Morgunblaðið - 14.11.1997, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.11.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 25 ERLEKT Heimili Suu Kyi girt af SAN Suu Kyi, leiðtogi stjórn- arandstöðunnar í Búrma, komst ekki á fund í stjórn- málaflokki sínum í gær þar sem stjórnvöld höfðu látið girða heimili hennar af. Mótmæltu flokksfélag- ar hennar ákaflega en stjórnvöld svöruðu því til að flokkurinn hefði ætlað að ógna friði og stöðugleika í höfuðborginni Rangoon. Kanadamenn framlengja frest RÁÐHERRAR fylkja og í rík- isstjórn Kanada hafa ákveðið að lengja frestinn til að ná niður útblæstri gróður- húsalofttegunda um tíu ár. Samkvæmt Río-sáttmálanum hafði Kanada fallist á að árið 2000 yrði útblásturinn hinn sami og árið 1990 en nú hafa ráðherrarnir ákveðið að fram- lengja það til ársins 2010. Framkoma ljósmyndara „ótrúleg“ SÁ SEM fyrstur kom að bílslysinu sem Díana prinsessa lét lífið í, segir að framkoma ljósmyndara hefði verið „ótrúleg" og að mynda- vélarnar hefðu verið „eins og vélbyssur“. Vitnið, Stephane Darmon, segir ennfremur í viðtali við The Guardian að bifreið Díönu hefði verið ekið „nánast á hljóðhraða". Yerkfall hjá Air France NOKKRIR tugir flugmanna hjá Air France hófu í gær tveggja daga verkfall en tals- menn flugfélagsins fullyrtu að verkfallið hefði lítil áhrif, aðeins um 4% flugferða hefðu fallið niður. Hert öryggis- gæsla í Pakistan Karachi, Kuala Lunipur. Reuters. LÖGREGLA í Pakistan var í viðbragðsstöðu og öryggisgæsla við bústaði erlendra sendimanna í landinu var hert eftir að hótanir bárust um frekari árásir í kjölfar þess að fjórir Bandaríkjamenn og einn Pakistani voru mjrtir í hafn- arborginni Karachi á miðvikudag. Talsmaður lögreglunnar sagði að gæsla væri við allar leiðir út úr Karachi. Bandaríska utanríkis- ráðuneytið varaði bandaríska rík- isborgara, sem eru á ferð erlendis, við hugsanlegum hefnd- araðgerðum vegna dóms yfir Ramnzi Yousef fyrir sprengju- tilræði í World Trade Center- byggingunum í New York 1993. Að sögn ráðuneytisins hafa ekki borist hótanir gegn tilteknum ein- staklingum, en bandarískir ríkis- borgarar ættu að hafa varann á sér erlendis „í ljósi mögulegra ógnana“. Bandaríska sendiráðið í Malasíu greindi frá því að hringt hefði verið í það og hótað að myrða fjóra Bandaríkjamenn þar í landi. Gefin var út aðvönm til Banda- ríkjamanna í landinu. Bandaríkjamennh’nir fjórir sem byssumenn myrtu í Karachi á miðvikudag voru starfsmenn olíu- fyrirtækisins Union Texas, og Pakistaninn var bílstjóri þeirra. Pakistanskur embættismaður sagði í gær að markmið morðingj- anna hafi verið að etja til óaldar í landinu til þess að væntanlegum heimsóknum Madeleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Bills Clintons, forseta, yrði aflýst. Albright er vætnanleg til Pakistan í næstu viku og Clinton mun koma þar við snemma á næsta ári. Áð sögn embættis- mannsins hafa engar breytingar orðið á þessum áætlunum. Netanyahu í London London. Reuters BENJAMIN Netanyahu, forsætis- ráðherra Israels, kom til Bretlands í gær þar sem hann mun eiga viðræður við breska og bandaríska ráðamenn. Netanyahu hitti William Hague, formann Ihaldsflokksins, í gærmorg- un og síðar um daginn stóð til að hann hitti bæði Tony Blair forsætis- ráðheiTa og Robin Cook utanríkis- ráðherra. Talið var að Netanyahu myndi freista þess að vinna stuðning breskra ráðamanna við þær hug- myndir sínar að leggja áfangaáætlun Óslóarsamkomulagsins til hliðar og ganga þess í stað beint til lokaviðræðna við Palestínumenn um yfirráð á herteknu svæðunum. Breskir ráðamenn hafa áður lýst því yfir að þeir styðji kröfu Banda- ríkjamanna þess efnis að Israels- stjórn frysti byggingarframkvæmdir gyðinga á herteknu svæðunum. Blóðug' átök í maf- íu heyrnarlausra MORÐ framið á götum Moskvu- borgar hefur varpað ljósi á óhugnan- legar bai-áttuaðferðir sem tíðkast innan samtaka fatlaðra í borginni. Hefur athyglin einkum beinst að mafíu heyrnarlausra, þar sem öll meðöl virðast leyfileg. Nótt eina fyrir skömmu stöðvaði lögreglan í Moskvu svartan BMW sem var ekið á ógnarhraða