Morgunblaðið - 19.04.1997, Side 52
52 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖINID/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
BÍÓIIM í BOROIMIMI
Sæbjöm Valdimarsson/Amaldur Indriðason/Anna Sveinbjamardóttir
BÍÓBORGIN
Lesið í snjóirm * +'/2
101 Dalmatíuhundur * Ar'A
Kostuleg kvikindi * *'A
Málið gegn Larry Flynt * * -k'/i
SAMBÍÓIN,
ÁLFABAKKA
Lesið i snjóinn * -k'/i
Michael Collins* ir'/i
Undir fölsku flaggi * *Vi
Jerry Maguire * * *
Djöflaeyjan *■**'/’2
Lausnargjaldið ***
Innrásin frá Mars * *'A
Space Jam * *
HÁSKÓLABÍÓ
The Empire Strikes
Back * * * *
Star Wars * * *'A
Saga hefðarkonu **'A
Kolya ***'A
Fyrstu kynni ***
Undrið * * *'A
Leyndarmál og lygar ****
KRINGLUBÍÓ
Michael Collins * *'A
Jói og risaferskjan * * *'h
101 Dalmatíuhundur **'A
Metro **'A
Djöflaeyjan * * *'A
LAUGARÁSBÍÓ
Evita **'A
Koss dauðans ***'/%
REGNBOGINN
Rómeó og Júiia ***
Englendingurinn * * *'A
STJÖRNUBÍÓ
Undir fölsku flaggi * * *
Jerry Maguire ***
LAUGARDAGSMYIMDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
WOODY Allen - í fínu formi.
Vandi eftir vegsemd
verkið og aðstoðarglæpon sinn
(Chazz Palminteri) fylgist með æf-
ingum. Og þetta er bara helmingur-
inn af vandanum sem fylgir þessari
vegsemd.
Skopádeila Allens er freyðandi af
hnyttni, leikhópurinn rammáfengur
- áuk fyrmefndra Dianne Wiest og
Jim Broadbent sem eru ómótstæði-
leg sem stjömumar í sýningunni.
Ekki frumlegt efni en þvílík efnis-
tök! * * *Vi
LEIKARAR og glæponar, gáfaðir
höfundar og heimskar gellur. Þetta
eru persónurnar einni bestu og
skemmtilegustu mynd Woodys All-
ens seinni árin Kúlnahríð á Broad-
way (Bullets Over Broadway, 1994,
Stöð2 ►21.05). JohnCusacker
ungt leikritaskáld sem býðst tæki-
færi til að leikstýra eigin verki á
Broadway 4. áratugarins, fjármagn-
aður af glæpon (Joe Viterelli) sem
krefst þess að hæfileikalaus frilla
sín (Jennifer Tilly) leiki aðalhlut-
Sjónvarpið ►22.05 Öldungarúr
úrvalsdeildinni prýða gamanmynd-
ina Að eldast með reisn (Going
In Style, 1979) - grínistarnir George
Burns og Art Carney og svo leiklist-
arfrömuðurinn Lee Strasberg. Þeir
fara allir á kostum í hlutverkum eldri
borgara sem grípa til bankaráns til
að snúa á þjóðfélag sem hunsar þá.
Frumraun Martins Brest leikstjóra
sem síðar sló í gegn með Beverly
Hills Cop og Midnight Run. ★ ★ ★
Sjónvarpið ►23.45 Vestrinn
Stríðsmaðurinn (Cheyenne Warri-
or, 1994) er mér ókunnur en fær
fína dóma hjá Martin og Potter.
Myndin segir frá ungum landnema-
hjónum sem fá óblíðar móttökur í
snarvillta vestrinu og er eiginmaður-
inn myrtur. Ekkjan verður þá að
spjara sig og nýtur þar samstarfs
við indíána nokkurn. Kelly Preston,
Pato Hoffman og Bo Hopkins eru í
aðalhlutverkum en leikstjóri er Mark
Griffiths. Martin og Pottergefa
★ ★ ★ (af fimm mögulegum).
Stöð 2 ► 14.50 Hasarblaðsævin-
týrið um Rakettumanninn (The
Rocketeer, 1991)er þokkalegt gam-
aldags þijúbíó með nútímatækni-
brellum. Aðalhlutverk Bill Campbell,
Jennifer Connely, Alan Arkin og
Timothy Dalton sem er fyndinn sem
skúrkurinn. Leikstjóri Joe Johnston.
★ *Vi
Stöð2 ►21.05 - Sjá umijöllun í
ramma.
Stöð 2 ►22.55 Steven Soderbergh
(Sex, lies and videotape) ereinhver
athyglisverðasti leikstjóri Bandaríkj-
anna af yngri kynslóð og þótt mynd
hans Undir niðri (The Underneath,
1994) taki áhorfanda ekki heljartök-
um á meðan hún stendur yfir situr
hún eftir í minninu. Reyndar beitir
Soderbergh áhorfendur ýmsum sjón-
rænum brögðum sem duga honum
misvel í sögu af misheppnuðum
spilafíkli sem snýr aftur í heimabæ-
inn og hittir þar fyrir fortíðina, ekki
síst í líki fyrrum eiginkonu. Ein-
kennileg og athyglisverð en ekki
gallalaus. ★ ★ Vi
Stöð 2 ►O .40 Peðið í stórborgar-
taflinu, einsemd þess og firring, sem
brýst út í ofbeldistryllingi er við-
fangsefni snilldarverks Martins
Scorsese, Leigubílstjórinn (Taxi
Driver, 1976). Robert DeNiro er
magnaður í titilhlutverkinu.
