Morgunblaðið - 01.08.1997, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 01.08.1997, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997 33 < ÓLAVÍA STEINUNN SVEINSDÓTTIR + Ólavía Steinunn Sveinsdóttir fæddist 4. septem- ber 1928 í Arnar- dal, Eyrarhreppi, N-ísafjarðarsýslu. Hún Iést að heimili sínu að Borgar- hrauni 6 í Grinda- vík 25. júlí síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru þau Sveinn Sigurður Sigurðsson, útvegs- bóndi í Arnardal, fæddur 10. júlí 1888, dáinn 16. júlí 1972, og Hólmfríður Sigríður Krisljánsdóttir, fædd 5. nóvem- ber 1891, dáin 17. nóvember 1961. Sveinn var tvígiftur og var fyrri kona hans Guðríður Geirmundsdóttir. Hálfsystkini Ólavíu voru Jón Guðmundur Sveinsson, fæddur 27. nóvem- ber 1908, dáinn á fyrsta ári, Össur Sveinsson, fæddur 22. desember, dáinn á fyrsta ári, Sigurður Sveinsson, fæddur 20. apríl 1912, dáinn á fyrsta ári, Viktoría Júlía Sveinsdóttir, fædd 14. apríl 1913, Pálmi Sveinn Sveinsson, fæddur 28. september 1914, dáinn 17. júní 1992. Alsystkini voru María Júlíana Sveinsdóttir, fædd 14. febrúar 1915, Sigurður Sveins- son, fæddur 17. september 1916, dáinn 10. nóvember 1944, Krislján Bjarni Sveinsson, fæddur 15. nóvember 1917, dáinn 18. desember 1991, Hall- dóra Sveinsdóttir, fædd 29. september 1919, dáin 19. des- ember 1985, Anna Guðrún Sveinsdóttir, fædd 2. apríl 1921, dáin 30. desember 1971, Þor- gerður Sveinsdóttir, fædd 4. maí 1930, Unnur Kolbrún Sveinsdóttir, fædd 28. apríl 1934. Ólavía giftist 31. júlí 1955 Krist- mundi Herbert Her- bertssyni renni- smið, fæddum 8. ágúst 1933 í Reykja- vík, syni Ernst Her- bert Kummer frá Leipzig í Þýska- landi og Kristínar Þóru _ Kummer. Börn Ólavíu og Kristmundar eru: Kristín Hallveig Kristmundsdóttir, gift Sverri E. Ragnarssyni. Þau eiga eitt barn. Herdís Krist- mundsdóttir Easton, gift Marn- en Peter Easton. Þau eiga þrjú börn. Þór Kristmundsson, kvæntur Unni Baldvinsdóttir. Þau eiga fjögur börn. Haraldur Hólmar Kristmundsson, fædd- ur 28. febrúar 1963, dáinn 16. júlí 1971. Sigurður Amar Krist- mundsson. Unnusta hans er Ragnheiður Guðmunda Eyjólfs- dóttir. Jóhann Kristmundsson, kvæntur Svövu Guðfinnsdóttur. Þau eiga tvö böm. Ólavía lauk námi frá Hjúkr- unarskóla íslands árið 1950 og námi frá Ljósmæðraskólanum árið 1951. Hún starfaði lengst af sem hjúkrunarkona og \jós- móðir í Grindavík, eða frá 1951 til 1959 og aftur frá 1965 til 1997, þar af sem hjúkrunarfor- stjóri frá 1986. Hún starfaði við Kristneshæli veturinn 1951-52 og sem hjúkrunarkona og ljós- móðir við sjúkraskýlið í Bol- ungarvík á ámnum 1960 til 1965. Útför Ólavíu fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14:00. Við andlát elskulegrar systur minnar koma í huga minn margvís- legar minningar frá æskudögum heima í Arnardal. Ein þeirra rís ofarlega í huga mínum. Lóa var á íjórða ári er henni var tvívegis bjargað frá drukknun. Vatnavöxtur var mikill í ánni skammt frá bænum okkar, Heimabæ, Lóa læddist niður að ánni til að skoða heiminn og datt í ána. Gömul kona kom í þeim svifum og náði henni úr ánni. Seinna skiptið var það sjórinn í öllu sínu veldi, en Heimabær er nálægt sjónum. Logn var þennan dag og sólskin en brimöldur miklar eftir óveður. Búið var að leita svo mikið að telpan var talin látin, sama gamla konan kom henni til bjargar aftur, en hún var á gangi með sjón- um að næsta bæ og varð litið í fjör- una og sér þá hvar telpan er að horfa á brimið sem var næstum því búið að taka hana til sín. Þar sem hún fannst var áður búið að leita. Við eldri systkini hennar gerðum okkur í hugarlund að hennar hlyti að bíða mikið verkefni á lífsleið- inni, það reyndist meira en hugar- burður. í æsku var Lóa mjög bók- hneigð og fróðleiksfús og allt sitt líf sótti hún þroska sinn í lestur góðra bóka þegar stundir gáfust frá annríki. Snemma