Morgunblaðið - 07.05.1997, Page 14

Morgunblaðið - 07.05.1997, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Margrét og Ágúst á Akureyri halda upp á 70 ára brúðkaupsafmæli Þakklát Guði fyrir að fá að vera svona lengi saman Morgunblaðið/Kristján ÁGÚST og Margrét fagna 70 ára brúðkaupsafmæli sínu í dag. í barminum ber Margrét blómið sem hún var með á brúðkaups- daginn, sólskinsdaginn 7. maí 1927. „ÞAÐ ER alltaf sól 7. maí,“ segir Margrét Magnúsdóttir en hún og eiginmaður hennar, Ágúst Jóns- son, eiga 70 ára brúðkaupsaf- mæli í dag og halda upp á daginn í faðmi ættingja og vina á heim- ili sínu, Reynivöllum 6 á Akur- eyri. Þau eignuðust fjögur börn, Magnús, Maríu Sigríði, Jón Geir og Halldóru, bamabörnin eru 16 og barnabarnabörnin 17. Vor- hret hefur verið fyrir norðan síð- ustu daga, en Margrét er sann- færð um að sólin fari að skína í dag. „Það bregst aldrei," segir hún sannfærð. Siglt mót miðnætursól Margrét og Ágúst gengu í hjónaband heima hjá séra Geir Sæmundssyni, sóknarpresti á Akureyri, 7. maí 1927 í sólskini og fallegu veðri „og ennþá er sama sólskinið yfir okkur og var þá,“ segir Margrét. Að kveldi brúðkaupsdagsins stigu brúð- hjónin ungu um borð í 15 tonna bát, Ingólf, ^g sigldu út Eyja- fjörðinn til Ólafsfjarðar þar sem þau settust að. „Þetta var eins dýrlegt og hugsast getur, að sigla mót miðnætursólinni út Eyjafjörðinn,“ segir Ágúst. Margrét er fædd I Ólafsfirði, Ágúst fæddist í Svarfaðardal en ólst upp í Ólafsfirði þar sem þau kynntust. Ágúst vann sem mótor- isti á bátum í Ólafsfirði og Mar- grét var í fiskvinnu, stokkaði línu, beitti og vaskaði fisk. „Svo var ég vetrarstúlka sem kallað var og sótti saumanámskeið yfir vetrarmánuðina," segir hún. Ár- ið 1950 fluttu þau til Akureyrar. Ágúst byggði húsið við Reyni- velli, hófst handa í júní árið 1952 og þau fluttu inn í desember sama ár, „en það var nú ekki allt tilbúið,“ segir Margrét „húsið var rétt fokhelt," bætir bóndi hennar við. Ágúst starfaði sem bygginga- meistari á Akureyri og rak tré- smíðaverkstæði þar til hann var um áttrætt. „Þá varð ég að hætta og seldi verkstæðið, var farinn að bila í höndunum." Ráðlagt í draumi Eftir að Ágúst hætti störfum hóf hann að safna steinum víða um Iand, saga þá sundur og slípa. „Mér var ráðlagt þetta í draumi," segir hann, en hróður hans hefur borist víða, hann hefur fengið steina til meðhöndlunar frá fólki víða um land og einnig útlöndum. „Það er stórbætandi að ferðast um um landið, fara á fjöll og ná í steina, það hefur bjargað heils- unni og veitt mér mikla ánægju,“ segir Ágúst. „Við eigum margar góðar minningar úr þessum ferð- um,“ bætir Margrét við en hún fór stundum með í fjallaferðirn- ar. Sjálf hefur hún ekki setið auðum höndum, ævinlega verið með handavinnu af ýmsu tagi. „Það er dásamlegt að geta eitt- hvað gert. Fólk sem hefur unnið alla sína ævi verður að hafa eitt- hvað fyrir stafni,“ segir hún og bæði eru sammála um hversu ómetanlegt það sé að geta verið heima og séð um sig sjálf. Þau hjónin líta með gleði yfir farinn