Morgunblaðið - 21.08.1997, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Að skílja
tónlist
TONLIST
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
PÍANÓTÓNLEIKAR
Valgerður Andrésdóttir flutti verk
eftir Mozart og Schubert
þriðjudagurinn 19 ágúst, 1997.
MARGIR heimspekingar hafa
velt því fyrir sér hvort svipað eigi
sér stað í skynjun raðtengdra tóna
og gerist með raðskipan orða og
einnig, að merkingu stakra tóna
svipi til orða er standa ein og sér.
Hugsun í tónlist ætti samkvæmt
þessu að vera fólgin í raðtengslum
tónanna og að lagferlið eigi sér
sömu gildi og sú hugsun, er birtist
með samskipan orða. Tónstíl má
hugsanlega líkja við tungumál og
hafi hlustandi agað „hugsun sína“
við við ákveðin stíl er mögulegt
Upplestur
á Eyrar-
bakka og
Stokkseyri
STEINGRÍMUR
St. Th. Sigurðs-
son les upp á
Eyrarbakka og
Stokkseyri í
kvöld, fimmtu-
dagskvöld. Þar
mun listamaður-
inn lesa úr
væntanlegri bók
sinni er ber heitið Lausnarsteinn.
Steingrímur verður staddur á
Kaffi Lefolii, Eyrarbakka, kl.
20.30 og síðar um kvöldið. kl.
21.15, á kaffihúsinu Við fjöruborð-
ið á Stokkseyri.
að annar tónstíll verði þeim hinum
sama meira og minna „merkingar-
laus“. Þarna er og fagurmat hluti
af „skilningi" á tónlist á sama
hátt og við mat á texta.
Hjá Mozart er lagferlið sérlega
ljóst og það sem meira er, að oft
bregður fyrir glampandi skemmti-
legri og fallegri samskipan tón-
anna, samkvæmt hinum klassika
skilningi, jafnvel þar sem efniviður
tónhugmyndarinnar er sára ein-
faldur. Þessi heiðríkja hugsunar-
innar einkenndi tónmótun Valgerð-
ar Andrésdóttur í sónötu Mozarts
(K.570) og var leikur hennar sér-
lega fallega mótaður og hvergi
reynt að breiða yfir einfaldleika
tónmálsins, eins og t.d. í hæga
þættinum, sem minnir á „grann-
vaxna stúlku á gulum skóm“,
hugsun sem sem býr í frægu
kvæði.
Sónatan eftir Schubert var leik-
in af svipuðum skírleika en í tón-
máli Schuberts birtist sterkari til-
finningatúlkun en hjá Mozart og
mátti greina að einleikarinn hafði
heillast af hinum klassíska hrein-
leika Mozarts og yfirfært hann á
Schubert. Fyrir bragðið vantaði
meiri skerpu og andstæður í tón-
túlkunina á verki Schuberts, t.d. í
þessu verki birtist nærvera dauð-
ans og tónmálið allt er mettað
ófullnægðum ástríðum ógæfunnar,
sem er megininntak rómantískra
tilfinningasemi. Klassisk túlkun og
„skilningur" Valgerðar á sónötunni
eftir Mozart var fallega útfært en
í Scubert vantaði hið rómantíska
óþol, þó vel væri gert um einstaka
tónlínur, sérstaklega þar sem
Schubert bregður fyrir sig óvið-
jafnanlega fallegum söngstefjum
sínum.
í heild ríkti klassísk heiðríkja
yfir leik Valgerðar og var t.d. Són-
atan eftir Mozart sérlega vel leikin
og auheyrt að hún „skilur“ Mozart
þeim skilningi er gerði leik hennar
sérlega áhugaverðan.
Jón Ásgeirsson.
Birtingarform óhlut-
bundinna reglna
um. í verkum hennar sameinast
vestræn hugsun og austrænn
menningarheimur óendanleika og
samhljómunar. Verkin hafa til að
bera ljóðræna kyrrð og litimir eru
ljósir og tærir. Hvítur litur er ríkj-
andi ef undan er skilinn grænn lit-
ur sem listakonan segir tákn frels-
is.
Myndlist Lore er í framhaldi af
listinni að mála. Síðan hún nam
málaralist fyrir 40 árum hefur hún
fengist við að víkka út skilgrein-
ingu málverksins með tilraunum í
óhefðbundin efni. Undanfarið hafa
verk Lore tekið á sig mynd innsetn-
inga því þáttur umhverfisins verð-
ur sífellt sterkari. Verk eins og
Pappírsfjall, þar sem þunnum
pappír sem hefur verið krumpaður
er hrúgað upp í horn herbergis,
og pappír sem þekur gólfrými sýn-
ingarsalar, hafa sprengt ramma
veggmyndarinnar utan af sér.
„Það er hlutverk listamannsins
að fínna nýja fleti á tilverunni. Góð
myndlist felur í sér vísindalega
hugsun og tilraunastarf. Tilfínning-
in ein dugir ekki listamanninum til
sköpunar, þar skilur að listsköpun
bama og listamannsins," segir
Lore.
GALLERÍ Ingólfsstræti 8 sýnir
verk eftir þýsku listakonan Lore
Beit. Sýningin stendurtil 14. sept-
ember og galleríið er opið fimmtu-
daga til sunnudaga frá kl. 14 til
18. Lore Beit vinnur með ákveðið
þema og tölur eru leiðarminni þess-
arar sýningar sem nefnist Mengja-
fræði.
