Morgunblaðið - 16.05.1997, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Leiklistarnemi í
atvinnuleikhúsi
Ásta Sighvats Ólafsdóttir
er á öðru ári í leiklistarnámi
í London og er nú þegar
komin með hlutverk í
atvinnuleikhúsi þar í borg.
Dagur Gunnarsson ræddi
við Astu og John Wright
leikstjóra um Bubba kóng,
leiklistarskóla og fleira.
Ásta Sighvats
Ólafsdóttir.
ITILEFNI af aldarafmæli Bubba
kóngs setur The Gate leikhúsið
í London upp sýningu á þessu
fræga verki Alfred Jarry.
Jarry var á unglingsaldri (15
ára) þegar hann skrifaði Bubba
kóng fyrir brúðuleikhús til að hefna
sín á illgjörnum kennara, tímasetn-
ingin á þessari sviðsetningu virtist
hinsvegar ákaflega heppileg í miðj-
um kosningaslag þar sem skeytin
ganga á milli bresku stjórnmála-
flokkanna.
Ég hitti Ástu og John rétt fyrir
lokarennslið, það var auðsjáanlega
mikill skjálfti í þeim báðum og John
hellti sér strax út í miklar útlistan-
ir um stykkið og sögu þess.
Við styðjumst við splunkunýja
þýðingu á þessu verki sem
Jarry skrifaði í unglinga-
veikiskasti sem ádeilu á eðlisfræði-
kennarann sinn sem honum fannst
haga sér eins og einræðisherra í
skólastofunni og óafvitandi skapaði
hann meistarastykki sem er frábær
ádeila á fasisma og sjálfumglaða
einræðisherra. Bubbi er gráðugur,
frekur og óheiðarlegur heigull,
hann er ádeila á alla harðstjóra
fyrr og síðar. Bubba-isminn skýtur
upp kollinum þegar við slökum á
klónni og gefum honum færi á að
NÚ stendur yfir sýning á mynd-
verkum Valgerðar Hauksdóttur í
City Gallery, í Leicester, Bretlandi.
Sýningin nefnist Frozen Landscap-
es (Frosin landslög) og er haldin í
boði gallerísins, þar sem Valgerður
sýnir ásamt breska listamanninum
Roy Bizley málverk, grafík og
grassera. Jarry stofnaði síðar félag
(sem enn er virkt) í kringum hug-
mynd sína um fræði hins ómögu-
lega eða „Pataphysique" og okkar
sýning hefst á fundi í þessu félagi.
Þar eru bornir fram fremur ógeð-
felldir matréttir og allt er mjög
groddalegt. Ástu, í hlutverki þjóns,
verður það á að stíga í einn rétt-
anna og segja hið forboðna orð
„shicht" eða „merrde“ á frönsku
sem er afbökun á orðinu skítur.
Það verður til þess að harðstjórarn-
ir taka völdin og sjálft leikritið sem
er ein allsheijar afbökun hefst.“
teikningar. Báðir
listamennirnir
vinna út frá ís-
lensku landslagi.
Sýningin Fros-
in landslög var
opnuð 18. apríl og
lýkur 17. maí.
Margir leiklistarskólar leyfa
ekki nemendum sínum að
takast á við verkefni utan
veggja skólans, en Ásta er ekki
einu sinni búin með annað árið
sitt í sínum leiklistarskóla. - Þar
sem þú ert nú bæði kennarinn
hennar og leikstjóri þessarar sýn-
ingar er hún væntanlega ekkert
að stelast? „Nei, alls ekki, það er
mjög gott fyrir hana að öðlast
þessa reynslu, þetta er bara partur
af hennar menntun. Það er stefnan
hjá okkur í Middlesex-háskólanum
að hafa sem mest samskipti við
atvinnuleikhúsin. Það er svo mikil
samkeppni úti á vinnumarkaðnum
fyrir leikara í London að það verð-
ur a.ð grípa hvert tækifæri.“
Ásta hefur fram að þessu látið
sér nægja að nikka og samþykkja
það sem John hefur verið að segja,
en skýtur hér inn í: „Það er ótrú-
lega erfitt að vinna í þijú til fjög-
ur ár með sama fólkinu í vernduðu
umhverfi skólans og svo skyndi-
lega eftir útskrift á maður að fara
út í heiminn og sýna af sér at-
vinnumennsku, það hreinlega virk-
ar ekki.“ John tekur undir þetta
og bætir við: „Það er líka ómetan-
leg reynsla fyrir hana að fá að
vinna með reyndum atvinnuleikur-
um, sjá hvernig þeir vinna og læra
af þeim.“
Nú er tíminn á þrotum hjá John,
hann kveður og þakkar fyrir spjall-
ið, en við Ásta getum skipt yfir í
íslensku, hún segir mér frá John;
„Hann var yfir leiklistardeildinni
í Middlesex-háskólanum, en hefur
hætt í þeirri stöðu til að geta leik-
stýrt meira, en hann kennir ennþá
eitthvað á fyrsta árinu og setur
upp skóiasýningar á þriðja árinu.
Hann ferðast líka mikið um og
kennir á námskeiðum, svokölluð-
um „Masterclasses", oft í tengsl-
um við leiklistarhátíðir. Hann hef-
ur nokkrum sinnum boðið mér að
koma með á þessi námskeið til að
hafa einhvern með sér til að sýna
hvernig hann vinnur og út á hvað
hans aðferðir ganga.“
Hveijir sækja þessi námskeið?
