Morgunblaðið - 16.08.1997, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VEIÐI hefur gengið vel í Haffjarðará í sumar, en hér er Einar
Sigfússon með þrjá fallega laxa sem hann veiddi fyrir skömmu.
Veiði víða
betri en í
fyrra
VEIÐI er víða betri en á sama
tíma í fyrra, s.s. á Brennunni í
Borgarfirði og í Álftá á Mýrum.
Þá eru líflegar sjóbirtingsgöngur
fyrir nokkru bytjaðar að hressa
mjög upp á afla veiðimanna og
er birtingurinn vænn, eða yfirleitt
2-4 pund.
„Það eru komnir rúmlega 180
laxar á land úr Álftá og Veitu.
Álftáin sjálf þar af um 150 laxa
og Veitan 34 laxa. Það er mikill
lax í „Hólknum", þ.e.a.s. rörinu
undir þjóðveginn. Það er lax sem
á eftir að hellast upp í Veituna
og litlu Álftána þegar haustar
meira. Þetta er annars meiri veiði
en á sama tíma í fyrra og það er
líka talsvert meira af laxi í ánni
en þá. Það hefði verið meiri heild-
arveiði ef skilyrði hefðu ekki verið
mjög óhagstæð á köflum. Ég var
t.d. nýverið í ánni í tvo daga. Við
félagarnir fengum 10 laxa fyrri
veiðidaginn er skilyrði voru góð,
en seinni daginn var komin sól
og hiti og þá fengum við bara
einn,“ sagði Dagur Garðarsson,
einn leigutaka Alftár, í samtali
við blaðið í gærdag.
Brennan betri...
Brennan hafði gefið 137 laxa
í gærmorgun og er það mjög
nærri því öll heildarveiði síðasta
sumars. „Það er veitt á tvær
stangir á Brennunni og þeir síð-
ustu sem hættu eftir tvo daga
fengu 9 laxa og 15 sjóbirtinga,"
sagði Dagur, sem er einnig einn
leigutaka Brennunnar, en það er
þar sem Þverá feilur út í Hvítá.
Um 100 sjóbirtingar hafa einnig
veiðst og hefur sú veiði verið vax-
andi. Laxinn er annars mest mjög
vænn smálax, en vænir fiskar eru
inn á milli og sá stærsti í sumar
var 21 pund.
Litlaá lakari en í fyrra
Veiði í Litluá í Kelduhverfí hef-
ur verið „með lakasta móti“, að
sögn Margrétar Þórarinsdóttur í
Laufási, en hún er veiðieftirlits-
maður við ána. „Veiðin byijaði
vel í júní, en dofnaði síðan og
hefur ekki náð sér almennilega
upp aftur. Það er þó góður tími
framundan og við vonum það
besta. Það hafa veiðst mjög falleg-
ir sjóbirtingar síðustu daga, 11
og 12 punda. Minna hefur einnig
verið af bleikju en áður, en þær
sem veiðast eru margar vænar.
Ég heid að það séu komnir ná-
lægt 300 fiskar á land,“ bætti
Margrét við. Hún gat þess einnig
að efstu svæðin í ánni væru best,
en nýtingin á neðri svæðunum
væri lakari og kynni það að vera
hluti af skýringunni.
Mikil bleikja í Fjörðum
Ágæt sjóbleikjuveiði hefur ver-
ið í Gilsá í Fjörðum að undan-
förnu, en hún rennur út í Hval-
vatnsfjörð. Á bensínafgreiðslu
ESSO á Grenivík fengust þær
upplýsingar að veiði hefði byrjað
stirðlega í júlí, en hefði öll verið
að koma til. Menn sem höfðu tvær
stangir af fjórum fengu t.d. 30
bleikjur á einum degi og annar
sem veiddi á eina stöng var kom-
inn með 12 fiska eftir hálfan dag.
Fleiri dæmi mátti nefna, en Gilsá
gaf rúmlega 400 bleikjur í fyrra
og þykir stefna í svipaða veiði nú.
Mest er bleikjan 1-2 pund, en inn-
an um eru alltaf vænni fiskar.
