Morgunblaðið - 06.11.1997, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
„GUSTAV Mahler var sjúkur maður þegar
hann samdi níundu sinfóníuna, hina síðustu
sem hann lauk við. Fyrir vikið þykir hún
innihalda innri játningu tónskáldsins, minn-
ingar og íhugun um farinn veg - eins kon-
ar uppgjör deyjandi manns. Verkið var
frumflutt í Vínarborg í júní 1912 - að
höfundinum látnum.
„Það er auðheyrt á níundu sinfóníunni
að hún er samin af döprum manni - gleð-
in er víðsfjarri," segir Finninn Petri Sak-
ari, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands, sem flytur verkið á tónleikum í Há-
skólabíói í kvöld. „Engu að síður er fegurð-
in mikil og nær hámarki í lokakafla verks-
ins, þar sem Mahler vottar rómantíska tím-
anum virðingu sína. í raun má segja að
níunda sinfónía Mahlers hafi markað enda-
lok rómantíska tímans í tónlist, hún er síð-
asta rómantíska sinfónían af þessari stærð-
argráðu."
Já, umfang verksins er að sönnu mikið,
bæði í efnislegum og eiginlegum skilningi,
en Sinfóníuhljómsveit íslands þurfti að
bæta við sig þrettán hljóðfæraleikurum
fyrir tónleikana, sem þýðir að 85 manns
munu stíga á svið í kvöld, auk Sakaris sem
hefði reyndar kosið að hafa þá ennþá fleiri!
Níunda sinfónían tekur hátt í eina og hálfa
klukkustund í flutningi.
Á vel við SÍ
Mahler á, að sögn Sakaris, vel við Sinfón-
íuhljómsveit íslands en níunda sinfónían
er fimmta sinfónía hans sem hljómsveitin
flytur undir stjórn Finnans. Áður hefur hún
leikið sinfóníur númer 1, 2, 5 og Das Lied
von die Erde, sem Mahler taldi til sin-
fónískra verka sinna, auk „adagio" úr tí-
undu sinfóníunni sem tónskáldið lauk aldr-
ei við.
En það eru fleiri tónskáld en Mahler
Sinfóníuhljómsveit íslands hugleikin um
þessar mundir, ekki síst Jean Sibelius, landi
Sakaris, en svo sem kunnugt er gekk hún
á sínum tíma til samstarfs við útgáfufyrir-
tækið Naxos um hljóðritanir á öllum sinfón-
íum tónskáldsins og fleiri verkum til. Er
það verk nú vel á veg komið.
„Fyrsta geislaplatan, sem hefur að
geyma Lemminkeinen og Karelia svítur
Sibeliusar, er þegar komin í verslanir í Finn-
landi og verður eflaust fáanleg hér á landi
síðar í vetur,“ segir Sakari en samið var
um sjö plötur alls, fjórar með sinfónískum
verkum og þijár með verkum af öðrum
toga.
Búið er að hljóðrita fyrstu þijár sinfón-
íurnar og er fyrirhugað að taka tvær þær
LISTIR
Endalok róm-
antíkurinnar
Sinfóníuhljómsveit íslands flytur níundu sinfóníu Gustavs
Mahlers á tónleikum í Háskólabíói í kvöld kl. 20. Orri
Páll Ormarsson ræddi við Petri Sakari, aðalstjómanda
hljómsveitarinnar, af þessu tilefni og spurði hann einnig
út í hljóðritanir sveitarinnar á verkum Sibeliusar fyrir
Naxos útgáfufyrirtækið en hluti þeirra er nú að baki.
Morgunblaðið/Kristinn
„í RAUN má segja að niunda sinfónía Mahlers hafi markað endalok rómantíska
timans í tónlist, hún er siðasta rómantíska sinfónían af þessari stærðargráðu,“
segir Petri Sakari.
næstu upp síðar í þessum mánuði. Er fjórða
sinfónían einmitt á efnisskrá tónleika SÍ
20. nóvember en Sakari leggur áherslu á
að hljómsveitin hafi flutt verkin á tónleikum
áður en að hljóðversvinnunni kemur - „það
flýtir fyrir!“
Tvær síðustu sinfóníurnar, nr. 6 og 7,
verða síðan hljóðritaðar í febrúar á næsta
ári, að undangengnum tónleikaflutningi á
hinni fyrmefndu, þann 5. þess mánaðar.
