Morgunblaðið - 06.11.1997, Page 33

Morgunblaðið - 06.11.1997, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 33 Ást í meinum ATRIÐI úr leikritinu Hörpudiskar fóru í fjallgöngu. Hörpudiskar í flallgöngu BOKMENNTIR Skáldsaga ÁSTFÓSTUR Eftir Rúnar Helga Vignisson. Forlagið, 1997 - 256 bls. ÁSTFÓSTUR er einhvers stað- ar á milli þess að vera ástarsaga, siðferðileg saga og saga um rétt- læti og ranglæti. Við kynnumst fyrst aðalpersónunni Teklu þegar hún dvelur í heimavistarskóla í Skálholti. Örlögin haga því þannig að hún gengur gegnum hliðstæðar raunir á sama stað og Ragn- heiður biskupsdóttir, nokkrum öldum áður. Alveg eins og Ragn- heiður upplifir Tekla ást í meinum sem leiddi af sér ávöxt í meinum. Mótleikarinn í þessu ástarsambandi er þriggja barna faðir, séra Kolbeinn, rektor Skálholtsskóla. Þrátt fyrir stöðu sína og ábyrgð leyfir hann sér að láta tilfinningar sínar í garð Teklu bera skynsem- ina ofurliði. Sambandið er þeim jafndýrmætt og öflugt enda skynj- ar Tekla sig ekki vera neitt fórnar- lamb þrátt fyrir ungan aldur og litla reynslu. Ekki fyrr en í ljós kemur að hún er með barni. Þá skyndilega er hún ein með líf sitt, ein með ákvörðun sinni. Síðar á lífsleiðinni lendir Tekla í svipuðum aðstæðum nema þá er maðurinn annar, ásetningurinn annar og úrlausnin önnur. Exístentíalismi kemur fyrir aft- ur og aftur í þessari sögu. Nefnd- ir eru Nietzsche, Sartre og Camus eins og til að árétta að Tekla er ekki saklaust fórnarlamb óvin- veitts umhverfis. Þótt Tekla sé fórnarlamb aðstæðna lærir hún að snúa þeim sér í hag. Henni eru færð völd og hún fer með þau eins og hún kýs, vel eða illa eftir atvikum. Hún skapar sín örlög og það sem meira er: Hún skapar öðrum örlög. Hún lætur eyða fóstri, hún ákveður að eignast barn og hún ákveður hveijir verða elskendur hennar og hvenær. Sem aðalpersóna sögunnar er Tekla býsna fjarræn og nær ein- hverra hluta vegna ekki að vekja umtalsverða samúð lesandans þótt hún með athöfnum sínum opinberi fjölþreytilegan karakter. Ástarfarslýsingar eru mýmargar í þessari sögu en yfir þeim er oft- ast einhver doði. Þær eru firrtar lífí og tilfínningum, ófáar lýsingar á uppköstum Teklu eru frekar markaðar sársauka. Hlutir gerast í þessari sögu eins og í ófrávíkjan- legu dómínói. Persónurnar eru fáar. Auk Teklu eru helstir elskhugar hennar tveir, séra Kolbeinn og Kristófer. Mér sýnist séra Kolbeinn vera best gerða persóna sögunnar. Hann metur verðleika sína ekki mikils, enda hefur hann enga ástæðu til. Hann er breyskur, veikgeðja og sjálfselskur. Það sem hann predikar iðkar hann ekki. Þegar hann tekur fram hjá konu sinni með Teklu er hann tilbúinn að líta á það sem guðlega for- sjón og jafnvel hluta af tilbeiðslu. Bygging sögunnar er að mínu mati losara- leg. Sagan vindur sig áfram án teljandi risa eða hniga og atburðir, sem alla jafna ættu að teljast dramatiskir, verða það ekki í huga lesandans, kannski vegna þess hve samskipti persónanna eru átakalítil. Sögumaður, sem er fóstur (hug- arfóstur Teklu?), kemur ekki oft fyrir enda ankannalegt að þessi „ég“ sögunnar er í sjálfu sér enginn gerandi og ekki einu sinni raun- veruleg persóna. Stíll sögunnar er einfaldur en þroskaður. Enginn hörgull er á orð- um þegar lýsa þarf aðstæðum. Samtöl persóna eru gjarnan vel byggð og gætu vel sómt sér sem leikritstexti. Þetta