Morgunblaðið - 14.11.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 19
LANDIÐ
FUNDARMENN á borgarafundi um saineimngarmál á Neskaupstað.
í tilefni þess að Sambíóin hafa
tekið til sýninga stórmyndina
IA í-nniiiliiiiti.ii verður brugðið
á leik næstu vikuna.
Fylgstu meö spurningum sem
birtast í Morgunblaöinu og þú
.»• * f; : átt möguleika á skemmtilegum
Hjpf ^ 'íj verölaunum frá Sambíóunum,
Japis og Hard Rock Café.
HardJlodi y'Nj
sAk 'mMu . )jwm
Bragðdaufur
borgara-
fundur
Neskaupstaður - Um 200 manns
sóttu borgarafund í Egilsbúð á
mánudagskvöld. Fundurinn var
haldinn vegna kosninganna um
sameiningu Reyðarfjarðar, Eski-
fjarðar og Neskaupstaðar sem fram
eiga að fara næstkomandi laugar-
dag.
Áhugi á málinu virtist ekki vera
mikill þvi aðeins fjórir tóku til máls
á fundinum auk sveitarstjórnar-
manna sem voru fylgismenn sam-
einingar. Af hinum fjórum voru
tveir á móti og tveir með.
Rök fylgismanna sameiningar
voru að stærra sveitarfélag væri
mun betur í stakk búið til að veita
fbúunum þá þjónustu sem viðunandi
væri og að líkur væru á að hægt
væri að stöðva eða jafnvel snúa við
þvf ástandi, sem verið hefur, að sí-
fellt fækki fbúum á þessu svæði.
Rök andstæðinga voru m.a. að
með sameiningu fjarlægðist fólkið
stjórnsýsluna og að ekki þyrfti sam-
einingu til að snúa þróuninni við,
aðeins dugnað og þor sveitarsljórn-
armanna.
Fundurinn var bragðdaufur og
stóð aðeins í um tvo tíma.
-------------
Minnisvarðinn
reistur á
Patreksfirði
MINNISVARÐI um breska sjó-
menn, sem farist hafa við ísland,
verður settur niður á Patreksfirði og
hafa fjögur bresk sveitarfélög á
Grimsbysvæðinu tekið að sér fjár-
mögnun. Viðar Helgason, bæjarstjóri
Vesturbyggðar, segir að ráðgert sé
að vígja minnisvarðann á sjómanna-
daginn á næsta ári.
Bresku sveitarfélögin tóku þessa
ákvörðun fyrr í haust og óskuðu eftir
tillögum frá bæjarstjórn Vestur-
byggðar um staðsetningu og var
samþykkt að minnisvarðann skyldi
reisa á Patreksfírði. „Samþykkt var
jafnframt að setja upp sýningu á
Hnjóti í þakklætisskyni við þann
áhuga sem Egill Ólafsson hefur sýnt
á málinu," sagði bæjarstjórinn. „Sú
sýning er hugsuð sem gjöf og er
henni ætlað að verða áfram hluti af
safninu.“
Viðar Helgason segir að framund-
an sé að fá tillögur að minnisvarðan-
um en tilgangur hans sé að minnast
breskra sjómanna sem farist hafa við
íslandsstrendur en ekki eingöngu
þeirra sem fórust með togaranum
Sargon 1948. Leitað verður tillagna
bæði frá breskum og íslenskum lista-
mönnum. Stefnt er að því að vígja
minnisvarðann um sjómannadags-
helgina á næsta ári, þ.e. 6. eða 7. júní.
Bæjarstjórinn segir tvo staði á
Patreksfirði koma til greina, annar
sé opið svæði innarlega í bænum og
hinn við höfnina. Viðar segir að búast
megi við stórum hópi frá Bretlandi í
heimsókn þegar minnisvarðinn verði
vígður, jafnvel nokkur hundruð
manns.
SYNINGIN
ÁTAK TIL
ATVINNU-
SKÖPUNAR
Nýsköpun, vöruþróun og
útrás íslenskra fyrírtækja
og frumkvöðla
Fjölmörg verkefni verða kynnt á sýningunni
frá ýmsum sviðum atvinnulífsins, svo sem
fatahönnun, tónlist, hug- og tæknibúnaður,
margvíslegur smáiðnaður, leiklist,
þróunarverkefni o.fl.
Uppfinningamenn og frumkvöðlar eiga sinn stað
á sýningunni með vörur sem vakið hafa athygli.
Tískusýning kl. 14.30 á laugardag.
/
ATAK TIL
ATV INN.US KÖ P U NA R
/ Ráðhúsi Reykjavíkur
14.-17. nóvember 1997
Sýningin hefst í dag kl. 16.00
Galdraveski, gæðasnakk og girðingarstaur
íslensk torfæra í öllum heimsálfum
Uppfinningar sem valdið gætu straumhvörfum
Fatahönnun, fjallagrös og frumkvöðlar
Hugbúnaður, hestavörur og hollusta
Vöruþróun og Evrópuverkefni
Framleiðslu-, gæða- og umhverfisstjórnun
Raufafræsari, roð og ritþjálfi
Vélknúinn sleði sem kemst í skottið á bílnum þínum
Gulrætur, nuddolíur og fiskibökur
Ostar, sælgæti og fjallagrös
Lyfjagrös, græðismyrsl og hjálpartæki fyrir bakveika
Njála, nýr islenskur sportbíll og margt fleira
0
u
ÚTFLUTNINGSRÁÐ
ÍSLANDS
íí Iðntæknistofnun
IbLAlNUb
Æ|iðnaðar-og A O
li VIÐSKIPTARAÐUNEYTIÐ QP IÐNLANASJOÐUR ||j IÐNÞRÓUNARSJÓÐUR
mmmmmmmsmmmmmmm