Morgunblaðið - 16.08.1997, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1997 59
DAGBÓK
VEÐUR
Spá kl. 12.00 í dag:
11°»
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
4
Slydda r? Slydduél
Snjókoma 'Q Él
Sunnan, 2 vindstig. 10° Hitastig
Vindonnsymrvind- __
stefnu og fjöðrín = Þoka
vindstyrk, heil fjöður * ^
er 2 vindstig. »
Súld
VEÐURHORFUR í DAG
Spá: Vaxandi austan og norðaustanátt með
rigningu og súld sunnan oa austanlands en
þykknar upp norðanlands og vestan.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
Fram eftir komandi viku er búist við breytilegum
áttum með vætu öðru hverju og heldur kólnandi
veðri.
Yfirlit á hádegíigær^f"'^
! H 1
%
-..-OÖ
Ferðamenn athugið!
Auðvelt er að kynna sér veðurspá og nýjustu veður-
athuganir áður en haldið er af stað í ferðalag, með því að
nota símsvara Veðurstofunnar, 902 0600. Ekki þarf að
bíða meðan kostir 1-8 eru lesnir heldur má strax velja
kost 8 og síðan tölur landsfjórðungs og spásvæðis.
Dæmi: Þórsmörk (8-4-2), Landmannalaugar (8-5), Kirkju-
bæjarklaustur og Skaftafell (8-4-1), Hallormsstaður (8-3-1),
Mývatn og Akureyri (8-2-2), Snæfellsnes og Borgar-
fjörður (8-1-1), Þingvellir (8-4-2) og Reykjavík (8-1-1).
Veðurfregnir eru lesnar frá Veðurstofu kl.
1.00, 4.30, 6.45, 10.03, 12.45, 19.30, 22.10.
Stutt veðurspá er lesin með fréttum kl. 2, 5,
6, 8, 12, 16, 19 og á miðnætti. Svarsími veður-
fregna er 902 0600. \
1 "3
Til að velja einstök
spásvæði þarf að
velja töluna 8 og
siðan viðeigandi
tölur skv. kortinu til
hliðar. Til að fara á
milli spásvæða er ýtt á 0
og síðan spásvæðistöluna.
Yfirlit: Lægðin skammt suðvestur af landinu hreyfist lítið
og grynnist er lægðin langt suðsuðvestur I hafi dýpkar og
hreyfíst allhratt i átt til landsins.
VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
°C Veður °c Veður
Reykjavík 14 skýjað Lúxemborg 24 léttskýjað
Bolungarvik 13 skýjað Hamborg 24 hálfskýjað
Akureyri 14 þokaígrennd Frankfurt 25 léttskýjað
Egilsstaðir 18 skýjað Vin 27 skýjað
Kirkjubæjarkl. 13 rigning Algarve 27 heiðskírt
Nuuk - vantar Malaga 28 léttskýjað
Narssarssuaq - vantar Las Palmas 26 léttskýjað
Þórshöfn 15 skýjað Barcelona 29 léttskýjað
Bergen 20 skýjað Mallorca 31 léttskýjað
Ósló 26 léttskýjað Róm 30 heiðskírt
Kaupmannahöfn 25 léttskýjað Feneyiar 29 þokumóða
Stokkhólmur 20 skýjað Winnipeg 15 alskýjað
Helsinkl 17 léttskýjað Montreal - vantar
Dublin 21 skýjað Halifax 17 léttskýjað
Glasgow 23 skýjað New York 22 þokumóða
London 26 léttskýjað Washington - vantar
Paris 27 skýjað Oríando 26 léttskýjað
Amsterdam 25 léttskýjað Chicago 22 rigning
Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu Islands og Vegagerðinni.
16. JÚLÍ Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólar- upprás Sól í há- degisst. Sól- setur Tungl í suðri
REYKJAVÍK 4.27 3,2 10.42 0,5 16.57 3,6 23.18 0,4 5.18 13.28 21.35 -
ÍSAFJÖRÐUR 0.34 0,4 6.24 1,8 12.42 0,4 18.57 2,1 5.13 13.36 21.56 -
SIGLUFJORÐUR 2.31 0,3 8.58 1,1 14.48 0,4 21.05 1,3 4.52 13.16 21.36 -
DJÚPIVOGUR 1.28 1,7 7.36 0,5 14.08 2,0 20.21 0,5 4.50 13.00 21.07 23.33
Sirívarhæð miðasf við meðalstórstraumsfiöru MorgunDlaoio/siomælingar Islanas
Krossgátan
LÁRÉTT:
1 orsaka, 4 streyma, 7
ásynja, 8 ljósgjafinn, 9
blóm, 11 brún, 13 kon-
ur, 14 afkvæmi, 15 vit-
laus, 17 íþyngd, 20 liða-
mót, 22 mergð, 23 áma,
24 kasta, 25 trjágróð-
urs.