Sameining Tungu-, Hlíðar- og
Jökuldalshreppa
Úrskurði kjör-
nefndar áfrýjað
til ráðuneytis
ÚRSKURÐI kjörnefndar um seinni
atkvæðagreiðslu um sameiningu
Tungu-, Hlíðar- og Jökuldals-
hreppa, sem fram fór 19. júlí sl.,
hefur verið vísað til félagsmála-
ráðuneytisins af fjórum íbúum í
Tunguhreppi. Þeir kærðu á sínum
tíma atkvæðagreiðsluna á þeirri
forsendu að brotið hefði verið á
rétti kjósenda vegna þess að aldrei
hefði verið auglýst að kjörskrá
lægi frammi fyrir seinni kosning-
una, hvorki hvar né hvenær.
Fyrst var kosið um sameiningu
hreppanna 29. mars sl. Sú kosning
var úrskurðuð ógild og var því
endurtekin 19. júlí. Sameining var
samþykkt með afgerandi mun í
Hlíðar- og Jökuldalshreppum en í
Tunguhreppi var hún samþykkt
með 30 atkvæðum gegn 29 og var
einn seðill auður.
Kjörnefnd komst að því að aug-
lýsa hefði átt framlagningu kjör-
skráa og telur það galla á fram-
kvæmd atkvæðagreiðslnanna að
það skyldi ekki gert. Hins vegar
hafi engar efnislegar athugasemd-
ir verið gerðar við kjörskrárnar og
kærendur ekki bent á neina efnis-
galla á þeim. Þá hefði eftirgrennsl-
an kjörnefndar um kjörskrá
Tunguhrepps ekki leitt í ljós að á
þeirri kjörskrá hafi verið efnisgall-
ar eða að gera hefði mátt nokkra
breytingu á henni lögum sam-
kvæmt fyrir síðari atkvæðagreiðsl-
una.
Hugsanlegt vanhæfi
kjörnefndarmanns
Að sögn Helga R. Elíssonar, eins
þeirra sem vísað hafa málinu til
félagsmálaráðuneytisins, öðlaðist
íbúi í Tunguhreppi kosningarétt
milli kosninganna sem fram fóru
og hefði kjörnefnd átt að taka til-
lit til þess. Hann sagði að fyrri
kæra væri ítrekuð auk þess sem
óskað hefði verið eftir því við ráðu-
neytið að kannað yrði hvort einn
kjörnefndarmannanna væri van-
hæfur til að úrskurða í málinu
vegna starfa sinna fyrir umrædd
sveitarfélög og hugsanleg hags-
munatengsl þess vegna.
Hóla-
hátíð á
sunnu-
dag
HÓLAHÁTÍÐ fer fram á
morgun, sunnudag 17. ágúst,
og hefst með guðsþjónustu í
Hóladómkirkju kl. 14.
Að messu lokinni er há-
tíðargestum boðið að þiggja
kaffiveitingar í Bændaskólan-
um. Hátiðarsýning verður í
dómkirkjunni kl. 17 og kl. 21
á leikriti Steinunnar Jó-
hannesdóttur, Heimi Guðríð-
ar. í forkirkju er sýning á
englamyndum hollenska lista-
mannsins George Hollanders
sem hann hefur gjört í sam-
vinnu við ýmsa íslenska lista-
menn.
EEO 11EI1 EEO 107R L“SÞJflLDlfl™'fRflMK™flST*
OOl I I uII'uDl Iu/U JÓHflNNÞÓRÐflRSOll,HR!..LÖGGILTURFflSTEIGIIASflLI.
Nýjar á söluskrá meðal annarra eigna:
Neðri hæð — tvíbýli — bílskúr
Sólrík 3ja herb. neðri hæð neðst í Seljahv. Sérinng., sérhiti. 2 rúmg.
kjherb. Góður bílsk. m. vinnukjallara. Tilboð óskast.
Skammt frá þjónmiðst. í Bólstaðarhlíð
Suðuríb. á 2. hæð tæpir 50 fm, ekki stór, vel skipul. Svalir. 25 ára
gott lán. Laus fljótl. Vinsæll staður. Verð aðeins kr. 4,9 millj.
