Morgunblaðið - 07.05.1997, Side 19

Morgunblaðið - 07.05.1997, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997 19 Aukin bjartsýni á Spáni Sljórnin nýtur vart góðærisins Malaga. Morgunblaðið. SPÆNSKI Sósíalistaflokkurinn (PSOE) er stærsti stjórnmálaflokkur landsins, ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar sem dagblaðið EI Pais birti um helgina. Þótt aukinnar bjartsýni gæti á meðal Spánveija um gang efnahagsmála virðist ríkis- stjóm Jose Maria Aznar, forsætis- ráðherra, ekki njóta góðs af þvl. Samkvæmt könnuninni hefur Sós- íalistaflokkurinn nú 22,5% fylgi á landsvísu. Þótt flokkurinn, sem er í stjórnarandstöðu, teljist samkvæmt þessu stærsti stjórnmálaflokkur landsins hefur hann tapað verulegu fylgi ef miðað er við fyrri kannanir. í janúar mældist fylgið 25,3% og í október í fyrra 27,8%. í kosningun- um í mars í fyrra fengu sósíalistar 29,1% greiddra atkvæða. Hið sama á við um Þjóðarflokk Jose Maria Aznar sem nú heldur um stjórnartaumana í Madrid. Flokkur- inn fengi nú, samkvæmt könnun- inni, 21% atkvæða, hefurtapað rúmu prósentustigi frá því í janúar og rúmum tveimur frá því í október. Fylgi flokksins var 30,2% í kosning- unum í fyrra. Fleíri hyggjast sitja heima Litlar breytingar virðast hafa orð- ið á fylgi annarra flokka. Þó hefur Vinstrabandalagið (IU) tapað nokkru fylgi, hefur nú 6,3 prósenta fylgi ef marka má könnun þessa. Hins vegar hefur þeim fjölgað veru- lega sem kveðast ekki mundu kjósa ef boðað yrði til kosninga nú. Tæp 18% aðpurðra opinberuðu þessa skoðun nú en 13,2% í janúar og 12,1% í október. Stóraukin bjartsýni Mesta athygli vekur að aukinnar bjartsýni virðist gæta á meðal Spán- 'Verja um framþróun efnahagsmála en hún virðist ekki koma Aznar og stjórn hans til góða. Af þeim sem spurðir voru kváðust 24% telja að horfur í efnahagsmálum væru já- kvæðar. Þetta er fáheyrð bjartsýni á þessum vettvangi á Spáni og lýstu nú tvöfalt fleiri sig þessarar skoðun- ar en í könnun sem gerð var í maí- mánuði 1996. Þá kváðu heil 14% þeirra sem þátt tóku í könnuninni fjárhag fjölskyldu sinnar hafa batn- að á síðustu 12 mánuðum. Rétt tæpur þriðjungur aðspurðra taldi að efnahagsástandið myndi batna á næstu 12 mánuðum en aðeins 16% kváðust þeirrar hyggju að halla myndi undan fæti i þeim efnum. Þrátt fyrir þetta heldur Þjóðar- flokkurinn áfram að tapa fylgi í skoðanakönnunum og Felipe Gonz- alez, leiðtogi Sósíalistaflokksins og forsætisráðherra Spánar á árunum 1982-1996, er enn sá stjómmála- leiðtogi sem hæsta einkunn hlýtur þótt ekki muni miklu á honum og Aznar. Þessa dagana deila þeir Aznar og Gonzalez einkum um hvorum þeirra eigna beri þann ágæta árangur sem virðist vera að nást f spænskum efnahagsmálum. Lögregluumsátrinu í Texas lokið Aðskiln- aðarsinni skotinn Fort Davis. Reuter. LÖGREGLAN í Texas skaut að- skilnaðarsinna til bana á mánudag en félagi hans komst undan eftir skotbardaga nálægt bækistöðvum samtaka sem kalla sig Lýðveldið Texas og vilja aðskilnað frá Banda- ríkjunum. Leiðtogi samtakanna, Richard McLaren, gafst upp og undirritaði vopnahléssamning á laugardag eftir að lögreglan hafði setið um bæki- stöðvarnar í viku. Tveir fylgismenn hans flúðu hins vegar úr bækistöðv- unum og lögreglumenn leituðu þeirra á hestum og þyrlum, auk þess sem 30 sporhundar voru notað- ir við leitina. Mennirnir fundust um 1,6 km frá bækistöðvunum og voru vopnaðir tveimur rifflum og skammbyssu. Annar þeirra féll í stuttum skotbar- daga en hinn komst undan. „Pappírsillvirkjar" McLaren, sem lýsti sér sem „sendiherra Lýðveldisins