LÓÐRÉTT:
1 braut, 2 um garð
gengin, 3 flanar, 4
vatnsfall, 5 Iætur af
hendi, 6 fugls, 10 upp-
námið, 12 atorku, 13
burt, 15 þjalar, 16 nógu
mikinn, 18 mjúkan, 19
jarða, 20 ósoðna, 21
snæðir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 glysgjam, 8 útveg, 9 lofar, 10 ill, 11 tosar,
13 Amar, 15 hlass, 18 fauti, 21 Týr, 22 lokki, 23
öndin, 24 grannkona.
Lóðrétt: 2 lævís, 3 segir, 4 julla, 5 rófan, 6 búnt, 7
hrár, 12 ats, 14 róa, 15 hóll, 16 askur, 17 stinn, 18
frökk, 19 undin, 20 inna.
í dag er laugardagur 16. ágúst,
228. dagur ársins 1997. Orð
dagsins: Varðveittu hið góða, sem
þér er trúað fyrir, með hjálp heil-
ags anda, sem í oss býr.
II.Tím. 1, 14.)
si
Reykjavíkurhöfn: í
fyrrakvöld fóru Örfiris-
ey og Faxi. Lettelill og
Brúarfoss fóru í fyrri-
nótt. í gær komu Shosh-
in Maru nr. 68 og
Stapafellið. Svanur RE
var væntanlegur í nótt.
Hansewall og Skútunes
fóru f gær. Hokem Maru
nr. 38 var væntanlegur
og f dag er Aranda
væntanleg. Shoshin
Maru nr. 68 fer._______
Fréttir
Silfurlínan, s. 561-6262
er síma- og viðvikaþjón-
usta fyrir eldri borgara
alla virka daga frá kl.
16-18.
Dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið hefur gefið
út skipunarbréf handa
séra Ingimar Ingi-
marssyni, sóknarpresti í
Þórshafnarprestakalli, til
þess að vera prófastur í
Þingeyjarprófastsdæmi,
frá 1. ágúst 1997 að
telja. Þá hefur ráðuneyt-
ið veitt lögfræðingunum
Stefáni Hauki Jóhann-
essyni og Ilauki Guð-
mundssyni leyfi til mál-
flutnings fyrir héraðs-
dómi. Munu leyfisbréfin
verða varðveitt í ráðu-
neytinu meðan leyfishaf-
ar gegna störfum sem
teljast ósamrýmanleg
málflytjendastarfi, sbr.
4. mgr. 3. gr. reglna nr.
32 10. febrúar 1971 um
málflytjendastörf manna
í opinberu starfí, segir í
Lögbirtingablaðinu.
Mannamót
Bólstaðarhlíð 43. Farið
verður austur að Odda á
Rangárvöllum mánudag-
inn 18. ágúst kl. 12.30.
Eftirmiðdagskaffi drukkið
í Listaskálcinum í Hvera-
gerði. Uppl. og skráning
i ferðina I síma 568-5052.
Kvenfélagið Freyja
fyrirhugar fjögurra
nátta ferð til Halifax 23.
október nk. Ferðin er öll-
um opin, jafnt konum
sem körlum. Upplýs-
ingar og innritun hjá
Sigurbjörgu í s.
554-3774 og Birnu í s.
554-2199.
Gerðuberg, félagsstarf.
Málverkasýning Jóns
Jónssonar er opin á opn-
unartíma hússins.
Húnvetningafélagið í
Reykjavík. Þriðjudaginn
26. ágúst verður farin
síðsumarferð að Skógum
undir EyjaQöllum o.fl.
Kvöldverður á Skógum,
(hlaðborð). Lagt af stað
frá Skeifunni 11, „Nýju
Húnabúð" kl. 13. Uppl.
og skráning hjá Guðrúnu
í s. 557-2908.
Húmanistahreyfingin
stendur fyrir ,jákvæðu
stundinni“ alla þriðju-
daga kl. 20-21 í hverfis-
miðstöð húmanista,
Blönduhlíð 35, (gengið
inn frá Stakkahlíð).
Akraborgin fer alla
daga frá Akranesi kl. 8,
11, 14 og 17. Frá
Reykjavík kl. 9.30,
12.30, 15.30 og 18.30. Á
sunnudögum í sumar er
kvöldferð frá Akranesi
kl. 20 og frá Reykjavík
kl. 21.30.
