Morgunblaðið - 15.03.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuter
Gnægð vopna en skortur á mat
MIKILL óhugur er í íbúum Tirana vegna stjórnleysins í Albaníu. Margir þeirra óttast að ástand-
ið eigi enn eftir að versna og telja að ekki verði hægt að koma á lögum og reglu nema með
hernaðaríhlutun erlendra ríkja. Vopnaðir hópar, sem hafa rænt byssum úr vopnabúrum hers-
ins, hafa látið greipar sópa um verslanimar og tæmt þær. Hægt er að kaupa riffla fyrir sem
svarar rúmum 200 krónum en líkurnar á því að fólk geti keypt kartöflu eru sáralitlar. Hundr-
uð Albana flúðu landið í bátum til Ítalíu i gær og myndin er af hópi sem kom þangað á ryðguð-
um herbáti. Óvíst er hvort fólkið fær landvistarleyfi á Ítalíu.
Forseti Albaníu biður um hjálp vegna upplausnarinnar
Athyglin beinist að
ráðaleysi Evrópuríkja
Brussel. Reuter.
BEIÐNI Salis Berisha, forseta
Albaníu, um aðstoð vestrænna
ríkja við að koma á lögum og reglu
í landinu hefur beint athyglinni
að ráðaleysi Evrópuríkja þegar
alvarleg öryggisvandamál koma
upp í álfunni, að sögn fréttaskýr-
enda í gær.
„Ekkert líkist meira martröð en
það að láta til sín taka í ríki á
Balkanskaga þar sem stjómleysi
ríkir,“ sagði evrópskur stjómarer-
indreki í Brussel. „Vandamálið er
að aðgerðaleysi myndi vera enn
hættulegra."
Þótt ríki Atlantshafsbandalags-
ins og Evrópusambandsins (ESB)
hafi miklar áhyggjur af þróuninni
í Albaníu - sem minnir óþyrmilega
á aðgerðarleysi þeirra í byijun
átakanna í Bosníu - hafa þau lát-
ið nægja að gefa út yfirlýsingar
þar sem skorað er á Albani að
binda enda á átökin og leita frið-
samlegra lausna með samninga-
viðræðum.
Helmut Kohl, kanslari Þýska-
lands, sagði í Haag á fimmtudag
að upplausnin í Albaníu væri fyrst
og fremst innanríkismál Albana
og bætti við að óljóst væri hvað
vestrænar hersveitir gætu gert ef
þær yrðu sendar til landsins.
Sérfræðingar í vamarmálum
lögðu áherslu á að friðargæslan í
Bosníu væri yfrið verkefni fyrir
Bretland og Frakkland, einu ríkin
fyrir utan Þýskaland sem hafa
yfir miklum herafla að ráða, og
þess vegna yrði erfitt fyrir Evrópu-
sambandið að útvega hermenn til
íhlutunar í Albaníu þótt vilji væri
til þess.
Ottast að óeirðirnar
breiðist út
Berisha skoraði á Vestur-Evr-
ópusambandið, varnarmálavæng
ESB, að senda hersveitir til að
„koma á lögum og reglu“ í landinu
Reuter
ÓÞEKKTIR menn skutu í gær á útlendinga, sem verið var
að flytja frá Tirana, og á myndinni reyna nokkrir þeirra að
skýla sér. Þýskir hermenn, sem aðstoðuðu við brottflutning-
inn, svöruðu skothríðinni.
og afstýra því að það leystist upp.
Raunin er hins vegar sú að Vestur-
Evrópusambandið hefur ekki yfir
hersveitum að ráða og er ekki enn
undir það búið að skipuleggja slík-
ar aðgerðir. „Verkefni Vestur-
Evrópusambandsins em enn að-
eins á pappírnum," sagði stjórnar-
erindreki í Brussel og lagði áherslu
á að áform um að það leigði vopn
af NATO væm enn aðeins á undir-
búningsstigi.
Fréttaskýrendur og stjórnarer-
indrekar sögðu að ráðamenn í
Evrópuríkjunum gerðu sér grein
fyrir að þegar öllu væri á botninn
hvolft gætu þau ekki setið að-
gerðalaus hjá vegna hættunnar á
að óeirðimar breiddust út fyrir
landamæri Albaníu. T.a.m. væri
hætta á að upp úr syði í Kosovo
í Serbíu, þar sem Albanir em í
meirihluta, og fjölmargir Albanir
búa einnig í Makedoníu og Grikk-
landi.