í nágrenni Grandaskóla
Glæsil. stór rishæð rúmir 140 fm. Parket. Sólsvalir. Gott bílhýsi. Vin-
sæll staður. Vinsaml. leitið nánari uppl. Tilboð óskast.
Endurnýjuð — sérinng. — góð kjör
Vistleg 2ja herb. íb. á jarðh. um 55 fm v. Hjallaveg. Endurn. (eldh.,
gler og gluggar, gólfefni, þak o.fl.). Sérinng. Tilboð óskast.
Sérhæð — einbhús — hagkv. skipti
Góð 4ra-5 herb. sérhæð óskast m. bílsk. helst — Heimar, nágr. —
Smáíbhv., nágr. Skipti mögul. á einbh. í Smáíbhverfi.
Atvinnuhúsnæði — íbúð — skipti
Á úrvalsstað í Hafnarf. um 140 fm mjög gott atvinnu.- og iðnaðar-
húsn. m. nýl. mjög góðri séríb. um 100 fm í risi. Frág. lóð m. verönd.
Margs konar eignaskipti mögul. Tilboð óskast.
Opið í dag kl. 10-14.
Eins herb. séríbúð til sölu í____
kjallara í Þingholtunum. Ódýr. FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 - 552 1370
Eitt blab fyrir alla!
- kjarni málsins!
Þróttur flyt-
ur úr Borg-
artúni í Sæv-
arhöfða
GARÐSKAGAVITI yngri var byggður árið 1944 og er hæsti viti
á íslandi.
Garðskagaviti 100 ára
SIGLINGASTOFNUN Islands
ásamt Gerðahreppi mun sunnu-
daginn 17. ágúst minnast þess
að 100 ár eru liðin frá því að
Garðskagaviti, hinn eldri, var
byggður. Siglingastofnun hefur
gefið út kynningarbækling af
þessu tilefni um vitana við Garð-
skaga. í ágúst 1897 var Garð-
skagaviti tekinn í notkun en fyr-
ir þann tíma voru aðeins tveir
vitar við íslandsstrendur, gamli
Reykjanesvitinn og Dalatanga-
viti, sem Otto Wathne reisti. Á
lýðveldisárinu 1944 var nýr viti
byggður á Garðskaga og er hann
enn í notkun. Vitinn, sem er 28
metrar á hæð, er hæsti viti á
íslandi. Almenning gefst kostur
á því að skoða vitana á sunnudag-
inn frá kl. 13-18. Við Garðskaga
er einnig starfrækt byggðasafn
Gerðahrepps sem hefur verið
opið frá árinu 1995 og er í örum
vexti. Safnið verður opið á sama
tíma og bjóða Slysavamafélags-
konur upp á kaffi og meðlæti í
vitavarðarhúsinu.
VÖRUBÍLASTÖÐIN Þróttur flyt-
ur afgreiðslu sína í dag úr Borgar-
túni 33 að Sævarhöfða 12 þar sem
Þróttur hefur keypt lóð og hús-
næði Pípugerðar Reykjavíkur fyrir
starfsemi sina.
Alls hefur Vörubílastöðin Þrótt-
ur yfir að ráða 130 bílum, m.a. til
flutnings á efni og vörum, og mun
bílalestin fara úr Borgartúninu að
nýju bækistöðvunum við Sævar-
höfða í dag kl. 15.30.
Vörubílastöðin Þróttur var
stofnuð 9. apríl 1931 og þá undir
nafninu Vörubílastöðin í Reykja-
vík. Nafninu var svo breytt í des-
ember 1934, en til þess að það
gæti orðið varð að leggja stöðina
niður og stofna aðra. Þann 16.
desember var Vörubílastöðin
Þróttur formlega stofnuð og var
félagið óháð Dagsbrún.
Byggingarsaga félagsins hófst
1945 og var það fyrst til húsa að
Rauðarárstíg 2, en 1961 fékkst lóð
við Borgartún og var flutt í nýtt
hús þar árið 1969. Lóðin við Borg-
artún þykir ekki heppileg lengur
og því er nú komið að flutningi á
ný. Lóðin við Sævarhöfða er um
átta sinnum stærri en fyrsta lóð
félagsins, eða rúmlega 26 þúsund
fermetrar.