Morgunblaðið - 19.04.1997, Page 1
80 SÍÐUR B/C
88. TBL. 85. ÁRG.
LAUGARDAGUR 19. APRÍL1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Mál Netanyahus
Avítur
í stað
ákæru?
RÍKISSJÓNVARPIÐ i ísrael
sagði í gær að Benjamin
Netanyahu forsætisráðherra
yrði að öllum líkindum ekki
ákærður fyrir spillingu eins og
lögreglan hefur lagt til.
Norska dagblaðið Aften-
posten hafði eftir sjónvarpinu
að ríkissaksóknarinn, Edna
Arbel, hygðist láta nægja að
ávíta forsætisráðherrann fyrir
þátt hans í spillingarmálinu.
Hins vegar yrði líklega birt
ákæra á hendur Aryeh Deri,
formanni eins af stuðnings-
flokkum stjómarinnar, sem er
sagður hafa knúið Netanyahu
til að skipa óhæfan mann sem
æðsta lögfræðilega embættis-
mann landsins með hótunum
um að verða annars stjórninni
að falli. Lögreglan telur að
Deri hafi þannig viljað tryggja
að embættið felldi niður ákæru
á hendur honum vegna annars
spillingarmáls.
Hefur gert upp hug sinn
Sjónvarpið sagði ennfremur
að ríkissaksóknarinn myndi
hafna tillögu lögreglunnar um
ákæru á hendur Tzahi
Hanegbi dómsmálaráðherra
og Avigdor Lieberman, skrif-
stofustjóra forsætisráðherr-
ans. Ríkisútvarpið í ísrael
sagði að saksóknarinn hefði
þegar gert upp hug sinn og
myndi skýra frá ákvörðun
sinni á morgun, sunnudag.
Bill Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, kvaðst vongóður um
að málið yrði leyst og lagði
áherslu á að það mætti ekki
spilla fyrir friðarumleitunum
ísraela og Palestínumanna.
Ákæra eða dómur/20
Handritin
um borð í
Vædderen
FIMMTÁN sjóliðar báru í gær
jafnmarga kassa með síðustu
handritasendingunni úr Árna-
safni um borð í danska strand-
gæsluskipið Vædderen. Tvö allra
síðustu handritin verða svo af-
hent íslendingum 19. júní til að
hnýta endahnútinn á afhendingu
íslenskra handrita úr dönskum
söfnum.
■ Handritin/6
Morgunblaðið/Polfoto/Sören Jensen
Kabila hafnar friðarviðræðum við Mobutu
Undirbýr árás á
höfuðborg Zaire
Bandaríkjamenn efast um að stækkun NATO sé í höfn
Þjóðveijar vongóðir um
samkomulag við Rússa
__ ....... I ¥ 1 . . ... I) ... . t n ..
Nairobi, Lumbumbashi, Genf. Reuter.
SKÆRULIÐALEIÐTOGINN Laurent Kabila sagði í gær að ekki kæmi
til greina að hefja friðarviðræður við Mobutu Sese Seko, forseta Zaire, en
í fyrradag var sagt frá því að þeir hefðu fallist á fund í Suður-Afríku
þar sem rætt yrði um kosningar. Sagði Kabila um misskilning að ræða
varðandi boð Suður-Afríkumanna um viðræður, hann væri einungis reiðu-
búinn að hitta Mobutu við valdaskipti. Skæruliðahreyfing sín byggi sig
nú undir að ráðast á höfuðborgina, Kinshasa, léti Mobutu ekki af völdum.
Heimildarmenn ffeuter-frétta-
stofunnar sögðu skæruliðahreyf-
ingu Kabila hafa safnað liði í ná-
grenni Kinshasa og að greinilegt
væri að hún hygðist ráðast inn í
borgina.
Bonn, Brussel, París. Reuter.
