Morgunblaðið - 16.05.1997, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Bæjarráð Akureyrar um bílaumferð í göngugötu
Tilraunin ekki framlengd
BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkti
á fundi í gær að tilraun með um-
ferð bifreiða um göngugötuna í
Hafnarstræti verði ekki framlengd
og Hafnarstræti og Ráðhústorg
verði að nýju skilgreind sem göngu-
gata, þannig að umferðarmál á
svæðinu breytast í samræmi við það
til fyrra horfs, þ.e. umferð bíla verð-
ur ekki leyfð um götuna eftir að
tilraunatímabilinu lýkur nú í lok
mánaðarins.
Tillaga bæjarráðs verður af-
greidd á fundi bæjarstjórnar næsta
þriðjudag. Samþykkt var í vetur að
leyfa umferð bifreiða um göngugöt-
una í tilraunaskyni tímabundið og
hefur hún verið opin frá 15. janúar
síðastliðnum en tilrauninni lýkur í
lok mánaðarins, 31. maí. Gatan var
á þessum tíma skilgreind sem vist-
gata.
Fyrsta skrefið
Flosi Jónsson gullsmiður var einn
hvatamanna þess að göngugatan
yrði opnuð fyrir bílaumferð. Hann
sagði að þeir kaupmenn væru ekki
ósáttir við að gatan væri lokuð
umferð bíla yfir sumarmánuðiná.
Þessi tilraun hefði verið fyrsta
skrefið og að henni lokinni myndu
menn skoða hvað gert yrði í fram-
haldinu.
Nauðsynlegt væri að end-
urhanna götuna ef leyfa ætti um-
ferð bíla um hana í framhaldinu.
Bílastæði hefðu til að mynda ekki
verið nægilega mörg og fólk kvart-
að yfir því. Því yrði að breyta ef
bílaumferð yrði leyfð um götuna í
framtíðinni.
Morgunblaðið/Kristján
Fyrsta síldin til Akureyrar
Kuldalegt
á varp-
stöðvunum
Sigurður VE
með fullfermi
NÓTASKIPIÐ Sigurður VE kom
með fullfermi af síld, um 1450 tonn,
til Krossanesverksmiðjunnar á Ak-
ureyri um hádegisbilið í gær. Þetta
er jafnframt fyrsti síldarfarmurinn
sem berst til verksmiðjunnar á ver-
tíðinni og fer hann í bræðslu.
Sigurður var að koma úr sínum
öðrum túr en áður hafði skipið land-
að um 930 tonnum í Vestmannaeyj-
um í síðustu viku. Kristinn Ragnars-
son, háseti á Sigurði segir að síldin
sé brellin og misjafnlega gangi að
ná henni. Alls var kastað 11 sinnum
í túrnum og þar af voru nokkur
búmm. „Það kom smá skot í veiðarn-
ar í Síldarsmugunni á þriðjudag en
við fylltum okkur í færeysku lögsög-
unni,“ sagði Krstinn. Siglingin af
miðunum tók um 36 klukkutíma en
eftir löndum í gærkvöld, hélt Sigurð-
ur aftur á miðin. Á myndinni eru
Gústaf Guðlaugsson, háseti við lönd-
un í Krossanesi í gær.
Ondvegi flytur
í nýtt húsnæði
HÚSGAGNAVERSLUNIN Önd-
vegi á Akureyri hefur flutt starf-
semi sína úr Dalsbraut 1 í nýtt og
glæsilegt húsnæði að Hafnarstræti
22. Öndvegi hefur verið starfrækt
í bænum í um eitt og hálft ár og
verslar með sófasett, borðstofu-
sett, veggsamstæður og fleira.
Húsgögn eru frá Englandi,
Spáni og Ítalíu, auk þess sem mik-
ið er af íslenskum vörum á boðstól-
um. Á myndinni er eigandinn,
Helga _ Jóhannsdóttir í verslun
sinni. Í tengslum við opnunina er
faðir Helgu, Jóhann Ingimarsson
með myndlistarsýningu í verslun-
inni og sýnir þar mjög frumlegar
og skemmtilegar myndir.
Grímsey. Morgunblaðið.
SVARTFUGLINN er nú byijaður
að verpa og er það á svipuðum
tíma og vant er. Varla getur talist
hlýlegt fyrir fuglinn að lúra á eggj-
um sínum því snjór er í kringum
bústaði fuglsins rétt eins og mann-
fólksins.
