Morgunblaðið - 11.02.1997, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 11.02.1997, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓIMVARP Flúgandi ver- % ur og loftbólur * Heimildamyndin Undirdjúp Islands verður sýnd í Finnlandi í byrjun mars, en hún var tekin hérlendis í fyrra. Hildur Loftsdóttir ræddi við Maríu Sólrúnu Sigurðardóttur > um gerð myndarinnar. FINNSKI kvikmyndaframleiðandinn Marco Röhr kom til landsins í fyrra og sameinaði krafta sína íslensku kvikmyndasamsteypunni við gerð heimildamyndarinnar „Undirdjúp ís- lands“. Marco er mjög stór framleið- andi, og stóð að gerð „Vetrarstríðs- ins“, dýrustu myndar sem gerð hefur verið í Finnlandi. Einnig var hann meðframleiðandi stórmyndarinnar yJerúsalem“ eftir Billy August. A Islandi var hann hins vegar að leita að náttúrufegurð eins og fleiri sem hingað koma. Gerðu hann og tökul- iðið víðreist, og festu það á fílmu sem þeim þótti markvert í vötnum og við ** strendur íslands. María Sólrún Sigurðardóttir kvik- myndafræðingur var framkvæmda- stjóri myndarinnar. Hún er búsett í Berlín, en íslendingar kannast eflaust við stuttmyndir hennar. Þær eru nú orðnar þtjár, og sú síðasta „Tvær stelpur og stríð“ vann fyrstu verðlaun við stuttmyndahátíðina í Reykjavík, og hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar víða um heim. Áhætta að kvikmynda Geysi Þegar ákveðið var að gera sér- stakan þátt um köfunina á Þingvöll- um, tók María Sólrún að sér leik- stjóm og handritagerð þess þáttar. Hún stundar nú nám við handrita- akademíu í Berlín, og er jafnframt að þróa bæði bíómyndir og sjónvarps- þætti. Hún tók sér frí frá miklum önnum, og er hingað komin til að setja saman þáttinn. Litið var inn til Maríu, og hún beðin að segja frá þessu mikla ævintýri. „Þátturinn sem ég er að ljúka við er um gerð myndarinnar „Undirdjúp íslands“ þegar verið var að mynda í gjánum á Þingvöllum. Það er vafa- laust besta efni sem tökumennimir náðu í ferð sinni. Síðar var ákveðið að bæta inn í þáttinn köfunarleið- angri sem farinn var í Geysi. Þetta er í fýrsta skipti sem reynt er að kvikmynda Geysi að innan, og ansi mikil áhætta fólgin í því. Þegar kom- ið var á staðinn, gekk ekki upp að stjórna myndavélinni frá yfírborði Þú velur lonvll Súpu eða salal /UJalréll Léttsteiktan lambavöðva eða kjúklingabringu meö villisveppasósu eða fískfang dagsins eða grænmetislasagne mamsB — Ilnelumousse eða kal'fi og sætindi ÍOg auðvilað )___ (ballá eftir , Þriggjíi rctla Aldamótaverð kr. 2000 Borðapantanir sími 551-9636 Morgunblaðið/Ásdís MARIA og Steingrímur Karlsson kafa í Undirdjúp Islands. jarðar, eins og ákveðið hafði verið. Þá var gripið til þess ráðs að senda tökumann ofan í Geysi. Til öryggis var hannaður sérstakur hitaþolinn búningur, og þeir náðu myndunum sem þeir vildu.“ Heill heimur í vatninu Tökuliðið býr yfir einum besta ljósabúnaði sem til er í Evrópu. Hann er hannaður í samráði við ljósahönn- uð sem hlaut óskarsverðlaun fyrir lýsingu myndarinnar „The Abyss". Þeir fóru með þennan ljósabúnað niður í gjárnar, og myndimar urðu alveg ótrúlega fallegar. Finnunum fannst í fyrstu lítið til gjánna koma, en álit þeirra breyttist fljótt þegar þeir voru kpmir ofan í þær. „Fólk á íslandi veit ekki að það er heilan heim að fínna í vatninu undir hrauninu við Þingvallavatn. Almannagjá bliknar í samanburði við gjárnar sem eru þar undir. Þar er hægt er að kafa niður á 45 metra dýpi, og vatnið er með því tærasta sem finnst í heiminum. Það er svo tært að lítill sólargeisli sem nær að skína gegnum þröngar rifumar helst alveg heill niður á botn. Á myndunum líkjast því kafaramir svífandi verum í tunglslandslagi. Það eina sem sann- ar að þeir séu að synda eru loftból- umar sem koma frá þeim. Framköll- unarfyrirtækið hringdi sérstaklega til íslands, því starfsmennirnir trúðu ekki sínum eigin augum!