Morgunblaðið - 06.11.1997, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Háðsádeila um
kraftaverkatru
\íT^y
Stjörnubtó
SNERTING
„Touch“
★ ★
ÞESSI nýjasta mynd bandaríska
handritshöfundarins og leikstjór-
ans Paul Schraders er einhvers-
konar háðsádeila á kraftaverkatrú
en er eitthvað svo húmorsiaus og
óspennandi í útlistun sinni á fyrir-
bærinu og sölumennskunni í kring-
um kraftaverkatrúna að maður fer
að velta því fyrir sér hvort Schrad-
er hafi yfirleitt nokkru að bæta
við fjölda annarra mynda sem fjall-
að hafa um sama efni. Er furðu-
legt að ekki skuli koma rismeiri
mynd útúr sögu satíristans Elmore
Leonards. Hópur þekktra leikara
fer með hlutverk í myndinni og
stendur sig ekki illa. Christopher
Walken leikur sölumann trúarinnar
sem uppgötvar kraftaverkamann í
Skeet Ulrich en honum blæðir þar
sem Jesú blæddi á krossinum og
hann virðist geta læknað sjúka
með snertingu. Bridget Fonda er
kærasta blæðarans, sem varar við
sölumönnum eins og Walken, og
Tom Arnold er Travis Bickle-týpan
(Schrader skrifaði handritið að
„Taxi Driver"), sem dregur upp
byssu gegn afvegaleiddu samfé-
lagi. Það eru einstaka góðir sprett-
ir í myndinni en Schrader hefur í
raun ekkert nýtt fram að færa.
Það tekur heila bíómynd að fá það
útúr honum.
Auðnuleysingi
kemst til metorða
Iiáskðlabíó
HÓGVÆR HETJA
„Un heros tres discret"
★ ★
Franska gamanmyndin Hógvær
hetja er heimildarmynd, að hluta
til leikin, um ungan Frakka sem
lýgur sig upp í valdastöðu innan
Rcgnboginn
DJAMMARAR
„Swingers"
★ ★ ★
MENN þurfa að vera vel að sér
í slangri skemmtanafíkla Los
Angelesborgar til að grípa alltaf
meiningarnar í hnyttnum samtölum
Djammara, en það lærist. Það er
óhemju mikið skrafað og skeggrætt
í vinahópi Trents (Vince Vaughn )
og Mikes (Jan Favreau), umræðu-
efnið kvenfólk og aftur kvenfólk
og hvernig komast má yfir það á
faglegan hátt.
Slík heilabrot eru ekki ný af
nálinni í myndum um unga og ein-
hleypa karla (-rembur), en það er
hann hinsvegar frásagnarmátinn
hjá leikstjóranum Doug Liman.
Djammarar er flott byrjendaverk,
Regnboginn
Hugrekki ★
Paradísarvegurinn ★ ★
Cosi ★ Vi
Fjölskylda á
krossgötum ★ ★ ★
Lansinn //★ ★ ★
Hamlet (st)ir ★ ★
Umskipti'k ★ ★
Úthverfi ★★
Leitin að Richard ★ ★ ★
Náin kynni ★★‘/2
Djammið ★ ★ ★
Stjörnubíó
Snerting ★★
franska hersins eftir síðari heims-
styijöldina. Leikstjórinn, Jacques
Audiard, notar heimildarmynda-
formið til þess að kynnast þessum
manni í nútímanum. Rætt er við
fólk sem þekkti hann og dregin
er upp mynd af fullkomnum auðnu-
leysingja sem gerir lygina að sinni
hjartans list og kemst til metorða
útá falsaðar hetjusögur af sjálfum
sér; líkt og Forrest Gump læðir
hann sér á ljósmyndir með stór-
mennum. Alla dreymir um að verða
hetjur en lygarinn nennir ekki að
vinna til þess. Audiard leikur sér
með form og efni í heimildastílnum
og sýnir m.a. reglulega strengja-
hljómsveitina sem spilar tónlistina
undir leiknu atriðunum. Mathieu
Kassovitz er í titilhlutverkinu og
vinnur fjarska vel úr lygaranum
en það er eins og höfundar mynd-
arinnar hafi ekki vitað nákvæm-
lega sjálfir hvað þeir ættu að gera
úr skondinni hugmynd og myndin
ber þess nokkur merki.