í miðborginni. Prír menn voru í bíln- um og sá sem sat við hlið ökumanns- ins var látinn. Fljótlega koro í ljós að hinn látni hét Levoni Dzjikía, betur þekktur í undirheimum Moskvuborgar sem Leo. Þegar skilríki hans voru skoðuð reyndist hann starfa hjá samtökum sem kallast ,„41þjóðasamtök heyi-n- arlausra“. Tvímenningarnh- sem voru handteknir á staðnum voru einnig heyrnarlausró og störfuðu inn- an sömu samtaka. Málið vakti mikla athygli enda vai' það talist tengjast fjölda morða innan samtaka fatlaðra. Hófu fjölmiðlar rannsókn á því sem leiddi í ljós ótrúlega sögu. Síðasta kvöldið sem Leo lifði var honum boðið í klúbb heyi’narlausra í Moskvu þar sem vinir hans færðu honum spánnýtt amerískt heyrn- artæki. Undir miðnætti hugðist Leo halda heim á leið og gekk út að BMW-bifreið sinni. Þá bar þar að mann sem skiptist á nokkrum orðum við Leo en dró síðan upp byssu og skaut hann. Leo féll til jarðar mikið særður en vinir hans tveir, sem sátu á nálægu kaffihúsi, sáu hvað gerðist og flýttu sér til Leos. Hann bað þá um að aka sér að einkasjúkrahúsi þar sem vinur hans var skurðlæknir en á leiðinni blæddi honum út, rétt áður en lögreglan stöðvaði bifreiðina. Þegar farið var að kanna feril hins látna kom í ]jós að hann hafði ekki verið neinn engill. Hann var 32 ára en hafði setið tíu ár í fangelsi. Leo hafði gengið til liðs við mann sem kallaður var Nejman og var nokkurs konar guðfaðir í hópi heyrnarlausra afbrotamanna. Ætlaði Nejman að leggja undrö sig öll fyrirtæki og félög sem tengdust samtökum he.yrnarlausra í Rússlandi. Þegar ráðist var á Nejman og hann stunginn hvað eftir annað með hnífi sá hann sig um hönd og eftirlét Leo völdin. Honum tókst, ásamt aðstoðarmanni sem kallaðist „Mao“, að ljúka ætlunarverki Nejmans. BMW-bifreið Leos bendir til þess að starfsemin hafi gefið vel af sér. Leo er ekki eina fórnarlamb morðöldu sem riðið hefur yfir félög heyrnarlausra í Moskvu. I febrúar sl. var Vladimh- nokkur Orlov, sem var frammámaður í samtökunum, myrtur er hann ók bifreið sinni og í september var forseti félags heyrn- arlausra í Moskvu skotinn fyrir utan heimili sitt. Fyrir réttu ári var for- seti samtaka heyrnarlausa í Rúss- landi skotinn undir stýri í jeppa sín- um er hann var á leið til sumarhúss síns. Lögreglunni hefur ekki tekist að hafa upp á neinum morðingjanna. Ástæðan fyrir þessum laun- morðum eru hlunnindi sem Borís Jeltsín Rússlandsforseti hefur veitt ýmsum samtökum fatlaðra. Þurfa þeir ekki að greiða tolla af þeim vörum sem þeir flytja inn. Félag heyrnarlausra hefur svo sannai'lega notfært sér það, það hefur sett á fót fjölda verslana sem velti um 160 milljónum dala, um 11,5 milljörðum ísl. kr., árið 1994. Byggt á Aftenposten. RONNIE Biggs, lestarræninginn frægi sem flúði úr brezku fangelsi fyrir 32 árum, fagnaði með kampavíni úrskurði Hæstaréttar Brasilíu, sem í fyrradag ákvað einróma að hafna beiðni brezkra stjórnvalda um framsal hans. „Mér líður stórkostlega. Þetta er dásamlegt," sagði Biggs þegar hann fór frá húsi sínu í hlíðum Rio de Janeiro í bifreið lögfræðings síns áleiðis á blaðamannafund. Með úrskurði réttarins þarf Biggs ekki framar að óttast að verða framseldur frá Brasilíu, þar sem hann hefur búið sem löghlýðinn þegn í 27 ár. Hann segist nú ætla að sækja um brasilískan ríkisborgararétt, en hann á 23 ára gamlan son með innfæddri vinkonu. Útsendarar brezkrar réttvísi höfðu tvisvar sinnum reynt að koma Biggs úr landi í þeim tilgangi að koma honum undir lás og slá á ný, en þær tilraunir mistókust. Biggs, sem varð 68 ára í ágúst sl., mun ekki eiga neinn afgang af ránsfengnum úr ráninu 1963, þegar hann og félagar hans rændu póstlest á leiðinni frá Glasgow til Lundúna. Hann hef- ur Iifað á bókaskrifum og því að láta ferðamenn borga fyrir að taka þátt í garðveizlum hjá sér. Og nú hyggst hann hasla sér völl á tónlistarsviðinu. Hann er búinn að taka upp lögin „Run to Rio“ og „Police and Thieves", sem verður dreift á geisladiski í Evrópu fljótlega. Ath! erum Laugavegi 40a. Nærbuxur fylgjn íríti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.