Morgunblaðið - 14.03.1997, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1997 19
VIÐSKIPTI
Samvinnusjóður Islands með sína bestu afkomu frá upphafi
Hagnaðurinn liefur
aukist um 242%
Samvinnusjóður ísiands hf. Úr reikningum ársins 1996
Rekstrarreikningur Mnijómr króna 1996 1995 Breyting
Vaxtatekjur 371,7 184,6 +101%
Vaxtagjöld 240,1 115,3 +108%
Hreinar vaxtatekjur 131,6 69,3 +90%
Aðrar rekstrartekjur 168,4 21,2 +693%
Önnur rekstrargjöld 37,8 26,5 +43%
Framlög i afskrittarsjóð 75,2 22,0 +242%
Hagnaður fyrir skatta 187,0 42,1 +344%
Reiknaður tekju- og eignaskattar 43,0 0 -
Hagnaður ársins 144,0 42,1 +242%
Efnahagsreikningur 31. des.: 1996 1995 Breyting
| Eígn/r: | Milljónir króna
Útlán og aðrar eignir 3.524,0 1.909,0 +85%
Markaðsverðbréf og fjárfest.hlutabr. Elgnlr samtals 851,7 690,9 +23%
4.375,7 2.600,0 +68%
I Sku/dir og eigið fó: | Milljónir króna
Lántaka og aðrar skuldir Eigið fé 3.592,2 783,5 1.974,8 625,2 +82% +25%
Skuldir og eígið fé samtals 4.375,7 2.600,0 +68%
Kennitölur
Arðsemi eigin fjár Arðsemi hlutafjár 23,03% 28,17% 7,32% 8,20%
Bjartsýni hjá Moody’s
um lánshæfi Islands
HAGNAÐUR Samvinnusjóðs ís-
lands hf. nam alls um 144 milljónum
króna eftir skatta sem er um 242%
aukning frá árinu 1995. Þetta er
besta afkoma félagsins frá upphafi.
Samvinnusjóður er lánastofnun
og starfar samkvæmt lögum um
lánastofnanir aðrar en banka og
sparisjóði. Félagið hefur milligöngu
um útvegun lánsfjár til einstaklinga
og fyrirtækja, en fjármögnun fer
fram með útgáfu verðbréfa sem
seld eru til ijárfesta.
Vaxtatekjur á síðasta ári jukust
um rúmlega 100% frá árinu á und-
an og vaxtgjöld um 108%. Hreinar
vaxtatekjur jukust um 90% og
hreinar rekstrartekjur um 231%.
Önnur rekstrargjöld jukust á milli
ára um 43% vegna fjölgunar starfs-
manna og aukinna umsvifa. Fram-
lag í afskriftarreikning útlána var
rúmlega 75 milljónir og þrefaldaðist
frá árinu áður, en nánari upplýs-
ingar um afkomu félagsins er að
fínna á meðfylgjandi töflu.
Veruleg aukning varð á lána-
starfsemi félagsins á árinu saman-
borið við fyrra ár. Eftirspum eftir
lánum jókst mikið og varð aukning-
in mest í fasteignaveðlánum og bíla-
lánum. Útlán ársins jukust um
1.547 milljónir og námu útlán í
árslok alls um 3.412 milljónum.
Mest var lánað til einstaklinga og
jókst hlutdeild þeirra í útlánum úr
62% í 67%.
Þá jókst verðmæti hlutabréfa-
eignar félagsins verulega á árinu.
Bókfært verð hlutabréfa í eigu fé-
lagsins nam 592 milljónum í árslok,
en markaðsverð bréfanna er hins
vegar um 548 milljónum hærra
miðað við skráð gengi í árslok.
FÉLAG íslenskra stórkaupmanna
hefur sent nefndarsviði Alþingis
umsögn um frumvarp til laga um
samningsveð og segist ekki geta
mælt með því að frumvarpið verði
samþykkt.
200 m.kr. hlutafjárútboð
Fram kemur í frétt frá Sam-
vinnusjóðnum að reiknað er með
að starfsemin á árinu 1997 verði í
stórum dráttum svipuð og verið
hefur. Stjórn félagsins hefur heim-
ild til útgáfu nýrra hlutabréfa að
nafnverði allt að 400 milljónir kr.
í umsögninni segir m.a.: „Lögleið-
ing þess í dag, myndi hafa verulega
skerðingu í för með sér fyrir vöru-
sala og leiða af sér verulega skerta
réttarstöðu þeirra gagnvart bönkum
og öðrum lánastofnunum. Vega þar
til núverandi hluthafa eða nýrra.
Hefur stjóm félagsins ákveðið að
nýta sér þessa heimild að hluta á
árinu 1997 með útgáfu nýrra hluta-
bréfa að nafnverði 200 milljónir.
Þá hefur stjórn félagsins ákveðið
að leggja til við aðalfund að greidd-
ur verði 7% arður til hluthafa.
þyngst ákvæði um veð í vörubirgðum
og söluveð. Eins og frumvarpið kem-
ur félaginu fyrir sjónir, munu bank-
ar og lánastofnanir geta tekið alls-
herjarveð í eignum og rekstrarvörum
fyrirtækja, án tillits til þess hvort
birgðir hafi verið greiddar eða ekki.
