Morgunblaðið - 06.11.1997, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 39
AÐSENDAR GREINAR
Unnið er að því að bæta skip-
stjórnar- og vélsljóranám
UMRÆÐUR um
skipstjórnar- og vél-
stjóranám hafa að
undanförnu einkum
snúist um húsnæðis-
mál. Stafar þetta af
því, að menntamála-
ráðuneytið hefur
hreyft hugmyndum
um að flytja starfsemi
Stýrimannaskólans í
Reykjavík og Vélskóla
íslands í nýtt hús-
næði. Byggjast tillög-
ur ráðuneytisins á fag-
legum og fjárhagsleg-
um sjónarmiðum, sem Björn
stjórnvöldum ber að Bjarnason
hafa að leiðarljósi,
þegar teknar eru ákvarðanir.
Nýbreytni í
skipstj órnarnámi
Um langt árabil hafa menn haft
af því töluverðar áhyggjur, hvert
stefndi í skipstjórnarnáminu. Nem-
endum hefur fækkað. Námskráin
hefur ekki verið talin svara kröfum
tímans og skipan námsins hefur
verið talin óviðunandi. Hafa nefnd-
ir og starfshópar samið tillögur og
skýrslur.
Á árinu 1996 tók ég af skarið
í þessu efni. Er ekki lengur verið
að ræða málið heldur unnið að
framkvæmd tillagna um að nám-
inu verði skipt í tvennt. Annars
vegar bjóða sjö framhaldsskólar
um land allt tveggja ára grunnnám
á sjávarútvegsbraut. Hins vegar
verður boðið tveggja ára nám í
fagskóla til þriðja
stigs skipstjórnarrétt-
inda.
Námskrá fyrir sjáv-
arútvegsbrautina var
send skólum í haust.
Aðsókn er ekki mikil
ennþá, því að nú í vet-
ur er í síðasta sinn
boðið nám á grundvelli
gamla kerfisins.
Námskrárvinna
vegna tveggja síðari
ára skipstjóranámsins
er að heíjast. Er stefnt
að því að kennsla hefj-
ist á nýjum grunni
haustið 1999. Kennt
verður samkvæmt
áfangakerfi og veldur það breyt-
ingu á skipulagi Stýrimannaskól-
ans í Reykjavík, sem er bekkja-
kerfisskóli.
Um nokkurt árabil hefur verið
unnt að stunda skipstjórnarnám við
þijá skóla: Stýrimannaskólann í
Reykjavík, Verkmenntaskólann á
Akureyri - sjávarútvegssviðinu á
Dalvík og í Vestmannaeyjum. Allir
þessir skólar munu bjóða sjávarút-
vegsnám. Ætlunin er að fagnámið
verði unnt að stunda í Stýrimanna-
skólanum í Reykjavík. Nemenda-
fjöldi ræður hvort unnt verður að
bjóða slíkt nám á Dalvík eða í
Vestmannaeyjum.
Er ætlan mín að Stýrimanna-
skólinn í Reykjavík verði kjarna-
skóli á sínu sviði og er unnið að
því að skilgreina hlutverk hans í
samræmi við það.
Undanfarið hafa verið
teknar mikilvægar
ákvarðanir til að bæta
skipstjómar- og vél-
stjóranám. Björn
Bjarnason telur nauð-
synlegt að starfsgrein-
amar taki af skarið um
frekari hlutdeild sína.
Vélstjóranámið
Sæmileg sátt hefur náðst um
inntak hins nýja skipstjórnarnáms.
Hið sama er ekki unnt að segja
um vélstjóranámið. Þar eru út-
gerðarmenn og forystumenn vél-
stjóra á öndverðum meiði. Þessir
aðilar mynda hins vegar bakhjarl
skólans og er mikilvægt að ná sátt-
um milli þeirra, til að innra starf
skólans þróist. Fyrir tilstilli
menntamálaráðuneytisins er nú
unnið að slíkum sáttaumleitunum.