Heijólfur fer alla daga
frá Vestmannaeyjum kl.
8.15 og frá Þorlákshöfn
kl. 12. Fimmtudaga
föstudaga og sunnudaga
frá Vestmannaeyjum kl.
15.30 og frá Þorlákshöfn
kl. 19.
Breiðafjarðarfeijan
Baldur fer daglega frá
Stykkishólmi kl. 10 og
16.30 og frá Bijánslæk
kl. 13.00 og 19.30.
Hríseyjarfeijan Sævar.
Daglegar ferðir frá Hris-
ey eru frá kl. 9 á morgn-
ana á tveggja tíma fresti
til kl. 23 og frá Ár-
skógssandi á tveggja
tíma fresti frá kl. 9.30-
23.30.
Fagranesið fer á milli
ísafjarðar og Arngerðar-
eyri mánudaga, miðviku-
daga og föstudaga frá
ísafírði kl. 10 og frá
Arngerðareyri kl. 13.30.
Einnig farið alla daga
nema laugardaga frá
ísafirði kl. 18 og frá
Amgerðareyri kl. 21.
Uppl. í s. 456-3155.
Kirkjustarf
Hallgrímskirkja. Orgel-
tónlistkl. 12-12.30. Jam-
es Parsons, organisti frá
Oundle, Englandi.
SPURTER. . .
1Í DAG eru 20 ár liðin frá því
að Elvis Presley lét lífið og
flykkist fólk til heimaborgar hans,
Memphis, til að votta honum virð-
ingu sína. Hvað hétu foreldrar
hans?
2Elvis hefur oft verið kallaður
konungur rokksins og um leið
og hann hneykslaði foreldra með
mjaðmahnykkjum sínum heillaði
hann börn þeirra. Hvað hét fyrsta
smáskífa hans, sem seldist í yfir
milljón eintökum?
3Þekktur bandarískur leikari
steig sín fyrstu skref á hvíta
tjaldinu í einni af myndum Elvis
Presleys. Nánar tiltekið sparkaði
hann í sköflung Presleys í myndinni
„Það gerðist á heimssýningunni“.
Leikari þessi hefur síðan leikið í
fjölda mynda og er ef til vill þekkt-
astur fyrir hlutverk sín í myndum
Johns Carpenters, þar á meðal
Flóttanum frá New York. Hvað
heitir leikarinn?
4Elvis átti tvíburabróður, sem
lést innan sex klukkustunda
eftir fæðingu. Hvað hét hann?
Lisa Marie, dóttir Presleys,
giftist fyrir skömmu einni
skærustu poppstjörnu okkar daga,
en sá ráðahagur reyndist skamm-
vinur og kom fáum á óvart. Hverj-
um giftist Lisa Marie?
6Elvis lék alls í 33 kvikmyndum
og kom einnig mikið fram í
sjónvarpi. Mjaðmahnykkir hans
þóttu það eggjandi að þegar hann
var í sjónvarpi var hann aðeins
sýndur fyrir ofan mitti. Hvað hét
fyrsta kvikmyndin, sem Presley
kom fram í?
7Elvis lést í húsi sínu, sem hann
keypti í Memphis í Tennessee.
Húsið er stórt og hlaðið íburði og
er nú opið almenningi. Hvað kallaði
hann hús sitt?
8Elvis átti síðustu árin í miklum
persónulegum vandræðum
þótt í kringum nafn hans hefði
skapast iðnaður, sem átti eftir að
mala gull löngu eftir að hann var
allur. Elvis fitnaði mikið og varð
háður lyfjum. Vandamál hans komu''
hins vegar ekki fram fyrr en eftir
lát hans. Hvað var hann gamall
þegar hann lést?
9Árið 1958 hafði Elvis gefíð út
14 plötur í röð, sem seldust í
meira en einni milljón eintaka. Þá
neyddist hann skyndilega til að gera
hlé á tónlistarferlinum og það var
ekki fyrr en árið 1960 að hann gat
farið að koma fram og taka upp
tónlist að nýju. Hvað olli þessu hléi?
SVOR:
*uuuaq i jnpBipnj jba siAjg -0 *bji?
Z\ ‘8 pu«ia3«JO L „J^puax »W aAoq“ g
•uos>(OBf |ðBi|0|i\ -g •Aa|sðj<{ uojbq assaf
bjt? oi uiðs ‘nðssny jjnyi X (9S6l)
Ið;oH ^BðjqTiBðH 'Z ‘uouaa^ 3o sApBjj) ’i
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANO.
RITSTJ(a)MBL.IS, / Áskriftargjald 1.800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.