Morgunblaðið - 19.04.1997, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997 53
MEG Ryan gerði Kat’z Delicatessen að ferðamannastað
með eftirminnilegu atriði í „When Harry Met Sally...“.
il og mjó en allt í kring
má sjá merki um veldi fjár-
málaheimsins sem birtist í
myndum eins og „Wall
Street“ Olivers Stones.
Litla-Ítalía var bak-
PLAZA hótelið hefur verið
bakgrunnur fjölda kvikmynda.
Glæponar í Litlu-Ítalíu
Maður getur ekki sleppt því að
fara niðureftir eða „downtown“ ef
skoða á staði tengda kvikmyndum.
Wall Street gatan sjálf er ósköp lít-
grunnur fyrstu Guðföður-
myndar Francis Ford Copp-
ola og einnig að hluta í síð-
ustu mynd þríleiksins. Upp-
tökur fyrir „The Godfather,
Part 11“ fóru hins vegar
fram í bæjarhluta sem
nefnist Alphabet City og
þangað fer enginn einn á
báti ef honum er annt um
líf sitt.
Mulberry Street i Litlu-
Ítalíu hefur leikið hlutverk
í fjölda kvikmynda. ' Á
kránni Mare Chiaro má
finna lista yfir allar mynd-
irnar sem hafa verið teknar
upp þar. Atriði fyrir „9'/2
Weeks“, „State of Grace“
og „The Godfather, Part
111“ voru t.d. öll tekin upp
á Mare Chiaro.
Þegar svengdin sækir að á bæj-
arröltinu er tilvalið að fara á Kat’z
Delicatessen (205 East Houston
Street). Það var þar sem Meg Ryan
túlkaði gervifullnægingu fyrir
Á kránni Mare Chiaro hafa
mafíumyndir eins og „The
Godfather, Part 111“ verið
teknar upp.
agndofa matargesti í „When Harry
Met Sally...“. Borðið hennar er
merkt með miða sem á stendur: Þú
situr við borðið þar sem Harry hitti
Sally. Við vonum að þú hafir feng-
ið það sem hún fékk.
Kvikmyndagerðarmenn eru enn
að störfum í Kat’z Delicatessen.
Nú síðast tók Mike Newell upp at-
riði þar með Johnny Depp fyrir
mafíumyndina „Donnie Brasco".
I raun eru svo margir staðir á
Manhattan þekktir úr kvikmyndum
að það hálfa væri nóg. Þekktir stað-
ir eins og Empire State byggingin
og Grand Central Station hafa ver-
ið notaðir í fjölda mynda. Empire
State byggingin er lykilstaðsetning
í bæði „Sleepless in Seattle”, og „ An
Affair to Remember", og Grand
Central Station má t.d. sjá í tveim-
ur myndum sem minnst var á hér
að ofan, „North By Northwest“ og
„The Fisher King“. Bíóáhugafólk
hefur einnig séð Frelsisstyttuna,
Chrysler-bygginguna, Rockefeller
Centre, The World Trade Centre,
Waldorf Astoria hótelið, og Brook-
lyn brúna í ótal kvikmyndum.
Á horni Lexington traðar og 52.
strætis er einnig staður sem er
frægur í kvikmyndasögunni þó
hann láti minna yfir sér en háhýs-
in. Þetta er í rauninni ekki annað
en grind yfir göngum neðanjarðar-
Iesta. Grindin varð heimsfræg árið
1955 þegar Marilyn Monroe tók sér
stöðu á henni miðri í myndinni „The
Seven Year Itch“.
DAIRY QUEEN - SÆLKERAMÁLTÍÐ
l\(ÍÓLI S 1 O R G I O G H \ A R D A RHAGA
Dairii
pueen
.
MYNDBÖND
SÍÐUSTU VIKU
íbúöJoe
(Joe’s Apartment) ★ 'h
Alaska
(Alaska) ★ ★
Tryggingasvindl
(Escape Clause) ★ ★ 'h
Drápskrukkan
(The KillingJar)-k 'h
Stóra blöffið
(The Great White Hype)k ★
Hin fullkomna dóttir
(The Perfect daughter)k 'h
Englabarn
(Angel Baby)k ★ 'h
Fatafellan
(Striptease) ★ ★
Háskólakennari á ystu
nöf
(Twilight Man)k ★ ★
Jack Reed IV: Löggumorð
(Jack Reed IV: One ofOur Own)
★ ★
Dauðsmannseyjan
(Dead Man ’s Island) ★
Fallegar stúlkur
(Beautiful Girls) ★★★'/!
Galdrafár
(Rough Magic) ★ ★
Ást og slagsmál
í Mlnnesota
(Feeling Minnesota) ★ ★
FLóttinn frá L.A.
