Morgunblaðið - 11.02.1997, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1997 33r
AÐSENDAR GREINAR
Yemdum Geldinganes
NÚ LIGGUR fyrir borgarstjóm að
endurskoða aðalskipulag Reykjavík-
ur. Slíkt á að gera á fjögurra ára
fresti enda er aðalskipulag eitt mikil-
virkasta stjórntæki hverrar sveitar-
stjómar. Aðalskipulagið skiptist í
landnotkunarkort og greinárgerð.
Þar er eitt og annað athugavert. Það
versta er þó að núverandi meirihluti
í Reykjavík, R-listinn, leggur til að í
Geldinganesinu geti risið iðnaðar- og
athafnahverfí í stað framtíðaríbúðar-
byggðar. Slíkt yrði umhverfissiys.
Saga skipulagsins
í núgildandi aðalskipulagi Reykja-
víkur er Geldinganes, sem er um 220
hektarar að stærð, sýnt sem framtíð-
aríbúðarsvæði, en þó að hluta sem
svæði ætlað atvinnustarfsemi. í
fyrsta aðalskipulagi Reykjavíkur
1962-1983 var allt svæðið norðan
Grafarvogs og þ. á m. Geldinganes-
ið sýnt _sem iðnaðar- og athafna-
svæði. Árið 1982 var skipulaginu
breytt og Geldinganesið sýnt sem
grænt svæði. Síðan hefur þróunin
orðið ör og byggðin.vaxið hratt norð-
an Grafarvogs í átt að Korpúlfsstöð-
um. Þess vegna var talið sjálfsagt
að taka Geldinganes undir framtíð-
aríbúðarbyggð fyrir um 6 þúsund
manns.
Þann 21. mars 1988 var eftirfar-
andi samþykkt gerð í skipulagsnefnd
Reykjavíkur: „Skipulagsnefnd legg-
ur til við Borgarráð að efnt verði til
til hugmyndasamkeppni um skipulag
á Geldinganesi þar sem aðallega
yrði gert ráð fyrir íbúðarbyggð auk
svæðis undir atvinnu- og þjónustu-
starfsemi." Borgarráð samþykkti
erindi skipuiagsnefndar og sam-
keppnin fór fram. í dómnefnd voru
tilnefnd af hálfu Reykjavíkurborgar
þau Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
Ingimundur Sveinsson og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir.
í inngangi að niðurstöðum dóm-
nefndar, þar sem kynntar voru
margar áhugaverðar hugmyndir um
deiliskipulag svæðisins, segir m.a.
„Þátttaka í keppninni var með ágæt-
um og í heildina endurspegla tillög-
urnar þá einstæðu möguleika sem
Geldinganesið hefur upp á að bjóða.
Tiliögur höfunda undirstrika hversu
sérstakt nesið er sem byggingar-
land.“ Ekki þarf að fara mörgum
orðum um hversu frábært nesið er
FERMINGARTILBOÐ
Nýja myndastofan
Laugavegi 18,
sími 551 5125
sem landsvæði undir
framtíðaríbúðarbyggð
höfuðborgarbúa. Frá-
bært útsýni og nálægð
við sjóinn staðfesta þau
umhverfisgæði sem þar
eru til staðar. Enda er
Geldinganes nánast
eina svæðið innan lög-
sagnarumdæmis
Reykjavíkur, sem ligg-
ur að sjó og er enn
óbyggð. í þessu sam-
bandi er rétt að hafa í
huga að svæðið í kring-
um Korpúlfsstaði, svo-
kallað Staðahverfi, hef-
ur verið skipulagt og
þar munu framkvæmd-
ir hefjast innan tíðar.
Nesið á að grafa í sundur
Höfuðborgarsvæðið hefur vaxið
hratt á undanförnum árum. í skýrslu
sem gefin var út í maí 1994 um
þróun byggðar á höfuðborgarsvæð-
inu kemur fram að á tímabilinu 1986
til 1990 var mest fjölgun íbúa á
höfuðborgarsvæðinu af 16 stærstu
borgarsvæðum á Norðurlöndum eða
um 11.600 manns. Það er því ljóst
að nauðsynlegt er áð fara sparlega
með byggingarland Reykjavíkur og
einnig að borgin verður að geta boð-
ið byggingarland undir íbúðarbyggð
sem er sambærileg við það sem best
gerist í nágrannasveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu. Geldinganesið
er slíkt landsvæði.
