Morgunblaðið - 06.11.1997, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 11
émm ■
*?í#. ilt' jj úitiiirfflWTni>íllli11l| |||L| lllWVÍIfy
S\Á>
FRÉTTIR
Landsfundur Alþýðubandalagsins
Róttækar sam-
fylkingartil-
lögur kynntar
Skoðanir um kosti, galla og möguleika á
samfylkingu félagshyggjuflokkanna eru
mjög skiptar fyrir landsfund Alþýðubanda-
lagsins og gera má ráð fyrir róttækum
tillögum frá ungu fólki í flokknum. Einnig
má búast við að hart verði deilt um tillögu
Margrétar Frímannsdóttur um auðlinda- •
gjöld. Helgi Þorsteinsson spáir
líflegum landsfundi.
STUÐNINGSMENN samfylk-
ingar á vinstri kantinum
munu leggja fram róttækar
tillögur í sameiningarátt í
kvöld, á fyrsta degi landsfundar
Alþýðubandalagsins. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins mun
framsögumaður þeirra verða maður
sem hingað til hefur ekki verið yfir-
lýstur stuðningsmaður samfylking-
aráforma. Líklegt er að hart verði
deilt um tillögu þessa og aðrar sem
ganga í sömu átt enda eru skoðanir
mjög skiptar innan flokksins um
hversu langt eigi að ganga í þessum
málum.
Líklegt er að félagar í Grósku,
félagi áhugamanna um sameingu
jafnaðarmanna og félagshyggju-
fólks, muni verða manna róttækast-
ir í samfylkingarátt. Gróska kynnti
fyrir skömmu drög að stefnuskrá
eða sameiningargrundvöll, svo-
nefnda Opna bók, fyrir fulltrúum
Alþýðubandalags, Alþýðuflokks,
Kvennalista og Þjóðvaka. „Við munu
kynna Opnu bókina á fundinum og
síðan hljótum við að gera kröfu til
þess að umræðan um sameininguna
snúist um málefni en ekki form eða
tímasetningar,“ segir Helgi Hjörvar,
ritstjóri bókarinnar. „Það er í undir-
búningi að flytja mjög afdráttar-
lausar tiliögur í sameiningarmálum,
ekki aðeins á landsfundi Alþýðu-
bandalagsins, heldur líka á flokks-
stjórnarfundi Aiþýðuflokksins. Það
verður einnig spennandi að sjá hvaða
afstöðu Kvennalistinn tekur á sínum
landsfundi aðra helgi.“
Stuðningur við samfylkingu virð-
ist vera mestur á suðvesturhorninu
og í Verðandi, félagi ungs Alþýðu-
bandalagsfólks. Fremstur í flokki
efasemdarmanna er Steingrímur J.
Sigfússon og andstaða virðist vera
allmikil á Norðurlandi. Kjördæmis-
þing í heimakjördæmi Steingríms,
Norðurlandi eystra, hefur_ lýst sig
sömu skoðunar og hann. í ályktun
þess frá miðjum síðasta mánuði seg-
ir að óraunhæft sé að stefna að sam-
eiginlegu framboði eða sameiningu
flokka strax við næstu Alþingiskosn-
ingar vegna þess að enn vanti mál-
efnalega uppbyggingu.
Ályktun kjördæmisþings Norður-
lands vestra var öllu jákvæðari
gagnvart samfylkingu, þó ekki væri
tekin eindregin afstaða. Þar var lýst
stuðningi við stefnu Margrétar Frí-
mannsdóttur í þessum máium.
