Morgunblaðið - 01.08.1997, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997 15
ÚR VERINU
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
INGI Freyr Ágústsson t.v. og Friðrik E. Ásmundsson starfsmenn
Netagerðarinnar Ingólfs á Þórshöfn.
Opnar netaverk-
stæði á Þórshöfn
NETAGERÐIN Ingólfur í Vest-
mannaeyjum hefur opnað netagerð-
arverkstæði á Þórshöfn. Tveir ung-
ir Eyjamenn, þeir Ingi Freyr Ág-
ústsson petagerðarmaður og Frið-
rik E. Ásmundsson nemi í neta-
gerð, hafa að undanförnu unnið að
því að gera rúmlega 500 fermetra
húsnæði við Langanesveg klárt
undir starfsemina.
Ingi Freyr mun hafa umsjón með
daglegum rekstri á Þórshöfn en að
öðru leyti er starfseminni stjómað
frá Eyjum. Ingi Freyr sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að stefnt
væri að því að ráða 5 starfsmenn
til viðbótar. Hann sagði hins vegar
ekki auðvelt að fá fólk til starfa
og að auglýsing á Þórshöfn hafi
ekki skilað neinum árangri.
„Það er skortur á vinnuafli hér
á Þórshöfn og þó við höfum kannski
frekar verið að leita að mönnum
sem eitthvað kunna fyrir sér í neta-
gerð, er það ekkert skilyrði. Menn
em fljótir að læra handtökin. Hér
er einnig skortur á íbúðarhúsnæði
og því er heldur ekki auðvelt að fá
aðkomumenn til starfa.“
Mikil þörf fyrir þessa
starfsemi
Ingi Freyr segir mikla þörf fyrir
þessa starfsemi á Þórshöfn, því hing-
að til hafí m.a. heimabátar þurft að
leita annað eftir aðstoð við veiðar-
færi sín. Hann segir að forsvars-
menn Hraðfrystistöðvar Þórshafnar
hafi átt fmmkvæðið að því að neta-
verkstæði yrði sett upp á staðnum
og er húsnæðið við Langanesveg í
eigu Hraðfrystistöðvarinnar.
Netagerðin á Þórshöfn er þriðja
verkstæðið sem Netagerðin Ingólf-
ur hefur sett upp á fastalandinu. í
desember í fyrra var opnað útibú í
Reykjavík og í mars sl. á Fáskrúðs-
firði.
Lok síldarvertíðar
Skipin mega fara
fleiri veiðiferðir
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ
hefur ákveðið að þeim síldarskipum,
sem ekki hafa lokið við að veiða það
magn sem þeim var heimilt að landa
í tveimur veiðiferðum eftir 31. júlí
sl., sé heimilt að skipta því magni
á fleiri en tvær veiðiferðir. Ákvörð-
unin er tekin að beiðni útgerðar- og
vinnsluaðila í því skyni að stuðla að
manneldisvinnslu á síld.
Ráðuneytið ákvað í lok maí sl.
að þau skip sem landað höfðu síld
á vertíðinni mættu aðeins fara eina
veiðiferð eftir 31. maí og þótti sýnt
að þannig næðist leyfílegur heildar-
afli íslendinga á veríðinni, 233.000
tonn. Síldveiðarnar gengu hins veg-
ar illa í júní vegna brælu og heimil-
aði ráðuneytið þá þeim skipum sem
lönduðu slatta eftir 31. maí að fara
í aðra veiðiferð en samanlagður
afli úr veiðiferðunum tveimur mátti
ekki fara yfír það magn sem þau
höfðu mest landað úr einni veiðiferð
á yfirstandandi vertíð.
Síldin hentug til vinnslu
Mjög litlum síldarafla hefur verið
landað síðan í júníbyijun. Fæst síld-
arskipin náðu að landa þeim afla
sem þeim var heimilt í veiðiferðun-
um tveimur og eiga mörg skip eftir
að landa talsverðu magni. Samtals
eru eftir rúm 25.000 tonn af síld-
arkvótanum en samtals nýttu 51
skip sér leyfí til síldveiða á þessari
vertíð. Síldin hefur nú náð því stigi
þegar hún er hvað hentugust til
manneldisvinnslu, er að mestu laus
við átu og feit. Menn binda nú von-
ir við að síldin fáist innan lögsög-
unnar og vilja því freista þess að
ná henni til vinnslu og ná að veiða
leyfílegan heildarafla.
Uppnám í spænska fjölmiðlaheiminum
Emkavætt símafyrirtæki
kaupir sjónvarpsstöð
Malaga. Morgunblaðið.
SPÆNSKIR sósíalistar eru æfír af
reiði vegna kaupa Telefoniea-síma-
fyrirtækisins á Antena 3-sjónvarps-
stöðinni. Felipe Gonzalez, fyrrver-
andi forætisráðherra Spánar, hefur
sakað ríkisstjórn Jose Maria Aznars
forsætisráðherra um að seilast til
sífellt meiri áhrifa í spænska fjölm-
iðlaheiminum til að tryggja að
fréttaflutningur sé stjórnvöldum
hagstæður.