veg. „Þetta hefur verið dásamlegt líf,“ segir Margrét, en bætir við að vissulega hafi skipst á skin og skúrir á langri ævi. „Það kemst enginn í gegnum líf- ið án þess að verða fyrir ein- hveijum skakkaföllum, en ég er þakklát Guði fyrir það sem hann hefur gert fyrir okkur, að við höfum fengið að lifa svona lengi saman og við góða heilsu. Fyrir það er ég þakklát." Tónlistarskóli Eyjafjarðar Yortón- leikar TÓNLISTARSKÓLI Eyjafjarðar efnir til vortónleika nú á næstu dögum. Þeir fyrstu verða á morg- un, fimmtudaginn 8. maí, í Frey- vangi kl. 20.30, en þá verða tónleik- ar söngdeildar. Nemendatónleikar verða í Gamla skólahúsinu á Greni- vík næstkomandi laugardag, 10. maí, kl. 14. Nemendatónlekar verða í Freyvangi á sunnudag, 11. maí, kl. 14 og loks í Þelamerkur- skóla næstkomandi mánudags- kvöld, 12. maí, kl. 20.30. Á tónleik- unum verður flutt fjölbreytt efnis- skrá og eru flytjendur á ýmsum aldri. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis. ----♦ » ♦ Djasstón- leikar JAZZKLÚBBUR Akureyrar efnir til tónleika á Hótel KEA í kvöld, miðvikudagskvöldið 7. maí kl. 21.30. Fram koma Pétur 0stlund á trommur, Fredrik Ljungkvist á ten- ór- og sópransaxófón, Eyþór Gunn- arsson á píanó og Þórður Högnason á kontrabassa. Allir eru þeir í fremstu röð djasstónlistarmanna og hafa leikið með fjölda þekktra tón- listarmanna. Formaður Léttis óánægður með lokum reiðleiðar fram í Eyjafjarðarsveit Engin lausn í sjónmáli og stefnir í stríð Útför Steindórs Steindórssonar HESTAMENN á Akureyri eru óánægðir með þá ákvörðun bóndans á Ytragili í Eyjafjarðarsveit, að loka reiðveginum inn í Eyjafjarðarsveit með keðju og lás við landareign sína. Sigfús Helgason, formaður Hesta- mannafélagsins Léttis á Akureyri, segir það skoðun sína að bóndinn hafí ekkert leyfí til þess að loka leið- inni, sem liggur eftir gamla veginum inn í flörð að vestanverðu. Hann segir að ef fram haldi sem horfí stefni í stríð. „Ég sé enga lausn í sjónmáli en hestamannafélögin Funi og Léttir ætla að halda sameiginlegan fund um málið á fímmtudagskvöld (annað kvöld) og það er ljóst að komið er að ögurstund í málinu. Á þeim fundi verður væntanlega ákveðið með framhaldið og þá hvort farið verður í einhveijar aðgerðir," segir Sigfús. Leiðindin í kringum stóðreksturinn Eiríkur Helgason, bóndi á Ytra- gili, vildi ekki tjá sig um málið í gær. Pétur Þór Jónasson, sveitar- stjóri í Eyjafjarðarsveit, sagði að bóndinn á Ytragili hefði lokað ieið- inni eftir að Akureyringar, sem voru á ferð með hrossastóð þarna um, misstu það upp á tún bóndans. Pétur Þór sagði að samkvæmt aðalskipu- lagi væri gert ráð fyrir að aðalreið- leiðin fram fjörðinn væri að aust- anverðu og að nauðsynlegt væri að koma henni í gagnið sem fyrst. „Það þýðir ekki að menn geti ekki farið um ríðandi annars staðar. Vandinn og öll leiðindin eru í kring- um þessa stóðrekstra sem eru ákaf- lega áberandi hér í Eyjafírði og ég hef haft spumir af fleiri svona uppá- komum í vor, þar sem menn hafa misst stóð sín inn á tún. Og það er allur