Morgunblaðið - 14.03.1997, Síða 60
JíewriCd
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTl 1
FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga
Stækkun tryggð
með auknu hluta-
fé frá Elkem
EIGENDUR íslenska járnblendifé-
lagsins hafa náð saman um breytta
eignaskiptingu félagsins og stækkun
verksmiðjurnar. Hlutur Elkem sem
var 30% eykst í 51%, hlutur ríkisins,
sem var 55% minnkar í 38,5%, og
hlutur Sumitomo minnkar úr 15% í
10,5%.
Nýtt hlutafé frá Elkem verður
932,5 milljónir króna sem er þriðj-
ungur þess sem stækkunin kostar.
Verður aflað lánsfjár til að ljúka
framkvæmdunum. Jón Sveinsson
stjórnarformaður segir að verk-
smiðjan verði mun samkeppnishæf-
ari eftir stækkun.
í fyrrakvöld tókst að jafna ágrein-
ing sem verið hefur meðal eigenda
um mat á hlutafé verksmiðjunnar
sem var forsenda þess að hægt
væri að ræða breytt eignarhald.
Hlutaféð er metið á 2.548 milljónir
króna og eftir stækkun er miðað við
að það verði um 3,5 milljarðar króna.
Jámblendifélagið verður í ár gert
að almenningshlutafélagi og hluta-
bréf íslenska ríkisins seld í áföngum
að undangengnu hlutafjárútboði.
Fulltrúar eigenda kváðust ánægð-
ir með samninginn og iðnaðarráð-
herra sagði á Alþingi í gær að rekst-
ur Járnblendiverksmiðjunnar væri
betur tryggður með þriðja ofninum
og starfsöryggi aukið. Fulltrúi
Elkem sagði engar hugmyndir um
breytingar á rekstri en aukinn eign-
arhlutur í Járnblendiverksmiðjunni
væri í samræmi við stefnu Elkem í
langtíma íjárfestingum. íslenskur
forstjóri verður áfram við fyrirtækið.
■ Hlutaféð metið/6
Hamstra mjólk
fyrir austan flall
Hveragerði. Morgrunblaðið.
SALA á mjólkurvörum í verslun-
inni Hverakaupi í Hveragerði er
fjórfalt meiri en hún var áður en
verkfallið í Mjólkursamsölunni í
Reykjavík skall á.
Að sögn Árna Benediktssonar,
verslunarstjóra Hverakaups, er
greinilegt að fólk af höfuðborg-
arsvæðinu streymir austur fyrir
fjall til að versla mjólkurvörur.
Algengt er að einstaklingar versli
fyrir margar fjölskyldur í sömu
ferðinni og jafnvel að heilu vinnu-
staðirnir taki sig saman og sendi
einhvern einn yfir heiðina til að
ná í mjólkurvörur fyrir allan hóp-
inn.
Arni segir að það þurfi ekki að
taka lengri tíma að keyra austur
fyrir fjall en að skreppa í Kringl-
una og fólk sefji ferðalagið ekki
fyrir sig, enda veður og færð ver-
ið með besta móti síðustu daga.
„Það er greinilegt að fermingar
standa fyrir dyrum á mörgum
heimilum því það er mikið hringt
og spurt um rjóma. Einn höfuð-
borgarbúinn kom gagngert til að
kaupa rjóma og fór ánægður til
baka með 20 fernur af ijóma.
Verslanir á höfuðborgarsvæðinu
hafa falast eftir mjólkurvörum
frá okkur en við höfum ekki seit
þeim vörur.“
Það eru því eingöngu einstakl-
ingar sem geta nálgast dropana
dýrmætu í Hveragerði þessa dag-
ana.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
ELDHAMAR GK í Grindavíkurhöfn í gær með dekkið fullt af fiski.
Forystumenn ASÍ og VSÍ segja kjaraviðræður ganga hægt þrátt fyrir stíf fundahöld
Lausn um helgina eða
umfangsmeiri átök
„ANNAÐ hvort tekst að þroska þetta núna, þann-
ig að menn sjái fyrir endann á þessu um helgina
eða við erum að fara hér í mun umfangsmeiri
átök en þegar eru hafin,“ segir Grétar Þorsteins-
son, forseti ASÍ. Grétar og Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri VSÍ, eru á einu máli um
að viðræðum hafi miðað hægt að undanfömu.