Arnaldur Indriðason
það er stíll yfir henni og nokkur
atriði eru sláandi vel gerð og
áhrifamikil. Það er alls ekki óhugs-
andi að kominn sé fram á sjónar-
sviðið einkar athyglisverður, ungur
leikstjóri. Næsta mynd hans sker
úr um það. Handritið er skrifað
af Favreau, oft smellið en flæðið
er mikið. Hann stendur sig með
sóma sem höfundur og leikari.
Myndin er þó fyrst og fremst sigur
fyrir aðalleikarann, Vaughn, þetta
er sleipur nagli sem á örugglega
eftir að koma við sögu í dýrari
myndum í framtíðinni. Swingers
skapar engin tímamót en hún er
gott byrjendaverk, fín skemmtun
sem kemur þægilega á óvart. Mun
betri en en myndir nokkurra fræg-
ari manna sem koma við sögu þess-
arar kvikmyndahátíðar.
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó
Georgía ★★★
Söngur Körlu ★ ★ ★
Á snúrunni ★★'/2
Sólbruni ★★
Dópsalinn ★
Hógvær hetja ★ ★
Laugarásbíó
Byttur ★★★
Sigurvegarinn ★ ★
A0 hafa eða ekki ★ ★
Endalok ofbeldis ★ '/2
Sáttmálinn ★ ★'/2
Sumarið í Goulette ★ ★ ★
Sjálfs-
ræktar-
bækur
LEIÐARLJÓS ehf. hefur helgað
sjálfsræktarútgáfu undanfarin tvö
ár með útgáfu bóka á borð við
Hámarks árangur, Celestine hand-
ritin og Boðskapur Maríu til mann-
kynsins. Auk bóka hafa verið gefn-
ar út fjórar mismunandi gerðir
staðfestingarspjalda og sex leiddar
hugleiðslusnældur með Guðrúnu
G. Bergmann. „í ár beinir Leiðar-
ljós sjónum sínum að samskiptum
fólks. Útgáfan samanstendur af
þremur bókum sem allar taka á
mismunandi hliðum samskipta og
þjóna stórum hópi lesenda," segir
í kynningu.
Leiðarljós hefur nú gefið út bók-
ina Sönn augnablik elskenda, en
hún heitir „Real Moments for Lov-
ers“ á frummálinu. í bókinni sýnir
Barbara de Angelis lesandanum
m.a. inn í heim eilífrar ástar og
talar um endurlífgun neistans í
sambandinu, kennir æfingar til
heilunar, talar tæpitungulaust um
spennu sem myndast oft þegar
fólk „nálgast" hvað annað, nauð-
synlega stuðning og skilning í sam-
böndum og margt fleira. Guðrún
G. Bergmann þýddi. Viðmiðunar-
verð er 2.490 kr. Bókinni fylgja
staðfestingarspjöld eftir Guðrúnu
G. Bergmann. Pakki með 45
spjöldum fylgir bókinni ókeypis til
22. nóvember, en þá verður pakk-
inn seldur á 790 kr.
Hvað vilja konur fá frá körlum?
er eftir Dan True. „Hann er rithöf-
undur og þekktur sjónvarpsmaður
í Bandaríkjunum, sem lenti í skiln-
aði eins og margir aðrir. Það sem
þjakaði Dan hins vegar var að
hann vissi ekki hvers vegna,“ seg-
ir í kynningu. Þýðandi er Guðlaug-
ur Bergmann. Viðmiðunarverð er
kr. 2.490.
Ástarfíkn, flótti frá nánd er eft-
ir metsöluhöfundinn Anne Wilson
Shaef. í þessari bók rannsakar hún
hin leyndu vandamál ástarfíknar.
„í þessari bók er flett ofan af og
leyst úr þeim fíknum sem tengjast
kynlífi, samböndum og rómantík."
Höfundurinn hefur einnig sent frá
sér aðrar metsölubækur, sem
tengjast sérsviði hennar. Þýðandi
er Helga Ágústsdóttir. Viðmið-
unarverð er 1.990 kr.
Eigendur Leiðarljóss ehf. eru
Guðlaugur Bergmann og Guðrún
G. Bergmann. Framkvæmdastjóri
er Guðjón Bergmann.
EIN mynda Ragnars á
Laugavegi 22.
Ragnar Jón-
asson sýnir
á Lauga-
vegi 22
RAGNAR Jónasson opnar mynd-
listarsýningu á Veitingastaðn-
um Laugavegi 22, á morgun,
laugardag kl. 20. Á sýningunni
eru átta verk unnin með olíu og
kolum. Sýningunni lýkur 21.
nóvember.
