Morgunblaðið - 01.08.1997, Qupperneq 1
64 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
172. TBL. 85. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 1. ÁGIJST 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Aldrei fleiri
atvinnulausir
í Frakklandi
París. Reuter.
ATVINNULEYSI í Frakklandi náði
nýju hámarki í júnímánuði, sam-
kvæmt upplýsingum sem franska at-
vinnumálaráðuneytið kunngjörði í
gær. Þetta eykur enn á þann vanda,
sem hin nýja ríkisstjóm sósíalista
stendur frammi fyrir, en vinstrimenn
byggðu sigur sinn í þingkosningun-
um í júní sl. að miklu leyti á loforðum
um að þeir myndu vinna betur á at-
vinnuleysisvandanum en hægrimenn.
Samkvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunar, sem birtar vom í gær,
hafa vinsældir Lionels Jospins for-
sætisráðherra dalað allnokkuð frá
því hann tók við embætti, en meiri-
hluti kjósenda vh’ðist engu að síður
trúa því, að hann sé fær um að leysa
úr helztu vandamálum Frakklands.
Atvinnulausir í Frakklandi voru
samkvæmt opinberum tölum
3.130.900 í júnímánuði, sem samsvar-
ar 12,6% vinnufærra manna á kvarða
Alþjóðavinnumálastofnunarinnar,
ILO. I apríl náði atvinnuleysishlut-
fallið 12,8%, en þá var önnur aðferð
notuð við útreikninginn og telst hlut-
falhð nú vera met.
62% treysta Jospin
I skoðanakönnun Sofres-stofnun-
arinnai', sem birt var í Le Figaro í
gær, kemur fram að 62% Frakka
treysta Jospin til að takast á við
hvern þann vanda sem að þjóðinni
steðjar. 35% sögðust ekki bera traust
til hans. Fyrir einum mánuði voru
samsvarandi hlutfoll 66 á móti 31.
, Reuter
ARABISKIR íbúar Jerúsalem biðjast fyrir við útför eins fórnarlamba sjálfsmorðssprengjuárásar, sem banaði 13
manns á markaðstorgi í borginni í fyrradag. Á líkkistunni liggur bænamotta og höfuðbúnaðurfómarlambsins.
Israelar handtaka herskáa Palestínumenn í kjölfar sprengjutilræðis
Palestínumenn fordæma
aðgerðir Israelsmanna
Jerúsalem, Ramallah. Reuter.
Bretar
bótaskyldir
Lundúnum. Reuter.
SPÆNSKIR útgerðarmenn, sem
þurftu að sæta því að vera ekki
hleypt til veiða í brezkri fiskveiðilög-
sögu, geta farið fram á skaðabætur
sem numið gætu hundruð milljónum
króna. Dómstóll í Lundúnum kvað
upp úr um þetta í gær.
Fiskiskip, sem spænskir útgerðar-
menn höfðu keypt af Bretum í þeim
tilgangi að fá hlutdeild í brezkum
aflakvótum, voru útilokuð frá veiðum
í brezkri lögsögu um tíma. Evrópu-
dómstóllinn skar úr um það að úti-
lokun Spánverjanna hefði verið brot
á ESB-löggjöf og þefr gætu farið
fram á skaðabætur.
Brezk stjórnvöld hafa barist gegn
bótakröfum spænsku útgerðaríyrir-
tækjanna 97, sem höfðuðu mál, en
með úrskurði gærdagsins hefur
brezkur dómstóll staðfest að brot
stjói-nvalda hafí verið „nægjanlega
alvarlegt" til að þau séu bótaskyld.
ÞUSUNDIR þýzkra hermanna
reyndu sitt ýtrasta í gær til að gera
við flóðvarnargarð við ána Oder
sem við lá að brysti. Heimili tíu
þúsunda manna voru í bráðri hættu
er vamargarðurinn nærri bænum
Hohenwutzen byrjaði að láta undan
þrýstingi flóðvatnsins. íbúarnir
vora fluttir brott seint á miðviku-
dag og hermennirnir, hjálparstarfs-
menn og sjálfboðaliðar hömuðust
við að hlaða sandsekkjum til bjarg-
ar varnargarðinum.
„Það er nánast kraftaverki líkast
að það skuli hafa tekizt að hindra
að skarð komi í garðinn við
Hohenwutzen,11 sagði Matthias
Platzek, umhverfisráðheiTa sam-
bandslandsins Brandenburg, í sjón-
varpsviðtali. „Möguleikarnir á að
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, sagði í gær að
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, hefði „fjandakornið ekkert"
gert til þess að koma í veg fýrir
hryðjuverk herskárra múslíma í Isr-
ael. Aðstoðarmaður Arafats sagði að
ákvarðanir Israelsstjómar í kjölfar
sprengjuárásar, sem varð 13 manns
að bana í Jerúsalem á miðvikudag,
jafngiltu stríðsyfírlýsingu.
Israelar lýstu því yfír á miðviku-
dagskvöld að þeir myndu ekki mæta
halda stjórn á náttúruöflunum á
þessu svæði eru ekki meiri en 10 til
15 af hundraði,“ sagði innanríkis-
ráðherrann Alwin Ziel.
