Morgunblaðið - 14.11.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 43^-
HERBALIFE OG LYFJA-
EFTIRLIT RÍKISINS-
HAGSMUNIR ALMENNINGS
Á UNDANFÖRNUM vikum hefur
ýmislegt, sem á sér enga stoð í
raunveruleikanum, verið fullyrt um
Lyfjaeftirlit ríkisins og greinarhöf-
und sem er forstöðu-
maður stofnunarinnar.
Af þeirri ástæðu eru
hér dregnar fram
nokkrar staðreyndir um
Herbalife og afskipti
Lyfjaeftirlitsins af inn-
flutningi fæðubótarefna
og náttúruvöru.
Starfsemi Lyfjaeftir-
lits ríkisins
Reglur um gæði lyfja
og meðferð þeirra eru
hinar sömu á öllu Evr-
ópska efnahagssvæðinu
og miðast við það að
tryggja sem best hags-
muni almennings.
Strangar reglur gilda um
gæði, öryggi og virkni lyfja sem eru
á markaði og aðeins tilteknir aðilar,
sem uppfylla strangar kröfur, hafa
heimild til að flytja inn og dreifa
lyfjum. Þeir sem hafa heimild til að
flytja inn lyf og dreifa hér á landi
mega ekki flytja inn hvað sem er,
heldur aðeins þau lyf sem mat hefur
verið lagt á með tilliti til öryggis,
gæða og virkni eða sem veitt hefur
verið sérstök einstaklingsbundin
undanþága fyrir. í þeim tilvikum
ber læknir sérstaka ábyrgð. Annar
innflutningur og dreifíng á lyfjum
eru ólögleg. Hér á landi hefur
Lyfjaeftirlit ríkisins eftirlit með
innflutningi og dreifingu lyfja og í
nágrannalöndum okkar gegna hlið-
stæðar stofnanir sams konar hlut-
verki.
Lyfjaeftirlitið hefur, í umboði
heilbrigðismálaráðherra, einnig eft-
irlit með innflutningi og sölu á
fæðubótarefnum og náttúruvörum.
Fjallað er um slíkar vörur hjá stofn-
uninni með tilliti til þess meðal ann-
ars hvort þær innihaldi lyf eða efni
sem geta verið varasöm heilsu
manna í því magni sem um ræðir.
LER leggur ekki mat á gæði eða
gagnsemi fæðubótarefna eða nátt-
úruvöru en með eftirlitinu er reynt
að tryggja að á almennum markaði
sé ekki vara sem getur verið fólki
hættuleg.
Lyfjaeftirlitið starfar samkvæmt
lyfjalögum* 1 sem sett voru 1994 og
er kjarninn í hlutverki stofnunar-
innar að gæta hagsmuna almenn-
ings. I lögunum er sérstaklega tekið
fram að forstöðumaður Lyfjaeftir-
litsins megi ekki eiga neinna hags-
muna að gæta varðandi innflutning
og sölu á lyfjum. Fullyrðing Jóns
Óttars Ragnarssonar í grein í
Morgunblaðinu, um að greinarhöf-
undur væri á launum hjá lyfjainn-
flytjendum er fásinna sem ekki á
við nokkur rök að styðjast.
Hvað er Herbalife
Lyfjaeftirlitið hefur haft afskipti
af innflutningi og sölu á Herbalife
allt frá árinu 1985. Á þessum tíma
hefur komið í ljós að Herbalife er
mjög mismunandi að samsetningu.
Þannig er að finna í gögnum Lyfja-
eftirlitsins nokkrar mismunandi
samsetningar af Herbalife sem allar
bera nær sama heiti. Herbalife er
því samheiti fjölda mismunandi
vörutegunda. Flest afbrigði Her-
balife innihalda vítamín og stein-
efni, trefjar, eggjahvítuefni og ýms-
ar jurtir og er ætlað að koma að
hluta til í staðinn fyrir mat. Önnur
afbrigði af Herbalife innihalda efni
sem hafa örvandi áhrif á miðtauga-
kerfið, draga úr matarlyst og inni-
halda einnig efni sem hafa örvandi
áhrif á hægðir með beinum áhrifum
á þarmana. Þessi efni eru lyf og
geta verið hættuleg.
Lyfjaeftirlitið hefur á undanfórn-
um mánuðum fengið
fjölda fyrirspuma frá
almenningi þar sem
spurt er hvort Herbali-
fe sé leyft. Við þessu er
ekki til neitt eitt svar
vegna fjölbi'eytni vör-
unnar.
Fjölmargir sem leit-
að hafa til stofnunar-
innar hafa lesið upp
innihaldslýsingu á um-
búðum þess Herbalife
sem þeir eru með. I
flestum tilvikum hefur
verið um það afbrigði
að ræða sem inniheld-
ur meðal annars kín-
versku jurtina Ma Hu-
ang og jurtina Cascara.
