Morgunblaðið - 06.11.1997, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 51
I
I
1
I
(
I
(
(
4
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
FRETTIR
Verslun með vörur frá Pakistan
BRIDS
Umsjón Arnór G.
R a £ n a r s s o n
Bridsfélag Suðurnesja
GÍSLI Torfason, Pétur Júlíusson og
Jóhannes Sigurðsson sigruðu í
hausttvímenningnum, sem lauk sl.
mánudagskvöld en þeir spiluðu 3 í
pari. Spilað var í 4 kvöld og hæsta
skor í 3 kvöld réð úrslitum til verð-
launa í mótinu. Þeir félagarnir spil-
uðu aðeins í þijú kvöld og skoruðu
vel öll kvöldin og fengu 62,60%
meðalskor. Garðar Garðarsson og
Bjarni Kristjánsson urðu í öðru sæti
með 61,89% skor en mistök urðu í
útreikningi 3ja kvöldsins sem ollu
því að skor þeirra lækkaði. Arnór
Ragnarsson og Karl Hermannsson
urðu í þriðja sæti með 60,12% skor
en þeir skoruðu grimmt (65,48%) í
síðustu umferðinni en áttu þó aldrei
möguleika eftir slaka byijun fyrstu
kvöldin. Gunnlaugur Sævarsson,
Ragnar Öm Jónsson og íþrótta-
kempan Sigurður Steindórsson urðu
í 4. sæti með 55,76% og Óli Þór
Kjartansson og Kjartan Ólason
fimmtu með 55,5% skor.
Hæsta skor í N/S síðasta spila-
kvöld:
Óli Þór Kjartansson - Kjartan Ólason 191
Gísli R. ísleifss. - Sigurður Siguijóns. 180
ÞrösturÞorláksson - Einar Júlíusson 179
Hæsta skor í A/V:
Karl Hermannsson - Amór Ragnarsson 220
Gunnl. Sævarsson - RagnarÖm Jónsson 190
Sigfús Ingvason - Helgi Guðleifsson 185
Nk. mánudagskvöld hefst aðal-
sveitakeppni vetrarins. Spilað er í
Mána, félagsheimili hestamanna og
bridsfélaganna á Suðurnesjum við
Sandgerðisveg og hefst keppnin
klukkan 19.45.
Bridsfélag SÁÁ
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 2. nóv-
ember 1997 var spilaður eins kvölds
Mitchell-tvímenningur. 10 pör spil-
uðu 5 umferðir, 5 spil á milli para.
Meðalskor var 100 og efstu pör
urðu þessi:
NS
Jóhann Mapússon - Kristinn Karlsson 122
FriðrikSteingrímsson-BjömBjömsson 96
AV
JónH.Hilmarsson-GuðbjömÞórðarson 123
Þorleifur Þórarinsson - Rúnar Hauksson 113
Keppnisstjóri var að venju Matt-
hías Þorvaldsson og verður haldið
áfram með eins kvölds tvímennings-
keppnir. Keppt er um verðlauna-
gripi á hveiju sunnudagskvöldi og
afhending verðlauna fer fram með
formlegum hætti að lokinni spila-
mennsku. Félagið vill hvetja sem
flesta til að mæta,_spilað er í hús-
næði Úlfaldans, Ármúla 40, og
hefst spilamennska stundvíslega
klukkan 19.30.
Stórmót Bridsfélagsins Munins
og Samvinnuferða-Landsýnar
STÓRMÓT Bridsfélagsins Munins
í Sandgerði og Samvinnuferða-
Landsýnar fer fram laugardaginn
15. nóvember nk. í húsi félagsins
við Sandgerðisveg.
Heildarverðlaun verða 166 þús-
und krónur. Fyrstu verðlaun eru
70 þúsund kr., önnur verðlaun 50
þúsund, þriðju verðlaun S/L-vinn-
ingur að verðmæti 30 þúsund, 10
þúsund krónur eru fyrir 4. sætið
og 6 þúsund kr. fyrir 5. sætið. Auk
þess er boðið upp á léttar veitingar
í mótslok. Keppnisgjald er 6000
krónur á parið.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
MÁNUDAGINN 3. nóvember var
þriðja spilakvöld í aðaltvímenningi
félagsins, A. Hansen mótinu. Úrslit
kvöldsins urðu þessi:
Guðm. Magnúss. - Ólafur Þ. Jóhannss. 93
Bjami Ó. Sigursveinss. - Njáll G. Sigurðss. 66
Björn Bjömsson - Friðrik Steingrímsson 62
Þorsteinn Kristmundss. - Ársæll Vigniss. 24
Aðaltvímenningnum lýkur næsta
mánudagskvöld 10. nóvember, en
þá verða spilaðar 5 umferðir. Móti.ð
er ennþá galopið á alla kanta þótt
tvö pör hafi tekið nokkra forystu
og ennþá getur allt gerst. Staða
efstu para að loknum 16 umferðum
er þessi:
Guðm. Magnúss. - Ólafur Þ. Jóhannss. 125
Ómar Olgeirsson - Matthías Páll Imsland 94
Hulda Hjáimarsdóttir - Halldór Þórólfsson 54
Guðni Ingvarsson - Erla Siguijónsdóttir 52
Guðbr. Sigurbergss. - Friðþjófur Einarss. 49
Ásgeir Ásbjömsson - Dröfn Guðmundsd. 46
Spilarar eru svo minntir á að nú
er orðið tímabært að fara að huga
að myndun sveita fyrir aðalsveita-
keppnina, sem hefst 17. nóvember.
