Morgunblaðið - 11.02.1997, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Vinnueftirlit ríkisins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Össur ritstjóri
Alþýðublaðsins
ÖSSUR Skarphéðinsson alþingis-
maður hefur verið ráðinn ritstjóri
Alþýðublaðsins frá og með degin-
um í dag, um óákveðinn tíma.
í fréttatilkynningu frá Fijálsri
fjölmiðlun, sem á meirihluta í
hinni nýju Alþýðublaðsútgáfu,
segir að með því að nýtt fyrirtæki
taki við rekstri blaðsins og nýr
ritstjóri sé ráðinn sé gerð úrslitat-
ilraun til að tryggja útgáfugrund-
völl Alþýðublaðsins, en árangur-
inn verði metinn á hausti kom-
anda.
Össur Skarphéðinsson hefur
starfað við ýmsa
fjölmiðla. Meðal
annars var hann
ritstjóri Þjóðvilj-
ans 1984-1987.
í fréttatil-
kynningunni
kemur fram að
Össur segist
ganga glaður að
verki, enda eigi
Alþýðúblaðið
sér glæsta sogu
og mikilvægt sé að kappkosta að
halda merki þess á lofti.
Össur Skarp-
héðinsson
Morgunblaðið/Golli
FLUGLEIÐIR efndu á sunnudag til 60 ára afmælissýningar Flugfé-
lags Akureyrar, Flugfélags Islands, Loftleiða og Flugleiða. Meðal
annars voru sýndir flugfreyjubúningar frá ýmsum tímabilum.
Flugleiðir með nýjung á alnetinu
Fyrsta ferða-
uppboðið
FLUGLEIÐIR hf. efna nú til ferða-
uppboðs á alnetinu. Á vef Flugleiða
gefst almenningi kostur á að bjóða
í fyrirfram ákveðnar ferðir til
þriggja áfangastaða erlendis; Falst-
urs í Danmörku, Halifax í Kanada
og Lúxemborgar. Þetta er fyrsta
ferðauppboð í heimi, sem fer fram
á alnetinu.
í frétt frá Flugleiðum segir að
uppboðið fari þannig fram að sett
sé fram ákveðið lágmarksverð, sem
sé talsvert lægra en boðið sé á al-
mennum markaði. Þátttakendum
gefist síðan tækifæri á að bjóða i
ferðirnar, og sá hreppi ferð sem
býður hæst. Hver einstaklingur
megi bjóða eins oft og hann vill og
hann geti einnig boðið fyrir hönd
hóps, sem ætlar að ferðast saman.
Flugleiðir segja þetta í fyrsta
sinn, sem efnt sé til slíks uppboðs
á alnetinu í heiminum. Áður hafi
Flugleiðir haft sætauppboð á net-
inu. Þá hafi verið hægt að bjóða í
sæti en nú sé boðið í heilan ferða-
pakka, þar sem flugfargjald, gist-
ing, fararstjórn og fleira sé innifal-
ið. „Aldrei hefur slíkt verið í boði
áður á Internetinu og völdu Flug-
leiðir ísland sem fyrsta markaðinn
sem fengi slíka þjónustu," segir í
fréttatilkynningu.
Netfang Flugleiða er
http://www.Icelandair.is.
Banna sog-
lagnir í heit-
um pottum
VINNUEFTIRLIT ríkisins hefur
ákveðið að banna tafarlaust sog-
lagnir og lokabúnað í opi botn-
lagna í heitum pottum sem einung-
is er gerður til inndælingar.
Við rannsókn Vinnueftirlitsins
á alvarlegu atviki, þegar stúlka
festi hár sitt í lokabúnaði botnrás-
ar í heitum potti í Suðurbæjarlaug
í Hafnarfirði, kom í ljós að búnað-
urinn var af þessari gerð. Vinnu-
eftirlitið fyrirskipar notkun ristar
eða hliðstæðs búnaðar í stað loka.
Vinnueftirlitið hefur vegna atviks-
ins í Hafnarfirði ákveðið að gert
verði sérstakt átak í skoðunum á
sundstöðum á næstu dögum.
I fréttatilkynningu frá Vinnu-
eftirlitinu kemur fram að lokabún-
aðurinn sé þannig gerður að hár
geti orðið fast í honum, sérstak-
lega ef sog er á viðkomandi lögn.
Talsverð hætta er einnig talin á
að hár festist í sams konar búnaði
á innrennslislögnum þegar dæling
fer ekki fram.
Vinnueftirlitið hefur einnig
ákveðið að öll innrennslisop skuli
BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR
fyrir WINDOWS
Einföld lausn á
flóknum málum
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
www.treknet.is/throun
KorlooPlast
KORK-gólfflfsar
með vinyl-plast áferð
Kork.o-Plast:
/ 20 gerðum
Kork O Floor
er ekkert annad en
hið viðurkennda
Kork O Plast, límt á
þéttpressaðar
viðartrefjaplötur,
kantar með nót og gróp.
UNDIfíLAGSKORK IÞREMUR ÞYKKTUM.