Sakari segir að sér sé ekki kunnugt um
með hvaða hætti Naxos hyggst gefa verkin
út en ekki sé lokum fyrir það skotið að
sinfóníurnar verði gefnar út í einum pakka
þegar þar að kemur. Allar plöturnar ættu
þó að vera komnar í búðir fyrir lok næsta árs.
Ekki þarf að hafa um það mörg orð að
með samningnum við Naxos mun útbreiðsla
á upptökum hljómsveitarinnar margfaldast.
í framtíðinni er ráðgert að hljóðrita íslenska
tónlist fyrir Naxos og dótturfyrirtæki þess,
Marco Polo.
Sakari segir það mikinn heiður fyrir SÍ
að vera samningsbundin Naxos um þessar
mundir en fyrirtækið hefur dregið mjög úr
hljóðritunum hin síðari misseri vegna óheyri-
legs efnisforða. „Mér skilst að Naxos eigi
þegar efni á um 500 geislaplötur sem bíða
útgáfu, þannig að fyrirtækið mun eflaust
ekki semja við margar hljómsveitir á næst-
unni.“
Kröfuhörð hljómsveit
Naxos hefur einu sinni áður látið hljóð-
rita sinfóníur Sibeliusar fyrir sig. Var þar
að verki tékknesk hljómsveit undir stjórn
bresks hljómsveitarstjóra. Segir Sakari for-
svarsmenn Naxos ekki hafa verið sátta við
útkomuna og sakir þess leggi þeir áherslu
á að samstarfið við SI gangi hratt og örugg-
lega fyrir sig. „Það orð fer af okkur að við
gerum Sibeliusi, og reyndar norrænum tón-
skáldum almennt, góð skil og ekki hefur
Sibeliusar-platan okkar, sem Chandos gaf
út um árið, spillt fyrir þegar Naxos ákvað
að velja okkur til verksins. Hún var afar
vel heppnuð!"
Sakari segir það ákaflega gefandi vinnu
að taka upp með Sinfóníuhljómsveit íslands
enda geri hljóðfæraleikararnir endalausar
kröfur til sjálfra sín. Hljómsveitarstjórinn
þurfi ekki að hlutast til um það. „Það kem-
ur oftar en ekki fyrir að hljómsveitin fer
fram á eina upptöku enn, jafnvel þótt hún
hafi náð settu marki. Henni finnst hún allt-
af geta gert betur! Síðan er hljómsveitin
auðvitað orðin þaulvön að vinna „við rautt
ljós“ sem auðveldar alla tæknivinnu til
muna.“
Tímarit
• KOMINN er út 1997 árgangur-
inn af ársritinu Goðasteinien það
er héraðsrit Rangæinga. Útgefandi
er héraðsnefnd Rangæinga.
Í ritinu er birt erindi frá Odda-
stefnu 1996 en hún fjallaði einkum
um Heklu, hið
fornfræga eld-
fjall. Þeir sem
birta erindi sín
í ritinu nú eru
eftirtaldir: Þór
Jakobsson,
Freysteinn Sig-
urðsson og Árni
Hjartarson,
Haukur Jóhann-
esson og Sig-
mundur Einars-
son, Elsa G. Vil-
mundardóttir,
Helgi Þorláksson, Sigurður Jónsson
og Guðrún Sverrisdóttir. Þá eru
tvær fræðilegar greinar um önnur
mál, annars vegar grein um stað-
fræði Njálu eftir próf. Þorkel Jó-
hannesson og hins vegar grein um
áhrif Sæmundar fróða á Snorra
Sturluson eftir Sverri Tómasson.
Sigurður J. Haraldsson skrifar um
uppfærslu á Skugga;Sveini fyrir
löngu og Margrét J. ísleifsdóttir
um skógarhögg í Þórsmörk. Þórður
Tómasson fjallar ítarlega um hag-
leiksmanninn Siguijón í Hvammi.
Sigurður Bjömsson frá Kvískeijum
hugar að Kötlugosi 1918 og Harald-
ur Guðnason skrifar um áveitusögu
A-Landeyja. Ólafur Elímundarson
sagnfræðingur segir frá Jónínu G.
