Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Framhjáhald eiginmanns getur orðið eiginkonu lífshættulegt Ástarævintýri eiginmanna utan hjónabands getur aukið hættu eiginkvenna þeirra á leghálskrabbameini. Margrét Þorvaldsdóttir gluggaði í blaðið „Science News“ en þar var nýlega greint frá nýrri rannsókn veirufræðinga við vísindastofnun John Hopkins í Baltimore, sem rannsakað hafa þátt karla í krabbameini af völdum veirusmits hjá konum. ÞÓ AÐ lengi hafi verið þekkt að krabbamein í legi megi rekja til smits við kynmök, virðist það vera eitt af best varðveittu leyndarmálum læknisfræðinnar, en fram til þessa hefur sökin verið talin liggja hjá konum sjálfum. Vísindamennirnir við John Hopkins hafa aðra skýr- ingu. Þeir höfðu í fyrri rannsókn- um, sýnt fram á að smit af völd- um ákveðinnar tegundar pap- illomaveiru HPVs, eykur hættu kvenna á því að fá leghál- skrabbamein. Þeir vissu einnig að þessi veira berst við kynmök. í framhaldi könnuðu þeir þátt karla í krabbameini hjá konum af völdum þessarar veiru. Vísindamennimir höfðu viðtöl við eiginmenn kvenna sem höfðu fengið krabbamein í legháls og einnig kvenna sem ekki höfðu fengið leghálskrabbamein. Eig- inmennirnir voru spurðir um hina ýmsu þætti í þeirra lífstíl þar á meðal kynmök utan hjóna- bands. Vísindamennirnir gengu enn lengra, þeir tóku stoksýni af húð limsins til að rannsaka veirur DNA. Rannsóknin leiddi í ljós að þar sem þessi veiran var til staðar fímmfaldaðist hætta eigin- kvenna þeirra á að fá leghál- skrabbamein. Einnig kom í Ijós að hættan jókst í beinu hlutfalli við fjölda kynmaka eiginmanns- ins utan hjónabands. Hættan var sérstaklega mikil þar sem eigin- mennirnir höfðu átt kynmök við gleðikonur. Eiginkonur manna sem sögðust hafa haft að minnsta kosti 10 sinnum mök við gleðikonur voru í ellefu sinn- um meiri hættu á krabbameini en eiginkonur eiginmanna sem ekki höfðu komist í snertingu við gleðikonur. í ljós kom einnig að fjöldi kynlífsfélaga eiginmannsins fyr- ir hjónaband virtist ekki vera áhættuþáttur í myndun - leghál- skrabbameins hjá konum. Vís- indamennirnir segja að þessi pappilomaveirusýking vari ekki óendanlega, ónæmiskerfið vinni á veirunni á nokkrum árum. r \ Elizabeth Arden Snyrtifræðingur frá Elizabeth Arden ky.nnir Exceptional varalitina og nýja 5th Avenue ilminn frá Elizabeth Arden í dag miðvikudaginn 7. maí. I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Mun færri umferðarslys VELVAKANDA barst eft- irfarandi bréf: „Hinn 1. maí sl. birtist á baksíðu Morgunblaðsins frétt og viðtal við frammá- mann á Suðurnesjum. Bar það yfirskriftina „Upp- setning ljósa á Reykjanes- braut - mun færri umferð- arslys" og fjallaði m.a. um fækkun slysa á Reykjanes- brautinni eftir að götuljós voru sett þar upp. Reyndar var rætt um óhöpp í frétt- inni sjálfri en ekki slys. Þar eru því birtar tölur um fjölda óhappa sl. 2 ár og af þeim má ætla að lýsing- in þafi þegar borgað sig. í fréttinni kemur fram, að óhöpp á Reykjanes- brautinni hafi orðið alls sjö frá desemberbyijun 1996 til marsloka 1997 en á sama tíma árið áður hafi þau orðið fimmtán. Síðan segir, að óhöppin hafí orð- ið 114% færri núna en í fyrra og 200% færri en á tímabilinu desember 1994 til marsloka 1995. Að