Utanríkisráðherrar ESB-ríkj-
anna koma saman til að ræða
málið í Hollandi um helgina en
ekki er búist við miklum tíðindum
á þeim fundi. Einn stjórnarerin-
drekanna sagði að margir væru
þeirrar skoðunar að Öryggis: og
samvinnustofnun Evrópu (ÖSE)
ætti að gegna forystuhlutverki í
þessu máli.
Evrópuríkin hafa hingað til að
ekki léð máls á að greiða bætur
til þeirra Albana sem glötuðu
sparifé sínu vegna gjaldþrota
ávöxtunarsjóða, sem urðu til þess
að upp úr sauð í Albaníu. Evrópsk-
ir stjómarerindrekar í Bmssel
sögðu þó í gær að slíkt yrði ódýr-
ara en að senda hermenn til Alba-
níu eða þurfa að taka við tugum
þúsunda flóttamanna frá landinu.
LAUGARDAGUR 15. MARZ 1997 19
Israelar hundsa
áskorun SÞ
Jerúsalem. Reuter.
ÍSRAELSKA stjórnin sagðist í gær
myndu hafa að engu áskorun Sam-
einuðu þjóðanna um að hætta við
byggingu 6.500 húsa á svæðinu
milli austurhluta Jerúsalem og
Betlehems.
Allsheijarþingið samþykkti síð-
degis í fyrradag áskomn á ísraela
um að hætta við landnámið fyrir-
hugaða með 130 atkvæðum gegn
tveimur og tvö ríki sátu hjá. Ríkin
sem greiddu atkvæði gegn áskomn-
inni voru Bandaríkin og ísrael.
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra, sagði samþykktina ein-
hliða og einskisverða. „Ekkert
stöðvar okkur og það er misskiln-
ingur ef menn halda að hægt sé
að hræða okkur til hlýðni,“ sagði
hann í gær. Hermt er, að fram-
kvæmdir í fyrirhuguðu landnámi
hefjist á mánudaginn á hæðinni,
sem nefnist Jabal Abu Ghneim á
arabísku en Har Homa á hebresku.
Kynning
Allir gestir fá 1000 ferðapunkta
til lækkunar verðs
kemur út á prenti sunnudaginn 16. mars og
ber nafn með rentu. Hún kynnir þér fegurstu
staði og frægustu undur heimsins í máli og
myndum og greiðir þér leið að kynnast þeim
á ótrúlega hagstæðu verði, u.þ.b. 25% lægra
en tíðkast í öðrum Evrópulöndum fyrir ferðir í
lægri gæðaflokki.
FAGRA VERÖLD er nafnið á „betri
ferðunum“ okkar 1997. Hún kynnir þér
ferðanýjungarnar á ísienska ferðamarkaðnum,
fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr, spennandi
ævintýri í fjarlæguin heimsálfum, s.s
Hnattreisan SUÐUR UM HÖFIN og „Down
under“, sem að vísu seldist upp á tveim
dögum, en við bættum 10 sætum við.
I saina stefnir með „Töfra 1001 nætur á
slóðum Alladíns í Austurlöndum“ og önnur
ævintýri í útlöndum, sem verða kynnt:
SUNNUD. 16. mars kl. 14-16 á HOTEL SÖGU
- Alinenn ferðakvnning og myndasýning. Nýja
áætlunin FAGRA VEROLD lögð fram og
kvnnt ásamt nýjum geisladiski:
KOMDUMEÐ AÐ SJÁ HEIMINN,
úrval ferðapistla Ingólfs Guðbrandssonar á
Aðalstöðinni 1996.
SÓLRISUHÁTÍÐ
í Súlnasal Hótel Sögu sunnudagskvöld
kl. 19.30-01.00.
V'eisla með Ijúffengri sselkeraþrennu, fjölbreyUum
skemmti-atriöum. m.a. myndasýningum,
tískusýnmgu. danssýningu. nýrri söngstjörnu og
dansi, þar sem Ragnar Rjarnason og eo sjá um fjörið,
sérstaklega fyrir Heimsreisuiára. en skemiut-unin er
Aðgöngumiða- og borðapantanir á Hótel Sögu,
sími 552 9900.
FERÐASKRIFSTOFAN
PRIMAí
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
Austurstræti 17, 4. hæð 101 Reykjavík, sími 562-0400, fax 562-6564