Morgunblaðið - 19.04.1997, Page 4
4 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Heimir Harðarson
STEYPIREYÐUR lék listir sínar fyrir belgíska ferða-
menn á Skjálfanda í gær.
Um 20 metra
steypireyður
á Skjálfanda
STÆRSTA dýr í heimi, steypireyð-
urin, lék listir sínar fyrir tæplega
níutiu belgíska bankamenn vestar-
lega á Skjálfandadýpi í gær. Hörð-
ur Sigurbjarnarson, skipstjóri á
Knerrinum, segir stórkostlegt að
sjá steypireyðina athafna sig og
telur að hún hafi verið um 20
metra löng. Gísli A. Víkingsson,
líffræðingur hjá Hafrannsókna-
stofnun, segir að samkvæmt þessu
sé steypireyðurin snemma á ferð-
inni, hennar verði yfírleitt vart í
maí. Fullvaxin steypireyður er um
25 metra löng og getur vegið 100
tonn.
Hörður rekur hvalaskoðunarfyr-
irtækið Norðursiglingu í félagi við
bróður sinn og son á Húsavík og
sáu þeir feðgar dýrið í fyrrakvöld.
„Við vorum að koma með bátinn
frá Akureyri og sáum stærri
skepnu en við höfum komið auga
á áður, þótt ekki gætum við verið
vissir um tegundina í rökkrinu,"
segir hann.
Það er stórkostlegt
að rekast á hval
Umræddir Belgar eru í svokall-
aðri hvataferð á Húsavík en eigin-
legt hvalaskoðunartímabil hefst
ekki fyrr en í maí. Lagt var af
stað með 44 manna hóp klukkan
níu í gærmorgun út á Skjálfanda
og þess freistað að reyna að finna
hvalinn. Voru gestirnir að sögn
yfir sig hrifnir. „Það er stórkostleg
sjón að rekast á hval. Þetta fólk
kemur úr borgarumhverfi og mikil
upplifun fyrir það að sjá þessar
skepnur. Gleðin var mikil um
borð,“ segir Hörður jafnframt.
Þurfum ekki að leita
að fílum í Afríku
Skipstjórinn segir að steypireyð-
urin hafi verið hin rólegasta enda
mikil áta á þessum slóðum. „Blást-
urinn frá þessum skepnum er með
ólíkindum, 8-9 metra hár strókur.
Steypireyðurin lyftir líka sporði
sem hvorki langreyðurin né hrefn-
an gera. Við erum með þetta stór-
kostlega lífríki rétt við bæjardyrn-
ar og finnst ekkert til um en förum
svo til Afríku að leita að fílum.
Þetta er ekki minni upplifun," seg-
ir hann.
Farið var með jafnstóran hóp
Belga út á flóann til móts við
steypireyðina eftir hádegi í gær
og fannst hún eftir Vh tíma sigl-
ingu. Þótti síðari hópinum ekki
minna til koma að Harðar sögn
og dönsuðu Belgarnir á dekkinu
af fögnuði.
Gísli A. Víkingsson, líffræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun, segir
vitað að steypireyðurin fari suður
á bóginn á veturna, þótt ekki sé
ljóst hvert, og komi til baka í
maí. Hún sé því talsvert fyrr á
ferðinni nú en að öllu jöfnu. Hval-
urinn finnst í kringum landið allt
og leiddi talning 1987-89 í ljós
um 1.000 dýr. Fleiri skepnur fund-
ust í talningum 90-95 en ekki
búið að vinna úr þeim gögnum að
Gísla sögn.
BELGARNIR dönsuðu hringdans af gleði yfir því að hafa séð stærsta dýr jarðarinnar.
Grímsey-
ingar-
gjafmildir
ÖLL heimili í Grímsey, 20
talsins, gáfu samtals 60 þús-
und krónur í söfnunina sem
nú stendur yfir til styrktar
sambýliskonu Elíasar Arnar
Kristjánssonar, skipveija á
Ægi, sem fórst við björgunar:
störf 5. mars síðastliðinn. í
gær höfðu safnast samtals
rúmlega 1,5 milljónir króna
og þar af gaf útgerðarmaður
á ísafirði 200 þúsund krónur
nú í vikunni.
Að sögn Sigurðar Helga
Guðjónssonar hæstaréttarlög-
manns, eins aðstandenda
söfnunarinnar, er greinilegt
að söfnunin hefur tekið nokk-
uð við sér aftur eftir að bak-
slag kom í hana um síðustu
helgi vegna villandi umfjöll-
unar í fjölmiðlum.