OPNUÐ hefur verið ný verslun
í Ármúla 23 í Reykjavík, Kar-
atchi, sem rekin er af Ester
Sveinbjarnardóttur og Ásdísi
Frímannsdóttur.
Þar er boðið upp á handunn-
ar vörur frá Pakistan, svo sem
Félagsfund-
ur Samtaka
lungna-
sjúklinga
NÆSTI félagsfundur Samtaka
lungnasjúklinga verður haldinn í
dag, fimmtudag, í safnaðarheimili
Hallgrímskirkju í Reykjavík kl.
20.30.. Á fundinum mun Þorsteinn
Blöndal, yfirlæknir á Heilsuvernd-
arstöð Reykjavíkur halda fyrirlest-
ur sem hann nefnir Nýtt og gam-
alt um íslenskar og kínverskar
lækningar. Félagsfundurinn er öll-
um opinn jafnt félagsmönnum sem
velunnurum Samtakanna.
Markmið Samtakanna er að
vinna að velferðar- og hagsmuna-
málum lungnasjúklinga. Fræðsla
er einnig ofarlega á dagskrá. Er
borðstofuhúsgögn, sófasett,
svefnherbergissett, kasmírull-
argólfteppi, bastsófasett, Ieður-
jakka, frakka og belti, pelsa,
silkisatínrúmföt og gjafavörur
úr tré, látúni og marmara, að
því er segir í fréttatilkynningu.
þessi fyrirlestur í röð fræðslufyrir-
lestra og eru 3 aðrir fyrirhugaðir
eftir áramót. Markmiðum sínum
hyggjast samtökin ná með því m.a.
að halda uppi öflugu félagsstarfi
og efla þannig samkennd lungna-
sjúklinga og aðstandenda þeirra,
byggja upp forvarnir hvers konar,
efla rannsóknir og koma upp
öflugri fræðslu- og upplýsingamiðl-
un.
Matreiðslu-
námskeið í
jurtaréttum
MATREIÐSLUNÁMSKEIÐ í jurta-
réttum verður haldið í Suðurhlíða-
skóla, Suðurhlíð 36 í Reykjavík
dagana 9., 10., 11. og 12. nóvem-
ber. Námskeiðin hefjast kl.19.45
hvert kvöld. Leiðbeinandi er Gabrí-
elle Calderara, næringarfræðingur
við sjúkrahús/heilsustofnun
skammt frá Genf í Sviss. Hún er
virkur meðlimur í félagi Banda-
rískra næringarfræðinga og fylgist
vel með nýjustu rannsóknum í nær-
ingarfræði. Gabríelle, sem er frönsk
að uppruna, hefur haldið fjölda fyr-
irlestra um Evrópu og haldið fjölda
matreiðslunámskeiða, segir í frétta-
tilkynningu.
Námskeiðin byggjast þannig upp
að fyrst verður stuttur fyrirlestur,
síðan sýnikennsla í matreiðslu og
að lokum munu þátttakendur fá að
bragða hina ýmsu jurtarétti og fá
í hendur uppskriftir og fleira. í fyr-
irlestri sínum mun Gabrielle fjalla
um mikilvægi hinna mismunandi
fæðuhópa og hvernig hægt sé að
tryggja næringarlegt jafnvægi með
fæðu úr jurtaríkinu. Einnig mun
hún leitast við að svara spumingum
eins og „Skiptir mataræði miklu
máli varðandi hina ýmsu menning-
arsjúkdóma svo sem beinþynningu,
krabbamein og hjarta- og æðasjúk-
dóma“?
Öll námskeiðin verða þýdd á ís-
lensku.
Fundur um sorg
og sorgarvinnu
FUNDUR um sorg og sorgarvið-
brögð verður í safnaðarheimili
Langholtskirkju fimmtudaginn 6.
nóvember kl. 20.30.
Þessi fundur er samstarfsverk-
efni Langholts- og Laugamessókna
en er öllum opinn. Þar mun sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson fjalla um sorg-
ina og úrvinnslu hennar en einnig
munu sr. Jón Helgi Þórarinsson og
Svala Sigríður Thomson, djákni,
taka til máls. Þeim sem áhuga
hafa verður síðan boðið upp á að
taka þátt í 8-10 tíma námskeiði
um sorg og sorgarviðbrögð sem
hefst innan skamms, en þar verður
farið yfir bók sr. Karls Sigurbjöms-
sonar Til þín sem átt um sárt að
binda.
