Morgunblaðið - 07.05.1997, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Sherpamir
eru einstakir
fjallamenn
SHERPARNIR eru bæði glaðværir og harðduglegir fjallamenn.
SHERPAR leika stórt hlutverk í
öllum leiðöngrum sem farnir eru
á Everest. Hörður Magnússon,
aðstoðarmaður íslensku fjall-
göngumannanna, segir í pistli til
Morgunblaðsins að þeir séu ein-
staklega duglegir og þrautseigir
fjallamenn.
Það fer ekki framhjá neinum
sem fylgist með leiðangri sem
okkar að sherpar leika stórt hlut-
verk og eiga stóran þátt í því
hvort leiðangur heppnast eða ekki.
En hveijir eru i
þessir sherpar,
hvers konar fólk
er þetta og hvað
gera þeir í raun.
Og af hveiju eru
það alltaf sherp-
ar en ekki ein-
hver annar þjóð-
flokkur sem
treyst er á. Þessum spurningum
hefur verið svarað rækilega í okk-
ar huga í þessum leiðangri og
sherparnir okkar eru búnir að
koma sér rækilega fyrir í hug-
skoti okkar.
Sherpar eru einn af ótal mörgum
þjóðflokkum í Nepal. Þeir eru af
tíbetskum uppruna og er talið að
þeir hafi flutt suður yfír fjallaskörð-
in af þurrum hásléttum Tíbets niður
í fijósama fjalladali Nepals fyrir
um 300 árum. Þeir eiga sér eigin
tungumál þó þeir séu aðeins nokkr-
ir tugir þúsunda.
Sherpar eru Búddatrúar og líkist
trú þeirra mjög þeirri Búddatrú sem
iðkuð er í Tíbet. Sherpar eru trúað
fólk, margir ganga í klaustur eða
ljúka trúamámi og kallast þá Lama.
Trúin er stór hluti af lífí þeirra,
þeir fara ekki í langferð án þess
að fá blessun og í hættuferð sem
þessa hefur hver hópur með sér
Lama, sem sér um að halda guðun-
um góðum. Þeir eru margir hjátrú-
arfullir og trúa á drauga og önnur
Sími 555-1500
Kópavogur
Foldarsmári
Glæsilegt ca 140 fm nýlegt raðhús á
einni haeð. Áhv. ca 5,5 millj. Verð 11,8
millj.
Reykjavík
Leirubakki
Góð 4ra herb. íb. ca 90 fm á 3. hæð.
Fráb. útsýni. Verð 6,6 millj.
Hafnarfjörður
Breiðvangur
Sérlega glæsileg ca 190 fm neðri
sérh. I tvíb. auk bílskúrs. 5 svefnh.
Áhv. byggsj. ca 2,7 miilj. Verð 13,2
millj.
Gunnarssund
Til sölu er góð 3ja herb. íb. á jarðh.
Breiðvangur
Mjög góð 5 herb. ca 112 fm ib. á 2.
hæð. Laus fljótl. Verð 8,4 millj.
Álfaskeið
Einbýlishús á tveimur hæðum með
hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið
endurn. Ath. skipti á lítilli ib.
Reykjavíkurvegur
Glæslleg 2ja herb. íb. á 3. hæð. Lftið
áhv. Verð 4,3 millj.
Vantar eignir á skrá
Fasteignasala,
Strandgötu 25, Hfj.
Árni Grétar Finnsson, hrl.
Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl.
V____—*
hindurvitni og svipar að því leyti
til okkar íslendinga.
Ótrúlegur hæfileiki til
að vinna í mikilli hæð
Sherparnir búa flestir í Solo
Kumbu héraðinu, eða rétt neðan
þess, í litlum þorpum sem eru í
2.000 m til 4.000 m hæð. Neðstu
þorpin eru í gróðursælum dölum
en þau efstu eru í raun aðeins
þyrping sela þar sem aðeins er
búið á sumrin. Sherparnir hafa í
gegnum aldirnar
stundað land-
búnað, ræktað
harðgerðar kom-
tegundir og kart-
öflur og fengið
mjólkurafurðir
af jakuxum, auk
þess að vera
milliliðir í versl-
un frá Tíbet til Nepals og Ind-
lands. Þeir hafa alltaf verið þekkt-
ir fyrir að vera harðgerð þjóð og
þola hæð vel. Kemur það að öllum
líkindum af því að þeir búa mjög
hátt, í bröttum hlíðum og öll að-
föng, frá vatni til munaðarvarn-
ings, þarf að bera að, mislanga
leið. Bömin eru farin að sækja
vatn 5-6 ára gömul og venjast því
fljótt þungum byrðum í þunnu lofti.
Það er engu líkara en þessi eigin-
leiki sé orðinn arfgengur því styrk-
ur og dugur þessa fólks í mikiili
hæð er einstakur.
