Morgunblaðið - 06.11.1997, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 06.11.1997, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Breiðbandið Á NÆSTUNNI munu '%ndsmenn verða varir við miklar nýjungar á sviði sjónvarpsdreifing- ar og þykir mörgum meira en tími til kominn. Breiðbandið er á leið- inni, sem gefur óteljandi möguleika fyrir lands- menn að tengjast inn í framtíðina. Við munum sjá innan tíðar gagn- virkt sjónvarp, stafrænt sjónvarp, erlendar sjón- varps- og útvarpsrásir ýmislegt fleira góð- gæti fyrir augu og eyru. Urmull nýrra fyrir- tækja hefur undanfarin misseri haslað sér völl vegna þeirra tækninýjunga sem eru sífellt að skapast og má í því sambandi nefna félög um nýsköpun á sviði Intemet möguleika og fl. í þeim dúr. íslenska sjónvarpsfélagið er einmitt eitt slíkra fyrirtækja, sem hefur í hyggju að hasla sér völl á sviði sjónvarps- mála landsmanna og innleiða ný sóknarfæri í sjónvarpsmálum. Mörgum má enn vera í minni til- koma fyrstu myndbandstækjanna hingað til lands, sem þykja nú sjálf- sagður hluti þess tíma sem við eyð- -vjim í afþreyingu hverskonar, og má ekki gleyma tölvum sem á örfáum árum hafa þróast gífurlega hratt. Það sem þykir kannski í dag einung- is höfða til fámenns hóps tækni- glaðra einstaklinga, eru framtíðar- tæki fjöldans. Það hefur því stund- um verið erfítt að lesa í framtíðina, en sumir hafa haft heppnina með sér, samanber víðsýna einstakiinga sem tileinkuðu sér myndbandið og útbreiðslu þess hér á landi. En, síð- an eru liðin mörg ár. Tólf, fjórtán _ ár sem segir okkur það að fjöldinn er lengi að taka við sér, og nú er framundan næsti vaxtarbroddur, sjónvarpsdreifing. Breiðband Pósts & síma hf. var mikið fagnaðarefni fyrir félag eins og okkar, og því var ráðist í viðræð- ur um leið og það var gert heyrin- kunnugt að kerfið væri nær tilbúið. Við rukum af stað, gerðum sam- starfssamninga við erlendar stöðvar og í framhaldi af því var sótt um leyfi til útvarpsréttarnefndar. Fé- lagið sótti um 11 leyfi, en fékk að- eins eitt. Grátlegt, en staðreynd engu að síður, af hveiju, jú, það vantar lög og reglugerðir um fyrir- bærið breiðband. Af hveiju var ekki ráðist í það fyrr, spyr sá sem ekki veit? Þó var ákvörðun nefndarinn- ar breytt er fyrir lágu nýjar upplýsingar af hálfu forráðamanna P&S. Því er líklegt að allar umsóknir verði samþykktar og það sem meira er, þess má jafnvel vænta að P&S sýni meiri samnings- vilja heldur en hingað til. Það er nefnilega staðreynd að félagið hefur hiotið lítinn hljómgrunn hjá stofnuninni sem lít- ur félagið hornauga af því við erum einnig með samninga við margar erlendar stöðvar og höfum rekist þar af leiðandi allhressilega saman og samkeppnin tekur nefnilega á sig undarlegustu form. Af hveiju íslenska sjónvarpsfé- lagið mun á næstunni, segir Hólmgeir Bald- ursson, hefja formlega útsendingu á vönduðu sjónvarpsefni inni á breiðbandskerfí Pósts og síma. er ekki sagt hreint út, við erum flutningsfyrirtæki, það er nóg pláss fyrir alla sem hafa efni, innlent eða erlent, við dreifum og rukkum. Síð- an er það kúnnans að ákveða hvaða pakka hann velur. Samkeppni, ekki fákeppni, takk fyrir, einokun er búinn að vera. Sjónvarpið og Stöð 2 ættu einnig að líta í þá átt að bjóða aðgang að sínum dreifíkerf- um, gegn gjaldi auðvitað. Hvernig annars ætla menn að stuðia að framþróun í sjónvarpsmálum lands- manna? Þetta er í sjálfu sér ekki flóknari samlíking en að reka kvik- myndahús, og sýna fyrir aðra sem gætu átt sýningarrétt á einni og einni mynd. Það væri óskandi að forráðamenn þessara fyrirtækja færu að tileinka Hólmgeir Baldursson ÐataCard Plastkortaprentarar fyrir félaga- og viðskiptakort Gæðaprentun í lit Otto B.Arnar ehf. ÁRMÚLA 29 • 108 REYKJAVÍK SÍMI 588 4699 • FAX 588 4696 PCI lím og fúguefni lis !í» Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 567 4844 DEMANIAHÚSIÐ Okkn’c snxídi cHnnfAi cHálsmen Jlokkai AJ œlui veid Kringlunni sími 588 9944 Hverjum get- urðu treyst? sér breytta hugsunarhætti, og hættu að beija hausnum við steininn með því að hugsa bara um það hvernig er hægt að útiloka aðra frá markaðnum og gína sjálfir yfir öllu. Ef þetta viðhorf breytist ekki, kemur bara einhver annar stærri en sá sem er fyrir og gleypir hinn og allir tapa á endanum, mest þó kúnninn sem er að missa af öllu því fjölbreytta úrvali sem er framleitt af sjónvarps- efni og kemst aldrei í loftið. Upphaflega hugmyndin var sú að veita erlendum stöðvum brautar- gengi og þegar og ef markaðurinn væri orðinn nægjanlega stór var ætlunin að hefja dreifingu textaðrar stöðvar með úrvalsefni. Það er einu sinni þannig með sjónvarpsrekstur að erlent efni eitt og sér nægir ekki til að auka almennt áhorf. Ekki veit ég hversu margir tengjast fjöl- varpi IÚ, en mér segir svo hugur um að einungis brot horfi að jafn- aði á erlendu stöðvamar. íslending- ar vilja textað og talsett efni, við erum alin upp við það af Ríkissjón- varpinu, og því eins gott að gera sér grein fyrir þessu strax. En stað- reynd málsins er sú að kostnaður við sýningu t.d. einnar kvikmyndar getur verið í kringum 300.000 krón- ur, og því þarf eðlilega að vera til staðar öruggt viðskiptaumhverfi, sem stuðlar að réttri útkomu, með sölu áskriftar og auglýsinga. Það er eitt stórt flopp á sviði sjónvarps- rekstrar ennþá mörgum minnistætt og vonandi verða ekki fleiri í fram- tíðinni. Og þegar til kemur kerfi eins og breiðbandskerfi P&S, eru forsendur fyrir fyrri mistökum nær útilokaðar, og vonandi taka þeir aðilar sem geta tengst kerfinu því fagnandi. Við lifum í landi reglugerða sem við að sjálfsögðu lútum, en okkur finnst að einkaframtak í sjónvarps- rekstri búi ekki við sömu lögmál og eru t.d. í Internet-málum þar sem útvarp og sjónvarp framtíðarinnar koma til með að verða stór hluti. Samræma þarf lög og reglugerðir í ríkisgeiranum, þannig að allir sitji við sama borð. Við munum að sjálfsögðu nýta okkur þau leyfi sem okkur var út- hlutað og höfum hafið af fullum krafti undirbúning að útsendingu dagskrár sem mun væntanlega koma iandsmönnum fyrir sjónir á næstunni. Við fögnum innilega þeim áfanga að vera meðal þeirra aðila sem eru að stuðla að nýsköpun í sjónvarps- málum og auka þar með aðgengi almennings að fijálsu vali á sjón- vaipsefni. Islenska sjónvarpsfélagið mun á næstunni hefja formlega útsendingu á vönduðu sjónvarpsefni inn á breið- bandskerfi Pósts & Síma og hlökk- um mikið til að stuðla að frekari framþróun og útbreiðslu kerfisins ásamt þeim aðilum sem þegar hafa staðfastlega áformað að vera með svo sem Barnarásinni, sem er gott og þarft framtak. Jafnframt er ætl- unin að dreifa efni íslenska sjón- varpsfélagsins um örbylgju í byijun næsta árs og stuðla þar með að frekari aðgengi félagsins til þeirra er njóta móttökuskilyrða gegnum örbylgju og eru enn ekki á dreifing- arsvæði breiðbandsins. Við hvetjum því þau heimili sem nú geta tengt sig við kerfið að afla sér upplýsinga hjá Pósti & Síma um framkvæmd uppsetningar og stuðla þar með að auknu framboði og frelsi með fijálsu vali í sjónvarpi framtíð- arinnar. Höfundur er formaður íslenska sjón varpsfélagsins. Á VORI komanda fá Reykvík- ingar þann heiður að kjósa milli tveggja hagsmunahópa í pólitík. Annar er Sjálfstæðisflokkurinn, sem er hægrisinnaður og styður við misrétt- ið almennt. Hann má eiga að það gerir hann fyrir opnum tjöldum. Hann einfaldlega trú- ir ekki á jafnrétti. Svo mörg voru þau orð. Hinsvegar er flokkasamsteypa þar sem tortryggnin kraumar undir. Engu er líkara en andstæð- ingurinn hafi komið Trójuhesti þar inn sem í er Framsókn. Kratar, Kvennalisti og Alþýðubandalag hafa tilburði en engan sjáanlegan áhuga að gera eitthvað fyrir fólkið úr þessum hrærigraut sem flokkarnir eru orðnir. Jafnað- arflokkur er það sem fólk vill. En einkahagsmunirnir eru félögum R-listans fjötur um fót sem víðar og skoðanamunur er með ólíkind- um. Samstaða um þjóðarhagsmuni á mjög erfitt uppdráttar. Hinn ógnvænlega hver er sjálfum sér næstur stefna, virðist vera að ryðja