Mjög kom á óvart er skýrt var frá
því í liðinni viku að Telefonica-síma-
fýrirtækið hefði keypt meirihluta
hlutabréfa í Antena 3-sjónvarpsstöð-
inni. Telefonica var forðum í nkiseigu
en einkavæðingu fyrirtækisins lauk
fýrr á þessu ári. Fyrirtækið ræður
nú yfir 56% hlutabréfa í sjónvarps-
stöðinni ásamt bankafyrirtækjunum
Santander og BCH. Lög mæla fyrir
um að enginn einn hluthafí megi eiga
meira en 25% hlutabréfanna.
Hlutabréfín voru í eigu Prensa
Regional, sem er fyrirtæki Antonios
Asensios, fráfarandi forstjóra og
eiganda Antena 3. Talið er að kaup-
verðið hafí verið um 25 milljarðar
íslenskra króna.
Líkt við Fujimori
Sósialistaflokkurinn spænski
(PSOE), sem er í stjórnarandstöðu,
hefur mótmælt kaupunum harðlega.
Felipe Gonzaiez, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Spánar, sagði á sunnudag
að með þessu hygðist núverandi rík-
isstjórn hafa enn frekari áhrif á frét-
taflutning fjölmiðla á Spáni og
tryggja að hann reyndist stjórnvöld-
Ríkisstjórnin
vænd um að
seilast til áhrifa
í skjóli einka-
vinar forsætis-
ráðherrans
um þóknanlegur. Líkti hann þessum
gjörningi við einræðistilburði Al-
berto Fujimoris, forseta Perú, sem
vændur hefur verið um að ráðast
að tjáningarfrelsinu i heimalandi
sínu vegna þeirrar ákvörðunar hans
að svipta eiganda sjónvarpsstöðvar
einnar ríkisfangi sínu vegna gagn-
rýnins fréttaflutnings hennar. Sagði
Gonzalez að ríkisstjórn Jose Maria
Aznars myndi senn ráða 90% fjöl-
miðla á Spáni yrði ekki brugðist við.
Þessi mikla reiði er einkum til-
komin sökum þess að Telefonica lýt-
ur nú stjórn Juan Villalonga, sem
er einkavinur Jose Maria Aznars.
Villalonga var skipaður forstjóri fyr-
irtækisins áður en einkavæðingu
þess var lokið. Stjórnarandstaðan
fullyrðir að hæfni og hæfileikar hafi
ekki ráðið er Villalonga var ráðinn
forstjóri. Þvert á móti hafí maðurinn
það eitt til brunns að bera að vera
vinur forsætisráðherrans.
Átökin við PRISA
Dagblöð og nokkrir fréttaskýrend-
ur á Spáni hafa einnig tengt þessa
óvæntu rás atburða við átök ríkis-
stjórnarinnar og PRISA-fjölmiðla-
hópsins, sem m.a. gefur út dagblaðið
E1 Pais og er einnig í sjónvarps-
rekstri. PRISA átti m.a. samstarf við
Antena 3 um nýtingarrétt á beinum
útsendingum frá spænskum knatt-
spymuvöllum. PRISA hefur löngum
tengst Sósíalistaflokknum og hefur
ríkisstjómin verið vænd um að beita
bolabrögðum af ýmsu tagi í því skyni
að koma höggi á samsteypuna. Bent
hefur verið á að kaup Telefonica á
Antena 3 séu í fullkominni mótsögn
við fyrri yfirlýsingar ríkisstjómarinn-
ar og Aznars þess efnis að tryggja
þurfi eðlilega valddreifingu í fjöl-
miðlaheiminum.
Hínn frjálsi markaður
Aznar forsætisráðherra og undir-
sátar hans hafa vísað þessari gagn-
rýni á bug. Talsmaður ríkisstjórnar-
innar sagði að ekkert væri athuga-
vert við kaupin, þau hefðu að öllu
leyti farið eðlilega fram og væm í
fullkomnu samræmi við reglur hins
frjálsa markaðar.
Þótt Telefonica hafí nú verið
einkavætt hefur fyrirtækið enn
einkarétt á rekstri hefðbundinnar
símaþjónustu. Samkeppni ríkir hins
vegar á Spáni hvað varðar rekstur
farsimakerfa. Telefonica hyggst nú
hasla sér völl á sviði stafrænna sjón-
varpsútsendinga en hart hefur verið
deilt um lög þau sem sett hafa verið
á þessu sviði og hefur Evrópusam-
bandið m.a. séð ástæðu til þess að
gera við þau athugasemdir.
Frá John Grisham
höfundi The Firm
The Client og
A Time to Kill.
HASKOLABIO
Er það þess VIRÐI?