Nær stöðug fundahöld voru í gær milli samninga-
hópa Dagsbrúnar og Framsóknar og vinnuveit-
enda, auk sáttafunda í deilum fjölda annarra fé-
laga og landssambanda. í gær var rætt um fyrir-
tækjaþátt samninga milli vinnuveitenda og Verka-
mannasambandsins, að ósk VMSÍ. Þórarinn seg-
ist telja að aðiiar muni ná samkomulagi um þann
hluta samninga.
Verkföll 23. mars samþykkt
í gærkvöldi lauk atkvæðagreiðslu um boðun
allsheijarverkfalls sem á að hefjast á miðnætti
23. mars meðal félagsmanna Dagsbrúnar og
Framsóknar. 4.299 voru á kjörskrá í Dagsbrún,
þar af kusu 1.263 eða 29,4%. 91,3% samþykktu
verkfall en 8,23% voru á móti. Alls voru 2.160 á
kjörskrá í Framsókn, þar af kusu 566 eða 26,2%.
84,6% þeirra sögðu já en 15% sögðu nei. Þá var
boðun verkfalls sem á að hefjast á miðnætti 22.
mars samþykkt í Verkalýðs- og sjómannafélagi
Keflavíkur (VSK) en talningu lauk í í gær. Á
kjörskrá voru 1.847 og greiddu 842 eða 46% fé-
lagsmanna atkvæði. 723 eða 86% sögðu já, 110
eða 13% sögðu nei.
Viðræður um vaxtabótakerfið
Grétar Þorsteinsson segir að svör ríkisstjórnar-
innar um breytingar í skattamálum hafí ekki ýtt
undir ganginn í samningaviðræðunum vegna
megnrar óánægju með margt í hugmyndum
stjórnvalda. „Afdráttarlaus svör stjómvalda um
vaxtabótakerfið eru mjög slæm. Þar eru vaxta-
bætur að hækka á hátekjufólki en lækka á lág-
tekjufólki. Ákveðnir hópar hinna tekjulægstu
missa vaxtabætur á sama tíma og hópar bætast
við meðal hátekjufólks sem fá vaxtabætur þótt
þeir hafi ekki fengið þær til þessa. Þetta þýðir
að hluti þess fólks sem við lögðum sérstaka
áherslu á að fengi úrbætur í skattakerfinu tapar
ávinningnum af skattalækkunum vegna þessa
gjörnings í vaxtabótakerfinu," segir Grétar.
Fulltrúar ASÍ áttu í gær fund með starfsmönn-
um fjármálaráðuneytisins, að ósk ASÍ, þar sem
farið var yfir vaxtabótatillögur ríkisstjórnarinnar.
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra segir að
margt hafi skýrst á fundinum og að þessum við-
ræðum verði haldið áfram.
Staðan í viðræðum bankamanna og viðsemj-
enda þeirra var sögð mjög óljós seint í gærkvöldi
en ef samkomulagi næst ekki fyrir miðjan dag í
dag mun sáttanefnd leggja fram sáttatillögu.
■ íhugaað/2
I mokveiði
undir Krísu-
víkurbergi
Grindavík. Morgunblaðið
ELDHAMAR GK 13, 63 tonna
eikarbátur frá Grindavík, mo-
kveiddi undir Krísuvíkurbergi í
gær. Fékk báturinn 25 tonn af
rígaþorski í fimm trossur, á sama
stað og Þorsteinn GK 16 hafði
lagt þegar báturinn fékk í skrúf-
una síðastliðinn mánudag og rak
upp í bjargið.
Að sögn skipsljórans á Eld-
hamri GK, Sigurðar Óla Sigurðs-
sonar, er sorglegt að horfa upp
á flakið í klettunum en fiskiríið
þarna er ævintýri líkast því þeir
hafa orðið að hætta að draga
þegar fimm trossur hafa verið
dregnar því að allt var orðið fullt
bæði í lest og eins á dekki.
„Við urðum að skilja tvær
trossur eftir og á ég von á að
ekki séu minna en tiu tonn í þeim,
við verðum að fara aftur út í
kvöld og klára að draga og dreg
ég þá einnig þær sem við kláruð-
um að leggja í gær,“ sagði Sig-
urður Óli.