Morgunblaðið - 11.02.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1997 19
ERLENT
Þjóðfylking Le Pens nær völdum í fjórða franska ráðhúsinu
Úrslitin vísbending
fyrir þingkosningar
ÞJÓÐFYLKING Jean-Maries Le Pens
náði völdum í fjórða franska ráðhús-
inu um helgina. í síðari umferð borg-
arstjórakosninga í bænum Vitrolles í
S-Frakklandi, sem fram fór á sunnu-
dag, hlaut frambjóðandi Þjóðfylking-
arinnar, Catherine Megret, hreinan
meirihluta atkvæða og sigraði þar
með fráfarandi borgarstjóra sósíal-
ista, Jean-Jacqeus Anglade. Hinn
nýkjömi borgarstjóri er 37 ára gömul
eiginkona Bmnos Megret, varafor-
manns flokks Le Pens.
Vitrolles er rúmlega 30.000 manna
bær rétt við hafnarborgina Marseille.
Niðurstöðu síðari umferðar kosning-
anna hafði verið beðið með eftirvænt-
ingu, þar sem hún þykir gefa vísbend-
ingu um hvemig Þjóðfylkingunni
muni vegna í næstu þingkosningum,
sem fara fram að ári.
Var vígi vinstrimanna
Megret, sem hlaut 52,48 af hundr-
aði atkvæða, var sigurstranglegasti
frambjóðandinn eftir fyrri umferðina,
þar sem hún hlaut tæp 47%. Tilraun-
ir forystumanna „stóm flokkanna" í
frönskum stjórnmálum til að hindra
kjör Megret mistókust. Leiðtogar
franskra sósíaiista reyndu sitt bezta
til að hjálpa Anglade á lokaspretti
kosningabaráttunnar, og frambjóð-
andi miðju-hægrimanna dró sig til
baka, en allt kom fyrir ekki.
Reuter
CATHERINE Megret, nýkjörinn borgarstjóri Vitrolles,
fagnar úrslitunum.
Vitrolles og héraðið í kring, þar
sem margar verkamannafjölskyldur
búa, var áður öruggt vígi flokkanna
lengst til vinstri, en Þjóðfylkingin
hefur á síðustu ámm notið æ meira
fylgis meðal íbúanna. í síðustu alls-
hetjarsveitarstjórnarkosningum í
Frakklandi í júní 1995 tóku Þjóðfylk-
ingarmenn við lyklavöldum ráðhús-
anna í nágrannasveitarfélagi Vitrol-
les, Marignane, sem og í borgunum
Toulon og Orange. Nú er talið lík-
legt, að flokkurinn muni ná nokkrum
þingsætum í næstu þingkosningum,
sem fara eiga fram í marz á næsta
ári.
Ert þú á aldrinum 14-18 ára?
Komdu í eitt ár í Den internationale
Efterskole í Danmörku
Nútíma kennsluaðferðir: Mikið um að vera, áhugaverð
námskeið, námsvinna á PC-tölvur, boðið upp á nám í ensku,
þýsku, frönsku og spönsku • Aðgangur að Interneti • Mikið
tómstundastarf: íþróttir, leiklist, listir, tónlist • Námsferðir t.d.
til Englands og Tyrklands • Við tökum við nemendum frá
Danmörku öðrum Norðurlöndum og Evrópulöndum *
Heimavist * Kynningarfundur á íslandi í 9. viku.
Hringið eða sendið símbréf til að fá nánari upplýsingar um
kynningarfundinn, mætingu og upplýsingaefni.
Den Internationale Efterskole af 26.6.96, Boserupvej 100, 4000
Roskilde.Telefax 00 46 324640 eða sími 00 46 320894.
Fasteignasalan Suöurveri ehf.
Stigahlíö 45-47, 105 Reykjavík
Sími 581 2040 Fax 581 4755
Fersk fasteignasala
Einar Örn Reynisson, Reynir Þorgrímsson,
Helgi Hákon Jónsson, viöskiptafr. og löggiltur fasteignasali.
6 frábær fyrirtæki
1. Framleiðsfyrirtæki fyrir sjávarútveg og byggingariðnað. Hentugt út á land.
2. Blómaverslun i verslunarmiðstöð. Húsnæði og reksturtil sölu.
3. Matsölu- og vínveitingahús til sölu I miðborginni.
Staður sem allir kannast við.
4. Pizza '67. Einn sá stærsti og vinsælasti. Miklir möguleikar fyirr duglegt fólk.
5. Hverfispöbb á frábærum í stað í fjölbýli.
Glæsilegur staður með góðan orðstír.
6. Verslunarhúsnæði til leigu. Einnig til sölu. Fyrir sjoppu, ísbúð, fiskbúð eða
pizzastað. Laust.
Mikið úrval af fyrirtækjum frá 1 millj. til 500 millj.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
Vegna breytinga á lagerhúsnæði seljum við
þessa vikuna takmarkað magn af ýmsum Siemens
heimilistækjum á sérstöku afsláttarverði.
Hláturtaugakitlandi oq skotsilfursparandi tilboð
á ýmsum eldunartækjum, kæliskápum, frystiskápum,
frystikistum, uppþvottavélum, þvottavélum, þurrkurum,
litlum raftækjum, sjónvarpstækjum, myndbandstækjum,
hljómtækjum, útvarpstækjum og símtækjum.
Jlfú geturðu gert uerulega qóð kauo.
Gríptu gæsina meðan hún gefst.
í Taktu sérstaklega e f tir þessu ij
Sprenqhlæqileqt verð á frvstikistum og kaffivál fylgir með í kaupbæti.
Allir þeir sem kaupa fyrir meira en 50.000 kr. lenda í potti.
Mánudaginn 17. febrúar verður dreginn út einn heppinn
vinninashafi og eignast hann alæsileqan Siemens þurrkara
(WT61000FG) að andvirði 63.500 kr.
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 511 3000
Láttu sjá þig. Við tökum vel á móti þér.