Ma Huang inniheldur lyfið efedrín
og í Cascara eru lyf sem hafa bein
örvandi áhrif á starfsemi þarmanna.
Ólögleg vara á markaðinum
Lyfjaeftirlitið hefur eftirlit með
innflutningi á lyfjum, fæðubótarefn:
um og náttúruvörum til landsins. í
flestum tilvikum fyigja vörum vöru-
reikningar sem stofnunin fer yfir og
veitir þannig tollayfii-völdum um-
sögn um hvort vöruna megi flytja
inn eða ekki. Lyfjaeftirlitið fjallaði í
sumar um nokkur afbrigði af fæðu-
bótarefninu Herbalife sem íramleitt
er fyrir sænskan markað. I þeirri
vöru eru ekki jurtimar Ma Huang
eða Cascara og var það Herbalife
leyft að hluta. Lyfjaeftirlitinu er
hins vegar ekki kunnugt um að
þetta sænska afbrigði hafi verið
flutt inn í neinum mæli á árinu,
enda hafa vörureikningar vegna
innflutningsins ekki borist stofnun-
inni til áritunar. Hins vegar virðist
vera á markaðinum hér á landi mik-
ið magn af Herbalife sem bannað er
í Evrópu og í sumum fylkjum
Bandaríkjanna. Ekki er ljóst með
hvaða hætti þetta ólöglega Herbali-
fe er flutt til landsins.
Lyfjaeftirlitið hefur kannað eftir
ýmsum leiðum með hvaða hætti
Herbalife sem inniheldur lyf er flutt
inn til landsins, en án árangurs. Af
þeim sökum fór stofnunin fram á
það við Ríkislögreglustjóra að málið
yrði rannsakað og stendur sú rann-
sókn nú yfir.
Því hefur verið haldið fram í blöð-
um að Lyfjaeftirlitið hafi rannsakað
fyrir DV töflur sem reyndust inni-
halda efedrín. Þetta er rangt. Rann-
sóknin var ekki gerð af stofnuninni
eða á hennar vegum. LER var ekki
kunnugt um rannsóknina fyrr en
nokkm eftir að niðurstöður lágu
fyrir.
Ma Huang- efedrín
Því hefur verið haldið fram að
náttúrulegt efedrín sé hættulaust.
Þetta er rangt. Efedrín er efni sem
er náskylt amfetamíni að verkun og
byggingu. Matvæla- og lyfjaeftirlit
Bandaríkjanna (FDA) hefur ítrekað
varað við notkun á Ma Huang, sam-
anber eftirfarandi sem stofnunin
sendi frá sér 6. nóvember síðast lið-
inn (lausleg þýðing)2: Efedrín er
efni líkt amfetamíni sem hefur all-
mikil örvandi áhrif á taugakerfið og
hjartastarfsemi. Frá því 1994 hefur
FDA móttekið og rannsakað meira
en 800 tilkynningar um aukaverk-
anir sem tengjast notkun á náttúru-
vörum sem innihalda efedrín. Um
er að ræða aukaverkanir eins og
hækkaðan blóðþrýsting, óregluleg-
an hjartslátt, svefnleysi, taugaveikl-
Lyfjaeftirlitið hefur á
undanförnum
mánuðum, segir
_______Guðrún S.________
Eyjóifsdóttir, fengið
fjölda fyrirspurna frá
almenninffl þar sem
spurt er hvort
Herbalife sé leyft. Við
þessu er ekki til neitt
eitt svar vegna
f]ölbreytni vörunnar.
un, skjálfta og höfuðverk, en einnig
krampa, hjartaáfóll, heilablóðföll og
dauða.
I Bandaríkjunum eru litlar sem
engar reglur um sölu á fæðubótar-
efnum og náttúruvörum. Um þetta
er meðal annars fjallað í grein sem
birtist í bandarísku neytendablaði
árið 19953. Þar er fjallað um jurtir
sem geta verið skaðlegar, þar með
talin Ma Huang. I greininni kemur
einnig fram að í einstaka fylkjum
Bandaríkjanna, til dæmis Ohio, hafa
verið settar mjög strangar reglur
um sölu á Ma Huang og efedríni í
kjölfar dauðsfalla sem talin eru
tengjast því.