“ Stuttmyndir ekki síður vinna Handrit myndarinnar „Undirdjúp íslands" er unnið með Guðmundi Páli Ólafssyni, sem hefur skrifað margar bækur um náttúru íslands. María kom svo hugmyndum hans yfír í kvikmyndahandrit. Lokaútgáf- an af lesna textanum í myndinni er skrifaður af fínnska skáldinu Antti Tuuri, sem m.a. hefur fengið bók- menntaverðlaun Norðurlandaráðs. Njörður P. Njarðvík mun snúa þeim texta fyrir íslensku útgáfuna. María er framkvæmdastjóri heim- ildamyndar í fyrsta sinn, og mætti halda að það sé erfítt að fara úr leikn- um stuttmyndum yfír í svona viðam- ikið verk. María sagði að svo væri ekki; „Það vill oft misskiljast að það sé lítil vinna á bakvið stuttmyndir. Það er alveg sama forvinnan, mikið stress við tökumar og eftirvinnan fer eins fram. í rauninni er reynsluþrep- ið þarna á milli ekki eins stórt og hægt er að ímynda sér. Þetta var þó ólík reynsla, og margt skemmtilegt kom upp á. Hingað kom hópur af fínnskum kraftakörlum, og eru átta af þeim kafarar úr björgun- arsveit slökkviliðsins í Helsinki. Þetta voru stórir karlar, sem komu í mars, og hlógu mikið að varfæmi íslend- inga í sambandi við veður og nátt- úm, en þeir áttu eftir að kynnast henni nánar. Þegar þeir fóm hringinn í kringum landið var Jón Hinrik Garðarsson leiðangursstjóri, og Karl Gunnars- son, sjávarlíffræðingur, stjómandi fræðilegu hliðarinnar. Þeir lentu í miklum snjóstormi á Vestfjörðum, og þá lækkaði rostinn í fínnsku töff- urunum. Þeir voru auðvitað með öll réttu tækin og tólin, og í rétta fatn- aðinum, en þegar átti að bregðast rétt við, þá vom það nú Islendingarn- ir sem vissu hvernig átti að snúa sér. Þeir sögðu það svo seinna í gamni að þetta hefði verið í eina skiptið sem hinn rólegi og yfírvegaði Karl Gunnarsson fór úr sunnudags- skónum í gúmmistígvélin! Einnig breyttist sýn þeirra á land- ið, þegar þeir komust að því að það er allt á hreyfingu. Á vissu tímabili höfðu þeir tekið sér frí frá köfun á Þingvöllum. Þegar þeir komu svo til- baka hafði allt breyst ofan í gjánum; það hafði hmnið ofan í op sem þeir vom vanir að synda um, og mikið hmn á stóm gijóti almennt. Þá fóm þeir að átta sig á nálægð þessara náttúruafla sem þeir þekkja ekki í Finnlandi." „Undirdjúp íslands" er klukkutíma löng mynd, og verður hún fmmsýnd í Finnlandi í byijun marsmánaðar. Hins vegar er enn óljóst hvenær við íslendingar fáum að njóta dýrðarinn- ar, og einnig hvort það verður í sjón- varpi eða í kvikmyndahúsi. Finnarnir taka nefnilega allt á hágæðafilmu, og verður því breiðtjaldsútgáfa gerð af myndinni. Þetta em eflaust með bestu neðansjávarmyndum sem tekn- ar hafa verið hér við land og þess vegna ærin ástæða til að hlakka til. BÍÓIN í BORGINNI BÍÓBORGIN Að lifa Picasso •k-k'k Höfundar nokkurra bestu mynda síð- ari ár skortir eldmóð í kvikmynda- gerð um meistara Picasso, en Hopk- ins kemur til bjargar með enn einum stórleik (á köflum). Lausnargjaldið kkk Gibson leikur auðkýfíng sem lendir í því að syni hans er rænt. Snýr dæminu við og leggur lausnarféð til höfuðs skálkunum. Gibsonmynd í góðum gír. Ævintýraflakkarinn k'A Sjá Kringlubíó. Kona klerksins k Sykursætt og vellulegt fjölskyldu- drama frá sápudeild Draunaverk- smiðjunnar. Hringjarinn íNotre Dame kkk Vönduð, falleg fjölskyldumynd byggð á hinni sígildu sögu um tilvist- arkreppu kroppinbaksins í Frúar- kirkju. Litlaus tónlist og