beygðist krókur- inn að því sem verða vildi, eftir almenna unglingamenntun hafði hún mikla löngun til að læra hjúkr- un. Draumur hennar varð að veru- leika, _hún innritaðist í Hjúkrunar- skóla íslands og tók próf með ágæt- iseinkunn, síðan langaði hana að bæta við sig námi í ljósmóðurfræð- um, það gekk líka að óskum, hún lauk því námi með sóma. Ólavía var fyrsti hjúkrunarfræðingurinn hér á landi sem útskrifaðist með ljósmóð- urfræðipróf. Henni var gefið nafnið hjúkrunarljósmóðir og heiðruð að loknu námi með peningagjöf frá Hjúkrunarskóla íslands. Að loknu námi vann hún eitt ár á Elliheimilinu Grund í Reykjavík. Árið 1950 var hún ráðin hjúkrunar- ljósmóðir við Heilsugæslustöðina í Grindavík. Eftir margra ára starf þar réðst hún til starfa í Bolungar- vík og var þar í fimm ár, með bama- hópinn sinn sex að tölu, en maður hennar vann í Reykjavík. Vel mátti sjá að hennar var saknað í Grinda- vík, þar var henni haldið skilnaðar- hóf og hún leyst út með peninga- gjöf og áletruðum silfurskildi frá mæðmm barnanna sem hún hafði tekið á móti. Eftir fimm ár í Bolung- arvík sneri hún aftur til starfa til Grindavíkur. Þar hefur hún starfað í fjörutíu ár mestallan sinn starfs- aldur. Ólavía var fyrir nokkmm ámm skipuð hjúkmnarforstjóri og hélt því starfi áfram þar til fyrir einu og hálfu ári er hún sagði starfí sínu lausu vegna banvæns sjúk- dóms sem hún hefur þjáðst af síð- astliðin þijú ár. Öllu mótlæti tók Ólavía með stakri ró og æðmleysi, vann við hjúkmn þar til kraftar hennar leyfðu ekki meir. Heimili sínu sinnti hún með ljúfmennsku og prýði þar til máttur- inn þvarr. Hún var gædd þeim sér- staka eiginleika að vera sífellt að miðla öðmm, öllum sem þekktu Ólavíu var ljóst að hún hafði fengið óvenjulega mikla hæfíleika í vögg- ugjöf. Atorka hennar var með ólík- indum enda hefur hún unnið allt starf í trú á_ handleiðslu skapara okkar. Þegar Ólavía og Kristmundur Herbert misstu elskulegan son sinn, sem dmkknaði í Grindavíkurósi 16. júlí 1971, var eins og hún væri að búa hann undir nætursvefn, svo mikill friður var yfír hjónunum á þessari sorgarstund að ekkert nema sterk guðshönd gat gefíð þá birtu. Ólavía og Kristmundur Herbert hafa lagt mikla rækt við garðinn sinn þegar stund hefur gefist. Hún fór iðulega á fætur milli fímm og sex á morgnana til að sinna garðin- um áður en hún fór til vinnu á Heilsugæslustöðinni. Vinnan í garð- inum var henni algjör heilsulind enda ber hann þess merki og er mjög fallegur. Hún naut þess í garð- vinnunni að hugsa heim til æsku- stöðvanna og setja minningar sínar saman í ljóðaformi og læt ég fylgja nokkrar línur um hug hennar til æskuáranna. Ég man það svo glöggt og minnist hve magnþrunginn dularkraftur sveif yfir vötnum þar vestra er voraði í dalnum aftur. Og nú þegar hugsa ég héðan heim þar sem gerðist mín saga á heiðríku kvöldi ég horfði til hafsins og sólarlagsins. Ólavía var mikil hamingjukona, hún naut mikils ástríkis eiginmanns síns og sinna mörgu mannvænlegu barna. En stærsta hamingjuupp- sprettan var þó sú, að henni sjálfri var í bijóst lögð gjöfín dýrmæta, kærleikurinn sem ekki leitar síns eigin. Um leið og ég og fjölskylda mín vottum Kristmundi Herbert, börn- um, barnabörnum og öðrum að- standendum Ólavíu okkar dýpstu samúð, óskum við þess að þrátt fyrir sáran söknuð muni minningin um þessa yndislegu og gjöfulu konu lifa og ylja um ókomin ár. Blessuð sé minning hennar. María Sveinsdóttir. Það var að sumri til fyrir 50 árum, að við komum saman lítill hópur ungra stúlkna sem allar áttu það sameiginlegt að hefja hjúkrun- arnám. Það var skemmtileg tilviljun að ég lenti í herbergi með tveim vest- firskum stúlkum, annarri frá Suð- ureyri, Súgandafírði, en hinni frá Amardal, Norður-ísaijarðarsýslu, og er það hin síðamefnda Ólavía Sveinsdóttir, sem kölluð var Lóa, sem ég vil minnast. Það