„Það eru bæði leikarar, leik-
stjórar og leiklistarnemar. Það er
líka alveg frábært tækifæri, því
þá kynnist maður fólki og fólk sér
mann, sem er mjög mikilvægt í
svona milljónaborg."
Ertu með stórt hlutverk í Bubba
kóngi?
„Við erum níu leikarar, það eru
tvö aðalhlutverk og svo stökkvum
við hin inn í mörg undarleg smærri
hlutverk, ég leik t.d. þjónustu-
stúlku, prinsessu, hermann í her
Bubba kóngs, rússneskan keisara,
og bíddu við, ég hef ekki alveg
tölu á þessu, jú, svo er ég líka
prinsessa, það gengur mikið á og
við stökkvum inn og út úr mismun-
andi hlutverkum."
etta bar dálítið brátt að ekki
satt?
„Jú, heldur betur, leik-
konan sem var í hlutverkinu for-
fallaðist og John bað mig að hlaupa
í skarðið fyrir þremur dögum, ég
var eiginlega í losti yfir að fá þetta
tækifæri, því þetta er eitthvað sem
maður býst ekkert við að fá fyrr
en eftir útskrift, núna get ég látið
umboðsmenn koma og skoða mig
í þessari sýningu.“
Verður ekkert dauflegt fyrir þig
að fara svo aftur í skólann?
„Það vona ég ekki, það verður
svo mikið að gera, ég fer að æfa
fyrir Shakespeare-sýningu uppi í
skóla á meðan að sýningar standa
enn yfir á Bubba kóngi.“
Ég þakkaði Ástu fyrir spjallið
og kíkti síðan inn á rennslið hjá
þeim. Þetta er mjög lífleg og fjör-
ug sýning sem notar tungumálið
á skemmtilegan máta, t.d. talar
Ásta íslensku í fyrsta atriðinu og
mismunandi mállýskur enskunnar
eru notaðar á skemmtilegan hátt.
Leikararnir þeytast útum allt rým-
ið og skjóta upp kollinum á ólík-
legustu stöðum, ég gat ekki annað
en dáðst að líkamlegu þreki þeirra
og fimi. Það er alls ekki ætlun
mín að gerast leiklistargagnrýn-
andi en Ásta getur svo sannarlega
verið stolt af sínum hlut í þessari
sýningu sem er vönduð og í alla
staði vel unnin.
*
Islenskt
landslag
ISLENSKT, landslag 1997
nefnist sýning Agnars Wil-
helms Agnarssonar í Nelly’s
Cafe, Þingholtsstræti 2. Agnar
sýnir ellefu samklippur og
stendur sýningin til 29. maí.
Agnar hefur sýnt á eftir-
töldum stöðurn: Arkítektafé-
laginu, 1976, Stúdentakjallar-
anum, 1979, Nýja galleríi,
1980, Djúpinu (Horninu)
1982, Gramminu, 1984, Veit-
ingahúsinu 22, 1990 og
Tveimur vinum, 1991. Hann
hefur einnig tekið þátt í sam-
sýningum og gerningum.
Hann er kennari við Internet
Art Academie. Slóð á veraldar-
vefnum: http://www.is-
holf.is/agnarius.
Strengja-
kvöld í Kefla-
víkurkirkju
STRENGJANEMENDUR
Tónlistarskólans í Keflavík
leika á tónleikum í Keflavíkur-
kirkju í kvöld, föstudag, kl.
20.00.
Strengjasveit skólans leikur
undir stjórn Ólivers J. Kentish,
Suzukifiðlunemendui' leika
undir stjórn Kjartans Más
Kjartanssonar. Helle Alhof og
fiðlpkvartett flytur nokkur lög.
Á morgun, laugardag, 7.
maí verða tónleikar eldri og
lengra kominna nemenda á sal
skólans kl. 17.00. Nemendur
úr ýmsum deildum skólans
flytja.
432 peysur
MIKIL þátttaka var í hönnun-
arsamkeppni Garnbúðarinnar
Tinnu í Hafnarfirði og bárust
432 peysur frá 354 hönnuðum.
Einnig bárust í keppnina teppi,
treflar, sokkar og vettlinga.
Sýning verður á flíkunum
um hvítasunnuna í litlu gall-
eríi sem Garnbúðin Tinna hef-
ur látið útbúa á efri hæð fyrir-
tækisins í Hafnarfirði. Verð-
iaunapeysurnar verða sýndar
kl. 14 á morgun, laugardag.
Dómnefnd skipa Bryndís
Schram, Logi Bergmann Eiðs-
son, Bergrós Kjartansdóttir og
Auður Kristinsdóttir.
VERK Valgerðar Hauksdóttur eru sýnd í Bretlandi þessa dagana.
Myndverk Valgerðar
Hauksdóttur í Bretlandi
Næstu íjórar helgar ^efst mönnum
úti á landstyggðinni kostur á að sjá
og reynsluaka nýjum Land Cruiser.
Við verðum á Vestur- og
Norðurlandi um hvítasunnuna,
á Austurlandi 23. til 25. maí,
á Vestfjörðum 30. maí til 1. júní o£
á Suðurlandi 7. og 8. júní. Nánari
tímasetning í tilkynningum
á viðkomandi stöðum og í útvarpi
og sjónvarpi.
Fylgstu með þegar kann
kemur til })ín
1