allt staðfestir að hér skrifar reyndur höfundur. Ég verð að játa að í heild varð ég fýrir vonbrigðum með þessa skáldsögu. Þrátt fyrir söguefnið kveikti hún ekki almennilega í les- andanum mér. Sviðsetningar ná hvergi nauðsynlegri dramatík en þær eru heldur hvergi kómískar. Þrátt fyrir spennandi söguefni er framsetningin ekki nógu spennandi og persónurnar kalla ekki á sér- staka samúð. Þetta tilfínningalega söguefni vindur sig áfram, rökrétt en án þess að hafa viðeigandi áhrif á lesandann. Ingi Bogi Bogason LEIKFÉLAG Menntaskólans við Sund frumsýnir í kvöld, fimmtu- dag, kl. 20.30, leikritið Þrír hörpudiskar fóru í fjallgöngu eftir Baldur Má Vilhjálmsson sem jafnframt er leikstjóri. Leikendur eru: Birna Hall- dórsdóttir, Ingibjörg Magnús- SÝNING og kynning á íslenskri barna- og unglingamenningu í Kaþólsku akadeínunni í Hamborg, í samstarfi við íslenska mennta- málaráðuneytið, verður opnuð á morgun, fimmtudag. Á sýningunni gefur að líta yfír 300 íslenskar barna- og ungl- ingabækur, þar á meðal frumútgáfu af nokkrum bókum Jóns Sveinsson- ar - Nonna, bæði á íslensku og þýsku. Frummyndir 80 myndskreytinga úr barna- og unglingabókum hanga uppi í sýningarsölum. Einnig verða á sýningunni 15 stórar mynd- ir eftir börn sem eru afrakstur Listasmiðju Gagns og gamans í Gerðubergi. Sýningin verður opin til 20. janúar 1998. Á opnunardaginn kemur út bók á þýsku með greinum um íslenskar barnabókmenntir eftir Silju Aðal- steinsdóttur og myndskreytingar í íslenskum barnabókum eftir Mar- gréti Tryggvadóttur. í bókinni eru einnig 15 litprentaðar myndskreyt- ingar úr bókum. Sýningin verður opnuð við hátíð- dóttir, Berglind Einarsdóttir, Guðrún Ásta Tryggvadóttir, Benedikt Ingi Ármannsson, Stef- án Andrew Svensson, Fanney Finnsdóttir og Gunnþórunn Bender. Búninga hannaði Aðal- heiður Halldórsdóttir. Sviðs- mynd: Eiríkur Áki Eggertsson. lega athöfn í Kaþólsku akademíunni að kvöldi 6. nóvember. Þar munu Björn Bjarnason menntamálaráð- herra og Ingimundur Sigfússon sendiherra flytja ávörp, rithöfund- arnir Guðrún Helgadóttir og Kristín Steinsdóttir lesa upp úr verkum sín- um, Silja Aðalsteinsdóttir flytur tölu um sögu barnabókmennta, Olga Guðrún Árnadóttir syngur eig- in lög, Björg Vilhjálmsdóttir segir frá Listasmiðjunni Gagn og gaman og einnig verða sýnd tvö myndbönd sem unnin voru af börnum við það tækifæri. Af hálfu Þjóðverja munu flytja ávörp dr. Gunther Gorschen- ek, forstöðumaður Kaþólsku aka- demíunnar, prófessor Horst Scar- bath, forstöðumaður Institut fur Interdisziplináre Kultur- und Medi- enforschung, prófessor Leonhard Hajen, vísindamálaráðherra Ham- borgar og dr. Hans-Jochen Jasc- hke, vígslubiskup í Hamborg. Föstudaginn 7. nóvember verður efnt til málþings um barna- og unglingamenningu með þátttöku sérfræðinga í Þýskalandi. Þar verð- ur m.a. rætt um bókaútgáfu, barna- Ljósamaður: Eiríkur Ingi Böðv- arsson. Leikritið verður sýnt í „Skál- holti“ MS. Skálholt er nemenda- aðstaða Menntaskólans við Sund. Gengið inn bakdyramegin, þ.e. austanmegin. Leiklistarklúbbur- inn Frímann setur upp sýninguna. leikhús, barnabókmenntir, mynd- skreytignar og framboð á menning- arefni handa börnum á vegum Reykj avíkurborgar. Frú Vigdís Finnbogadóttir verður sérstakur heiðursgestur á hádegis- verðarfundi sunnudaginn 9. nóvem- ber í Kaþólsku akademíunni