í ijósi þessa er nánast undurfurðu-
legt að R-listinn með öll sín loforð
um umhverfísvæna höfuðborg skuli
leggja það til í tillögum að aðalskipu-
iagi, að Geldinganesinu verði breytt
úr íbúðarsvæði í iðnaðar- og at-
hafnasvæði. Hér er rétt að hafa í
huga að stefnuleysi R-listans veldur
þvi að aðalskipulagstiliögurnar gera
ráð fyrir því að nesið verði annað-
hvort iðnaðar- og athafnasvæði eða
íbúðarsvæði. Aldrei fyrr í aðalskipu-
lagsvinnu hefur jafn-
stórt landsvæði verið
afgreitt með þeim
hætti. Enda á aðal-
skipulag að vera stjórn-
tæki og því er nauðsyn-
legt að það einkennist
af stefnufestu og skýrri
framtíðarsýn. Ég er
hins vegar þeirrar skoð-
unar að R-listann skorti
pólítískt þor til þess að
segja sannleikann, því
hvar sem litið er í grein-
argerð með aðalskipu-
lagstillögunum skín í
, gegn að svæðið á að
Gunnar Johann vera iðnaðar- og at-
Birgisson hafnasvæði. Fyrsta
skrefið í þá átt er sú ákvörðun R-list-
ans að breyta nesinu í gríðarlegar
grjótnámur. í greinargerðinni með
aðalskipulaginu segir orðrétt þar
sem fjallað er um gijótnám í Geld-
inganesi: „í Geldinganesi er áætlað
grjótnám á suðurhluta nessins.“ Síð-
an segir orðrétt: „Sýnt hefur verið
fram á að frá umhverfissjónarmiði
er heppilegt að koma fyrir athafna-
starfsemi í Geldinganesi í gijótnám-
unum nk. „ásbyrgjum".
í tillögunni er gert ráð fyrir því
að stofnbrautin sem liggur frá Geld-
ingnesi og upp í Álfsnes verði færð
inn á nesið þannig, að hún nánst
grefur það f sundur í miðju. Það
eitt eyðileggur nesið. í stað þess að
leggja stofnbrautina nánast í fjör-
unni austan megin á að troða henni
í gegnum mitt nesið. Yfir þessu öllu
saman sveima síðan fyrrgeindar
hugmyndir um að breyta nesinu í
námur vegna þess að þar hefur fund-
ist svo gott fyilingarefni. M.ö.o.
stofnbrautin mun skera nesið í sund-
ur í miðju, nesið verður allt grafið
í sundur í leit að fyllingarefni og
síðan á að reisa iðnaðarhverfi í gijót-
námunum. Hvar er í þessum tillög-
um að finna sýnina, sem borgar-
stjóri átti sameiginlega með öðrum
Minni iðnfyrirtæki,
segir Gunnar Jóhann
Birgisson, þurfa
ekki að vera á
hafnarbakkanum.
dómnefndarmönnum á sínum tíma,
um þá einstæðu möguleika, sem
Geldinganesið hefur upp á að bjóða,
sem bygggingarland undir framtíð-
aríbúðarbyggð.
Atvinnustarfsemi á
höfuðborgarsvæðinu
Þrátt fyrir að Hjörleifur Gutt-
ormsson, alþingismaður, hafi haft
nokkuð til síns máls þegar hann
varaði við því að Faxaflóinn yrði
„kögraður“ með stóriðjuverum, þá
er rétt að ítreka að andstaða við
hugmyndir um að breyta Geldinga-
nesinu í iðnaðar- og athafnasvæði
er ekki andsaða gegn öflugu at-
vinnulífi.
