Morgunblaðið - 06.11.1997, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 06.11.1997, Qupperneq 68
 AS/400 Mikið úrvai viðskiptahugbúnaðar Fyrstir meö . ".....▼ Pe ntl «ji rri 11 HP Vectra PC Tfw1 hewlett m^tíM PACKARD Sjáöu meira á www.hp.is MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Kúamjólk gæti unnið gegn syk- ursýki TALIÐ er mögulegt að sam- setning á íslenskri kúamjólk geti verið skýring á því að nýgengi insúlínháðrar sykursýki í börn- um og unglingum sé mun lægra hérlendis en á hinum Norður- löndunum. Arni V. Þórsson læknir segir að rannsóknir nýsjálensks sérfræðings á próteinþáttum í kúamjólk bendi til þessa. Islenska kúakynið hefur minna af beta-kasein A1 próteini en það prótein getur skemmt frumur í brisi sem mynda insúl- ín. Inga Þórsdóttir næringar- fræðingur segir að til að skýra mun á nýgengi sykursýki milli landa hafi erfðir og sýkingar ver- ið rannsakaðar en einnig matar- æði. Ami Þórsson leggur áherslu á að ekki sé hægt að fullyrða frekar um málið, frekari rann- sóknir verði að fara fram. Nýgengi insúlínháðrar sykur- sýki meðal barna á Islandi, þ.e. fjöldi nýgreindra á ári af hverj- um 100 þúsund er 10, í Finnlandi er það 40, tæplega 30 í Svíþjóð og um 23 í Danmörku og Noregi. ■ Dregur íslensk/4 Morgunblaðið/Ömar Öskarsson Veiðiköttur á villigötum HEIMILISKOTTUR í veiðihug brá sér í kirkjugarðinn við Suðurgötu, þar sem spörfuglar eru fleiri en tölu verður á komið. Veiðivonin teymdi kisa á eftir bráð sinni fjóra metra upp í tré. Þá snerist stríðsgæfan honum í óhag. Fuglinn nýtti yfir- burði sína í stöðunni og flaug burt. Ný reglugerð um hitastig kranavatns Blandara inn á hvert heimili SAMKVÆMT nýrri bygginga- reglugerð, sem tekur gildi um næstu áramót, má kranavatn á heimilum ekki vera heitara en 65 gráður. Þetta er í samræmi við EES reglur. Kranavatnið á höfuð- borgarsvæðinu er núna allt upp í 80 gráðu heitt. Til þess að lækka hita- stig kranavatnsins þarf að setja blandara við inntaksrörin og það hefur í fór með sér kostnað upp á um 20 þúsund krónur fyrir hvert heimili. „Það þekkist hvergi í hinum iðn- þróaða heimi að leyfilegt sé að hafa svo heitt kranavatn sem hér er. 55- 65 gráðu heitt vatn er algengast í Evrópu en það er allt upp í 80 gráð- ur hér, t.d. í Hlíðahverfinu. I nýrri byggingareglugerð sem tekur gildi um áramótin kemur fram að krana- vatn má ekki vera heitara en 65 gráður,“ sagði Sigurður Grétar Guðmundsson framkvæmdastjóri Félags pípulagningarmeistara. Hann segir einnig aðkallandi að notkun á galvaniseruðum stálpípum og tengjum í neysluvatnslagnir verði hætt. Dæmi séu um að stál- pípur hafi ryðgað og skemmst á fimm árum vegna þess hve súrefnis- ríkt kalda vatnið sé. „Þar sem það liggur fyrir að krafa verður gerð um lækkun á hitastigi heita kranavatnsins verður ekki um aðra kosti að velja en að setja upp millihitara á hvert heimili og hita upp kalt vatn eða blanda köldu vatni inn í hitaveituvatnið. Þá erum við komin með sama ryð- vandamál inn í heitavatnslögnina. Það sem vakir aðallega fyrir okkur núna er að hætta notkun galvan- iseraðra stálpípa-1 í ný hús,“ segir Sigurður Grétar. Hefur Félag pípulagningar- manna skorað á byggingayfirvöld í sveitarfélögum á höfuðborgarsvæð- inu að hætta með öllu notkun á gal- vaniseruðum stálpípum. Framlegð ÚA hefur tvö- faldast á þremur mánuðum FRAMLEGÐ bolfiskvinnslu Ut- gerðarfélags Akureyringa til af- skrifta og fjármagnskostnaðar hef- ur tvöfaldast frá 5. ágúst síðastliðn- um, eða á þeim tíma sem liðinn er frá því að ný flæðilína var tekin í notkun og gerður reynslusamning- ur við starfsmenn um breytt vinnu- tímafyrirkomulag og endurskoðun bónuskerfis. Guðbrandur Sigurðs- son, forstjóri UA, segist telja að fyrirtækið hafi nú náð helmingi af þeim árangri sem mögulegt sé að ná vegna nýju flæðilínunnar. Með framlegð er átt við þær tekjur sem eru afgangs þegar breytilegur kostnaður