Vélskólanum var breytt í
áfangaskóla 1981 og meðalnáms-
tími þar er nú um fimm ár. Eftir
að áfangakerfið verður komið í
Stýrimannaskólann er traustari
grundvöllur fyrir faglegu samstarfi
hans við Vélskólann en til þessa.
Er unnið að því fyrir forgöngu
menntamálaráðuneytisins í sam-
vinnu við skólana að samhæfa starf
þeirra í áfangakerfinu.
Rekstur skólanna
Um það hefur verið rætt, að
flytja ætti skipstjórnarnámið alfar-
ið úr Reykjavík. Bent hefur verið
á þá þróun, sem orðið hefur síðan
kennsla hófst á Dalvík og í Vest-
mannaeyjum. Reykjavíkurskólinn
hefur stundum átt fullt í fangi með
að fá nemendur. Til dæmis heimil-
aði ég styttingu siglingatíma
þeirra, sem fara í skipstjórnarnám
úr 24 mánuðum í sex í því skyni
að örva aðsókn að náminu. Orkar
slík ákvörðun vissulega tvímælis. Á
síðasta vetri var engin kennsla á
þriðja stigi Stýrimannaskólans, en
á því öðlast nemendur réttindi til
skipstjórnar á farskipum. Sóttu
aðeibs fjórir nemendur um far-
manninn það haust. Var þetta í
fyrsta sinn frá stofnun Sjómanna-
skólans árið 1891, sem ekki var
unnt að kenna þriðja stigið vegna
nemendaskorts.
Þar til ný framhaldsskólalög
gengu í gildi 1. ágúst 1996 voru
sérstök lög um skipstjómar- og
vélskólanám. Nú fellur það undir _
framhaldsskólalöggjöfina og eru *
skólarnir í Reykjavík sérskólar á
grundvelli þeirra laga. Á fundi með
forráðamönnum útgerðarmanna og
farmanna- og fiskimanna í maí síð-
astliðnum hreyfði ég því, að at-
vinnugreinin sjálf tæki að sér að
reka þessa skóla á svipuðum for-
sendum og Verslunarskólinn er rek-
inn af verslunarmönnum með samn-
ingi um fjárveitingar úr ríkissjóði.
Sjávarútvegsráðherra nefndi þenn-
an kost síðan í sjómannadagsræðu
sinni á þessu ári. Kristján Ragnars-
son, formaður Landssambands ís-^
lenskra útvegsmanna, lét þau orð
falla nýlega, að honum þætti þessi
hugmynd álitlegri, eftir því sem
hann hugleiddi hana frekar.
Vilji útgerðarmenn og sjómenn
láta meira að sér kveða við stjórn
og rekstur þessara skóla, er þetta
rétti tíminn til að taka af skarið
um það. Á þetta ekki síst við um
skipstjórnarnámið.
Höfundur er
menntamálaráðherra.
í pípum og plötum sem má þrýsta
og sveigja, laust við CFC, í sam-
ræmi við ríkjandi evrópska staðla.
Hentar vel til einangrunar kæli-
kerfa fyrir loftræsti- og hitakerfi,
og fyrir pípulagningar.
Leitið frekari upplýsinga
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29,108 REYKJAVÍK.
SÍMI553 8640 / 568 6100.
ÞÞ
&co
SVIPMIKILL EÐALVAGN
frá aðeins 1.778 þúsund krónum!
Hyundai Sonata er flaggskip Hyundai flotans;
svipsterkur og glæsilegur bíll á góðu verði.
Hyundai er breiður og rúmgóður eðalvagn
meó 139 hestafla 2000 vél og er einstaklega
lipur og mjúkur í akstri. Tveir liknarbelgir,
ABS bremsukerfi, styrktarbitar í hurðum o.fl.
tryggir öryggi farþeganna.
N Ú ER LAG - SONATA
<B>
HYunoni
- til framtiðar
B&l, Suðurtandsbraut 14 & Ármúta 13, Sfmi: 575 1200, Söludeitd: 575 1220,
Fax: 568 3818, Emait: bl@bl.is, Internet: www.bl.is
f ( I O