og mun þar ræða um hvernig íslensk barna- menning mætir kröfum nútímans. íslenskir rithöfundar og mynd- skreytir verða síðan næstu daga á faraldsfæti í Hamborg. Þær Guðrún Helgadóttir, Kristín Steinsdóttir og Olga Guðrún Árnadóttir munu heimsækja ótal skóla og lesa upp úr bókum sínum og ræða við börn. Áslaug Jónsdóttir mun vinna að myndlistarefni með yngri börnum í nokkrum leikskólum borgarinnar, þar sem hennar eigin sögur eru lagðar til grundvallar. Yfir 500 börn í Hamborg munu því þessa dagana hlusta á bókmenntir frá íslandi og starfa að myndsköpun með innblæstri frá skáldum okkar. Einnig munu kennarar koma með heilu skólabekkina í Kaþólsku aka- demiuna til að skoða sýninguna. Rúnar Helgi Vignisson Islensk barna- og ungl- ingamenning í Hamborg Sýningarsalur fyrir þá sem þora Morgunblaðið/Kristinn GALLERÍ Geysir í Hinu húsinu er vettvangur fyrir myndjist ungs fólks og sýningaraðstaðan er því að kostnaðarlausu. Ása Hauksdóttir hefur umsjón með starfseminni. GALLERÍ Geysir er nýr sýningar- salur í Hinu húsinu. Galleríinu er ætlað að vera vettvangur ungs fólks á aldrinum 16-25 ára, faglærðra sem ófaglærðra listamanna, ein- staklinga og hópa, sem ekki hafa sýnt opinberlega áður. Myndlistarkonan Ása Hauksdótt- ir hefur umsjón með rekstri sýning- arsalarinns. Mikið er um að mynd- listarnemar á listasviðum fjöl- brautaskólanna, í Iðnskólanum og í Myndlista- og handíðaskóla íslands óski eftir að fá að sýna en Ása legg- ur ríka áherslu á að allir geti sótt um og að fagleg menntun sé ekki skilyrði fyrir því að fólk fái að setja upp sýningu í Galleríinu. „Gallerí Geysir er tilraunavettvangur ungs fólks. Hér býðst því að setja upp sýningar sér að kostnaðarlausu, öll aðstaða er fyrir hendi og mitt hlut- verk er að leiðbeina fólki við að setja upp verk sín og vinna kynning- arefni, boðskort og sýningarskrá. Vonandi er þetta aðeins fyrsta skrefíð á listferli þessa fólks en það er mikilvægt að temja sér rétt vinnu- brögð frá upphafí." Umsóknareyðublöð fyrir sýningar er hægt að fá í afgreiðslu Hins húss- ins. Menningarsveit Hins hússins fer yfír allar umsóknir sem berast og reynt er að hleypa sem flestum að þó fjöldi sýninga á hveiju ári tak- markast við 12, sýningartími hveiju sinni er 3 vikur. Nýútskrifaður myndlistarmaður úr Myndlista- og handíðaskóla íslands, Egill Sæ- bjömsson, reið á vaðið með fyrstu sýningu Gallerís Geysis í síðasta mánuði. Nú stendur yfír sýning á verkum þeirra sem tóku þátt í list- amaraþoni Unglistar, listahátíðar ungs fólks. Ása segir að stefnt sé að sem mestri fjölbreytni í sýning- arhaldi. „Við erum opin fyrir allri gerð myndiistar og hönnunar. Mér þætti t.d. spennandi að sjá verk þar sem unnið væri gagngert með rými sýningarsaiarins, því möguleikamir em margir." Stórir gluggar salarins, sem snúa út að Vesturgötu, gera það að verkum að hægt er að skoða sýn- ingar Gallerísins allan sólarhringinn. Opið er frá 8 til 12 á kvöldin á virk- um dögum og 12 til 18 um helgar. „Gífurlega mikill umgangur er um húsið á hveijum degi. Markmiðið er að hjálpa ungu listafólki að koma sér á framfæri en vonandi vekja sýningarnar áhuga allra þeirra sem hingað koma á myndlist og öðrum myndlistarsýningum," segir Ása. Hreinlætistæki í miklu úrvali Borgartúni 28 • Sími 5621566

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.