Gylfi Gunnarsson, Alfreð Garð-
arsson, Gunnar Stefán Ásgrímsson
og Garðar Ólason fóru á bjarg í
fyrrakvöld og sigu tvisvar í Eiða-
bjargi og fengu um 200 egg.
Múkkinn er lítið byijaður að verpa
og skeglan ekkert. Hún er bara
rétt byrjuð „að bera undir sig“ en
um þetta leyti í fyrra var hægt að
tína egg undan henni.
Morgunblaðið/Kristján
ÚTSKRIFTARNEMAR Myndlistarskólans á Akureyri, Ágúst, Maria, Sigurrós og Ólafur.
Myndlistarskólinn á Akureyri
Morgunblaðið/Hólmfríður
Yorsýning um helgina
VORSÝNING nemenda Myndlist-
arskólans á Akureyri verður opn-
uð á morgun, laugardaginn 17.
maí, kl. 14. Sýningin stendur til
næstkomandi mánudags, 19. maí,
og er opin frá kl. 14 til 18 alla
dagana.
Fjórir nemendur útskrifast úr
sérnámsdeildum skólans að
þessu sinni, Ólafur Sveinsson og
Sigurrós Stefánsdóttir úr málun-
ardeild og Ágúst Halldórsson og
María Loftsdóttir úr grafískri
hönnun. Lokaverkefni þeirra eru
á sýningunni, en Ólafur tók fyrir
fugla í þjóðtrú, hjátrú og goða-
fræði, Sigurrós vildi upplifa línur
og form í umhverfinu og sækist
eftir að skapa dýpt með linum,
flötum, ljósi og skuggum. Ágúst
tók fyrir altæka hönnun á veit-
ingahúsi sem hann kallar Valent-
ínó í sínu lokaverkefni og María
tók fyrir hönnun og kynningu á
kaffihúsi og leitar hugmynda til
landnámstimans.
Vorsýningin er hápunktur í
starfi skólans ár hvert en þar
gefst bæjarbúum og gestum kost-
ur á að líta þverskurðinn af því
mikla starfi sem unnið er í skól-
anum frá morgni til kvölds yfir
vetrartímann. Um 350 nemendur
stunduðu nám við skólann síðasta
skólaár, ýmist í dagdeildum eða
á almennum námskeiðum.
Skólastjóri
Tónlistarskólans
Ekki
samstaða
í skóla-
nefnd
SAMSTAÐA náðist ekki á
fundi skólanefndar Tónlistar-
skólans á Akureyri um ráðn-
ingu skólastjóra við skólann.
Alls sóttu 6 um stöðuna og
á fundi skólanefndar í vikunni
fékk Atli Guðlaugsson, núver-
andi skólastjóri Tónlistarskóla
Eyjafjarðar, tvö atkvæði og
Michael Jón Clarke,, kennari
við Tónlistarskólann á Akur-
eyri og settur skólastjóri hans,
fékk eitt atkvæði. Einn nefnd-
armanna sat hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Bæjarráð vísaði ráðningu
skólastjóra til afgreiðslu bæj-
arstjórnar en næsti fundur
verður næstkomandi þriðju-
dag.
Islands-
meistarar
fá viður-
kenningn
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti á fundi í gær að veita
ísknattleiksdeild Skautafé-
lags Akureyrar 300 þúsund
króna viðurkenningu í tilefni
af því að deildin vann íslands-
meistaratitil í ísknattleik
1997. Isknattleiksmenn komu
á fund bæjarráðs og afhenti
Jakob Björnsson bæjarstjóri
þeim viðurkenninguna.
Fyrir nokkru var einnig
samþykkt í bæjarráði,_í tilefni
af því að KA vann íslands-
meistaratitil í handknattleik á
síðasta keppnistímabili í
fyrsta sinn í sögu félagsins,
að veita deildinni sérstaka
aukaíjái*veitingu að upphæð
eina milljón króna.
Danssýning
Ballett-
skólans
DANSSÝNING Ballettskól-
ans á Akureyri verður í
Iþróttahöliinni á morgun,
laugardaginn 17. maí og hefst
hún kl. 15. Aðgangseyrir er
400 krónur en ókeypis fyrir
börn yngri en 10 ára. Boðið
verður upp á veitingar.