Þessar afleitu tillögur, sem hér
er lýst, byggjast á skýrslu sem Afl-
vaki hf. gerði árið 1995 um framtið-
ariðnaðarsvæði Reykjavíkur. Fleiri
svæði en Geldinganes koma til
greina þegar litið er til framtíðar-
uppbyggingar atvinnufyrirtækja. I
nefndri skýrslu um framtíðariðnað-
arsvæði Reykjavíkur er litið til sex
svæða fyrir utan Geldinganes, sem
talin eru koma til greina sem fram-
tíðariðnaðarsvæði. Þau eru: Hamra-
hlíðarlönd við Vesturlandsveg, svæði
austan Grafarholts við Reynisvatn,
svæði austan Rauðavatns við Suður-
landsveg, fyllingarsvæði vestan Ör-
firiseyjar, Álfsnes og Klettasvæði
vestan Sundahafnar.
Þegar þessi svæði voru metin var
einkum litið á eftirfarandi þætti:
Samgöngur, raforku, gufuorku,
heitt vatn, ferskt vatn og mengun-
ar- og umhverfismál. Lítill munur
er á þessum svæðum þegar litið er
til þessara þátta. Geldinganesið hef-
ur aðeins eitt fram yfir þau svæði
sem eru uppi í landi og það er ná-^,
lægðin við fyrirhugaða höfn í Eiðs-
vík. En hvers konar iðnstarfsemi á
heima á Geldinganesi? Þau iðnfyrir-
tæki sem gera þá kröfu að iðjuver
þeirra séu nánast reist á hafnar-
bakka eru stórðiðjuver. Viljum við
stóriðjuver á Geldinganes? Ég efast
um að það sé vilji R-listans. Minni
iðnfyrirtæki þurfa ekki að liggja á
hafnarbakkanum, ekkert frekar en
þau iðnfyrirtæki sem nú þegar hafa
byggt upp starfsemi í Reykjavík.
Jafnframt þarf í þessu sambandi að
líta til stærðar hafnarsvæðisins.
Hafnarsvæðið í Eiðsvík er á skipu-x'
lagi sýnt 125 hektarar að stærð. Til
samanburðar má geta þess að hafn-
arsvæðið við Sundahöfn er tæpir 100
hektarar og á samkvæmt skipulagst-
illögum að verða um 170 hektarar.
Það er því ljóst að hafnarsvæðin sjálf
munu bjóða upp á mikla möguleika
fyrir fyrirtæki sem þurfa hafnarað-
stöðu eða flokkast undir hafnlæga
starfsemi.
Síðan en ekki síst verður að líta
til þeirra möguleika sem fyrirhugað
samstarf við Hafnarfjörð mun bjóða
í framtíðinni. Ef vilji sveitarstjórnar-
manna er sá að líta beri á höfuðborg-
arsvæðið sem eitt atvinnusvæði og
að samstarf sveitarfélaganna um
hafnaraðstöðu sé ákjósanlegt gefur
augaleið að heppilegra er að stað-
setja iðjuver á Straumsvíkursvæðinu
heldur en í Geldinganesi. Rétt er að
hafa í huga að samstarf um hafnar-
starfsemi og sú staðreynd að fyrir-
tæki greða ekki lengur aðstöðugjald
til sveitarfélaganna eykur möguleika
á stórauknu samstarfí borgarinnar
og nágrannasveitarfélaga. Nú eiga
sveitarfélögin ekki að keppa um fyr-
irtækin heldur að tryggja eðlilega
uppbyggingu á öllu svæðinu.
Það verður leiðinlegasti kaflinn L
sorgarsögu R-listans ef Geldinganes
verður lagt undir iðnaðar- og at-
hafnastarfsemi. Það er Reykvíkinga
að koma í veg fyrir það.
Höfundur er borgarfulltrúi.
GNFALTDÆMÍ
SAMA GÓÐA SINNEPIÐ!
Hið vinsæla UG
sinnep hefur nú fengið
nýjar umbúðir.
UG sinnepið sem kitlað
hefur bragðlauka
íslendinga verður eftir
sem áður fáanlegt í
öllum helstu verslunum
undir hinu nýja nafni
St
'Eklteit harðán 'Báfmdœ
rðalán
ýjilNé
Handhöfum Eurocard og Visa
býðst nú að grciða fyrir öll
flugfargjöld og pakkafcrðir
með raðgreiðslum til allt að
24 mánaða.
Leiðin
út í heim
Flugleiða
FLUGLEIÐIR
Traustur islenskur ferÓafélagi