar, þrátt fyrir að hún
hefði átt að vera nógu hátt á
lofti til þess um miðjan janúar.
Því var ein af kröfum göngu-
manna: „Við krefjumst stærri
sólar eða þá tveggja lítilla."
Algengast var þó að sjá skilti
sem á stóð: „Við krefjumst
betra veðurs".
Sá sem fyrir göngunni stóð
segir hugmyndina svo heimsku-
lega að hún veki hlátur og þá
sé tilganginum náð. Bæjarbú-
um veiti ekki af auknu gríni
og glensi til að halda út illviðr-
ið, sem án efa mun skella á að
nýju.
Óttaststríð
vegna Kýpur
London. Reuter.
MALCOLM Rifkind, utanríkisráð-
herra Bretlands, kvaðst í gær telja
miklar líkur á því að til átaka kæmi
á milli Grikkja og Tyrkja vegna
deilna þjóðanna um Kýpur.
Rifkind lét þessi ummæli falla í
samtali við BBC. Sakaði hann grísk
og tyrknesk stjórnvöld um að hafa
ekki nægan pólitískan vilja til að
leysa málið. Spenna hefur aukist
mjög á eynni undanfamar vikur
vegna kaupa grískra Kýpurbúa á
rússneskum flugskeytum.
Reuter
ÆSTUR múgur í Vlore ræðst með grjótkasti gegn lögreglu sem getur litla björg sér veitt.
Fomebu
verstur í
Evrópu
FORNEBU í Ósló og flugvöllurinn í
Nice í Frakklandi eru hættulegustu
flugvellir í Evrópu, samkvæmt könn-
un IFALPA, alþjóðasamtaka flug-
manna. Þau senda árlega frá sér lista
með athugasemdum yfir flugvelli og
fær Fomebu-völlur þann dóm að
hann sé á meðal sautján hættuleg-
ustu flugvalla heims.
Athugasemdir flugmannanna
hljóða m.a. upp á að flugbrautir á
Fomebu séu of stuttar, erfítt sé að
leggja flugvélum sökum þrengsla,
ein flugbraut endi í skurði, með mikla
umferðargötu á aðra hönd og sjó á
hina, vegna hávaðareglna á svæðinu
verði að taka krappa beygju í flug-
taki og að bílastæðahús og sá hluti
flugstöðvarinnar sem alþjóðaflug fer
um skapi óþarfiega mikla ókyrrð í
lofti.
Til stendur að loka Fornebu og
færa flugumferð á Gardemoen-völl.
Mótmælendur ráðast á lögreglu í Albaníu
Átökin kosta
þrjá menn lífið
Vlore. Reuter.
TVEIR menn létu í gær lífíð í átökum
mótmælenda og lögreglu í hafn-
arborginni Vlore í Albaníu en einn
maður til viðbótar lést á sunnudag
í átökunum. Réðst æstur múgurinn
'að lögreglu og hrakti hana upp að
lögreglustöð borgarinnar þaðan sem
hún gat sig vart hrært.
Tugir manna hafa slasast í átök-
unum í Vlore, margir hafa orðið fyr-
ir steinum sem kastað er að lögreglu
en hún hefur skotið á fólkið með
gúmmíkúlum.
I gærkvöldi bað forsætisráðherra
landsins, Aleksander Meksi, þingið
að samþykkja beiðni sína um að
neyðarástandi yrði lýst yfir í Vlore,
og var fastlega búist við að honum
yrði að ósk sinni.
Flokksmenn forseta Albaníu, Sali
Berisha, hafa sakað mótmælendur
um „hryðjuverkastarfsemi". Fólkið
hafði staðið fyrir friðsamlegum mót-
mælum í Vlore í fímm daga, fordæmt
Berisha og krafist þess að stjórnvöld
greiddu þeim það sem tapast hefði
í fjárfestingum í svokölluðum píram-
ítafyrirtækjum, sem lofuðu fólki gulli
og grænum skógum en urðu svo
gjaldþrota.
Er lögregla reyndi að stöðva mót-
mælin réðst fólkið gegn henni með
gijótkasti og réðu lögreglumenn ekki
við neitt. Um 7.000 manns réðust
gegn um 100 lögreglumönnum og
króuðu hluta þeirra af. Voru þeir
barðir og rændir vopnum og einkenn-
isbúningum.
Simpson greiði
25 milljónir dala
á Monica. Reuter.
KVIÐDÓMUR í Santa
Monica í Kaliforníu
úrskurðaði í gær að
O.J. Simpson, sem
sakfelldur var fyrir
morð á fyrrverandi
eiginkonu sinni og
vini hennar í einka-
máli, sem höfðað var
á hendur honum,
skyldi greiða fjöl-
skyldum hinna látnu
25 milljónir dala í
miskabætur, en það
svarar til 1,75 millj-
arða ísl. kr.
Áður hafði sami
kviðdómur dæmt
voru dæmdar 12,5
milljónir dala, 875
milljónir, til viðbótar
og aðstandendum
Nicole Simpson ann-
að eins. Niðurstaða
kviðdómsins var ekki
einróma, einn var
mótfallinn þvi að
greiða föður Gold-
mans miskabætur og
tveir voru mótfalinir
upphæð miskabót-
anna, en saksóknari
hafði fullyrt að eign-
ir Simpsons næmu
Simpson til að greiða fjölskyldu
mannsins, Rons Goldmans, 8,5
milljónir dala. Fjölskyldu hans
Simpson hefur lýst því yfir að
hann muni áfrýja dóminum.
um 15 milljónum
dala.