Morgunblaðið - 11.02.1997, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1997 37
i'
mörkum til uppgræðslu landsins
löngu áður en það þótti fínt; hann
staldraði við og skoðaði hug sinn
og tengsl við trúna með námi í
guðfræði löngu áður en gamlir hipp-
ar og seinna uppar fóru að leita
kjölfestu í heimspeki og trúarbrögð-
um; hann barst ekki á til orðs eða
æðis, heldur ræktaði fjölskyldu
sína, og seinna barnaböm, af ein-
lægni og staðfestu.
Oft virtist hann þannig úr takti
við tímann, þó seinna hafí skýrst,
að hann var oftar en ekki á undan
samtímanum, engu að síður með
sterkar rætur í bændamenningu
forfeðranna.
Til Sveinbjöms var gott að leita.
Sanna vini þarf maður ekki að hitta
daglega. Maður skynjar nærvem
þeirra, veit að þeir em til staðar,
ef á bjátar. Þannig var Sveinbjörn,
allt til enda.
Blessuð sé minning hans.
Högni Oskarsson.
Elsku afí minn, mig langar að
minnast þín. Manstu þegar við vor-
um að þvo bílinn þinn saman? Það
var nú aldeilis gaman. Eða þegar
við vomm að keyra niður á höfn
og ég hélt að þú værir að keyra út
í sjó, það var þá bara vmdurinn sem
var að feykja bílnum. Ég man þeg-
ar við vomm að grilla og sofa í tjald-
vagninum. Núna geturðu skoðað
fuglana, sem þú skoðaðir hér, uppi
í himnaríki. Ég mun sakna þín rosa-
lega mikið. Guð geymi þig, afi minn.
Hrólfur.
Við viljum með nokkmm orðum
minnast vinar okkar og vinnufé-
laga, Sveinbjörns Benediktssonar,
sem nú hefur lotið í lægra haldi
fyrir langvinnum og erfíðum sjúk-
dómi.
Kjarkur hans og bjartsýni vakti
aðdáun okkar. Han stundaði sína
vinnu óaðfinnanlega alla tíð og þáði
engin boð um léttari störf eða minna
álag. Sveinbjörn var einstaklega
viðmótsþýður maður og þægilegur
í samskiptum, hann var samvisku-
samur og nákvæmur í sínu starfi.
Gott dæmi um það er að í árslok
1995 varð breyting á vinnutilhögun
í okkar deild og Sveinbjörn tók að
sér nýtt starf fyrir okkar vakthóp
sem fólst í eftirliti, skráningu og
sýnatöku úr framleiðslunni. Þetta
starf útheimti mikla árvekni og
aðgæslu. Kom þá vel í ljós að þar
var réttur maður á réttum stað.
Við sem störfum með Sveinbimi
emm þakklátir fýrir þau ár sem við
vomm honum samferða. Við geym-
um með okkur margar hlýjar minn-
ingar um góðan dreng.
Við sendum eiginkonu, fjölskyldu
og öðmm aðstandendum okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Vinnufélagar á vakt 1
lyá ÍSAL.
h
H
Erfldrykkjnr
PERLAN
TXX
Simi S62 0200
IIIIXII
ti
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækiíæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090
MINNINGAR
ANTHONY RAGNAR
CONNER
+ Anthony Ragn-
ar Conner,
Tony, fæddist í
Keflavík 11. febrúar
1966. Hann fórst í
hótelbruna í Banda-
ríkjunum 14. ágúst
síðastliðinn. Móðir
hans er Guðbjörg
Ragnarsdóttir
Conner, sem búsett
er og starfar í Los
Angeles, f. 1943,
dóttir Ragnars Jón-
assonar prentara, f.
1923, d. 1961, og
Ingibjargar Þor-
grimsdóttur, f. 1926. Stjúpfaðir
Guðbjargar er Harald Isaksen,
f. 1928. Faðir Tonys er Norman
Conner, búsettur í Los Angeles,
verkfræðingur við geimferða-
stöð Huges Air Corp. í Banda-
ríkjunum, f. 1942, sonur Del-
berts Conner (látinn), og Dorot-
hy Conner, búsettrar í Evans-
ville í Indiana í Bandaríkjunum.
Bróðir Tonys er James Delbert
Conner, f. 1970.
Tony giftist 1991 Mindy
Lynn, f. 1961. Barn þeirra er
Anthony Ragnar Conner, f. 10.
Þau ljós sem skærast lýsa,
þau ljós sem skína glaðast
þau bera besta birtu
en brenna líka hraðast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur
og dóm þann enginn skilur.
En skinið logaskæra
sem skamma stund oss gladdi
sem kveikti ást og yndi
með öllum sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum
nú hverfi ljósið bjarta
þá situr eftir ylur
í okkar mædda hjarta.
(F.G.Þ.)
