Morgunblaðið - 19.04.1997, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
AF SÉRSTÖKUM ástæðum
verðum við að fresta um eina viku
parakeppninni sem átti að hefjast
þ. 21. apríl nk. Mánudaginn 21.
apríl nk. verður spilaður eins
kvölds tvímenningur, Mitchel.
Verðlaun fyrir bestu skor bæði í
N/S og A/V. Skráning á spila-
stað, Þönglabakka 1. Mætið
tímanlega fyrir kl. 19.30.
Parakeppnin fer svo af stað
mánudaginn 28. apríl nk. Upplýs-
ingar í síma 587 9360 hjá BSÍ.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
MÁNUDAGINN 14. apríl sl. var
spilaður eins kvölds tvímenningur
Mitchell. 24 pör. Bestu skor í N/S.
Meðalskor 270.
Valdimar Sveinsson / Gunnar B. Kjartanss. 338
Þórir Leifsson / Dúa Ólafsdóttir 305
Eyvindur Magnússon / Þórður Ingólfsson 286
Bestu skor í A/V.
Amína Guðlaugsdóttir /Sigrún Pétursd. 311
Sigurður Ámundason / Jón Þór Karlsson 309
Guðm. Guðmundsson / Gísli Sveinsson 304
Mánudaginn 21. apríl nk. hefst
tveggja til fjögurra kvölda (eftir
þátttöku) parakeppni. Forgefin spil.
Monrad barómeter útreikningur.
Góð verðlaun. Upplýsingar og
skráning hjá BSÍ, s. 587 9360, Ól-
ínu, s. 553 2968 og Ólafi í s. 557
1374. Þá er hægt að mæta tíman-
lega fyrir kl. 19.30 á spilastaði í
Þönglabakka 1 og skrá sig á staðn-
um. Spilastjóri Isak Örn Sigurðs-
son.
Flugleiðir vörðu
Evróputitilinn
BRIDSSVEIT Flugleiða varði um
helgina meistaratitil sinn í keppni
evrópskra flugfélaga, sem fram fer
árlega.
Keppnin fór fram í Vínarborg
og kepptu lið frá átta flugfélögum.
Sveit Flugleiða vann með yfirburð-
um, þeim mestu síðan móti þessu
var hleypt af stokkunum árið 1972.
Sveitin vann alla leiki sína nema
einn, sem tapaðist með minnsta
mun, 14-16, fyrir British Airways.
Lokastaðan var þessi:
Flugleiðir 148
ElAl 117
Brithis Airways 115
ALITALIA 105
SAS 100
Lufthansa 95
Flugleiðasveitina skipuðu Björn
Theódórsson, Geirlaug Magnús-
dóttir, Kristján Blöndai, Ragnar
Þorvaldsson, Sigurður Sverrisson
og Sæmundur Björnsson og Torfi
Axelsson var fyrirliði.
Bridsfélag Suðurnesja
MEISTARAMÓT félagsins í tví-
menningi stendur nú sem hæst og
eru Karl Hermannsson og Amór
Ragnarsson í forystu þessa stund-
ina en lokið er 8 umferðum af 21.
Staða efstu para er nú þessi:
Karl Hermannss. - Amór Ragnarsson 91
Sigurður Davíðsson - Þorvaldur Finnsson 75
Gísli Torfason - Jóhannes Sigurðsson 70
Sigurður Albertss. - Jóhann Benediktss. 53
BjömDúason-EinarOddsson 35
Hæstu skor síðasta spilakvöld
fengu eftirtalin pör:
KarlHermannss.-AmórRaparsson 61
Kjartan Ólason - Óli Þór Kjartanss. 24
Gísli Torfason - Jóhannes Sigurðsson 22
SigurðurDavíðsson-ÞorvaldurFinnsson 22
Þröstur Þorláksson - Þór 22
Spilað er á mánudagskvöldum í
félagsheimilinu kl. 19.45.
Bridsfélag Hreyfils
ÁGÚST Benediktsson og Rósant
Hjörleifsson hafa nú örugga forystu
í Butler-tv+imenningnum en þeir
hafa skorað 202 yfir meðalskor.
Næstu pör:
Thorvald Imsland - Rúnar Guðmundsson 130
Anna G. Nielsen - Guðlaugur Nielsen 120
Daníel Halldórsson - Siguijón Tryggvason 104
Kári Siguijónsson - Guðm. Magnússon 97
Bridsfélag Reyðarfjarðar
og Eskifjarðar
DAGANA 8. og 15. apríl fór fram
hin árlega firmakeppni BRE og var
spilaður barómeter. Þátttaka var
góð, 28 fyrirtæki á Eskifirði og
Reyðarfirði tóku þátt í keppninni
og er þeim hér með þakkaður stuðn-
ingurinn. Fyrirkomulagið var þann-
ig að keppendur drógu sér fyrir-
tæki til að spila fyrir. Úrslit urðu
á þessa leið:
Atlavík ....................... 56
Kristján Krisjánsson - Ásgeir Metúsalemsson
Eskiícjör.........................50
Bjmi Einarsson - Pétur Pétursson
Videoleiga EskiQarðar.............37
Bjami Kristjánsson - Svavar Kristinsson
Vátryggingarfélag íslands ....... 35
Kristján Kristjánsson - Ásgeir Metúsalemsson
Skrifborð 140x64 m/4ra skúffu skáp kr. 27.300 stgr.