Nokkuð hefur verið rætt um það
að undanförnu að Margrét Frí-
mannsdóttir standi ein innan þing-
flokks Alþýðubandalagsins í sam-
fylkingarmálum. Margrét hafnar
sjálf þeirri túlkun. „í fyrsta lagi get
ég nefnt að Bryndís Hlöðversdóttir
hefur verið mikill talsmaður sam-
fylkingar, Kristinn H. Gunnarsson
sömuleiðis. Sigríður Jóhannesdóttir
hefur tekið þátt í þeirri vinnu sem
hefur átt sér stað í samfylkingarmál-
um í Reykjanesbæ. Það er gert dálít-'
ið mikið úr þessum ágreiningi. Eg
hef ekki heyrt annað innan þing-
flokks Alþýðubandalagsins en að þar
séu langflestir á því að það beri að
auka samvinnuna. Um það erum við
að ræða núna, en menn eru kannski
komnir dálitið fram úr sér i málflutn-
ingi þegar farið er að ræða um form-
ið á samstarfinu. Ég tei að það sé
ekki til umræðu og er sjálf ekki tilbú-
in að ræða það fyrr en ég sé hvort
málefnaleg samstaða næst milli
þessara flokka.“
Á landsfundinum verður lögð
fram ályktun frá framkvæmdastjórn
flokksins um að formanninum verði
veitt umboð til að kanna grundvöll
málefnasamnings milli félags-
hyggjuflokkanna. Margrét vill að
rætt verði um málefnasáttmála til
íjögurra ára milli flokkanna sem
feli í sér róttæka velferðarstefnu og
nýja hugsun í utanríkismálum. Verði
ályktunin samþykkt verður boðað til
aukalandsfundar næsta vor til að
ræða niðurstöður viðræðna við aðra
flokka.
Moðsuða og málamiðlanir í
samfylkingu?
í stefnuskrárdrögum Grósku segir
meðal annars að stefnt skuli að
áframhaldandi aðild að Atlantshafs-
bandalaginu, en tímabært sé að
semja um brottför bandaríska hers-
ins. Jafnframt er lagt til að kannað-
ir séu kostir og gallar Evrópusam-
bandsaðildar og að innan skamms
skuli haldin þjóðaratkvæðagreiðsla
um hvort sækja skuli um aðild og
síðan um niðurstöðuna.
Margir efasemdarmanna um sam-
fylkingarstefnuna eru andsnúnir öll-
um þessum stefnumiðum Grósku,
en reyndar er sama að segja um
Margréti Frímannsdóttur. „Ég sé
ekki forsendur í dag til annarrar
afstöðu en þeirrar að ekki sé ástæða
fyrir íslendinga til að sækja um
aðild að Evrópusambandinu en ég
hef hins vegar beitt mér fyrir opin-
skárri umræðu um kosti og galla
þeirrar stöðu sem íslendingar eru í
í Evrópumálum.“ Margrét er jafn-
framt bæði á móti herstöðinni og
aðild að Atlantshafsbandalaginu.
„Ég hef ekki nema gott eitt um
það að segja að ungt fólk setjist
niður og ræði um pólitík og við
munum að sjálfsögðu taka við tillög-
unum og fara yfir þær,“ segir Stein-
grímur J. Sigfússon. „En það er
ekki þar með sagt að málin séu leyst
fyrir flokkana.“
Steingrímur segir að Gróska hafi
að sumu leyti valið sér auðveldar
leiðir og niðurstöður þeirra sýni
hætturnar sem felist í hraðsiglingu
til samfylkingar. „Er þetta ekki til
marks um það að niðurstaðan í þess-
um efnum gæti orðið moðsuða eða
málamiðlun þar sem útkoman er
núll í hverju málinu á fætur öðru?“
Sem dæmi nefnir Stein-
grímur afstöðu Grósku til
NATO og herstöðvarinnar
og það að efna skuli til
þjóðaratkvæðagreiðslu um
umsókn að Evrópusam-
bandinu, án þess þó að
tekin sé afstaða til þess
hvort aðild sé æskileg eða
ekki.
