Morgunblaðið - 15.03.1997, Side 27

Morgunblaðið - 15.03.1997, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARZ 1997 27 AÐSEIMDAR GREINAR Ríkið skatt- leggur fætur fatlaðra Þórður AÐ VERA fatlaður og bundinn við hjóla- stól finnst varla nein- um eftirsóknarvert hlutverk. Fólk sem þannig er ástatt fyrir hefur það sameiginlegt að vilja „standa á eigin fótum“ ef svo mætti að orði kveða og vera eins lítið háður mis- kunn annarra og hægt er. Þetta hafa nokkrir reynt en þá komið í ljós að þær byrðar sem hið opinbera leggur á þá hafa reynst of þungar. Við erum kannski í mesta lagi 10 manns sem hefur tekist að eignast bíl með hjólastólalyftu. Við sem erum það mikið fötluð að við komumst ekki úr hjólastól í fólksbíl þurfum á þessu að halda, sérstaklega þeir sem þurfa að vera bundnir við rafknúna hjólastóla sem eru of þungir og fyrirferðarmiklir til að taka með sér í fólksbíl. Þessir bílar eru okkar fætur. Árið 1992 fór ég á fund Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra í þeim erindagjörðum að fá aflétt dieselskatti ríkisins af þessum bíl- um fatlaðra, en þeir eru yfirleitt stórir og þungir sendiferðabílar. Þeir sem hafa fengið þá með bensínvél hafa ekki getað rekið þá vegna þess hve bensínfrekir þeir eru og við sem höfum fengið diesel- bíla erum að kikna undan diesel- skattinum sem er 7-20 kr. á hvern kílómetra. Ráðherra tók ekki illa í hug- myndina um að fella niður þennan skatt en kvað samþykki þingis þurfa til. Skömmu seinna ætlaði Guðmundur Hallvarðsson, alþingis- maður og forstöðumaður Hrafn- istu, að leggja fyrir þingið tillögu um að þessum skatti yrði aflétt af bifreiðum þeirra sem verst settir eru í þjóðfélaginu. En þá var mér tjáð að Friðrik hafi komið í veg fyrir að sú tillaga yrði flutt. Trúði ég varla mínum eigin eyrum þegar ég heyrði það. Dieselskatturinn á mínum bíl er um kr. 168.000 á ári þótt honum sé ekið eins lítið og hægt er, aðallega til og frá vinnu en ég hef stundað sjálfstæðan at- vinnurekstur í nokkur ár. Hefur reksturinn staðið í járnum þar sem ég þarf að kaupa út alla vinnu og verið mér meira til afþreyingar en ábata. En við sem fötluð erum vilj- um gjarnan taka þátt í þjóðfélaginu og vinna þarflegt verk ef við verð- ur komið. íbúðir aðgengilegar fyrir hjóla- stól hafa verið útbúnar í sumum fjölbýlishúsum og hafa fatlaðir átt forkaupsrétt að þeim. Ég var svo lánsamur að geta keypt eina slíka. Af henni þarf ég að borga kr. 280.000 á ári og kr. 64.000 í fast- eignagjöld (klósettskattur Ingi- bjargar Sólrúnar innifalinn). Þetta eru kr. 512.000 á ári af bíl og íbúð fyrir utan lyf og lækniskostnað, sem er talsverður hjá fötluðum, svo kostnað við rekstur heimilis eins og hjá öðru fólki. En hvað er nú það sem ég fæ til að lifa af? Ég fæ kr. 55.827 á mánuði með öllum uppbótum og konan mín sem einn- ig er fötluð fær kr. 48.874 á mán- uði. Það er samtals kr. 1.156.412 á ári fyrir okkur bæði. Af þessu eigum við að borga af íbúð og bíl og reka allt okkar heimili. Það hef- ur einfaldlega ekki gengið upp og höfum við ekki komist hjá að safna skuldum sem við vitum ekki hvern- ig við getum borgað. Það einfald- lega stefnir í það að við verðum að fara inn á stofnun og láta það opinbera sjá fyrir okkur. En hvað kostar það? í sjónvarpsviðtali við al- þingismanninn Pál á Höllustöðum í nóvem- ber síðastliðinn kom það fram að það kostar ríkið kr. 600.000 á mánuði að hafa fatlað- an einstakling inni á stofnun. Það eru yfir fjórtán milljónir fyrir okkur hjónin á ári! ___________ Væri ekki nær fyrir Jónsson Þaað °Pinb.era að fella mður smaskatta eins og dieselskattinn, fasteignagjöld og jafnvel hækka örorkubætur til okkar sem verst