fyrirtækja hefur verið greiddur. Afgangurinn, framlegðin, getur því mætt föstum kostnaði á borð við fjármagns- kostnað og afskriftir. I kjölfar UA hafa tvö önnur fyr- Viðræður Vinnslustöðvar og starfs- manna um breytt vinnutímafyrir- komulag og bónuskerfi hófust í gær irtæki, Útgerðarfélag Dalvíkinga og Isfélag Vestmannaeyja, gert samninga við starfsfólk um breytt vinnutímafyrirkomulag. I gær hófust viðræður Vinnslustöðvar- innar hf. við verkalýðsfélög og full- trúa starfsmanna í bolfiskvinnslu í Vestmannaeyjum og Þorlákshöfn um breytingar á vinnutímafyrir- komulagi og bónuskerfi í fyrirtæk- inu. Einhæfni Jón Kjartansson, formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja, sagði í gær að samningsaðilar hefðu sammælst um að gefa ekki upplýs- ingar um viðræðumar. Ljóst væri að framhald yrði á fundahöldum. Það kom fram hjá viðmælendum blaðamanns úr hópi verkafólks að þeir sem reynt hafa teldu helsta ókost hins breytta vinnslufyrir- komulags og breytinga á bónuskerfi vera þann að störfin verði einhæfari og fólk fái ekki í sama mæli og áður að flytja sig milli vinnustöðva og verkefna. Meðaltalsfrystihúsið er nú rekið með 10% halla en frystitogarar á núlli, samkvæmt tölum Þjóðhags- stofnunar. Hlutfall hráefnisverðs af tekjum bolfiskvinnslunnar er nú 57-58% að meðaltali en Arnar segir að það megi helst ekki fara yfir 50%. Minna framboð á afla og verri samkeppnisstaða gagnvart frysti- togurum veldur m.a. háu hráefnis- hlutfalli. „Það, sem er erfiðara í landi, er að á frystitogara eru hrá- efni og laun ákveðið hlutfall af kostnaði. Þótt varan lækki og þótt gengið lækki er hlutfallið alltaf það sama,“ segir Guðbrandur Sigurðs- son, forstjóri ÚA. „Ef maður lítur á launakostnað í frystitogurunum og leggur hins vegar saman launa- kostnað hjá ísfisktogara og land- verkafólki kemur í ljós að sam- settur launakostnaður er miklu hærri; munurinn er um 10%,“ segir Arnar Sigurmundsson. ■ Staða bolfiskvinnslunnar/34 Gert að endurgreiða ly fj aeftirlitsgj ald HERAÐSDOMUR Reykjavíkur dæmdi í gær ríkissjóð til að endur- greiða Jóni Þórðarsyni, apótekara í Hveragerðis Apóteki, 130 þúsund kr. vegna lyfjaeftirlitsgjalds sem hann var krafínn um sumarið 1996. Apótekarinn greiddi gjaldið en krafðist endurgreiðslu þar sem hann taldi ekki rétt og löglega stað- ið að ákvörðun upphæðar þess. 18,9 m.kr. inn- heimtar í fyrra Með reglugerð sem sett var árið 1996 með stoð í lyfjalögum frá 1994 var lagt lyfjaeftirlitsgjald á apótek. Þeim var skipt í 6 flokka og gert að greiða 130.000-360.000 krónur ár- lega. Fram kemur í dóminum að innheimt eftirlits-, leyfis- og skrán- ingargjöld hafí þá numið um 18,9 milljónum króna en kostnaður vegna þeirra 19,1 m.kr. Sigríður Ingvarsdóttir héraðs- dómari hafnaði þeim sjónarmiðum apótekarans að gjaldið væri skattur í skilningi stjórnarskrárinnar og skattlagningarheimildin væri ófull- nægjandi. Dómarinn taldi að um þjónustugjald væri að ræða og féllst á að raunverulegar forsendur við ákvörðun fjárhæðarinnar væru óljósar. Reglugerð um gjaldið upp- fyllti ekki þau skilyrði sem verði að gera um að slíkar ákvarðanir séu skýrar og glöggar. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Sigmenn framtíðar FIMMTÁN strákar úr efstu bekkj- um grunnskólans í Vík, sem eru fé- lagar í TURKÍS, félagsskap táninga innan Ungmennasamtaka Rauða kross Islands, fóru í ferð út í óviss- una. Þeir vissu ekki hvað beið þeirra en þrír félagar úr slysavarnasveit- inni Víkverja í Vík fóru með þá að eyðibýlinu Bólstað í Mýrdal og þiir var þeim kennt að síga í björg. Fyrst var sigið niður bratta brekku þar sem þeir fengu tilfiimingu fyrir því að sitja í sigbelti og síga en svo gerðust brekkurnar brattari þar til farið var niður þverhnípi. Bæði unglingar og björgunar- sveitarmenn voru ánægðir með daginn, sem lauk i pizzuveislu i Víkurskála.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.