eru margar minningar tengdar þessum tíma, - árunum á Landspítalanum, - vem okkar á Sjúkrahúsi Akureyrar og Kristnes- hæli, þar sem „hvíti dauðinn" lagði að velli unga sem aldna. Við unnum mikið, tókumst á við sorgina og fundum fyrir gleðinni þegar vel gekk. Saman skemmtum við okkur, höfðum yndi af ljóðum, bókum og tónlist. Eftir útskrift unnum við Lóa saman á Kristneshæli, þá vom berklalyfin komin með vonina og batann. Þá skildu leiðir. Nokkra síðar gekk Lóa í hjónaband með Krist- mundi Herbert Herbertssyni. Þeim varð sex bama auðið, en urðu fyrir þeirri sám sorg að missa átta ára dreng af slysförum. Lóa er fyrsti íslenski hjúkmnar- fræðingurinn sem tók próf í ljós- móðurfræðum eftir hjúkmnamám og hefur hún unnið við hjúkmnar- og ljósmóðurstörf á Blönduósi, Bol- ungarvík og í Grindavík og síðast sem hjúkmnarforstjóri við heilsu- gæslustöðina þar. Eftir að ég flutti til Reykjavíkur árið 1968 höfum við nokkrar hjúkr- unarkonur sem vomm saman í námi oft komið saman - við verðum ungar á ný, við hverfum aftur til þess tíma þegar við klæddumst bláa kjólnum og hvítu blæjunni. Síðustu árin hafa verið erfið, sem hetja hefur Lóa staðið sig í miklum veikindum, umvafín elsku eigin- manns, bama og trúnni á Guð, sem var svo sterkur þáttur í öllu hennar lífí og starfi. Og nú er dagur að kveldi kom- inn, - en aftur rís hann bjartur og fagur, - vekur blómin í garðinum sem henni þótti svo vænt um, - á sama hátt og hún umvafði með hlýju og kærleika allt sem henni var trúað fyrir. Ég kveð þig kæra vinkona. Guð blessi þig og styrki fjölskyldu þína, - sem þér var svo kær. Herdís Helgadóttir. Með nokkrum orðum langar mig til þess að minnast samstarfskonu minnar og vinkonu, Ólavíu Sveins- dóttur, hjúkranarforstjóra Heilsu- gæslustöðvarinnar í Grindavík. Ólavía var fædd og uppalin í Am- ardal í Eyrarhreppi í Norður-ísa- fjarðarsýslu og var af hinni kunnu Ámardalsætt. Ung að ámm ákvað hún að gera hjúkmn að ævistarfi og settist í Hjúkmnarskóla íslands árið 1947. Þaðan brautskráðist hún haustið 1950. Þá fór hún í Ljósmæð- raskóla íslands og lauk þaðan námi haustið 1951. Hún var fyrsti hjúkr- unarfræðingurinn hér á landi, sem lauk námi í ljósmóðurfræðum að loknu hjúkmnamámi og hlaut fyrir það viðurkenningu frá Hjúkmnarfé- lagi íslands. Fyrstu árin starfaði Ólavía við Kristnesspítala, Héraðshæli Aust- ur-Húnvetninga á Blönduósi, Sjúkraskýlið í Bolungarvík og sem héraðshjúkmnarfræðingur og ljós- móðir í Grindavík. í Grindavík starf- aði hún frá 1952 til 1959 og síðar samfellt frá árinu 1965. Fyrstu árin í Grindavík starfaði Ólavía að mestu leyti ein, en læknar komu frá Kefla- vík og skiptust á um að hafa þar móttöku. Sem eini heilbrigðisstarfs- maðurinn með fasta búsetu í Grindavík þurfti Ólavía að sinna margs konar störfum, svo sem slys- um og annarri skyndihjálp. Grinda- vík er og var útgerðarbær með mikla fískverkun og oft þurfti Ólav- ía meðal annars að sauma skurði og draga öngul úr sári, auk fæðing- arhjálpar og heimahjúkmnar. Segja má að hún hafí þau ár verið á vakt allan sólarhringinn og gegnt útköll- um á nóttu sem degi. Aldrei tók hún greiðslu fyrir útköll eða yfír- vinnu, hvorki þá né síðar, er farið var að greiða fyrir þau störf. Starfsaðstöðu hafði Ólavía í hús- næði hreppsins í Borgarhrauni 6. Árið 1975 var því húsnæði breytt í heilsugæslustöð sem heyrði stjóm- unarlega undir Heilsugæslustöð Suðumesja í Keflavík. Árið 1983 var ákveðin með lögum búseta læknis í Grindavík, en læknar frá Heilsu- gæslustöð Suðumesja í Keflavík sinntu þó læknisþjónustu þar áfram fyrstu árin. Árið 1986 settist læknir að í Grindavík, og árið 1988 var heilsugæslan flutt í nýtt húsnæði á Víkurbraut 62. Þá var staða Ólavíu orðin að stöðu hjúkranarforstjóra og þeirri stöðu gegndi hún til ævi- loka. Síðustu árin barðist hún við hinn banvæna