framvinda en snjöll, íslensk talsetning. SAMBÍÓIN ÁLFABAKKA Ærsiadraugar k k'A Góðar brellur og brandarar en ís- lendingum ætti ekki að bregða við Hollívúddslæðinginn. Fox og Al- varado standa sig bærilega. Sonur forsetans kk Lumma um forsetasoninn og vin hans í lífverðinum sem losar um hann í einangrun Hvíta hússins. Sinbad á einn hrós skilið og fellur vel í kramið hjá smáfólkinu. Ævintýraflakkarinn k. Sjá Kringlubíó. Dagsljós kk'h Þegar sprenging verður í neðansjáv- argöngum með hroðalegum afleið- ingum, mætir okkar maður, Stallone, á staðinn. Og óþarft að spyija að leikslokum. Kona kierksins k Sjá Kringlubíó. Djöfiaeyjan kkk'A Friðrik Þór, Einar Kárason, óað- finnanlegur leikhópur og leiktjalda- smiður og reyndar allir sem tengjast Djöflaeyjunni leggjast á eitt að gera hana að einni bestu mynd ársins. Endursköpun braggalífsins er í senn fyndin, sorgleg og dramatísk. HÁSKÓLABÍÓ Meðeigandinn kk Svolítið lunkin gamanmynd um stöðu kpnunnar í fjármálaheimi New York. Áttundi dagurinn k k'A Heimar sakleysis og veraldar- mennsku skarast í ljúfri og einkar vel leikinni, belgískri mynd sem minnir mjög á Regnmanninn. Dagsljós kk'A (Sjá Sambíóin, Álfabakka). Leyndarmál og lygar kkkk Meistaraverk frá Mike Leigh um mannleg samskipti, gleði og sorgir og undarlegar uppákomur í lífí bresks almúgafólks. Pörupiltar kk Fjórir vinir verða fyrir hroðalegri lífs- reynslu í æsku. Stekkur áfram um nokkur ár, tími hefndarinnar rennur upp - og nær sér ekki aftur á strik. Brimbrot kkk'A Besta mynd Lars Von Triers fyallar um nútíma píslarvott í afskekktu og þröngsýnu samfélagi. Myndin er á sinn hátt kraftaverk þar sem stór- kostlegan leik Emely Watson ber langhæst. KRINGLUBÍÓ Ævintýraflakkarinn k'A McCauley Culkin verður að teikni- myndafígúru og kynnist klassískum ævintýrum. Lausnargjaldið (Sjá Bíóborgin) Kvennaklúbburinn kk'A Þrjár góðar gamanleikkonur, Hawn, Keaton og Midler, fara á kostum sem konur sem hefna sín á fyrrum eigin- mönnum. / straffi k Yfírdrifín gamanmynd um krakka sem loka foreldra sína niðri ! kjallara í von um að þau nái saman á ný. / hefndarhug kk'A Baldwin nær góðum tökum á leyni- löggu í gloppóttri sakamálamynd sem gerist niður í New Orleans. LAUGARÁSBÍÓ Koss dauðans kkk'A Geena Davis og Samuel L. Jackson fara á kostum í frábærri hasarmynd frá Renny Harlin. Samantekin ráð kk Stelpurnar í hverfmu taka uppá að ræna banka og haga sér nákvæm- lega eins og strákarnir í hverfínu. Flótti kk Aldrei beint leiðinleg hringavitleysa þar sem leikstjórinn Kevin Hooks nýtir sér flestar klisjur „félagamynd- anna“ án þess að bæta miklu við tegundina. REGNBOGINN Blár í framan kkk Framhald Reyks stendur forvera sín- um lítið að baki í „Svona er Brook- lyn í dag“. Banvæn bráðavakt k k'A Haganlega samansett, lítil spennu- mynd sem skilur fátt eftir en er góð og fagmannleg. Slá í gegn k k k'A Reykur kkk'A Einfaldleiki og góð sögumennska einkenna eina bestu mynd síðari ára og gera hana að listaverki þar sem Harvey Keitel hefur aldrei verið betri en tóbakssölumaður „á horninu" í New York. STJÖRNUBÍÓ Tvö andlit spegils kk'A Það stormar af Streisand í róm- antískri gamanmynd sem tekur sig fullalvarlega þegar líða tekur á. Jeff á í engum vandræðum með mjúka manninn. Ruglukollar kk Skólamyndir teknar á beinið af öðr- um Zuckerbræðra, útkoman mjög léttvæg fundin.. Matthildur kkk Frábær kvikmyndagerð um hina undursamlegu Matthildi, ógeðslega lélega foreldra hennar og skólastjór- ann Frenju - sem hatar böm sér- staklega. Djöflaeyjan k k k'A Sjá Sambíóin, Álfabakka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.