Fimmtudagur 6. nóvember
Regnboginn
Paradísarvegur
Kl. 17.00
Náin kynni
Kl. 17.00
Úthverfi
Kl. 19.00
Borgari Rut
Kl. 19.00
Hugrekki
Kl. 21.00
Hamlet (lengri útgáfa)
Kl. 21.00
Rekaviður
Kl. 23.00
Laugarásbíó
Sumarið i Goulette
Kl. 17.00
Byttur
Kl. 19.00
Endalok ofbeldis
Kl. 21.00 og 23.00
Sáttmálinn
Ki. 21.00 og 23.0
Háskólabió
Dópsalinn
Kl. 17.00, 19.00, 21.0 og 23.10
Sólbruni
Kl. 18.00
Söngur Körlu
Kl. 21.00 og 23.15
Á snúrunni
Kl. 23.00
Sljörnubíó
Snerting
Kl. 17.00, 19.00, 21.00, og 23.00
Sambíóin - Bíóborgin
Þrettándakvöld
Kl. 16.40, 19.00, og 21.20
Föstudagur 7. nóvember
Regnboginn
Anna Karenina
Kl. 17.00 og 21.00
Madama Brown
Kl. 19.00 og 21.00
Grát ástkæra fósturmold
Kl. 19.00 og 23.00
Borgari Rut
Kl. 19.00 og 23.00
Laugarásbíó
Endalok ofbeldis
Kl. 21.00
Sáttmálinn
Kl. 23.00
Háskólabíó
„Pusher“
Kl. 17.00, 19.00, 21.00 og 23.10
Hógvær hetja
Kl. 19.00
Sólbruni
Kl. 21.00
Söngur Köriu
Kl. 21.00 og 23.15
Stjörnubíó
Snerting
Kl. 17.00, 19.00, 21.00
Sambíóin - Bíóborgin
Þrettándakvöld
Kl. 16.40, 19.00, og 21.20
Laugardagur 8. nóvember
Regnboginn
{ leit að Ríkharði
Kl. 15.00 og 17.00.
Grát ástkæra fósturmold
Kl. 15.00, 19.00 og 23.00.
Anna Karenina
Kl. 17.00
Madama Brown
Kl. 17.00 og 21.00
Hugrekki
Kl. 19.00
Handfylli af flugum
Kl. 21.00
Óþelló
Kl. 19.00 og 23.00
Hamlet
Kl. 21.00
Djammarar
Kl. 23.00
Laugarásbíó
Sumarið í Goulette
Kl. 15.00
Sáttmálinn
Kl. 15.00
Endalok ofbeldis
Kl. 21.00 og kl. 23.00
Háskólabíó
Hógvær hetja
Kl. 19.00
Söngur Körlu
Kl. 21.00 og 23.15
Pusher“
KÍ. 17.00, 19.00, 21.00 og 23.10
Sólbruni
Kl. 21.00
Stjörnubíó
Snerting
Kl. 17.00, 19.00, 21.00, og 23.00
Sambíóin - Bíóborgin
Þrettándakvöld
Kl. 16.40, 19.00, og 21.20
Sunnudagur 9. nóvember
Regnboginn
Hamlet
Kl. 15.00
Hamlet (lengri útgáfa)
Kl. 15.00
Anna Karenina
Kl. 15.00, 19.00 og 23.00
Handfylli af flugum
Kl. 17.00, 19.00 og 23.00
Madama Brown
Kl. 17.00 og 21.00
Borgari Rut
Kl. 19.00
„Slingblade"
Kl. 21.00
í leit að Ríkharði
Kl. 23.00
Laugarásbíó
Sumarið í Goulette
Kl. 15.00
Sáttmálinn
Kl. 15.00
Endalok ofbeldis
Kl. 21.00 0g 23.00
Háskólabíó
Hógvær hetja
Kl. 19.00
Söngur Körlu
Kl. 21.00 og 23.15
Pusher“
k’Í. 17.00, 19.00, 21.00 og 23.10
Sólbruni
Kl. 21.00
Stjörnubíó
Snerting
Kl. 17.00, 19.00, 21.00, og 23.00
Sambíóin - Bíóborgin
Þrettándakvöld
Kl. 16.40, 19.00, og 21.20
ÚR myndinni Djammið.
Með kvenfólk
á heilanum
Stjörnugjöf