Loftsdóttur og birtir minningar
hennar um jarðskjálftann mikla
1896 auk kvæðis sem hún kunni
um skoplega atburði í Fljótshlíð.
Agnes Löve segir frá 40 ára sögu
Tónlistarskóla Rangæinga og Orvar
Ólafsson frá Stóru-Hildisey segir
frá útræði frá Landeyjasandi í gam-
alli tíð. Loks birtist minnigabrot
eftir Guðjón Marteinsson frá Halls-
túni í Holtum.
Ljóðlist fær
veglegan sess í
ritinu í þetta
sinn. Fyrst er að
nefna 10 nú-
tímaljóð eftir
unga rangæska
skáldkonu, Hiidi
Sigurðardóttur.
Albert Jóhanns-
son í Skógum
sér um vísna-
þátt. Ólafur
Runólfsson birt-
ir þijá söngtexta og Pálmi Eyjólfs-
son á t.vö Ijóð í ritinu. Af öðru skáld-
skaparefni má nefna smásögu eftir
Eygló ídu Gunnarsdóttur og aðra
eftir Ólaf Jónsson frá Vesturholt-
um.
Um Skógaskóla fjalla tveir höf-
undar, Jón R. Hjálmarsson og
Guðmundur Sæmundsson. Jóhann
G. Guðnason ritar um veðurfar í
Landeyjum 1996 og Ingólfur Guð-
mundsson frá Króki segir frá eftir-
minnilegri ferð á Holtamannaaf-
rétt.
Ritið um 320 bis., mikið mynd-
skreytt og kostar 2.100 kr. Ritið
fæst hjá héraðsnefnd Rangæinga
oghjá rítnefndarfólkinu Margréti
Björgvinsdóttur á Hvoisvelli, Sig-
urði Jónssyni í Odda og Guðmundi
Sæmundssyni í Skógum. IReykja-
vík erhægt að kaupa ritið hjá
Safnarabúðinni, Frakkastíg 7.
HEKLA, vatnslitamynd eftir
Andra Ólafsson, 11 ára.
TÓNLISTARFLUTNINGUR í La Scala, sem margir telja merkasta óperuhús heims.
Itölsku óperurnar
einkavæddar
Róm. The Daily Telegraph.
LA SCALÁ, sem margir telja
merkasta óperuhús heims, að öðr-
um ólöstuðum, verður lokað innan
skamms og hafnar á því gagnger-
ar endurbætur, sem Pirelli hjól-
barðaframleiðandinn og fleiri fyr-
irtæki greiða. Er húsið verður opn-
að að nýju verður það „einka-
vætt“, áðurnefnd fyrirtæki munu
standa straum af rekstrinum í stað
hins opinbera.
Þetta er hugmynd Walters
Veltroni, aðstoðarforsætisráð-
herra ítölsku vinstristjórnarinnar,
en hún kom fyrir skemmstu í gegn-
um þingið lögum sem losa hið
opinbera undan ábyrgð á rekstri
óperuhúsa og færa hana á herðar
einkaaðila. A þetta að gerast fyrir
árið 2000.
La Scala ríður á vaðið. Það er
sögufrægt hús þar sem Óþelló eft-
ir Verdi var frumsýndur árið 1887
og engu mátti muna að Madam
Butterfly eftir Puccini kolfélli þar
á frumsýningunni árið 1904.
Vandalítið hefur verið að fá fjár-
festa enda hefur þeim verið lofað
skattafrádrætti í staðinn.
Pirelli mun leggja fram um 200
milljónir ísl. kr. á ári næstu þijú
árin og greiða um fimmtung þeirra
fimm milljarða, sem talið er að
verkefni, sem hlotið hefur nafnið
„Scala 2001“ kosti. í því felst
mikil hátíð árið 2001 þegar haldið
verður upp á 100 ára ártíð Guis-
eppe Verdi, sem var nátengdur
húsinu í yfir hálfa öld. Á meðan
La Scala verður gert upp, verður
starfsemin flutt í 2.300 manna
byggingu sem stendur til að reisa
á iðnaðarlóðinni í Mílanó þar sem
Pirelli hóf starfsemi sína.