vísu segir viðmælandi blaða- mannsins réttilega, að þetta sé ekki mjög ábyggi- legur samanburður! Reikn- ingsaðferðir þær sem við- hafðar eru í fréttinni eru mjög að mér finnst undar- legar og svona stæi'ðfræði var ekki til í mínum skóla. Fjöldi óhappa eða slysa á tilteknu tímabili getur ekki orðið 114% og því síð- ur 200% færri en á ein- hveiju öðru tímabili. Því 100% fækkun hlýtur að þýða að ekkert óhapp hafi orðið, ef fimmtán óhöpp urðu á fyrra tímabilinu og sjö á því síðara var það nálægt 46% fækkun en ekki 114% fækkun. Ef fækkunin hefði verið 114% þá hefðu samkvæmt þeirri stærðfræði sem ég kann, orðið mínus tvö óhöpp eða tveimur óhöppum færra en ekkert á þessu tímabili! og ef fækkunin hefði orðið 200%, þá hefðu orðið mín- us 15 óhöpp eða 15 óhöpp- um minna en ekkert! Skúli. Um beinar útsendingar MIG langaði aðeins að segja að ég tek undir það sem ísfirskur sjónvarpsá- horfandi nefndi í dálkum Velvakanda á sunnudag- inn, 4. maí. Mér þótti slæmt að missa af útsend- ingunni um kosningarnar í Bretlandi. Mig langar til að hvetja sjónvarpsmenn til að taka saman frétta- skýringaþátt um kosning- arnar í Bretlandi þar sem kaflar úr útsendingu BBC eru teknir með. Einnig mættu sjónvarpsmenn at- huga að auglýsa rækilega beinar útsendingar svo maður missi ekki aftur af svona fréttum. Ahugasamur áhorfandi. Tapað/fundið Gleraugu töpuðust á Nellý KARLMANN S-gleraugu töpuðust á Veitingahúsinu Nellý. Gleraugun voru lát- in í rangan jakka í fata- hengi. Ef einhver kannast við þetta er hann vinsam- lega beðinn að hafa sam- band í síma 554-3121. Barnaskór tapaðist BARNASKÓR, dökkblár, stærð 22, tapaðist fimmtu- daginn 1. maí í Seljahverfi. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband' í síma 567-5231. Gullúr fannst í Hveragerði GULLÚR, kvenmanns, fannst í Hveragerði 1. maí. Uppl. í síma 555-4269. Gleraugu töpuðust Gleraugu töpuðust fyrir nokkru. Þau eru hálf og umgjörðin er hvít/glær. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 553-2558, Margrét. Lyklakippa fannst LYKLAKIPPA með sex lyklum á, þar af tveimur ASSA-lyklum og bíllykli fannst við Kleppsveg sl. sunnudagskvöld. Eigand- inn má vitja kippunnar í s. 421-6510. Gucci-gullúr tapaðist GUCCI-gullúr tapaðist í Húsdýragarðinum eða á bílastæðinu þar 1. maí sl. Skilvís finnandi vinsam- lega hafi samband í síma 554-3685. Fundarlaun. SKAK llmsjón Margcir Pétursson HVÍTUR leikur og vinnur STAÐAN kom upp á opnu móti í Eupen í Belgíu nú í vor. Mikhail Golubev (2.530), Úkraínu, hafði hvítt og átti leik, en Þjóð- verjinn Boidman var með svart og var að þiggja ridd- arafórn, lék 17. - b4xc3?? Þar með féll hann í þekkta gildru: 18. Dh6! - cxb2+ 19. Kxb2 - e5 (Svartur er auðvitað mát eftir 19. - gxh6 20. gxh6+ - Bg5 21. Hxg5) 20. Bxe5! - dxe5 (Svartur verður að gefa drottninguna til að forðast mát) 21. Dxc6 - Be6 22. Dc7 - Hfe8 23. Dxe5 - Bf8 24. Da5 - Heb8 25. f4 - g6 26. f5 - gxf5 27. exf5 - Bc8 og nú loksins gaf svartur þessa vonlausu stöðu. Staðan kom upp úr afar skemmtilegu byijanaaf- brigði, hinni svonefndu Vel- imirovic árás gegn Sikil- eyjarvörn. Byijunin var þannig: 1. e4 - c5 2. Rf3 - Rc6 3. Rc3 - d6 4. d4 - cxd4 5. Rxd4 - Rf6 6. Bc4 - e6 7. Bb3 - Be7 8. Be3 - 0-0 9. De2 - a6 10. 