sjúkdóm krabbamein, starfaði þó á meðan stætt var og lauk æviskeiði sínu æðmlaus, sátt við Guð og menn. Ólavía hlaut ýmiss konar viður- kenningar fyrir störf sín frá kvenfé- lögum og sveitarstjómum. Hún hafði mikinn áhuga á öllu forvarn- arstarfí og seinni árin sótti hún námskéið í heilsugæslu. Hún var alla tíð mjög samviskusöm og fóm- fús í starfí. Greind kona og heil- steypt, vel lesin, hagmælt og ljóð- elsk og hafði fastmótaðar skoðanir á mönnum og málefnum. Ólavía var mjög trygglynd og vinur vina sinna. í hinum löngu veikindum naut Ólavía stuðnings manns síns, Krist- mundar Herberts Herbertssonar og bama og var umvafín ástúð og umhyggju. Mest mæddi þó á manni hennar, sem vék ekki frá henni all- an sólarhringinn, og uppfyllti þá ósk hennar að mega deyja heima. Hann sýndi þar mikla fómfysi og drenglund. Ég kveð Ólavíu með söknuði og bið henni guðsblessunar. Ættingj- um hennar sendi ég samúðarkveðj- ur. Jóhanna Bryiýólfsdóttir. Það er komið að leiðarlokum hjá Ólavíu vinkonu minni, en hún var búin að beijast eins og hetja við illvígan sjúkdóm í marga mánuði. Herbert, bömin og fjölskyldur þeirra gerðu allt sem þau gátu til að léta henni lífið í þessu þunga veikindastríði. Þegar kær vinur kveður, flögra minningarnar fram, ein af annarri. Sjónarsviðið er Grindavík í bytjun 6. áratugarins, lítið yndislegt físki- þorp þar sem allir þekktust og dag- legt líf í nokkuð föstum skorðum. Þar var komin ung kona, falleg með mikið rautt hár og meira að segja hjúkrunarkona og Ijósmóðir. Ég, lítil 7 ára stúlka, fylltist lotn- ingu fyrir þessari nýkomnu konu sem ég seinna átti eftir að kynnast betur og passa fyrir hana og Her- bert þijú elstu bömin þeirra. Svona er mín fyrsta minning um Ólavíu sem kom ung kona til Grindavíkur og starfaði þar fyrst sem hjúkrunar- fræðingur og ljósmóðir og síðar við heilsugæslustöðina allt þar til hún % veiktist. Ég hef oft hugsað um það síðan ég varð fullorðin þvílíku grett- istaki Ólavía lyfti, enginn læknir var í Grindavík á þessum árum og allir settu traust sitt á hana, sem stóð eins og klettur fumlaus og ákveðin og lagði oft nótt við dag. Hún var yndisleg manneskja, traust, gáfuð og brautryðjandi í heilbrigðismálum í Grindavík. Ég vil þakka henni alla hjálpsemina og óijúfandi vináttu við mig og for- eldra mína á liðnum árum. Elsku Herbert, börn, tengdabörn ^ og barnaböm, innilegar samúðar- kveðjur. Minningin mun lifa, björt og fögur. Margrét Valdimarsdóttir. Afmælis- og minn- ingar- greinar MIKILL fyöldi minningargreina birtist daglega í Morgunblað- inu. Til leiðbeiningar fyrir greinahöfunda skal eftirfarandi tekið fram um lengd greina, frágang og skilatíma: Lengd greina Um hvern einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfílegri lengd á útfarardegi, en aðrar minningargreinar um sama ein- stakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínu- bil og hæfílega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksenti- metrar í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þijú erindi. Formáli Æskilegt er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka, og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í greinunum sjálf- um. Undirskrift Greinarhöfundar em beðnir að hafa skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur og móttaka Mikil áherzla er lögð á að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textamenferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. „ Þá er ennfremur unnt að' senda greinar í símbréfi - 569 1115 - og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Vinsamlegast sendið greinina inni í bréfínu, ekki sem viðhengi. Skilafrestur Eigi minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útmnninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. t I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.