Upphæðin sem safnast hef-
ur er nú farin að nálgast þá
upphæð sem sambýliskona
Elíasar Arnar og börn þeirra
tvö fengu í bætur frá Land-
helgisgæslunni vegna láts
hans, en það voru samtals um
1.800 þúsund krónur og þar
af fékk konan 600 þúsund
krónur.
Tekið er á móti framlögum
til styrktar konunni á banka-
reikning S Sparisjóði Reykja-
víkur og nágrennis. Banka-
númerið er 1154-05 og reikn-
ingsnúmerið er 440000.
Morgunblaðið/Ásdís
KARÓLÍNA Geirsdóttir, Hugo Haegemans, Eddy og Hilda Gers.
Belgarnir dönsuðu
„OKKUR þótti stórkostlegt að fá
að sjá steypireyðina og fannst
ótrúlegt hvað hún var stór. Það
var eins og skrokkurinn á henni
væri endalaus þegar hann sveifl-
aðist áfram í sjónum,“ sagði
Karólína Geirsdóttir, leiðsögu-
maður belgísku bankamannanna
sem voru svo heppnir að sjá
steypireyði, stærsta dýr jarðar-
innar, úti á Skjálfanda í gær.
„Við horfðum á steypireyðina
leika listir sínar í um þijú korter
og þegar hún var næst okkur var
hún um tíu metra frá bátnum,"
sagði hún ennfremur.
Hugo Haegemans, einn Belg-
anna, viðurkenndi að hjartað
hefði slegið ögn hraðar þegar
hann sá steypireyðina. „Og ég
bjóst ekki við því að hún væri
svona stór,“ sagði hann.
Hugo sagði að Belgarnir hefðu
ekki átt von á þvi að sjá hval I
bátsferðinni út á Skjálfanda og
því hefði það komið skemmtilega
á óvart. „Og við vorum svo
ánægð yfir því að fá að sjá steypi-
reyði, stærsta dýr jarðar, að við
dönsuðum hringdans uppi á
dekki bátsins," sagði hann glað-
ur í bragði og benti á mynd-
bandsupptökuvélina sína þar
sem þetta atvik væri vel geymt.
Belgísku hjónin Eddy og Hilda
Gers, sem einnig voru með í för
út á Skjálfanda, sögðust alsæl
með það að hafa séð steypireyð-
ina. „Það kom okkur líka á óvart
hvað hún var stór,“ sögðu þau.
Eddy og Hilda munu halda
heim á leið á sunnudag ásamt
samferðafólki sínu og sögðu þau
að það hefði svo sannarlega ver-
ið punkturinn yfir i-ið að fá að
sjá hval í þessari íslandsför sinni.
| Það borgar sig að kunna skil á úrgangi.
1 Kynntu þér breytta gjaldskyldu
| á endurvinnslustöðvum okkar.
ivelkomin ð enflurvlnnslustöövarnar
S©RPA
SORPEYÐINQ
HÖFUÐBORGARSV/EÐISINS bs
Skemmdarverk á Grundarfirði
Landfestar tíu
báta skornar
Grundarfirði - Landfestar tíu
báta og eins togara sem lágu við
bryggju í Grundarfirði voru skorn-
ar í sundur í nótt. Fremri festar
voru skornar af fimm bátum, aft-
ari festar af öðrum fimm og tvær
af þremur framlínum togarans
Hrings SH 335.
Veðrið bjargaði því
að ekki fór verr
Um kl. hálfþijú í fyrrinótt varð
næturvörður var við að bátar voru
lausir við flotbryggjuna í Grundar-
firði. Við nánari athugun kom í
ljós að hér var um skemmdarverk
að ræða. Línurnar höfðu allar ver-
ið skornar snyrtilega í sundur. Við
þetta losnuðu tólf bátar þvi tveir
bátar voru bundnir utan á þá sem
skornir höfðu verið frá.
Þegar að var komið voru tveir
bátanna komnir upp í kletta
óskemmdir enda blankalogn og
kyrr sjór.
Sjómenn líta verk þetta mjög
alvarlegum augum því ekki hefði
þurft að hvessa mikið til að valda
tjóni á þessum atvinnutækjum
staðarins.
Málið er í rannsókn hjá lögregl-
unni.
Moiyunblaðið/Hallgrímur Magnússon
RUNÓLFUR Guðmundsson,
skipstjóri, með sundurskorna
landfesti.
-
1
í
í
[
t
I
t
í
I