Allir eru velkomnir á þennan
fund en nánari upplýsingar eru
veittar í Laugarneskirkju og Lang-
holtskirkju.
AUGLYSINGA
Er alnæmi úr sögunni?
Námstefna um alnæmi verður haldin á Hótel
Lind, Rauðarárstíg 18, föstudaginn 7. nóvem-
ber kl. 13.15.-17.00.
Námstefnan er haldin í samvinnu Alnæmis-
samtakanna, Rauða kross íslands og Þjóðkirkj-
unnar.
Dagskrá:
Dr. Haraldur Briem:
Baráttan við alnæmi stendur enn
Percy Benedikt Stefánsson:
Vondur draumur eða veruleiki. Frá sjónar-
hóli aðstandanda
Sigurlaug Hauksdóttir félagsráðgjafi:
Lítil rannsókn á aðstæðum alnæmissjúkra
Séra Jóna Lísa Þorsteinsdóttir:
Alnæmi og innri kreppa
Rannveig Pálsdóttir læknir:
Hvert er markmið forvarna?
Fyrirlesarar svara spurningum úr sal.
Námstefnustjóri: Elísabet Þorgeirsdóttir ritstjóri.
Námstefnugjald er 500 kr. - kaffi og meðlæti
innifalið.
Allir velkomnir!
Aðaffundur Hesta-
mannafélagsins
Fáks
Aðalfundur Hestamannafélagsins Fáks verður
haldinn í Félagsheimili Fáks að Víðivöllum
miðvikudaginn 12. nóvember kl. 20.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf og lagabreytingar.
Fáksfélagar, mætum allir.
Stjórnin.
Ferðaþjónusta á Suðurlandi
Aðalfundur — afmælishátíð —
uppskeruhátíð
• Aðalfundur Ferðamálasamtaka Suðurlands
verður haldinn á Hótel Geysi föstudaginn
14. nóvember 1997 kl. 10.00. Á dagskrá eru
venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar
og önnur mál.
• Lagt verður af stað í óvissuferð í tilefni
fimmtán ára afmælis samtakanna kl. 14.00
frá Hótel Geysi.
• Um kvöldið verður haldin uppskeruhátíð
ferðaþjónustunnar á Suðurlandi og hefst
borðhald kl. 19.30.
• Nánari upplýsingar veitir Jóhanna í síma
487 4840, Ásborg í síma 486 8810 og Svanur
í síma 482 3440.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftítöldum fasteignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Breiðstaðir, Skarðshreppi, þingl. eigandi Benedikt Agnarsson, eftir
kröfu Stofnlánadeildar landbúnaðarins, miðvikudaginn 12. nóvember
1997, kl. 11.00.
Skagfirðingabraut 37, n.h., Sauðárkróki, þingl. eigandi Kristján Alex-
andersson, eftir kröfu Samvinnusjóðs islands og Byggingarsjóðs
rikisins, miðvikudaginn 12. nóvember 1997, kl. 13.30.
Suðurgata 22, Sauðárkróki, þingl. eigandi Sigurður Kárason, eftir
kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Guðbjargar K. Jónsdóttur og
Tollstjórans í Reykjavík, miðvikudaginn 12. nóvember 1997, kl. 14.00.
Öldustígur 7, e.h. og bílskúr, Sauðárkróki, þingl. eigendur Jón B.
Sigvaldason og Guðrún Stefánsdóttir, miðvikudaginn 12. nóvember
1997, kl. 13.15.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
6. nóvember 1997.
Nauðungarsölur
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Suðurgötu 1,
Sauðárkróki, fimmtudaginn 13. nóvember 1997 kl. 14.00 á
eftirtöldum eignum:
Bjarnargil, Fljótahreppi, þingl. eigandi Trausti Sveinsson, gerðarbeið-
endur Fljótahreppur, Islansbanki hf., Vátryggingafélag íslands hf„
Ríkisútvarpið og Byggingarsjóður rfkisins.
Hof, Hofshreppi, þingl. eigendur Jóhann Þór Friðgeirsson og Elsa
Stefánsdóttir, gerðarbeiðandi Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Sölvanes, Lýtingsstaðahreppi, þingl. eigendur Magnús Óskarsson
og Elín Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
4. nóvember 1997.
HÚSNÆÐI OSKAST
r
Abyrg hjón í góðum stöðum
meö tvö börn á menntaskólaaldri, óska eftir
stórri íbúö, raöhúsi eða einbýli til leigu sem
allra fyrst. Öruggar greiðslur.
Upplýsingar í síma 567 3815 — 897 2221 eða
tilboð beristtil afgreiðslu Mbl. fyrir 11. nóv.
nk., merkt: „Ábyrg — 16822".
Sm S.
Eitt blað fyrir alla!
- kjarni málsins!