Texas“, og eiginkona hans voru ákærð á mánudag fyrir fjársvik og samsæri gegn ríkinu. „Þessir sakborningar eru ekki stoltir Texas-búar, heldur pappírsillvirkjar," sagði saksóknar- inn Paul Coggins. „Þeir eru ekki byltingarmenn heldur braskarar, ekki föðurlandsvinir heldur sníkju- dýr. Þeir eru yfirgangsseggir og skilaboð okkar til yfírgangsseggja eru: Abbist ekki upp á Texas." Samtökin voru stofnuð árið 1995 og halda því fram að innlimun Tex- as í Bandaríkin 1845 hafi verið ólögleg. íbúðahús hrundi í sprengingu INDVERSKIR björgunarmenn leita í rústum þriggja hæða bygg- ingar í höfuðborginni Nýju Delhi sem hrundi er sprenging varð í einni íbúðinni. Atta manns að minnsta kosti biðu bana. e.i&t/irinn irá “l/fto&hu/lnn rittinn y.-1$. mtlt 'yj^n.tríVb&tn tr4 'l/Ho&itu&vin t£,onÁcm Matreiðslumeistarinn Sectn Flanagan firá hinum m.a. hlotið tvær Michelin stjömur fyrir. Kynn- firæga veitingastað Antons Mosimanns töfrar ist matseðli Mosimanns veitingastaðarins og fram rétti í anda Cuisine NatureUe stefnunnar upplifið snilldarlega matreiðslu þar sem list- sem Mosimann er höfúndur að. Þarna er á rænt útlit og besm nráefhi og gæði fara saman. ferðinni matargerð á heimsmæli- kvarða en Mosimann er víðfrægur fyrir stefriu sína í matreiðslu og hefur Grillið er opið aUa dagajrá kL 19.00. Borðapantanir i sima 552 5033. Reuter Kviðdómur sýknar tóbaksfyrirtæki Jacksonville. Reuter. KVIÐDOMUR á Flórída komst að þeirri niðurstöðu á mánudag að tóbaksfyrirtækið R.J. Reynolds bæri ekki ábyrgð á dauða konu, sem reykti þrjá pakka af sígarettum á dag og lést af völdum lungna- krabba. Niðurstaðan þykir mikill sigur fyrir bandarísku tóbaksfyrir- tækin, sem hafa orðið fyrir hveiju áfallinu á fætur öðru að undan- förnu. Kviðdómurinn komst að þeirri niðurstöðu eftir átta klukkustunda íhugun að tóbaksfyrirtækið hefði hvorki sýnt vanrækslu né framleitt mjög hættulega eða gallaða vöru sem hefði valdið dauða Jean Conn- or, sem reykti frá því hún var tán- ingur og þar til hún lést af völdum lungnakrabbameins í október 1995, 49 ára að aldri. Tóbaksfyrirtækin eiga nú í við- ræðum við embættismenn rúmlega 20 ríkja, sem hafa höfðað mál gegn þeim, en saksóknarar ríkjanna sögðu að úrskurðurinn ætti ekki að hafa áhrif á þær viðræður. Systir Connor, Dana Raulerson, sem höfðaði málið gegn R.J. Reyn- olds, kvaðst furðu lostinn yfir úr- skurðinum en sagði hann ekki breyta þeirri skoðun sinni að fyrir- tækið bæri ábyrgð á dauða systur- innar. „Þetta er eins og að horfa á hana deyja aftur. Og enn er til fyrir- tæki sem kærir sig kollótt um að fólk deyi vegna vöru sem það fram- leiðir.“ Ef kviðdómurinn hefði úrskurðað að R.J. Reynolds bæri ábyrgð á dauða konunnar hefði fyrirtækið þurft að greiða skaðabætur. Snýst um ábyrgð einstaklinganna Melissa Ronan, lagaráðgjafi fjár- festingarfyrirtækja í New York, sagði að úrskurðurinn gæti styrkt stöðu tóbaksfyrirtækjanna í viðræð- unum við ríkin sem hafa höfðað mál gegn þeim vegna kostnaðar hins opinbera af sjúkdómum sem tengjast reykingum. Kviðdómurinn hafði hlýtt á mis- vísandi frásagnir sérfræðinga við réttarhöldin. Lögfræðingar Reyn- olds byggðu málsvörnina á því að Connor gæti hafa vitað að reyking- ar gætu skaðað heilsuna og reyndu að sýna fram á að hún hefði sjálf kosið að reykja og bæri því ábyrgð á afleiðingunum. Melissa Ronan sagði að málið snerist um ábyrgð einstaklingsins. „Ég tel að kjarni málsins sé að fólk hafi vitað á sjötta og sjöunda ára- tugnum að reykingar geta valdið krabbameini."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.