Bókahilla 80x202x29 kr. 14.950 stgr.
Tölvuborð beyki frá kr. 10.900 stgr.
Teg. Oslo 2 horn 3
2 horn 2
kr. 98.900 stgr.
kr. 93.900 stgr.
OPIÐ
í DAG
KL. 10-16
HÚSGAGNAVERSLUN
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100
fETSIEtl
36 mán
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Reyklausa
kaffistofu á
Reykjavíkur-
flugvelli
AF hveiju púar þú eða þið
eitri á mig og mína? Ég
er búin að sitja í marga
tíma og bíða eftir flugi á
Reykjavíkurflugvalli, en
vegna þoku er bið eftir
flugi. Ég get ekki fengið
mér kaffi í kaffistofunni,
því þar situr fólk og reykir,
heldur verð ég að bera
kaffið fram í biðstofu til
að geta setið í reyklausu
umhverfi. Ég skora á þá
sem málið varðar að gera
einhveijar úrbætur á
kaffistofunni og aðskilja
reykingafólk og
reyklausa.
Herdís Björnsdóttir.
„Friðarömmur“
„AMMA í Árbænum“ er
með fyrirspurn um það
hvort ekki hefðu verið til
samtök sem kölluðu sig
„Friðarömmur" og ef svo
er hvar hægt væri að kom-
ast í samband við þessi
samtök.
Dýrahald
Ekið á kött
SVARTUR köttur týndi
lífinu þegar hann hljóp fyr-
ir bíl á Miklubraut, ekki
langt frá gatnamótum Mi-
klubrautar og Snorra-
brautar. Slysið átti sér stað
síðastliðinn þriðjdag. Kött-
urinn var með ól um háls-
inn en ómerktur að öðru
leyti og því ekki hægt að
koma boðum til eigenda
hans. Uppl. gefnar í síma
552-5214 á kvöldin.
Óli er týndur
ÓLI sem er svart/hvítur
fressköttur týndist frá Sel-
tjarnarnesi sunnudaginn
13. april. Hann er ekki með
hálsband en er eyrna-
merktur. Ef einhver hefur
orðið var við hann, vinsam-
legast hringið í síma
561-1656.
Mínou er týndur
LÆÐAN Mínou er týnd.
Hún hvarf að heiman 3.
apríl frá Egilsgötu 22. Hún
er svört með hvíta bringu
og hvítar tær. Hún er
eyrnamerkt og með svarta
og græna ól. Þeir sem hafa
orðið varir við kisu hringi
í síma 551-2240.
Tapað/fundið
Drengjahjól
tapaðist
BLÁTT og hvítt 24“
drengjahjól tapaðist. Hjólið
er af gerðinni Diamond
Nevada. Það hvarf frá
Tómasarhaga 53 þriðju-
daginn 15. apríl. Skilvís
fmnandi vinsamlega hringi
í síma 551-0534.
Svartur
karlmannsjakki
tapaðist
SVARTUR karlmanns
jakki tapaðist á nemenda-
móti Verslunarskólans á
Hótel íslandi 6. febrúar.
Skilvís finnandi vinsam-
lega hafi samband í síma
567-0162.
SKÁK
Umsjón Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp á danska
meistaramótinu í Esbjerg í
ár. Henrik Danielsen
(2.490) hafði hvítt og átti
leik, en stigahæsti skákmað-
ur Dana, Curt Hansen
(2.605) var með svart.
23. Hxf6! - Hxf6 24. Hxf6
— Bxh3 (Algjör örvænting,
en 24. — Dxf6 25. Re8+
er hjónagaffall og 24.
—Kxf6 er svarað með 25.
Dh4+ og hvítur vinnur) 25.
He6! og svartur gafst upp.
Hann getur ekki var fjölda-
mörgum hótunum hvíts.
Lars Bo Hansen sigraði
á mótinu með 6‘/z v.
af 9 mögulegum, en
þeir Curt Hansen,
Bent Larsen og Peter
Heine—Nielsen komu
næstir með 5 v.