Þessi eiginleiki varð til þess að
evrópskir fjallgöngumenn réðu sér
sherpa sem burðar- og síðar að-
stoðarmenn strax fyrir aldamótin.
Harðgerðir
atvinnufjallgöngumenn
Um 1920 voru einstakir eigin-
leikar sherpanna orðnir heims-
þekktir og síðan þá eru það fáir
leiðangrar í Himalayafjöllum,
hvort sem er fjarri heimahögum
sherpanna eða nálægt þeim, sem
ekki hafa nýtt sér krafta þeirra.
Það eru því áratugir síðan hópar
sherpa fóru að stunda fjallaferðir
sem atvinnu og fljótlega spruttu
úr þeim hópi, metnaðarfullir og
hæfir fjallamenn sem settu mark
sitt á leiðangra og höfðu getu og
metnað til að ná tindinum sjálfum.
Sherpinn Tenzing Norgay kom
þeim endanlega á kortið sem al-
vöru fjallamönnum þegar hann,
ásamt Edmund Hillary kleif fyrstur
Mount Everest árið 1953. Það er
í raun ótrúlegt og stórkostlegt,
þegar sagan er skoðuð, að sherpi
skyldi ná þessu takmarki fyrstur
og má fullyrða að það hefur verið
öðrum sherpum hvatning og fyrir-
mynd æ síðan.
Með síauknum fjölda leiðangra
á hæstu fjölí heims á undanförnum
árum og áratugum hefur hópur
svokallaðra há§allasherpa farið
stækkandi. Þeir fara gjarnan í 2-3
leiðangra á ári og nota afrakstur-
inn til að byggja upp starfsemi
heima í þorpinu sínu, lítið gisti-
heimili eða fyrirtæki sem skipu-
leggur gönguferðir vestrænna
ferðalanga. Þessir menn eru vel
stæðir á nepalskan mælikvarða og
framlag þeirra ásamt síauknum
fjölda ferðamanna til héraðsins, í
kjölfar bættrar aðstöðu, gerir það
að verkum að Solo Khumbu er rík-
asta fjallahérað Nepals.
Babu hefur farið sex
sinnum á toppinn
í okkar hópi eru 17 sherpar, 12
þeirra eru háfjallasherpar en 5 eru
kokkar og almennir starfsmenn.
Hlutverk háfjallasherpanna er að
bera byrðar eins hátt upp í fjallið
og þörf er á og fylgja leiðangurs-
mönnum áleiðis á tindinn þegar
að því kemur. Auk þess ganga
þeir í allt annað sem gera þarf
eins og aðrir leiðangursmenn. Okk-
ar reynsla af þessum einstaka þjóð-
flokki miðast við okkar hóp og
getur því ekki talist almenn.
Æðsti maðurinn í hóp sherp-
anna nefnist shirdar og í okkar
tilfelli er það Ang Babu sherpa sem
gegnir því hlutverki. Við gætum
ekki verið heppnari með mann því
í honum sameinast stjórnunar- og
skipulagshæfileikar og óhemju
reynsla, bæði af Everest og öðrum
8.000 m fjöllum. í hans höndum
er öll skipulagning á sherpahópn-
um og öll birgðastýring, bæði í
grunnbúðum, sem og uppi í fjalli.
Jon Tinker leiðangurstjóri fær því
bara upplýsingar frá honum um
hvernig staðan er, en þarf ekki að
skipa fyrir um flutninga.
Babu er sá maður í öllum leið-
öngrum hér sem oftast hefur farið
á Everest, alls 6 sinnum, í öll skipt-
in án súrefnis og einu sinni fór
hann tvisvar á toppinn í sömu vik-
unni sem er einstakt afrek. Hann
er samt alls ekki eins og maður
ímyndar sér slíkt ofurmenni, lítill
og frekar feitlaginn, hann er glað-
vær maður og húmorískur, úr-
ræðagóður og þægilegur í um-
gengni. Hér þekkja hann allir og
bera ómælda virðingu fyrir honum,
við njótum þess að vera með Babu.
Hans hægri hönd er Lagpageilo
sherpa, hávaxinn og grannur, al-
gjör andstæða Babu, harður nagli
sem hefur sigrað Everest tvisvar
og auk þess fleiri 8.000 m fjöll.
Hinir 10 eru flestir reyndir jaxlar
eða ungir menn á uppleið, óhemju
duglegir og metnaðarfullir. Það er
mikil keppni á milli þeirra, þeir sem
bera þyngst og eru fljótastir eru
einfaldlega bestir. Þeir fá ekki
bara betur borgað, heldur fá þeir
bestu tækifæri á að fara með leið-
angursmönnum á toppinn. Það
þýðir svo aukna virðingu, hærra
kaup og atvinnuöryggi í framtíð-
inni. Sherparnir okkar leggja á sig
ótrúlegt erfíði og vinnu til að leið-
angurinn takist.
