Morgunblaðið - 06.11.1997, Síða 14

Morgunblaðið - 06.11.1997, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Knstjan ARI B. Hilmarsson á Þverá í Eyjafjarðarsveit sér um uppbyggingu reiðvegarins og hann var að moka malarefni á bíl niður við Eyjafjarðará, á móts við bæinn Hvamm. Ábúendur þar hafa ein- mitt komið nokkuð við sögu í deilu landeigenda og hestamanna um reiðvegamál að undanförnu. Unnið að uppbyggingu reiðvegar í Eyjafirði Vegurinn yfir Fljótsheiði Verktakinn töluvert á eft- ir áætlun FRAMKVÆMDUM við nýjan veg, Hringveg, Fosshóll-Aðaldalsvegur yfir Fljótsheiði í S-Þingeyjarsýslu verður hætt í dag, fímmtudag og munu þær liggja niðri til næsta vors. Framkvæmdin er töluvert á eftir áætlun og ekki ljóst hvort hægt verður að nota veginn í vetur eins og til stóð. Það ráðist af tíðarfari að sögn Guðmundar Svafarssonar, forstöðumanns umdæmis Vegagerð- arinnar á Norðurlandi eystra. Verktakinn, Háfell úr Reykjavík átti samkvæmt útboði að ljúka við allar fyllingar og neðra burðarlag vegarins þann 25. október sl. Til stóð að opna veginn, sem er um 10 km langur, fyrir umferð í haust og hafði hann verið settur inn á snjóruðningsáætlun Vegagerðar- innar. Að sögn Guðmundar á verk- takinn alveg eftir að leggja neðra burðarlag vegarins og héðan af verður ekki farið í þá vinnu fyrr en næsta vor. Verklok 1. ágúst á næsta ári Þá stóð hins vegar til að setja á veginn efra burðarlag og bundið slitlag en samkvæmt útboði eru áætluð verklok 1. ágúst á næsta ári. Framkvæmdir í sumar hófust ekki fyrr en 10. júlí. Sigurður Odds- son yfirtæknifræðingur fram- kvæmdadeildar Vegagerðarinnar sagði við Morgunblaðið fyrir skömmu að fyrir vikið hafi verktak- inn misst af besta tímanum til fram- kvæmda. Kostnaðaráætlun Vegagerðar- innar hljóðaði upp á 187,7 milljónir króna en Háfell bauðst til að vinna verkið fyrir 133 milljónir króna, sem er um 71% af kostnaðaráætlun. FRAMKVÆMDIR við uppbygg- ingu reiðvegar austan við Eyja- fjarðará í Eyjafjarðarsveit standa nú yfir. Að sögn Guðmundar Svaf- arssonar, forstöðumanns umdæm- is Vegagerðarinnar á Norðurlandi, eystra er um að ræða kafla frá gömlu þverbrautinni sunnan Akureyrarflugvallar og suður að þeim stað þar sem stokkur Hita- veitu Akureyrar liggur yfir ána. Guðmundur sagði að fjárveiting vegna reiðvegar frá Akureyri og að Melgerðismelum hljóði upp á 10 milljónir króna. „Það var sett í forgang að byggja upp áður- nefndan kafla, girða veginn sem liggur með hitaveituleiðslunni og byggja reiðbrú á Eyjafjarðará, við Melgerðismela." Reiðbrú yfir ána Aðspurður sagði Guðmundur að fyrirliggjandi fjárveiting dugi í þessi verkefni. Hins vegar þurfi að gera eitthvað meira á leiðinni inn að Melgerðismelum og sagði hann að búist væri við einhverri fjárveitingu til verksins á næsta ári. Guðmundur sagði stefnt að því að hanna reiðbrúna yfir Eyja- fjarðará í haust og vetur og hefja framkvæmdir seinni part vetrar. Harðvítugar deilur komu upp sl. vor milli hestamanna á Akur- eyri og landeigenda í Eyjafjarðar- sveit og var reiðleið að vestan fram að Hrafnagili lokað um tíma af þeim sökum. Aftur kastaðist í kekki milli þessara aðila fyrir skemmstu, þegar bóndi í sveitinni taldi sig ekki lengur bundinn þeirri sátt sem gerð var í vor og byijaði að jafna út gamla þjóðveginn, þar sem hann liggur í gegnum land hans. Landsmót hestamanna verður haldið á Melgerðismelum í byrjun júlí á næsta