0-0-0 - De8 11. Hhgl - Rd7 12. g4 - Rc5 13. g5 - b5 14. Rxc6 - Dxc6 15. Bd4 - Rxb3+ 16. axb3 - b4 17. Dh5 - bxc3? Og við höfum stöðuna á stöðumyndinni. HÖGNIIIREKKVÍSI „fte/or&u seb éciknmgtjrvOuccFsafb- hösiruu Sffögna. ?(" Víkveiji skrifar... AÐ VAR virkilega ónotalegt að koma út í kuldann í morg- unsárið á mánudag, en þá var engu líkara en vetur konungur hefði tek- ið völdin á nýjan leik. Þegar menn eru orðnir innstilltir á að vorið sé komið og sumarið á næstu grösum eru þeir ekki viðbúnir því að veru- lega kólni í veðri — þeir eru einfald- lega búnir að stilla sig inn á nýja og miidari árstíð. Veðrið um helgina var yndislegt á suðvesturhorninu, enda nýttu menn sér blíðuna óspart til útivistar. Víkveiji gekk í góðum hóp um Elliðaárdaiinn, sem er hrein útivistarperla. í hópnum voru tveir félagar, sem höfðu á orði að þetta væri þeirra fyrsta ganga í Elliðaár- dalnum og sögðust þeir ekki hafa haft hugmynd um að perla sem þessi leyndist innan borgarmark- anna. Enda var auðheyrt á máli þeirra, að þótt þetta væri þeirra fyrsta gönguferð í Elliðaárdal ættu þeir eftir að fara þær margar um sama svæði. XXX NÚ FER í hönd sá tími sem grunnskóla- og framhalds- skólanemendur sitja sveittir við próflestur og leggja kapp á að ná góðum árangri áður en þeir koma út á vinnumarkaðinn í byrjun júní. Samræmdu prófunum er lokið í grunnskólunum, en skólaprófin taka nú við fram eftir maímánuði. Áður en skólaprófin sjálf hefjast fara tíundu bekkingar margir hveij- ir í skólaferðalag, svona tveggja til þriggja daga ferðalag, í annan landshluta. Vinsælt er hjá grunn- skólanemendum hér á höfuðboi'gar- svæðinu að leggja land undir fót og heimsækja Norðurland og er þá gjarnan farið til Húsavíkur og Ak- ureyrar. Aðrir velja að sækja Vest- mannaeyjar heim og sigla þá gjarn- an frá Þorlákshöfn með Heijólfi. Nemendurnir hafa safnað allan vet- urinn i ferðasjóði, með sjoppu- rekstri og skemmtanahaldi í skólum sínum, þannig að ferðalagið sjálft kemur ekki svo þungt niður á pyngju heimilanna. XXX TÍMARNIR hafa breyst mikið, á örfáum áratugum, að því er varðar ferðalög ungmennanna í tengslum við námslok hvers konar. Þannig minnist Víkveiji þess að við lok gagnfræðaskóla, hvort sem var við landspróf eða gagnfræðapróf, fyrir svona tveimur til þremur ára- tugum, var það ekki óalgengt, að nemendur Reykjavíkurskólanna færu í dagsferð að Þingvöllum, Gullfossi og Geysi, ef á annað borð var farið í ferðalag. Sömuleiðis var lítið um fet'ðalög, þegar stúdents- prófi var lokið. Aðeins var haldið upp á útskriftardaginn með veislu og skemmtun og svo mætt til vinnu morguninn eftir. í dag fagna stúd- entsefnin með öðrum og kostnað- arsamari hætti og það í flestum tilvikum heilu ári áður en þau út- skrifast. Þannig virðist hafa mynd- ast ákveðin hefð fyrir því að stúd- entsefni sem lokið hafa þremur árum af ijórum fari í sólarlanda- ferð, með visakortið upp á vasann og eru svo gjarnan lungann úr sumrinu að vinna fyrir skuldunum og heija svo síðasta námsárið í mennta- eða ijölbrautaskóla með tvær hendur tómar, upp á náð og pyngju foreldranna, í þeirri von að ná áfanganum að vetri liðnum, áfanga sem þegar hefur verið hald- ið upp á.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.