(John Carpenters: „EscapeFrom
L.A. “)★ ★ 'h
Skylmingalöggan
(Gladiator Cop) ★
Staðgengillinn
(The Substitute)k 'h
Lækjargata
(River Street)k ★ 'h
Svarti sauðurinn
(Black Sheep)k ★
Snert af hinu illa
(Touch by Evil)k 'h
Undur og stórmerki
(Phenomenon)-k ★ 'h
ÚTLÍNUR háhýsanna á Manhattan
eru líklega með þekktari sjónar-
hornum í bandarískum kvikmynd-
um. New York-borg hefur verið
sögusvið fjölmargra kvikmynda og
oftar en ekki getur ferðamaður á
röltinu séð kvikmyndatökulið að
störfum, sérstaklega á Manhattan.
Þegar gengið er um miðborgina
getur verið gaman að rifja upp
hvaða myndir voru teknar upp hvar
og setja sig í spor uppáhalds kvik-
myndastjörnunnar sinnar.
Plaza hótelið sem stendur við
fimmtu tröð við suðurenda Mið-
garðs er sérstaklega glæsilegt. Þar
hafa margir kvikmyndaleikarar gist
bæði sem persónur í kvikmynd og
í einkalífi sínu. Hótelið hefur komið
við sögu í myndum eins og „North
By Northwest" (1959), „Funny
Girl“ (1968) og „Arthur“ (1981).
Aðdáendur Macaulay Culkin
muna að öllum líkindum vel eftir
Plaza hótelinu úr „Home Alone 2:
Lost in New York“. Týndi drengur-
inn notaði nefnilega kreditkort föð-
ur síns til þess að gista á hótelinu.
Nú bíður hótelið bömum sterkefn-
aðra foreldra að endurtaka ævin-
týri Culkins. Þau koma þá ein og
gista í herbergi 411 en það er her-
bergið sem hetja „Home Alone 2“
hafði til afnota.
Þegar Plaza hótelið er yfirgefið
er tilvalið að rölta yfir í Miðgarð
og setja sig í spor Robin Williams
og Jeff Bridges í „The Fisher King“
(1991). Einnig er hægt að rýna
stíft á hlaupafólkið í garðinum til
þess að athuga hvort ekki leynist
frægt andlit I hópnum. Madonna,
Barbra Streisand, Bruce Willis og
Demi Moore em meðal þekkta
fólksins sem á íbúðir í nágrenni
garðsins.
Ibúðir fræga fólksins em margar
við Central Park West. Þar á meðal
er Dakota-byggingin sem er þekkt
í dag sem síðasti dvalarstaður Johns
Lennons. Þar hafa margar stjörnur,
allt frá Boris Karloff til Lauren
Bacall, átt heima. Dakota-bygging-
in hefur einnig verið notuð sem
bakgrunnur í kvikmyndum. Þar átti
t.d. unga parið heima í hinni óhugn-
anlegu mynd Romans Polanskis
„Rosemary’s Baby“.
heit súkkulaöisosa,
saltaðar oa ristaðar
spænskar hnetur,
Algjört sælgæti!
Söngvarar:
Tónlistarstjórn:
Gunnar Þórðarton
- ásamt stór-
hljómsvelt sJsuíL
Svlðsst/tnlng:
BJBrm B. BJ&mssoa.
KfBBÍn
■ Hótelíslandheldur
upp <7 10 Óro ofmrslið þióðkmra söngvara!
með þessari einstöku sýningu, þeirri bestu hingað tii!
Húslð opnar U. 19:00. MatargesUr, vinsamtega mæM ttmanlega. Sýnlngln helst stimMslaga U. 2200.
Verð með kvöldverúl kr. 4.900. verð in kvðldverðar kr. 2.200. Verð i ðanslelk er kr. 1.000. Mlðasala
og borðapantanlr daglega U. 13-17 ð Hótel klantll. ______________________ -
,/ffatseóiff
Xarrýlöguð austurlrnsk fiskisúpa.
Jfeilsteiktur tpmbaivðin
með fylltum jarðeplum, smjörsteiktu
gntnmeti og Maaeira piparsósu.
SúkklaðibjúpuS pera oq sérrí-is.
YHmmmn milljonamæringarnsr
Slml 568-7111 • Fu 568 5018
MED BJARHA AHASYNISÖNBVARA LEIKA FYRIR OANSI
REYKJAVÍKURBIÚS * HIN EINA SANNA ÁST • ÉG ELSKA MB ENN * HUOSON BAY • GLEÐIBAIIKIKN • UltA SYSTIR .
Kvilímyndarölt
á Manhattan