íslandsmót grunn-
skólasveita —
stúlknaflokkur. Mót-
ið fer fram á morgun,
sunnudaginn 20. apríl
hjá Skáksambandi ís-
lands, Faxafeni 12, og
hefst kl. 13. Hver sveit
er skipuð fjórum kepp-
endum og tefldar
verða fjórar umferðir eftir
Monrad kerfi. Hver skóli
má senda fleiri en eina sveit.
Austurland: Ungmennafé-
lagið Þristur heidur kaffi-
húsaskákmót í Hús-
stjórnarskólanum á Hali-
ormsstað sunnudaginn 20.
apríl klukkan 13:30. Þátt-
tökugjald er kr. 700. Kaffi
og með því innifalið. Verð-
laun.
HVÍTUR leikur og vinnur.
HÖGNIIIREKKVÍSI
Yíkverji skrifar...
VÍKVERJI hafði um það nokk-
ur orð fyrir skömmu, að karl-
menn ættu erfitt með að fá nógu
stóra gúmmíhanska fyrir upp-
þvottinn og ekki bætti úr skák að
hanskarnir væru helst bleikir, þó
liturinn væri að vísu aukaatriði í
umfjöllun þessari. Víkveija hefur
nú borist bréf frá jafnréttissinnuð-
um íslendingi í Danmörku, Pétri
Gauti Svavarssyni. Hann tekur
undir kvartanir um gúmmíhanska
og bætir því við, að það virðist
algjöriega ómögulegt að fá barna-
vagna og kerrur með nógu há
handföng, svo hávaxnir geti ekið
börnum sínum um bæinn án þess
að vera í ankannalegri stellingu.
„Nú er ég löngu hættur að fara
með dóttur mína út í kerru, þar
sem ég fæ í bakið við að ýta henni
á undan mér,“ segir Pétur Gautur.
Hann bendir einnig á, að borð
eldhúsinnréttinga séu yfirleitt í 90
sm hæð, „sem er í það lægsta þeg-
ar karlmenn vaska upp með
þröngu, bleiku gúmmíhönskunum
sínum.“ Sjálfur er hann svo lán-
samur að vera með borð í 95 sm
hæð. „Mér fínnst mikill munur að
vinna við þá hæð heldur en þá
gömlu. Og það merkilega er, að
konunni minni, sem er ekki há í
loftinu, fínnst það líka.“
UPPVASKIÐ er ekki það eina
sem vekur Pétur Gaut til
umhugsunar. Hann nefnir nokkur
dæmi um hve hátt verð á barna-
vörum er á íslandi, í samanburði
við Danmörku. „Þegar dóttir okk-
ar fæddist bjuggum við heima og
þurftum að kaupa það sem allir
þurfa að eignast þegar fjölgun
verður í fjölskyldunni, fyrir um
100-200 þúsund krónur. Barna-
vagninn var keyptur notaður, en
hann kostaði samt 30.000. Hér í
Danmörku kostar nýr sams konar
barnavagn um 22.000. Sömu sögu
er að segja af regnhlífakerru, sem
við keyptum notaða heima á
10.000, en ný kostaði um 20.000
kr. Hér kosta þær nýjar um 12.000
kr. Er ekki nóg á unga fólkið lagt,
sem kannski er í námi eða að koma
sér upp þaki yfír höfuðið, þótt
ekki sé verið að okra á ungbaminu
líka?“
Víkveiji þakkar Pétri Gauti
skrifín.
XXX
EGAR Víkveiji var yngri að
árum var barnablaðið Æskan
fastur punktur í tilverunni. Vík-
veiji er þó alls ekki einn um þær
minningar, enda er Æskan nú á
100. ári. Núna heitir blaðið Æsk-
an og abc.
Víkverji fékk nýjasta tölublaðið
í hendur í vikunni og varð glaður
mjög, þegar hann sá hve vel tíma-
ritið hefur elst. Enn er helsta að-
alsmerki Æskunnar jákvæðar og
skemmtilegar greinar. Æskan
lætur áfengis- og vímuvarnir að
sjálfsögðu til sín taka, enda gefur
Stórstúka íslands blaðið út og
áróðri gegn vímuefnunum er kom-
ið á framfæri með skemmtilegum
sögum og með lýsingu á líflegu
starfi ungmennastúka.
Ekkert er Æskunni óviðkom-
andi og í blaðinu er mjög fjöl-
breytt efni, viðtöl við ýmsar fyrir-
myndir unga fólksins, lesenda-
bréf, ljóð og smásögur, grein um
alnetið, fjallað er um Neyðarlín-
una, birtar myndasögur og vegg-
spjöld af poppstjörnum og leikur-
um, brandarar, þrautir, fróðleiks-
molar um fræga fólkið, plötudóm-
ar, frímerkjaþáttur og svo mætti
lengi telja.
Það er leitun að tímariti sem
spannar jafn vítt svið og Æskan
á mikið hrós skilið fyrir að hafa
glatt og frætt unga lesendur sína
í nærri eina öld.