gangur á þessum rekstri og í sumum tilvikum er vel að verki stað- ið og nægur mannskapur en í öðrum tilvikum er þetta allt í molum,“ sagði Pétur Þór. Ætlum ekki á bílum fram eftir Sigfús segir að mjög erfiðlega hafí gengið að fá reiðleið inn að Melgerðismelum og því miður hafi skilningur sveitarstjórnarmanna og landeigenda verið óskaplega lítill. „Við erum að byggja upp fyrir tugi milljóna á Melgerðismelum og ætlum ekki að fara þangað fram eftir á bílum. Við erum búnir að beijast fyrir þessu máli í tvö ár og árangur- inn er enginn. í aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar er gert ráð fyrir að aðalreiðleiðin suður fjörðinn sé að austanverðu. Sigfús segist geta sætt sig við að sú reiðleið sé hluti af leiðinni inn að Melgerðismelum. „Ef þetta á hins vegar að vera eina leiðin fram eftir, erum við að tala um að svæðið verði lokað einhveija mánuði á ári. Áin flæðir þarna á hveiju vori auk þess sem þama er mýrlendi og drulla. I dag er leiðin fram eftir lokuð, nema eftir malbikinu og ef það er eina leið- in erum við neyddir til að fara hana.“ Sigfús segir það liggja beinast við að reiðleiðin frá Akureyri fram að Melgerðismelum liggi að vestan- verðu, meðfram þjóðvegi eins og seg- ir í vegalögum. ÚTFÖR Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum, heiðursborgara á Akureyri, var gerð frá Akureyrar- kirkju í gær. Karlakvartett söng sálminn Allt eins og blómstrið eina, öll erindin þrettán, einnig söng kvartettinn sálm eftir Ólöfu frá Hlöðum. Óskar Pétursson söng Fjallið Skjaldbreiður. Þráinn Karlsson las ljóð Matthíasar Jochumsonar, Eyjafjörður. Séra Ágúst Sigurðsson á Prestbakka AÐALFUNDUR Skógræktarfélags Eyfírðinga verður haldinn í Kjarna- lundi, Hótel Hörpu, í kvöld, miðviku- dagskvöldið 7. maí, kl. 20. Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir fræða fundarmenn um nytjasveppi flutti kveðjuræðu og séra Birgir Snæbjörnsson jarðsöng. Örlygur Hálfdánarson, Jakob Björnsson, Sigurður J. Sigurðsson, Sighvatur Björgvinsson, Þorvaldur Jónsson, Tryggvi Gíslasson, Gísli Bragi Hjartarsson og Stefán Halldórsson báru kistuna. Akureyrarbær heiðraði minn- ingu Steindórs og bauð til erfi- drykkju í Safnaðarheimili Akur- eyrarkirkju að athöfn lokinni. sem fylgja skóg- og tijárækt. Á þessu ári eru 50 ár frá því rekst- ur Gróðrarstöðvarinnar í Kjarna hófst og fyrstu trén voru gróðursett í Kjarnaskógi. Síðar á þessu sumri gengst félagið fyrir afmælisdagskrá í tilefni þessara tímamóta. /------------------------------------------\ A Sjávarútvegssjóður Islands Tilkynning um skráningu hlutabréfa Sjávarútvegssjóðs íslands á Verðbréfaþingi íslands Á fundi þann 28. apríl sl. samþykkti stjórn Verðbréfaþings íslands að taka hlutabréf Sjávarútvegssjóðs íslands hf. á skrá í viðskiptakerfi þingsins. Hlutabréf félagsins hafa áöur verið skráö á Opna Tilboðsmarkaðnum. Stjórn Sjávarútvegssjóðs íslands hf. s__________________________________________/ Aðalfundur Skógræktar- félags Eyfirðinga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.