Morgunblaðið - 06.11.1997, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Berezovskí vikið frá
að áeggjan Tsjúbajs
Leiðangri
Pathfínd-
erslokið
Pasadena. Reuters.
VÍSINDAMENN lýstu því yfir
í fyrrakvöld að leiðangri geimf-
arsins Pathfmders til Mars
væri formlega lokið, nákvæm-
iega fjórum mánuðum eftir að
farið lenti á plánetunni.
Upphafiega stóð til að leið-
angurinn stæði í einn mánuð.
Samband rofnaði skyndilega
fyrir rúmum fimm vikum við
Pathfinder-farið og Mars-jepp-
ann Soujoumer, sem Pathfind-
er flutti til plánetunnar. Þá
hafði leiðangurinn staðið tveim
mánuðum lengur en áætlað
hafði verið og jeppanum verið
ekið margfalt lengra en upp-
haflega var ætlunin.
Jeppinn enn á ferð?
Jake Matijevic, sem hefur
yfirumsjón með Mars-jeppan-
um, tjáði fréttamönnum að
hann teldi líklegt að jeppinn,
sem er á stærð við örbylgjuofn,
væri enn starfhæfur. Líklegt
mætti telja að kviknaði á hon-
um á hveijum morgni, sam-
kvæmt forriti, og hann æki
umhverfis Pathfínderfarið og
biði fyrirmæla. Þetta gæti hald-
ið áfram uns sólarrafhlöðurnar
í jeppanum gætu ekki lengur
séð honum fyrir orku.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti vék
í gær kaupsýslumanninum Borís
Berezovskí úr rússneska öryggis-
ráðinu að áeggjan umbótasinna í
stjórninni, sem höfðu deilt harka-
lega við hann um sölu ríkiseigna.
„Jeltsín undirritaði tilskipun sem
leysir Borís Abramovitsj Berezovskí
frá störfum sem varaformann Ör-
yggisráðs Rússlands í tengslum við
flutning hans i annað starf,“ sagði
í yfírlýsingu frá skrifstofu forset-
ans. Talsmaður Jeltsíns sagði síðar
að aðstoðarforsætisráðherrarnir
Anatolí Tsjúbajs og Borís Nemtsov
hefðu „sannfært Borís Jeltsín for-
Bangladesh
Dhaka. Reuters
LEIGUVAGNAR á þremur hjól-
um, sem nefndir eru rickshaw,
og önnur vélknúin farartæki
valda gífurlegri mengun á
þröngum götum Dhaka, höfuð-
borgar Bangladesh. Sljórnvöld
í Bangladesh hafa nú lýst því
yfir að þau hyggist breikka göt-
ur, byggja brýr og leyfa inn-
flutning einkaaðila á fólksflutn-
ingabílum í tilraun til að Ieysa
umferðarvanda borgarinnar.
seta um þörfína á því að víkja Bor-
ís Berezovskí frá“.
Berezovskí átti stóran þátt í því
að tryggja Jeltsín endurkjör í for-
setakosningunum á liðnu ári og
skipulagði stuðning valdamestu
bankastjóra landsins og áhrifamik-
illa ijölmiðla við kosningabaráttu
forsetans. Síðan hefur hann átt í
deilum við umbótasinnana Tsjúbajs
og Nemtsov um hvernig staðið var
að sölu ríkiseigna.
Berezovskí kvaðst hvorki ætla
að þiggja annað opinbert embætti
né snúa sér aftur að viðskiptum.
Hann sagðist hins vegar hafa rætt
við ívan Rybkín, stofnanda Sósíal-
istaflokksins, lítils mið- og vinstri-
flokks, um að hasla sér völl í stjórn-
málunum. Hann kvaðst þó hlynntur
því að Jeltsín gæfi kost á sér til
endurkjörs árið 2000 þar sem hann
væri eini maðurinn sem gæti gegnt
forsetaembættinu.
Berezovskí hefur verið náinn
samstarfsmaður Viktors Tsjerno-
myrdíns forsætisráðherra og brott-
vikningin virtist vera sigur fyrir
umbótasinnaða ráðherra undir for-
ystu Tsjúbajs. Nokkrír fréttaskýr-
endur sögðu að brottvikningin væri
liður í tilraunum Jeltsíns til að
treysta tök sín í Kreml og til marks
um að hann vildi láta meira til sín
taka nú þegar hann hefur náð sér
eftir hjartaaðgerðina sem hann
gekkst undir fyrir ári.