Með þessu kvæði langar okkur,
móðursystkini hans, til að minnast
ástkærs frænda, Anthony Ragnars
febrúar 1992. Son-
ur Mindyar er Ja-
son, L 1987. Tony
bjó á íslandi meira
og minna fyrstu 15
ár ævi sinnar. Faðir
hans starfaði sem
tæknimaður í
bandariska hernum
hér á landi. Fjöl-
skyldan flutti síðan
til Bandaríkjanna
um 1980, en Tony
kom aftur til ís-
lands og vann við
rafvirkjun ly'á Har-
aldi og Sigurði hf.
um tveggja og hálfs árs skeið.
Vann hann við byggingu Borg-
arleikhússins m.a. Eignaðist
hann marga vini og kunningja
hér á landi á þessum árum.
Tony hélt þó aftur til Los
Angeles og hóf nám í rafmagns-
tæknifræði og stofnaði fjöl-
skyldu. Hann lauk prófi með
ágætum vitnisburði frá ITT-
skólanum í Los Angeles. Starf-
aði hann síðan hjá Sony-fyrir-
tækinu þar í borg til æviloka.
Útför Tonys fór fram í
Bandaríkjunum 21. ágúst.
Conner, Tony, sem fórst af slysför-
um langt um aldur fram í ágúst sl.
Hann hefði orðið 31 árs í dag. Tony
var góður drengur, greiðvikinn,
kærleiksríkur og næmur.
Líf hans var ekki alltaf dans á
rósum en ætíð var Tony þó ljúfur
í lund og með blíðlegt bros á vör.
í æsku flutti hann og fjölskyldan
oft á milli staða og landa eins og
títt er þegar fjölskyldufaðirinn
starfar í hernum. Alltaf leit Tony
samt þannig á að rætur hans væru
á íslandi. Við minnumst allra
ánægjustundanna og samverunnar
við leik og störf. Þær minningar
eru okkur dýrmætar.
Blessuð sé minning góðs frænda,
Anthony Ragnars Conner.
Hagerup, Guðriður, Þor-
grímur, Margrét og Harald.
mm RD ORRUR flD SJfl um
flÓTíl flBK
lUTIlllfifltiT • («{{.
Upplýsingar í s: 551 1247
Erfidrykkjur
HÓTEL
REYKJAVÍK
Sigtúni 38
Upplýsingar í símum 568 9000 og 588 3550
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ELÍN GUÐJÓNSDÓTTIR,
Norðurbyggð 16,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
laugardaginn 8. febrúar.
Steinþór Jensen,
Guðjón B. Steinþórsson, Svava Ásta Jónsdóttir,
Þórey Steinþórsdóttir, Jóhannes Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Elskulegur eiginmaður minn og faðir
okkar,
SIGURÐUR JÓNSSON,
Eystra-Seljalandi,
Vestur-Eyjafjallahreppi,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudag-
inn 9. febrúar.
Marta Kristjánsdóttir
og börn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir og amma,
SIGRÍÐUR KRISTÍN
KRIST JÁNSDÓTTIR
röntgentæknir,
Birkihæð 2,
Garðabæ,
lést á heimili sínu laugardaginn
8. febrúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
. Jón Otti Sigurðsson,
Sigurður Jón Jónsson, Guðný Jónsdóttir,
Jón Otti Sigurðsson,
Pálmar Sigurðsson.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR ÞORMAR VIGFÚSDÓTTIR
Torfufelli 25,
Reykjavik,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 8. febrúar si.
Vigfús Þ. Guðmundsson, Guðlaug Pálsdóttir,
Stefán Þ. Guðmundsson, Jóna Gunnarsdóttir,
Rafn Guðmundsson, Jóhanna Pétursdóttir,
Skúli Guðmundsson, Þórdís Rúnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
ÞÓRÐUR JÚLÍUSSON,
Krókabyggð 24,
Mosfellsbæ,
lést á Kanaríeyjum að morgni 9. febrúar.
Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Karen Lövdahl.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
STEINUNN GUÐJÓNSDÓTTIR,
Selvogsgrunn 13,
Reykjavfk,
iést á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugar-
daginn 8. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Áskirkju fimmtu-
daginn 13. febrúar kl. 15.00.
Böðvar Eggertsson,
Guðjón Böðvarsson, Guðrfður Sveinsdóttir,
Sigrún Böðvarsdóttir, Lúðvík Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTMUNDUR JÓNSSON,
húsasmfðameistari,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur aðfaranótt
10. febrúar.
Steinunn I. Guðmundsdóttir,
María Kristmundsdóttir, Guðmundur Hjálmarsson,
Magnea Kristmundsdóttir, Skúli Halldórsson,
Helga Kristmundsdóttir,
Guðmundur Kristmundsson, Þórunn Júlfusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
NIKULÁS MAGNÚSSON,
Völvufelli 48,
Reykjavfk,
lést á Landakoti laugardaginn
8. febrúar.
Vilborg Jónatansdóttír,
Finnur Nikulásson, Edda Þorvaldsdóttir,
Gunnar Nikulásson, Gro Tove Sandsmark,
Anna Nikulásdóttir, Jóhann Filippusson,
Kristján Nikulásson, Katrfn Guðtaugsdóttir
og barnabörn.
xr
í
i
§
I
»
1
2
i
*
«
i
í