ári og það er því gífur- legt hagsmunamál fyrir aðstand- endur mótsins að deilur við lan- deigendur verði leystar og að reið- leiðin frá Akureyri að mótsstað verði greið. Fjárveitingin sigur fyrir hestamenn Sigfús Helgason, formaður hestamannafélagsins Léttis á Ak- ureyri, sagðist fagna því heilshug- ar að framkvæmdir við reiðveginn væru hafnar og með því fengist nauðsynleg tenging milli Akur- eyrar og Melgerðismela. Sigfús sagði ennfremur að fjár- veitingin til verksins sé mun meiri en menn þorðu að vona og sé í raun stórsigur fyrir íslenska hesta- menn. „Of langur tími hefur farið í deilur um þetta mál, þær verður að leysa í bróðerni og það sem fyrst.“ Starfsfólk vantar Frystihús Snæfells á Dalvík óskar eftir starfsfólki til vinnu í frystihúsi fyrirtækisins á Dalvík. Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður í síma 466 3413. Snæfell frystihús hf., Dalvík. Blaðberar Blaðbera vantar á Akureyri. Þurfa að geta borið út um leið og blaðið kemur til Akureyrar, sem er frá kl. 06.30-07.30 á morgnana. Kaupvangsstræti 1, sími 461 1600. hAbkúunn Aakureyri IBUÐ Háskólinn á Akureyri auglýsir eftir 3-4 herbergja íbúð fyrir einn kennara sinn frá 1. janúar 1998. Æskilegur staður er á brekkunni. Upplýsingar eru veittar í síma 4630900 milli kl. 8.00 og 16.00. Morgunblaðið/Kristján y' . yf \ .. 7JM ' í £i Heim frá Edinborg ÞAÐ var líf og fjör á Akureyrarflug- velli á þriðjudagskvöld þegar farþegar úr fyrsta beina fluginu milli Akur- eyrar og Edinbogar komu heim úr vel heppnaðri ferð. Alls verða farnar flórar ferðir milli þessara áfangastaða nú í haust og eru farþegamir alls um 400 talsins. Guðbjörg Ringsted hjá Úrvali-Útsýn á Akureyri sagði að fjöldinn væri svipaður og í fyrra- haust, heldur færra þó. Fólki stæðu til boða mörg ferðatilboð allan ársins hring og hefði það eflaust sitt að segja, æ fleiri legðust því í ferðalög. Ekkert beint flug er á þessu hausti frá Akureyri á vegum Samvinnu- ferða-Landsýnar en ferðalöngum standa borgarferðir til boða um Kefla- víkurflugvöll. Nokkur fækkun er því á ferðafólki sem fer beint frá Akur- eyri til útlanda á þessu hausti frá því sem verið hefur. Veður hefur á stund- um sett strik í reikninginn, ekki verið hægt að lenda á Akureyrarvelli vegna veðurs og því þó nokkuð margir lent í svonefndu beinu „þoturútuflugi" eins og gárungamir nefna það þegar beina flugið frá Akureyri hefur snúist upp í ferð með rútu suður til að ná flugi þaðan eða heim að lokinni ferð. Leirverk í Svartfugli KRISTÍN Sigfríður Garðars- dóttir opnar sýningu á leirverk- um í Galleríi Svartfugli á Akur- eyri laugardaginn 8. nóvember kl. 16. Þetta er fyrsta einkasýning Kristínar en hún útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla íslands síðastliðið vor. Verkin á sýningunni hefur hún unnið á þessu ári. Hún teflir saman ljósum, þunnum postulínsform- um gegn grófum og dökkum hlutum úr jarðleir. ----» ♦ -♦-- Höldi út- hlutað lóð BYGGINGANEFND Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að úthluta Höldi lóð undir bensínstöð og verslun á mótum Viðjulundar og Súluvegar. Að sögn Hákons Hákonarsonar, formanns bygginganefndar, ætlar Höldur að stækka planið við Leiru- stöð, þannig að hægt verði m.a. að þrífa þar stóra bíla. Aður hafði Höldur sótt um leyfi fyrir slíka að- stöðu á lóðinni við Viðjulund og Súluveg en því var hafnað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.