Auðgaðist á bílasölu
Kaupsýslumaðurinn var skipaður
í öryggisráðið 29. október á liðnu
ári og átti stóran þátt í friðarsamn-
ingnum við Tsjetsjena, sem var
undirritaður í maí.
Berezovskí er með doktorspróf í
hagnýtri stærðfræði og komst í áln-
ir þegar hann haslaði sér völl í bíla-
viðskiptum skömmu fyrir hrun Sov-
étríkjanna. Hann kveðst hafa hætt
öllum viðskiptum þegar hann hóf
störf í Kreml, en hann og samstarfs-
menn hans eiga stóran hlut í olíu-
fyrirtækjum, bílasölum og fjölmiðl-
um, m.a. ORT, stærstu sjónvarps-
stöð Rússlands. Þessir fjölmiðlar
gerðu harða hríð að Tsjúbajs og
Nemtsov þegar eftirsóttar ríkis-
eignir voru seldar keppinautum
Berezovskís og bandamanna hans.
Ennfremur var skýrt frá því í
gær að Jeltsín hefði undirritað til-
skipun sem heimilar útlendingum
að eignast meirihluta í rússneskum
olíufyrirtækjum. Líklegt er að verð
hlutabréfa þeirra hækki og sam-
keppnin um þau harðni.
Tæland
Eftírmanns
forsætísráð-
herra leitað
Bangkok. Reuters.
BHUMIBOL Adulyadej, hinn dáði
konungur Tælands, er veikur og
segja læknar hans veikindin stafa
af áhyggjum af efnahagsvanda
landsins og því hver verði næsti
forsætisráðherra.
Sex aðildarflokkar samsteypu-
stjórnarinnar í Tælandi hófu á
þriðjudag leit að eftirmanni Chava-
lits Yongchaiyudhs, sem tilkynnti á
mánudag að hann ætlaði að segja
af sér embætti forsætisráðherra
síðar í vikunni.
Forsætisráðherrann hafði verið
beittur þrýstingi af hálfu stjórnar-
flokkanna, stjórnarandstöðunnar
og kaupsýslumanna um að hann
segði af sér vegna þess að honum
hefði mistekist að leysa efnahags-
vanda Tælands. Yongchaiyudh
sagði á mánudag að hann myndi
gegna embætti þar til tekist hefði
að koma tilteknum lagasetningum
gegnum þingið.
Þó forystumenn stjómarfiokk-
anna, sem setið hafa að völdum í
tæpt ár, beijist nú hatrammlega um
embætti forsætisráðherra, sögðust
þeir á þriðjudag vera ákveðnir í að
starfa áfram saman, þótt þá greindi
á um margt í stefnumálum.
Reuters
Herstöðin í
Thule sögð
ólögleg
Tillögur um að krafist verði nýrra samn-
inga um bandarísku stöðina í Thule
SKJÖL úr danska þjóðskjalasafninu
og bandarískum skjalasöfnum benda
til þess að bandaríska herstöðin í
Thule á Grænlandi sé ólögleg, að því
er fram kemur í fréttum grænlenska
útvarpsins. í skjölunum kemur fram
að bandaríski herinn var byijaður að
gera drög að vellinum áður en samn-
ingur var gerður við dönsk stjórn-
völd, árið 1951.
Það eru lögmenn Hingitaq, félags
fyrrverandi íbúa í Thule, sem gert
hafa skjölin opinber en íbúarnir hafa
lagt fram skaðabótakröfu á hendur
danska ríkinu vegna nauðungarflutn-
inga frá Thule á sjötta áratugnum.
Samtök inúíta, ICC, sem styðja
kröfu Thulebúanna, segja skjölin
gefa Grænlendingum ástæðu til að
krefjast þess að samið verði að nýju
um herstöðina í Thule. „Skjölin sýna
fram á að ekki var eingöngu farið á
bak við Grænlendinga, heldur einnig
Dani,“ segir Aqqaluk Lynge, formað-
ur ICC. Þá telur hann að Grænlend-
ingar eigi að krefjast beinnar þátt-
töku í slíkum samningum og þess
að auðveldara verði að nálgast upp-
lýsingar um málið.
Neyðarfundir
Friðarviðræður ísraela og Palestínumanna í Washington
Senda fleiri fulltrúa
Washington, Arlington. Reuters
Heitrofs
hefnt með
mykju
Canberra. The Daily Telegraph.