Herbalife til megrunar
Sérfræðingum ber saman um að
til þyngdarstjórnunar sé hæfileg
neysla á vel samsettu fæði og hreyf-
ing eina aðferðin sem skili árangri
og sem samræmist almennum heil-
brigðismarkmiðum. Töfralausnir
eru ekki til. Það er í hrópandi and-
stöðu við þessa þekkingu að mæla
með notkun á fæðubótarefnum eða
matarkúrum sem blandaðir eru lyfj-
um sem draga úr matarlyst með
áhrifum á miðtaugakerfið og sem
valda jafnvel niðurgangi með áhrif-
um á þarma.
Árið 1979 gaf Helgafell út fróð-
lega bók, Næring og heilsa, en þar
segir um meðferð á offitu4: „Megr-
unaraðferðir skipta hundruðum og
sýnir það vel hvað offita þykir hvim-
leið. Álls kyns lyf hafa verið notuð,
áhöld, sérhannaðar matvörur, sér-
stakt mataræði og jafnvel upp-
skurðir til þess að stytta meltingar-
veginn og draga þannig úr nýtingu
næringarefnanna. Af þeim aðferð-
um sem hafa verið notaðar er aðeins
hægt að mæla með einni, en það er
hófleg neysla á hollum mat og lík-
amsrækt." Höfundur bókarinnar er
Jón Óttar Ragnarsson, næringar-
fræðingur.
Jón Ottar gerir lyf ennfremur að
umfjöllunarefni í bók sinni en þar
segir: „Margs konar lyf hafa verið
notuð til þess að auðvelda fólki að
gi-enna sig. í þessum flokki er m.a.
amfetamín og skyld efni. Þau eru
aðallega notuð til þess að draga úr
matarlyst. Auk þess örva þau heila-
starfsemi og vinna gegn þreytu og
þunglyndi. Hins vegar geta þau
valdið svefnleysi, taugaspennu, örv-
að hjartslátt og hækkað blóðþrýst-
ing. Þau eru vanabindandi og ætti
enginn, sem vill halda heilsu að nota
þessi efni.“ Efedrín er eins og áður
hefur komið fram náskylt am-
fetamíni að byggingu og verkun.
Lyfjaeftirlitið hefur varað við því
að á markaði er vara sem kynnt er
og seld sem fæðubótarefni og sem
inniheldur lyf. LER hefur ekki upp-
lýsingar um hve mikið er af efedríni
í ,grænu töflunum" frá Herbalife og
þvi skal ekki haldið fram að notkun
þeirra fyrir heilbrigt fólk sé skaðleg
séu þær notaðar samkvæmt notk-
unarleiðbeiningum í stuttan tíma.
Hitt er ljóst að um lyf er að ræða
sem einstaklingar þola misvel og
sem er flutt inn og selt með ólög-
mætum hætti. Lyfið er auk þess illa
merkt þannig að notandinn veit oft-
ast ekki hvað það inniheldur.
Hagsmunir neytenda
Fæðubótarefni og náttúruvörur
geta haft áhrif á líðan manna en
geta einnig verið vandmeðfarin. í
flestum tilvikum hafa lifnaðarhættir
manna, til dæmis mataræði og lík-
amsrækt, mun meiri áhrif á líðan og
heilsu heldur en notkun slíkrar
vöru. Með heilbrigðu lífemi má
koma í veg fyrir marga sjúkdóma,
en ekki alla og því eru lyf nauðsyn-
leg, en ekki skal dregið í efa að
skynsamleg notkun fæðubótarefna
og náttúruvöru getur haft jákvæð
áhrif á heilsu manna.
Ein meginkrafan sem gerð er til
Guðrún S.
Eyjólfsdóttir
þeirra sem vilja flytja mn og selja
fæðubótarefni og náttúruvörur er
að upplýsingar liggi fyrir á greinar-
góðan hátt um innihald vörunnar.
Ef í vörunni eru lyf verður hún ac^
uppfylla kröfur sem gerðar eru tir-
lyfja þannig að gæði, öryggi og
virkni þeirra séu tryggð, svo sem
kveðið er á um í lyfjalögum. ís-
lenskir neytendur eiga rétt á að
fyllsta öryggis sé gætt.
Heimildir:
1 Lyfjalög nr. 93/1994.
2 Fréttatilkynning á heimasíðu FDA 6. nóv-
ember 1997, slóð www.fda.gov
3 Consumer Reports November 1995, Her-
bal Roulette bis. 698-704.
4 Næring og heilsa eftir Jón Óttar Ragn-
arsson, Helgafell 1979.
Höfundur er forstöðumaður
Lyfjaeftirlits ríkisins.
F a 11 e g í r
1 a m p a r
_____HIO_____
14.730,-
* HÚSGAGNAHÖLUN
.5 Bíldshöfö! 20-112 Rvfk-S:510 8000
RELIEF
12.630,-
Eítt mesta úrval
landsíns af fallegum
íömpum er að finna
hjá okkur.
NEPTUNE
10.930,-