erum stödd og erum ekki fleiri en fjármálaráð- herra getur talið á fingrum handa sinna, heldur en að borga á annað hundrað milljóna á ári úr vasa Við sem erum fötluð viljum gjarnan taka þátt í þjóðfélaginu, segir Þórður Jónsson, og vinna þarflegt verk, ef við verður komið. skattborgaranna til að halda í okk- ur lífinu inni á stofnun? Er ekki eitthvað að hugarfari Friðriks Sop- hussonar að kasta þannig krónunni til að spara eyrinn fyrir skattgreið- endur? Er ekki eitthað fleira í voru þjóðfélagi sem ber keim af skamm- sýni fjármálaráðherrans? Annað mál langar mig að taka fyrir úr því ég er kominn út á rit- völlinn en það er óreiða á ýmsum stöðum hjá því opinbera. Til dæmis þegar ég fékk bílinn minn fékk ég afslátt af tolli vegna fötlunarinnar eins og ég átti rétt á. En hálfu ári seinna fékk ég svo rukkun frá toll- stjóra vegna vörugjalds af bílnum sem ég átti ekki að borga og fylgdi með rukkun til mín vegna vöru- gjalds af hjólastólalyftunni sem ég hafði haft í ár að láni en hún er eign Tryggingastofnunar ríkisins. Kostaði þetta mig mikið amstur og margar ferðir niður í tollstöð. Ræddi ég við tollstjóra í síma og kvartaði undan því að tollstöðin væri ekki hjólastólageng. Kvað hann húsið gamalt og armmörk á að breyta því. Benti ég honum á að 1978 hefðu verið sett bygging- arlög á Alþingi þar sem kveðið var á um að allar nýbyggingar sem hýsa ættu opinbera þjónustu skyldu vera hjólastólagengar og eldri byggingum breytt eins og kostur væri svo fatlað fólk gæti farið þar um. Einnig benti ég tollstjóra á hve myndarlega til dæmis Eimskip handan götunnar hefði leyst þetta mál. Þegar ég hef fengið vörur erlendis frá hef ég látið senda þær til Hafnarfjarðar því þar er toll- stjóraskrifstofan hjólastólageng. Til þess að leysa vitleysuna með vörugjaldið sem ég átti ekki að borga þurfti ég að skrifa undir pappíra þar sem mér var gert að endurgreiða gjaldið ef ég seldi bíl- inn innan 5 ára. Þótti mér það hart því ég get endurnýjað bílinn og fengið styrk (tollafslátt) á þriggja ára fresti. Öryrki sem ég veit um hafði samband við ijár- málaráðherra til að spyija um þetta misræmi því flestir fatlaðir sem fá afslátt af nýjum bíl reyna að end- urnýja á þriggja ára fresti frekar en 5 ára til að geta brúað bilið fjár- hagslega. Fjármálaráðherra svar- aði því til að þessi reglugerð hafi farið inn fyrir misskilning. Flestir heilvita menn reyna að leiðrétta mistök sín en Friðrik virðist ekki sjá þörf á því þegar fatlaðir eiga hlut að máli. Það eru fleiri hús en tollstöðin sem ekki eru hjólastólageng. Til dæmis er lögreglustöðin í Reykja- vík ekki hjólastólageng. Þegar ég hef þurft að endurnýja ökuskírteini eða vegabréf hef ég orðið að láta sækja starfsmanneskju út og síðan að fylla út pappír og skrifa úti á hlaði, stundum skjálfandi í kulda- nepju. Hefur starfsfólkið tjáð mér að svo þurfi að gera þetta þegar fatlaðir eigi í hlut. Eru ekki dóms- málaráðherra og lögreglustjóri hér að brjóta lög í sameiningu? Eða er ekki kominn tími til að laga þessa hluti og framfylgja lögum sem sett voru á Alþingi fyrir 20 árum? Væri ekki löngu búið að setja á sektir ef einhveijir aðrir en fatlaðir ættu í hlut? Er ekki líka kominn tími til að setja sneiðingar á gang- stéttar svo hjólastólar komist upp á þær til dæmis við bílastæði fyrir fatlaða? Það er lítið gagn að þeim ef hjólastóll kemst ekki upp á gang- stéttina eða inn í þá stofnun sem stæðið er við. Þetta hefur þó lag- ast dálítið á undanförnum árum, þökk sé R-listanum. Við teljum okkur meðal vest- rænna þjóða og jafnvel framarlega á ýmsum sviðum menningar. En það segi ég satt að þessir hlutir eru alls staðar betri þar sem ég hef