39 ÁRA áströlsk kona, sem
hafði verið svikin í tryggðum,
hefur verið sótt til saka fyrir
að hella blautri mykju yfir brúði,
sem var að búa sig undir hjóna-
vígslu í almenningsgarði í Can-
berra.
Konan dulbjó sig sem skeggj-
aðan garðyrkjumann og ætlaði
að hella mykjunni yfir brúðgum-
ann en komst ekki að honum.
Hann hafði slitið íjögurra ára
ástarsambandi þeirra til að geta
kvænst annarri konu.
Brúðarkjóllinn, sem kostaði
andvirði 135.000 króna, eyði-
Iagðist í árásinni, svo og jakki
svaramanns, og nokkrir gest-
anna urðu einnig fyrir gusunni.
FORMLEGAR samningaviðræður
ísraela og Palestínumanna hófust
í Washington á þriðjudag þrátt
fyrir að Palestínumenn hefðu þar
einungis jirjá fulltrúa á móti rúm-
um tug Israelsmanna.
Til stóð að viðræðurnar, sem
stefna að því að endurlífga friðar-
ferli ísraela og Palestínumanna,
hæfust á mánudag. Þeim var hins
vegar frestað þar sem Palestínu-
menn sendu einungis þijá fulltrúa
til fundarinns vegna deilna um
efnisatriði hans.
Palestínumenn vilja láta umræð-
ur um samgöngur milli Gasa-
svæðisins og Vesturbakkans auk
flugvaltar- og hafnaraðstöðu bíða
þar til samið hefur verið um frek-
ari brottflutning ísraelskra her-
manna frá Vesturbakkanum en
ísraelar leggja áherslu á að gengið
verði frá þessum málum. Palest-
ínumenn samþykktu þó að senda
fleiri fulltrúa til fundarins eftir að
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, fór þess á
leit og í gær voru tveir nýir fulltrú-
ar þeirra væntanlegir til Washing-
ton.
Muntaka
langan tíma
Við upphaf viðræðnanna sagði
Ross að allar hliðar málsins yrðu
ræddar en á meðal helstu deiluefna
eru samvinna í öryggismálum, ný-
byggingar gyðinga á palestínsku
landi, brottkvaðning ísraelshers
frá Vesturbakkanum og undirbún-
ingur lokaviðræðna um framtíðar-
yfirráð á svæðinu.
Eftir að David Levi, forsætisráð-
herra ísraels, Mahmoud Abbas,
einn af æðstu embættismönnum
sjálfstjórnarsvæða Palestínu-
manna og Dennis Ross, sáttasemj-
ari Bandaríkjastjórnar, hittust
óformlega á mánudag lýstu þeir
yfir bjartsýni á að árangur gæti
náðst í viðræðunum. Að loknum
fyrsta formlega fundinum á þriðju-
dag sagði Saeb Erekat, einn samn-
ingamanna Palestínumanna, hins
vegar að það muni taka langan
tíma að ná árangri.
Niels Helveg Petersen, utanríkis-
ráðherra Dana, sagði í Nuuk í síð-
ustu viku að Danir myndu ekki óska
eftir því að samið yrði að nýju um
Thule-herstöðina. Grænlendingar
segja hins vegar ekki útilokað að til
nýrra samninga komi þar sem dönsk
og bandarísk stjórnvöld hafi haldið
nokkra skyndifundi frá því í vor
vegna lagningar flugbrautar á norð-
vestur Grænlandi.
Fullyrt er í Berlingske Tidende
að ástæða fundanna sé sú að Banda-
ríkjamenn hafi lagt æfingaflugbraut
á miðju veiðisvæði rostunga. Banda-
ríkjamenn haldi því fram að Danir
hafi vitað af lagningu brautarinnar
en Danir vísi því á bug. í Berlingske
Tidende í gær studdi yfirmaður
danska hersins á Grænlandi, Mogens
Kruse, fullyrðingar Bandaríkja-
manna og sagði herinn og varnar-
málaráðuneytið hafa fengið vitn-
eskju um málið í apríl sl.
Jonathan Motzfeldt, formaður
grænlensku landsstjórnarinnar, seg-
ist ekkert vita um þessar nýju upp-
ljóstranir um Thule-málið en kveðst
munu krefja danska forsætisráð-
herrann svara á næstu dögum.
i
í
ft
i
i
i
I
I
!
i