* * * *
Sýn ►21.00Engarumsagnir
liggja fyrir um í öðrum heimi (Yo-
ung Connecticut Yankee, 1995) um
mann sem þarf að bijótast úr lífs-
hættulegri tímagildru á 6. öld og
komast afturtil nútímans. Leikstjóri
er Kanadamaðurinn Ralph L. Thom-
as sem yfirleitt vandar sig. Aðalhlut-
verk Michael York, Theresa Russell
og Nick Mancuso.
Árni Þórarinsson
MYNPBÖNP
Tignarleg
og afslöppuð
Einstirni
(Lone Star)
Sakamálamynd
* ***
Framleiðandi: Rio Dulce. Leikstjóri
og handritshöfundur: John Sayles.
Kvikmyndataka: Stuart Dryburgh.
Tónlist: Mason Daring. Aðalhlut-
verk: Ron Canada, Chris Cooper,
Clifton James, Kris Kristofferson,
Frances McDormand, Joe Morton
og Elizabeth Peiia. 130 min. Banda-
ríkin. Castle Rock International/
Skífan 1996. Útgáfudagur 9. apríl.
Myndin er bönnuð börnum yngri
en 16 ára.
SAM Deeds er fógeti í landa-
mærabænum Frontera í Texas. Dag
einn finnst beinagrind þar um slóð-
ir, sem flestir
álíta vera af
Charley Wade,
fyrrum fógeta
sem var byssu-
glaður kynþátta-
hatari. Hann
hvarf nótt eina
fyrir fjörutíu
árum, og halda
flestir að Buddy
Deeds, faðir
Sams, hafi verið þar að verki, en
hann gerðist fógeti í bænum eftir
hvarfið. Sam tekur að rannsaka
málið, og kemst að ýmsu misjöfnu
úr eigin fortíð og samborgara sinna.
Einstirni er einstaklega smekklega
gerð kvikmynd á allan hátt.
Skemmtilegur og fljótandi ryþmi
gefur myndinni
tignarlegt yfir-
bragð, sem jafn-
framt er hæverskt
og mjög afslappað.
Handritið er
margslungið og frá-
bærlega vel skrifað.
Þótt morðrannsókn
sé það sem málið
snýst um á yfir-
borðinu, er það
næstum eins og af-
sökun höfundarins
fyrir því að fá að
segja frá lífi og til-
finningum alls
þessa margbreyti-
lega fólks sem býr í menningar-
súpu, þar sem kynþáttahatur,
stöðusnobb og leyndarmál leynast
alls staðar. John Sayles skapar hér
heilu fjölskyldurnar, með sína sögu,
tilfinningar og sársauka. Þessu vef-
ur hann öllu saman á svo snyrtileg-
an hátt að sjaldan hefur annað eins
sést. Leikararnir eru eins og skrif-
aðir í hlutverkin, og er öll leikstjórn
mjög styrk; hún er mjög hógvær
en ýtir j'afnframt hveijum leikara
til hins ysta án þess að hann fari
yfir strikið. Leikararnir njóta einnig
góðs af vel skrifuðum samtölum,
sem eru einstaklega hnitmiðuð, en
jafnframt trúleg og mjög í anda
persónanna. Leikararnir geta ekki
annað en staðið sig allir frábær-
lega, og persónusköpunin verður
sérstaklega raunsæ og eftirminni-
leg. Chris Cooper leikur aðalhlut-
verkið, og er langt síðan ég hef séð
jafngeðslega, hógværa en jafnframt
hálfgerða „anti-hero“ á skjánum.
Leikur hans er snilld í hverri smá-
hreyfingu. Með fljótandi mynda-
vélahreyfingum, sem gefur mynd-
inni þennan svala blæ, smjúgum
við fram og tilbaka í nútíð og þá-
tíð. Þessi aðferð er mjög í anda
myndarinnar, en það hefði kannski
mátt beita meira hugmyndaflugi á
þessu sviði. Áhorfendur eru alltaf
þakklátir fyrir það. Það var einstök
og óvænt ánægja að horfa á Ein-
stirni, mannlega djúpa og fallega
mynd, sem ég vona að flestir kvik-
myndaunnendur njóti góðs af.
Hildur Loftsdóttir
FRUMSYNT 18. apríl UPPSELT
19 4 UPPSELT, 23 4 UPPSELT, 26.4 UPPSELT, 30 4 ÖRFÁ SÆTI LAUS
3.5 UPPSELT, 4.5 ÖRFÁ SÆTI LAUS, 8 5 LAUS SÆTI, 10 5 LAUS SÆTI
píHtoíhh Á
eftir Stein, Bock og Harnick
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
551 1200