Sími 588 9090 - Síðumúll 21
Sverrir Kristinsson,
lögg. fast.e.s.
Eiðistorg - glæsileg
Vorum að fá í sölu glæsi-
lega 106 fm 3ja herb. íb. á
tveimur hæðum í nýlegu
húsi. Vandaðar sérsmíðað-
ar innr. Parket og flísar.
Suðursvalir.
Verð 8,9 millj. 7078.
Jon leiðangursstjóri leggur líka
mikla vinnu og áherslu á að þeir
hafi það sem best. Þeir kunna líka
að meta það að það er mikil ábyrgð
á þeirra höndum og endurgjalda
það með tryggð og vinnu. Því má
heldur ekki gleyma að trúfesta og
vinátta er hornsteinn í trúarbrögð-
um þeirra. Það er stundum misnot-
að.
Alþekkt er, sérstaklega í austur-
lenskum leiðöngrum að leiðangurs-
stjórar etja sherpunum út í hættu-
legar aðstæður með hörku og hér
á þessum slóðum getur það, og
hefur oft, kostað mannslíf. Hér í
okkar hópi hefur Babu síðasta orð-
ið fyrir hönd sherpanna. Ef Babu
segir svo, þá eru þeir kyrrir. (Og
ekki förum við að ana út í eitthvað
sem sexfaldur Everestfari segir
ótryggt).
Ekki af þessari jörðu
Sherparnir eru glaðvær hópur.
Þeir hafa gaman af fjárhættuspili,
diskói, nepalskri tónlist og af því
að gera grín að okkur aumum
Vesturlandabúum. Hlátrasköllin
gjalla oft að baki okkar eftir að
við höfum átt við þá erindi og við
vitum að við fáum aldrei að
smakka það úr matarbirgðunum
sem þeim þykir best. En við berum
líka fulla virðingu fyrir reynslu
þeirra bestu, og styrk þeirra allra
og getu. Þeir eru að bera allt að
24 kg ofarlega í fjallinu og fara
samt hraðar yfir en allir nema
sterkustu Vesturlandabúar.
Og hann Jón Þór gleymir líklega
aldrei sherpastúlkunni sem hann
fékk til að bera bakpokann sinn
fyrir sig upp frá Dingboche um
daginn. Alltaf var hún á undan og
raulaði lög fyrir munni sér á leið
upp brattar brekkurnar í 5.000 m
hæð á meðan hann gekk másandi
og blásandi á eftir. Það er eins og
þetta fólk komi ekki af þessari
jörðu. Og okkur koma oft í hug
ráðleggingar gamals fjallgöngu-
manns sem sagði: Láttu þig aldr-
ei, aldrei, dreyma um að þú komir
frá sherpaplánetunni.
■ Everestsíða Morgunblaðsins:
http://www.mbl.is/everest/
Vantar þig
VIN
að tala við?
Við erurn til staðar!
VINALÍNAN
561 6464 • 800 6464
5521150-5521370
LftRUS P. VftLDIMftRSSON, FRftMKUÆMDflSTJORI
Nýjar á fasteignamarkaðnum m.a. eigna:
Rishæð - allt sér - Kópavogur
MJög góð 3ja-4ra herb. sólrík rishæð við Borgarholtsbraut,
Kóp. Húsið er nýklætt að utan. Góð lán fylgja. Laus eftir
samkomulagi. Verð aðeins kr. 6,3 millj.
Lyftuhús - úrvalsíbúð - Garðabær
4ra herb. fb. f sérflokki á 6. hæð í lyftuhúsi, 110 fm. Tvennar
svalir. Húsvörður. Frábært útsýni.
Suðuríbúð - eins og ný - frábær kjör
3ja herb. nýleg íb. á 3. hæð, 82,8 fm við Víkurás. Sólsvalir.
Gamla góða húsnæðislánið kr. 2,5 millj. Semja má um frábær
greiðslukjör. Nánar á skrifstofunni.
Stór og góð - gott vinnupláss
Sóirík 4ra herb. íb. 117,9 fm á 2. hæð við Kirkjuteig. Nýtt gler
o.fl. Stórar stofur. Góður bílskúr - vinnupláss um 40 fm.
Útborgun aðeins kr. 500 þús.
Ný endurbyggð 2ja herb. risibúð skammt frá Sundhöll
Reykjavíkur. Nýtt eldhús. Nýtt sturtubað með
sérþvottaaðstöðu. Leiðslur og lagnir (húsinu eru nýjar.
• • •
Óvenju margir
fjársterkir kaupendur
að eignum af flestum
stærðum og gerðum.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 - 552 1370
>
I
>
)
I
I
*
►
i