samkennd og öðrum góðum gild- um frá. í hrikalegu Davíðs borgar- stjórnarbruðli, þegar borgin varð hættulega skuldug, grisjaðist þó margt vel gert út úr þeim fjára- ustri. Sumt líktist að vísu minnis- vörðum sjálfbirgingsfullra ríkis- stjórnenda fyrri alda sem létu sér í léttu rúmi liggja fjárhag ríkja sinna. Einn slíkur er ráðhúsið, of- boðslega dýrt, óhagkvæmt og byggt á kolröngum stað og kemur eins og skrattinn úr sauðarleggn- um við umhverfið. En svo er Nesjavallaveita, lögnin þaðan, línuvegurinn, uppbyggingin í Við- ey, Laugardalsgarðarnir og Perlan sem eru snilldarverk þó deila megi um kostnað, arð og tímaval sumra þeirra. Hraði framkvæmda hefur oft verið of mikill og gert verkin óþarflega dýr og valdið þenslu. Uppgræðsla innan borgarmarka hefur verið til fyrirmyndar. Skuldabaggann sem R-listinn erfði hefur hann reynt að greiða niður. Tíminn er að vísu skamm- ur, en góðærið hlýtur að hafa gef- ið byr í seglin. R-listinn erfði líka rangar ákvarðanir í sorpeyðingar- og frárennslismálum borgarinnar. í báðum var byijað að vinna og erfitt að breyta, þó slíkt hefði átt að gerast þegar í stað. Rangt er að sakfella R-listann vegna hol- ræsaskatts. í öllum tilfellum hefði hann komið, nema uppáhaldsað- ferð Sjálfstæðisfl. væri notuð, það er erlend lán. Hver og hvenær átti að borga þau? R-listinn hefur dreift kröftum sínum. Hann hefur farið gruflandi með hangandi hendi og eiginlega erfitt að sjá til hvers hann kom, nema það hafi verið að vekja íhaldið til umhugsunar um margar afleitar ákvarðanir og bruðl. Margt orkar tvímælis og þá er að kunna skil. R-listinn getur ekki hælt sér af mannúðarmálum. Það var ekki í þágu aldraðra þegar R-list- inn gerði þriðjungs- minnkunn þjónustum- iðstöðvar í Mjóddinni að skilyrði fyrir fylgi sínu við hana. Það er ekki í þágu fatlaðra að draga úr bílakaup- um til ferðaþjónustu þeirra, eins og R-list- inn hefur gert. Þar eru þrír bílar eknir um og yfir 400.000 km, tveir um 300.000 km og sá nýjasti yfir 150.000 km. Mengun er orðin viðloðandi i sumum bílanna. Fatl- aðir og aðstoðarfólk þeirra eiga sýnilega ekki allsstaðar upp á pallborðið. Það er ekki borgar- stjórn eða stjórnendum SVR að þakka að bílarnir eru ekki orðin ónýt brök og slysavaldar. Það er alfarið samviskusömum afbragðs- bílstjórum ferðaþjónustunnar að Stjórnarstefnan í öllu kerfínu, segir Albert Jensen, er yfírfull af sýndarmennsku og út- úrsnúningum. þakka. R-listinn hefur ekki náð að virkja embættismenn. Hann réð forstjóra hjá strætisvögnum SVR sem með persónutöfrum sín- um sneri flestum starfsmönnun- um til íhaldstrúar. Það er gott að geta byggt brýr hér og opinberar byggingar þar. Það þykir fínt að dæla holræsa- skolpi út á grunnslóð fiska og hola niður hér og þar plöstuðu sorpi. Landið skal kaffært í vatni og mengun hvað sem það kostar. En þegar kemur að því að hlúa að fólkinu sjálfu í raun, þá hverfa allir peningar eins og dögg fyrir sólu. Um alla borgina, já um allt land, liggur kvalið fólk vegna ómannúðlegrar stefnu stjórn- valda í heilbrigðismálum. Stjórn- arstefnan í öllu kerfinu er yfir- full af sýndarmennsku og útúr- snúningum. Þegar hræsnin svíf- ur svona yfir vötnunum, hvað eiga þá þeir sem verst standa gagnvart slíku, láglaunafólkið, aldraðir og öryrkjar, að gera? Á þetta ágæta fólk að gefast upp og láta allt ganga yfir sig? Nei, það á að snúast til varnar. Það eina sem kemur því til góða eru eigin stjórnmálasamtök. Það hef- ur margsýnt sig að öll barátta þessa fólks innan allra núverandi flokka er einungis kjánaleg tíma- eyðsla. Varast þarf þá sem eru njörvaðir flokkunum. Höfundur er byggingameistari. Albert Jensen 3 É % Á\ j!V /'. sx.J'vr, \i\iaun CIHSTAKTINN J J UTILB0A KLUB6UR cniiK nr.iviiiD' FOLKSOG FYRIRTÆKJA Er þitt fyrirtæki búið að skrá þig? # Stöðug endurmenntun starfsmanna með lágmarks tilkostnaði. Skráðu þiq strax Sími 550 3000 Brefosími 550 3033 Heimosíða www.betriarangur.is VAKA-HBjGAFHI mmm
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.