VEGGTÖFLUKORKPLÖTURIÞREMUR ÞYKKTUM.
KORK-PAP.KETT, VENJULEGTITVEIMUR ÞYKKTUM.
y t>. ÞORGRÍMSSON &CO
rÍf&Æl AflMUlA 29 • PÓSTHOLF 8360 • 128 REYKJAVIK
m J SIMI 553 8640 568 6100
PCI lím og fúguefiii
ilis ■á
Stórliöfða 17, við GulJinbrú,
sími 567 4844
- kjarni málsins!
útbúin þannig að ef inndæling
stöðvast skuli einstreymisloki vera
í rásinni sem tryggir að ekki geti
orðið bakstreymi í henni og jafn-
framt verði innrennsliskerfið búið
aðvörunarbúnaði fyrir laugarvörð
ef inndæling stöðvast.
Átak í skoðunum á sundstöðum
er þegar hafið í Reykjavík og ná-
grenni. Á landinu öllu er um 150
sundstaði að ræða og hefur verið
sent dreifibréf til þeirra með fyrir-
mælum um úrbætur og tæknilegar
útfærslur.
í fréttatilkynningunni segir að
um nokkurt skeið hafi starfað
nefnd að því að endurskoða reglur
um öryggi á sundstöðum og á því
starfi að vera lokið fyrir árslok
1997. „Við rannsókn atviksins í
Suðurbæjarlaug komu einnig fram
nokkrir aðrir þættir varðandi al-
mennt öryggi og telur Vinnueftir-
lit ríkisins eðlilegt að nefndin taki
eftirfarandi til umljöllunar:
1. Herða eftirlit með að börn
undir leyfílegum aldri (nú 8 ára)
séu á sundstöðum án fylgdar full-
orðinna.
2. Atvikið varð við köfun í heit-
um potti. Skoða þarf hvort ekki
ætti að banna slíkt.
3. Taka þarf afstöðu til skyldu-
notkunar á sundhettum.
4. Við heita potta getur orðið
veruleg gufumyndun í köldu veðri
sem takmarkað getur eftirlit með
gestum. Taka þarf til umfjöllunar
hvort bæta þurfi eftirlit."
Hljómflutn-
ingstæki gef-
in í hátíðarsal
Háskólans
Háskóla íslands voru í gær færð
að gjöf ný hljómflutningstæki í
hátíðarsal skólans. Þau verða svo
formlega tekin í notkun á mið-
vikudagskvöld, þegar námskeiðið
„Meistarar barokksins í ítalskri
og þýskri tónlist" hefst, en þar
er leiðbeinandi Ingólfur Guð-
brandsson, tónlistarmaður og for-
stjóri. Myndin var tekin við af-
hendinguna. Saveinbjörn Björns-
son háskólarektor tók við gjöfinni
og fulltrúar gefenda eru; Einar
S. Einarsson, Visa íslandi, Þorgeir
Baldursson, Prentsmiðjunni Odda
hf., Þorkell Sigurlaugsson, Eim-
skip hf., Birgir Skaftason, Japis
hf., og Ingólfur Guðbrandsson,
Heimsklúbbi Ingólfs. Sjötti gef-
andinn er Islandsbanki.
Björgvin sigrar í
söngvakeppni á írlandi
BJÖRGVIN Halldórsson söngvari
sigraði með lagið „Núna“ eða „If
it’s Gonna end in Heartache" í
söngvakeppninni Cavan Internation-
al sem haldin var í nítjánda skiptið
í bænum Cavan á írlandi á laugar-
dagskvöld, en að sögn Björgvins er
þetta önnur stærsta dægurlaga-
söngvakeppni íra sem haldin er ár-
lega.
Söngvarar frá sextán löndum í
Evrópu, Ameríku og Ástralíu voru
mættir til leiks og lenti fulltrúi ír-
lands í öðru sæti og fulitrúi Eng-
lands í því þriðja.
Björgvin sagði að með sigrinum
hefði lagið „Núna“ fyrst og fremst
fengið uppreisn æru en það hlaut
ekki eins góðar undirtektir þegar
Björgvin flutti það í fyrsta sinn opin-
berlega í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva í Dublin fyrir tveim-
ur árum.
„Þá verður þessi sigur til þess að
ég verð þekktari sem söngvari enda
hefur mér verið boðið að taka þátt
í fleiri keppnum víða um heim, en
auk þess er bara gaman að keppa
og vinna," segir hann.
Aðspurður um það hvers vegna
hann hafi tekið þátt í þessari keppni
segir hann að Anne Lennon forsvars-
maður Caven Intemational hafí beð-
ið hann um að taka þátt í henni eft-
ir að hafa heyrt hann syngja lagið
„Núna“ í söngvarakeppni sem haldin
var í Tyrklandi síðastliðið sumar, en
þar lenti hann í öðru sæti.
Inniskór frá 490
kuldaskór frá 1990
smáskór
í bláu húsi
v/Fákafen
Tilboð 20% afsláttur
Verð frá kr. 2.450.
Sníðum þær í gluggann þinn.
Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD,
w FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333.