farið, jafnvel inni í miðri Afríku. Höfundur stundar sjálfstæðan atvinnurekstur og hefur verið bundinn við hjólastól frá fæðingu. Kattalaus íbúðarhverfi í DEGI-TÍMANUM þann 27. febrúar sl. var á bls. 5 grein eftir bæj- arstjóra Hafnaríjarðar, Ingvar Viktorsson, sem bar heitið „Kattalaus íbúðahverfi". Þar ræðir bæjarstjórinn um ný- byggingarsvæði við Ástjörn, þar sem komin sé ný síaða, að hugsan- lega yrði kötturinn, fé- lagi manna frá örófi alda, bannaður í þessu hverfi. Ástæða þessa banns er fuglaparadís og fjölskrúðugt náttúrulíf, m.a._ verpir flórgoðinn við Ástjörn, en hann er talinn í mikilli útrýming- arhættu á íslandi. Hafi Hafnfirðingar þökk fyrir þetta brautryðjendastarf í náttúruvernd, en önnur sveitafélög þurfa nú að fylgja fast á eftir. Hér með er skorað á Leifur Sveinsson borgaryfírvöld, segir Leifur Sveinsson, að gera þegar gangskör að því að fá staðfesta reglugerð um kattahald í Reykjavík. ii. Reykjavíkurborg hefur enn ekki óskað eftir því við umhverfisráðu- neytið, að staðfest verði reglugerð um kattahald í Reykjavík. í Stjórn- artíðindum hefur undanfarið mátt lesa kattareglugerðir, t.d. frá Hrís- ey, nr. 533, frá 2. október 1996, og frá Neskaupstað nr. 600 frá 14. nóvember 1996. Reglugerðir þessar eru afar mismunandi og fara eftir aðstæðum á hveijum stað. í útvarpi fyrir skömmu var talið að um 15.000 kettir væru á íslandi. Hér með er skorað á borgaryfirvöld að gera þeg- ar gangskör að því að fá staðfesta reglugerð um kattahald í Reykjavík. III. Við Tjörnina er fuglaparadís Reykvíkinga. Við gömlu stein- bryggjuna hjá gamla Búnaðarfé- lagshúsinu hópast foreldrar með börn sín að gefa bra-bra brauð. Sá galli er þó á gjöf Njarðar, að allt of mikið er um ketti í nágrenni Tjarnarinnar og hafa þeir sést draga andarunga frá Tjarnarbakkanum og sitja um að drepa þrastarunga, þeg- ar þeir eru bjargarlitlir. Þessu verður að linna. Enginn vill meina fólki að halda kött, en þá verða þeir að sætta sig við ákvæði eins og gilda í Hrísey: „6. gr. Kettir skulu ekki undir nein- um kringumstæðum ganga. lausir ..Um- hirða kattaeigenda við Tjörnina er víða til skammar, þeir eru hafðir úti fram á rauða nótt, stökkva upp í eld- húsglugga og þar yfir öll borð. í þéttbýli Nes- kaupstaðar er katta- hald bannað, en unnt er að sækja um undan- þágu frá banninu gegn ákveðnum skilyrðum, svo sem að hafa kött- inn ábyrgðartryggðan og með bjöllu og plötu með skrásetningarnúmeri. IV. Allir eiga að geta lifað í sátt og samlyndi, menn, fuglar, hundar og kettir. Til þess, að svo megi verða, þarf að vera til reglugerð um katta- hald í Reykjavík, aðrar reglugerðir munu vera til, Lögreglusamþykkt fyrir Reykjavík og reglugerð um hundahald. V. Það var átakanleg sjón, sem blasti við ökumönnum í einu hrakviðrinu í janúar sl. Lærbrotinn köttur að bijótast yfír Sóleyjargötuna á móts við Staðastað. Stórslasaður braust hann yfir einn snjóhraukinn af öðr- um í átt að eystri brún götunnar. Kattavinafélagið þarf að sjá til þess að svona harmleikir gerist ekki. Aðeins einlægir kattavinir fái að halda ketti. Höfundur er lögfræðingur. Glœsileg hnífapör í miklu úrvali SILFURBUÐIN Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066 - Þar fceröu gjöfina - Rúmhetri en keppinautarnir? MAZDA 323 Sedan er stærri og með lengra farþegarými en 323 Sedan kostar frá kr. helstu samkeppnisbílar. Komdu, mátaðu og finndu muninn! Aðrar gerðir kosta frá kr. 1.249.ooo Umboösmenn: Akranes: Bílás sf. • ísafjöröur: Bílatangi ehf. • Akureyri: BSA hf. • Egilsstaðir: Bílasalan Fell • Selfoss: Betri bílasalan • Vestmannaeyjar: Bifreiðaverkstæði Muggs

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.