Steingrímur varar við
því að tekin sé efnisleg
afstaða til stórmála í þeim
tilgangi einum að auðvelda
sameiningu. „Ég held að
það sé miklu eðlilegra að
við förum yfir okkar
áherslur á fundinum, og
berum þær svo fram í við-
ræðum við aðra flokka, en
að við förum að breyta
okkar stefnu í átt að ein-
hveiju sem gæti verið nið-
urstaðan eftir slíkar við-
ræður.“
Steingrímur telur að
vinstriflokkarnir eigi að
geta náð samstöðu um
áherslur varðandi framtíð
velferðarkerfisins og varð-
veislu þess en greini á um
mörg önnur atriði. „Þar
af leiðandi væri að mínu
mati raunsætt að reikna
með að útkoman í þessari
umferð gæti orðið mál-
efna- og samstarfsgrun-
dvöllur af einhveiju tagi,
þó áfram yrði um fleiri en
eitt framboð að ræða.“
Morgunblaðið/Kristinn
FORMENN Alþýðubandalagsins og Þjóðvaka,
Margrét Frímannsdóttir og Jóhanna Sigurðar-
dóttir, hafa beitt sér fyrir samfylkingu félags-
hyggjuflokkanna og tekist verður á um þau mál
á landsfundi Alþýðubandalagsins.
Réttlátari skipting arðsins
með auðlindagjaldi
Margrét Frímannsdóttir mun á
þinginu kynna hugmyndir sínar um
auðindagjald. Þingsályktunartillaga
um þetta efni hefur verið til um-
ræðu innan þingflokksins en ekki
hefur náðst samkomulag um það
enn. Margrét leggur til að skipuð
verði nefnd sem fjalli um auðlindir
í sjó, á sjávarbotni innan efnahags-
lögsögunnar, í almenningum, á af-
réttum og öðrum óbyggðum löndum
utan heimalanda, um námur í jörðu,
vatnsafl og jarðhita undir 100
metra dýpi. Nefndin skuli kanna
hvernig best væri að standa að
gjaldtöku af þessum auðlindum með
hliðsjón af þeim gjöldum sem fyrir
eru. Gjaldtakan á að vera sanngjörn
og standa undir rannsóknum sem
eiga að stuðla að vernd
auðlindanna, sjálfbærri
nýtingu þeirra og réttlátri
skiptingu arðsins.
I ályktun kjördæmis-
þings Álþýðubandalagsins
á Norðurlandi vestra er
öllum hugmyndum um sér-
tæka skattlagningu á sjáv-
arútveginn hafnað. Líklegt
er því að hart verði deilt
um tillögu Margrétar.
Ýmsir málefnahópar
hafa verið starfandi frá
síðasta landsfundi og
munu kynna drög að álykt-
unum á morgun. Þar á
meðal er sjávarútvegshóp-
ur, en samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins hefur
hann margklofnað og að
minnsta kosti tvær mis-
munandi ályktanir verða
kynntar og í þeim koma
fram ólík viðhorf til auð-
lindagjalds.
Utanríkismálahópurinn
er einnig klofinn vegna
afstöðú til Evrópusam-
bandsins, NATO og her-
sföðvarinnar. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins
svipar ályktuninni til til-
lagna Grósku um afstöð-
una til NATO og herstöðv-
arinnar, en Steingrímur
hafnar hvoru tveggja.
Einnig kemur fram mis-
munandi afstaða þeirra til
Evrópusambandsins og
EES.
Á landsfundinum verða lagðar
fram tillögur um breytingar á skatt-
kerfinu. Meðal annars verður lagt
til að tekjutenging barnabóta verði
afnumin. í húsnæðismálum verða
lagðar fram tillögur til að leysa úr
vandamálum ungs barnafólks, með-
al annars þeim vanda sem náms-
lánakerfið hefur skapað þessu fólki
með tengingu endurgreiðslna við
tekjur.
Dragtardagar
15% afsláttur af nýjum buxna- og pils-drögtum
Mikið úrval Verð frá 9.900
SAUTJÁN,
I.aimaveai 91. sími 511 1717.
SAUTJAN,
Krimikmni. sími 568 0017