Listakonan fæst við strúktúr
stærðfræðinnar, þann grunn rök-
fræðinnar sem mengjafræði Cant-
ors er. Lore segist vera heiiluð af
fyrirbæram er lúta ósýnilegum
reglum líkt og lögmál og tungumál
sem mennirnir hafa skapað sér.
Eitt verkanna á sýningunni nefnist
Orka. Birtingarmynd orkunnar er
röð kúlulaga glerforma með neon-
ljósi sem verður til við samrana
gass og rafmagns. Orkan er ekki
sýnileg en afleiðingu hennar má
bera augum. Bókstafír og stafróf
ólíkra þjóða hafa verið henni hug-
leikin, stundum notar hún einstaka
stafi og stundum ljóðatilvitnanir.
Lore segir hugmyndirnar vera
hið hlutlæga í verkum sínum.
Formin eru geómetrísk og hún
notar gjarnan handunninn pappír
frá Japan og Nepal. Koddamynd-
aðar raðir pappírs sem bómull hef-
ur verið lagður á milli og hringform
mótuð úr sundurtættum pappírn-
Morgunblaðið/Kristinn
LORE Bert sýnir táknmyndir mengjafræðinnar
á sýningu sem stendur yfir í Galleríi Ingólfsstræti 8.
ÍVAR Valgarðsson, „Polyfilla innanhúss" 1997.
Iðnaðarefni
ogrými
MYNPLIST
Ásmundarsalur,
Freyjugötu 41
RÝMISVERK
ÍVAR VALGARÐSSON
Opið alla daga nema mánudaga
kl. 14-18 til 24. ágúst.
Aðgangur ókeypis.
„POLYFILLA" er vöruheiti al-
hliða viðgerðarefna sem ívar Val-
garðsson. vinnur með á sýningu
sinni í Ásmundarsal, innan- og
utandyra. í gryfju er verk málað
með Hörpusatíni á vegg og nefnist
„Fölgult - Morgungult".
Vöruheitamerki „Polyfilla" er
límt á veggi í sal og á gólfi eru
súlur gerðar úr fylliefninu.
Klumpur úr efninu er staðsettur
á handriði og ein súla stendur
utandyra við innganginn merkt
vörunni. Efnið sem massi í rýminu
er undirstaða verksins með vísun
í „polyfilla“ sem uppfyllingarefni.
Efnið mettar þannig rýmið á
óhlutlægan hátt um leið og aug-
lýsingaskiltin leiða huga áhorf-
anda að efninu sem hversdags-
legri iðnaðarvöru. Verkið „Fölgult
- Morgungult“ er tveir samsíð-
ungar, málaðir á hvítan vegg í
gryfju. Heiti litatóna og vöru-
merki málningarinnar ráða efnis-
tökum verksins. Óhlutlæg mynd-
formin eru afmörkuð á veggnum
og tilheyra rýminu en heiti verks-
ins skírskotar til umhverfisins á
ljóðrænan hátt.
Framsetningarmáti verkanna
mótast af einfaldri formgerð iðnað-
arefna í rými, vöruheiti efnanna
vísa hins vegar til samfélagsins í
formi auglýsingamerkja. I lita- og
formverkum Ivars er eðli og virkni
efna í ákveðnu rými unnin á hlut-
lausan hátt, í samhengi hversdags-
legs umhverfis sem er í sífelldri
mótun.
Hulda Ágústsdóttir
Morgunblaðið/Halldór
STARFSLAUNAÞEGAR ásamt borgarstjóra í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem
launin voru afhent á laugardag.
Atta listamenn hlutu
starfslaun borgarinnar
ATTA listamönnum vora afhent
starfslaun Reykjavíkurborgar í
tengslum við menningamótt síðast-
liðinn laugardag. Að auki voru veitt
starfslaun til starfsemi strengja-
kvartetts. Umsækjendur um starfs-
laun voru 78 en til úthlutunar að
þessu sinni var 51 mánuður.
Starfslaun hljóta að þessu sinni
Kjartan Ólafsson, tónskáld, í 12
mánuði, myndlistarmennirnir Rúrí
(Þuríður Fannberg) og Hannes Lár-
usson í 9 mánuði hvort, Sverrir
Guðjónsson, tónlistarmaður, og Sig-
ríður Ólafsdóttir, myndlistarmaður,
í 6 mánuði hvort, Sólveig Aðal-
steinsdóttir, myndlistarmaður,
Linda Vilhjálmsdóttir, rithöfundur,
og Áshildur Haraldsdóttir, tónlist-
armaður, í 3 mánuði hver.
Starfslaun til strengjakvartetts
hlaut Reykjavíkurkvartettinn en
hann skipa Rut Ingólfsdóttir, Ragn-
hildur Pétursdóttir, Juanh Chung
og Inga Rós Ingólfsdóttir.
Menningarmálanefnd Reykjavík-
ur úthlutar starfslaunum og velur
þá listamenn sem þau hljóta eftir
umsóknum sem sendar eru inn að
undangenginni auglýsingu í dag-
blöðum. Sami háttur er hafður á
um úthlutun starfslauna til
strengj akvartetts.