Undirstöður láta undan
Þyrlur fluttu fimm tonna þunga
sandsekki að rótum varnargarðsins
við Hohenwutzen í gær til þess að
styrkja hann þar sem undirstöð-
urnar höfðu byrjað að gefa sig og
kararar reyndu að styrkja þær
flóðmegin með því að reyna að
koma fyrir 100 m löngum plast-
borða sex metram undir kol-
mórauðu yfirborði fljótsins, til að
freista þess að minnka þrýsting
vatnsins á veikustu punkta undir-
stöðunnar. Ef garðurinn gefur sig
má búast við margra metra hárri
til fyrirhugaðra friðarviðræðna við
Palestínumenn nú í vikulokin, svo
sem áætlað hafði verið, vegna sjálfs-
morðssprengjutilræðis á markaðs-
torgi í Jerúsalem þá um daginn.
Þrettán manns létust og 170 særð-
ust. Talið er að tveir meðlimir
skæraliðasamtakanna Hamas hafi
staðið að tilræðinu, en að sögn ísra-
elsks embættismanns í gær telja
þarlend yfirvöld ekki óyggjandi að
samtökin hafi verið að verki.
Arafat fyrirskipaði þá um kvöldið
flóðbylgju sem myndi leggja
stærstan hluta hins frjósama Oder-
daþs og tugi þorpa undir vatn.
A undanförnum dögum hafa fjór-
ir týnt lífi í flóðum í Rúmeníu eftir
miklar rigningar og vatnavexti.
Tugþúsundir era heimilislausar í
Tékklandi, Póllandi og Þýzkalandi,
þar sem verstu flóð í manna minn-
um hafa herjað á liðnum vikum og
kostað yfir 100 manns lífíð.
Þýzkir og pólskir ráðamenn
að meðlimir herskárra samtaka
múslíma, þ.á m. í Hamas og Heilögu
stríði (Jihad) skyldu handteknir.
Netanyahu sagði Arafat ekki hafa
staðið við loforð um að heimastjórn
Palestínumanna gripi til aðgerða
gegn skæraliðastarfsemi.
Hótuðu að ráðast inn á
sjálfstjórnarsvæðin
í gær hótuðu ísraelar að senda
öryggissveitir sínar inn á sjálf-
stjórnarsvæði Palestínumanna á
funduðu í gær í Varsjá til að ræða
sameiginlegar aðgerðir beggja
vegna flóðsins í landamærafljótinu
Oder.
Pólska umhverfisráðuneytið
greindi frá því í gær að nauðsynleg-
ai- aðgerðir til að bæta þann um-
hverfisskaða sem flóðin hafa orsak-
að í Póllandi myndu kosta um 100
milljarða íslenzkra króna. Þessar
aðgerðir myndu vara allt fram til
ársins 2010, að sögn ráðuneytisins.
Vesturbakkanum og Gaza, til þess
að handtaka meðlimi í skæruliða-
samtökum, ef Palestínumenn gripu
ekki sjálfir til aðgerða. ísraelar
handtóku 28 Palestínumenn vegna
þess sem nefnt var „ógnandi skæra-
liðastarfsemi" í þorpum sem enn
lúta yfirráðum ísraela.
Palestínskir öryggisverðir kváð-
ust hafa handtekið að minnsta kosti
tíu meðlimi samtakanna Heilagt
stríð og Hamas á stjómarsvæði Pal-
estínumanna við Betlehem. Þá hefði
pólitískur leiðtogi Hamas verið tek-
inn höndum á yfirráðasvæði Palest-
ínumanna á Gaza.
Krefst raunverulegs friðar
í viðtali við Reuters í gær sagði
Netanyahu að hann krefðist þess að
raunveralegur friður kæmist á og
fyrsta skrefið væri að Arafat tækist
á við skærahemað. „Þjóðum heims,
(...) Evrópusambandinu ber skylda
til að krefjast þess. Hingað til hefur
það ekki verið gert.“ Sagði Netany-
ahu að Arafat og stjórn Palestínu-
manna hefðu notið „alveg óhefts
frelsis" við að sniðganga bráða-
birgðasamkomulagið sem gert hafi
verið 1993.
Aðstoðarmaður Arafats sagði í
sjónvarpsviðtali að í stað þess að
beina kröfturn sínum gegn hryðju-
verkum hefði ísraelsstjórn „ákveðið
að berjast við palestínsk yfirvöld".
Þetta jafngilti því að lýsa yffr stríði.
Fær frest í mánuð
Löggjafarsamkoma Palestínu-
manna veitti í gær Arafat eins mán-
aðar frest til þess að leysa upp ráðu-
neyti sitt og skipa nýtt. Kemur þetta
í kjölfar rannsóknar á spillingarmál-
um. Var Arafat hvattur til að skipa
nýtt ráðuneyti „hæfra og reyndra
ráðherra".
Þúsundir heimila og landbúnaðarhéruð við Oder í bráðri hættu
Varnargarðar
nær brostnir
Hohenwutzcn, Varsjá, Búkarest. Reuter.
Reuter
HERMENN liandlanga sandpoka í nær brostinn varnargarðinn.