Með þessu er sú takmarkaða réttar-
staða, sem birgjar og vörusalar búa
við í dag, eða eygja von um greiðslu
upp (almennar kröfur, komi til gjald-
þrots, með öllu þurrkuð út,“ segir í
umsögn Félags íslenskra stórkaup-
manna.
BANDARÍSKA matsfyrirtækið
Moody’s Investors Service hefur
lýst því yfir að hprfur varðandi
lánshæfiseinkunn íslands á al-
þjóðamarkaði séu jákvæðar. í því
sambandi er bent á að tekist hafí
að draga úr skuldum hins opinbera
með aðgerðum á sviði hagstjómar
og fyrir áhrif bættra efnahags-
legra skilyrða í þjóðarbúskapnum.
Þetta kemur fram í stuttri at-
hugasemd fyrirtækisins um horfur
á hugsanlegum breytingum á láns-
hæfiseinkunn íslands, en fyrirtæk-
ið hóf nýlega að birta slíkar at-
hugasemdir með lánshæfisein-
kunnum. í frétt Moody’s, sem gef-
in var út í Lundúnum 7. mars sl.,
kemur fram að ætlunin sé að draga
fram mat fyrirtækisins á hugsan-
legum áhrifaþáttum lánshæfisein-
kunna 18-24 mánuði fram í tím-
ann. Til þessa hefur Moody’s birt
lánshæfiseinkunnir ríkja án þess
að tilgreina horfur um líklegar
breytingar á komandi tíð.
Moody’s Investors Service
hækkaði lánshæfíseinkunn íslands
í júní 1996 í A1 úr A2. Hækkunin
var tilkynnt eftir að fyrirtækið lýsti
yfir í aprílmánuði á sama ári að
það myndi endurskoða einkunn
Islands með hugsanlega hækkun
fyrir augum. Bandaríska mats-
fyrirtækið Standard & Poor’s
hækkaði sína lánshæfiseinkunn
fyrir ísland í A+ úr A í apríl 1996.
Markaðurinn metur ríkissjóð
hærra en matsfyrirtækin
Að sögn Ólafs ísleifssonar,
framkvæmdastjóra alþjóðasviðs
Seðlabankans, má tengja þessa
breytingu hjá Moody’s við kjör rík-
issjóðs á erlendum mörkuðum á
undanfömum misserum. í lok febr-
úar voru gefin út skuldabréf ríkis-
sjóðs til þriggja ára á alþjóðlegum
markaði að fjárhæð 150 milljónir
þýskra marka á vöxtum sem liggja
undir millibankavöxtum í Lundún-
um, svonefndum Libor-vöxtum. Er
þetta í fyrsta sinn sem ríkissjóður
nær slíkum kjörum á langtímaláni
á almennum markaði. Kjör skulda-
bréfaútgáfunnar vöktu athygli er-
lendis fyrir það hversu hagstæð
þau em ríkissjóði og var í erlendum
fjármálaritum bent á að þau væru
áþekk þeim kjörum sem lántakend-
ur í AA-flokki njóta á sambærileg-
um lánum. Ennfremur benti Ólafur
á skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs til
fimm ára á liðnu ári á millibanka-
vöxtum sléttum.
„Það má því e.t.v. segja að
markaðurinn meti ríkissjóð nokkru
hærra en matsfyrirtækin hafa
treyst sér til að gera til þessa. En
frétt Moody’s með jákvæðum horf-
um fyrir ísland sýnir að fyrirtækið
kann að vera farið að hugsa sér
til hreyfings varðandi hugsanlegar
breytingar á komandi árum enda
er talað í frétt Moody’s um 18-24
mánaða tímabil sem horfumar eiga
við um,“ segir Ólafur.
Franskt
rauðvín
vinsælt
París. Reuter.
FRANSKUR útflutningur á
léttum vínum og öðru áfengi
hefur aukizt á ný eftir við-
skiptabann vegna kjarnorkut-
ilrauna á Kyrrahafi og jókst
útflutningur um 5% í fyrra í
36,2 milljarða franka, eða 6,3
miíljarða dollara, að sögn tals-
manna atvinnugreinarinnar.
Greinin myndaði 32 millj-
arða franka greiðsluafgang
eða einn fjórða af heildar-
greiðsluafgangi Frakka.
„Hvað viðskiptajöfnuðinn
áhrærir komum við næstir á
eftir frönskum flugvélaiðnaði
og á undan bílaiðnaði og ilm-
vatnsgerð," sagði Philippe
Pascal, forseti sambands fran-
skra áfengisútflytjenda.
Hann sagði á blaðamanna-
fundi að tölurnar jafngiltu sölu
á 120 Airbus farþegaflugvél-
um eða 400 TGV hraðlestum.
Þær þjóðir sem keyptu mest
af léttum vínum og öðru áfengi
frá Frakklandi í fyrra voru
Bandaríkin, Þýzkaland, Belg-
ía, Lúxemborg og Japan.
Biddu um Banana Boat
ef þú viK spara 40-60%
FÍSgegn frumvarpi
um samningsveð
Dlacovery Dlosol ▼
ÞU KEMST
VELÁFRAM
- á Discovery Diesel
Glæsilegur og rúmgóður farkostur, með
slaglanga og mjúka gormafjöðrun sem er
ein sú besta sem í boði er. Komið
og skoðið vel útbúinn
Discovery Diesel í sýningar-
sal okkar Suðurlandsbraut 14.
SUBURLANDSBRAUT 14 . SÍMI 533 8B3S