ÞJÓÐVERJAR sögðust í gær vera
bjartsýnir á að Atlantshafsbanda-
lagið (NATO) næði samkomulagi
við Rússa um stækkun bandalags-
ins til austurs fyrir leiðtogafund
NATO og Rússa í París 27. maí.
Bandaríkjamenn iétu hins vegar í
ljós efasemdir um að samkomulag
væri í nánd.
Karlheinz Hornhues, formaður
utanríkismálanefndar þýska þings-
ins, sagði að fundur Borís Jeltsíns
Rússlandsforseta og Helmuts
Kohls, kanslara Þýskalands, á
fimmtudag sýndi að Rússar litu
ekki lengur á stækkun NATO sem
ógnun við öryggishagsmuni sína.
Jeltsín hefði á fundinum lofað að
finna lausn á deilunni fyrir leiðtoga-
fundinn.
Hornhues kvaðst þó andvígur
þeirri kröfu Rússa að NATO gerði
lagalega bindandi samning um að
erlendar hersveitir og kjarnorku-
vopn yrðu ekki í nýjum aðildarríkj-
um bandalagsins. Hann sagði að
NATO gæti ekki undirritað samn-
ing sem skerti fullveldi landanna
og gerði þau að „annars flokks
aðildarríkjum“.
Bandaríkjamenn hissa
Eftir fundinn með Kohl lýsti
Jeltsín yfir því að samkomulag um
stækkun NATO yrði undirritað á
leiðtogafundinum í París. Frakkar
fögnuðu þessum ummælum en
sögðu að ýmis vandamál væru enn
óleýst. Talsmaður utanríkisráðu-
neytisins í Washington var hissa á
bjartsýni Jeltsíns og sagði of
snemmt að lýsa yfir því að sam-
komulag væri í höfn.
Stjórnarerindrekar í Brussel
sögðu það öldungis óvíst hvort deil-
an leystist fyrir leiðtogafundinn og
sögðust telja að Rússar væru að
reyna að reka fleyg á milli NATO-
ríkjanna í von um að geta knúið
fram frekari tilslakanir af hálfu
bandalagsins.
Stjórnvöld í Suður-Afríku hafa
reynt með öllum ráðum að binda
enda á stríðið í Zaire og lýstu því
yfir á fimmtudag að Kabila og
Mobutu hefðu fallist á viðræður um
kosningar, án nokkurra skilyrða.
Þessu vísaði Kabila á bug í gær.
„Frumkvæði Suður-Afríkumanna
varðar valdaskipti. Þegar [Mobutu]
hefur fallist á þau mun ég fara og
vera viðstaddur stutta athöfn þar
sem valdaskipti fara fram með frið-
samlegum hætti,“ sagði Kabila.
Þjóðaratkvæði um
konung í Albaníu
Tirana. The Daily Telegraph.
LEKA, útlægur konungur Alban-
íu, sagði í gær að sljórn og for-
seti landsins hefðu lofað að efna
til þjóðaratkvæðagreiðslu um
hvort landið ætti að verða kon-
ungdæmi að nýju.
Leka sagði þetta eftir fund með
Sali Berisha forseta í Tirana og
bætti við að stjórnin myndi
ákveða hvenær atkvæðagreiðslan
færi fram. Hann kvaðst vilja að
málið yrði borið undir þjóðarat-
kvæði fyrir kosningarnar, sem
ráðgerðar eru 29. júní. Fari hann
með sigur af hólmi verður Alban-
ía fyrsta fyrrverandi kommún-
istaríkið í Austur-Evrópu sem
Leka
konungur.
kemur á fót kon-
ungdæmi.
Leka kveðst
geta stuðlað að
friði í landinu
eftir upplausn-
ina síðustu vik-
ur. Hann er 58
ára og sonur
Zogs, fyrsta kon-
ungs Albaníu,
sem komst til
valda 1928. Kon-
lagt niður 1939
ungdæmið var
eftir innrás ítala og Zog lést
útlegð árið 1961. Fjölskylda hans
hefur búið í Suður-Afríku.