Morgunblaðið - 14.11.1997, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VELÚRGALLAR
Schiesser® velúrgallarnir eru komnir.
Stærðir 38-46.
Ivmpíí
Laugavegi — Kringlunni
5TEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
í dag
gefum við
40%
afslátt
af þessum
karlmanns
öklaskóm
Verð: 3.995
Verð áður:
Litur: Svart
Stærðir: 40—46
Domus Medica — Kringlunni
Toppskórinn Ingólfstorgi
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Bláfjöll -
hvað er að?
UNDIRRITAÐUR hefur
undanfarin 20 ár verið tíð-
ur gestur í Bláfjöllum og
á öðrum skíðasvæðum í
nágrenni Reykjavíkur. Hef
ég haft af því mikla
ánægju, og fundist útiver-
an gera mér gott, bæði lík-
amlega og andlega. Fátt
er betra eftir vinnudag I
skammdeginu en fara út
og hreyfa sig í klukkutíma
eða tvo. Hefur mér þótt
miður að horfa uppá sí-
minnkandi aðsókn á skíða-
svæðum síðustu fimm árin,
án þess að nokkuð virðist
gert til að laða fólk að stöð-
unum. Virðist manni sem
metnaðarleysið sé algert
við reksturinn á svæðinu.
Biðraðastjómun virðist af-
lögð, engar auglýstar
uppákomur, t.d. Bláfjalla-
dagurinn, frítt í lyfturnar
í einn dag, og heitt kaffi
á könnunni (sem einhver
kaffisali er örugglega til í
að bjóða upp á), lifandi
músik einn laugardag,
blysför niður fjallið að
kvöldi til, eitthvað til að
vekja athygli á staðnum
og auka aðsókn - oft kall-
að markaðsaðgerðir. Mér
finnst eins og engin uppá-
koma hafi verið síðan
„Volvo Ski Show“ kom í
Bláíjöll. Er ekki hægt að
fá einhveija snjó-
brettagæja að utan til að
vera með „show“? Eitthvað
þarf að gera til að draga
fólk í Bláfjöll, alveg eins
og í sund, eróbikk eða
kvikmyndahús.
Talandi um snjóbretti,
þá fékk elsti sonur minn
eitt slíkt í jólagjöf í hitti-
fyrra. Síðan þá er hann
búinn að fara í nokkrar
hópferðir, m.a. til Dalvík-
ur, Akureyrar og Kerlinga-
flalla. A ölium þessum
stöðum hefur verið búin til
sérstök aðstaða fyrir snjó-
brettamenn, með stökk-
pöllum o.þ.h., sem mér
skilst að sé núorðið á öllum
skíða/snjóbrettasvæðum
bæði í Evrópu og Banda-
ríkjunum, en þessa að-
stöðu er ekki að finna á
aðalsvæði Reykjavíkur og
nágrennis, þ.e. Bláfjöllum,
þar sem fjöldi snjóbretta-
iðkenda hefur vaxið mjög
mikið síðustu þijú til fjög-
ur árin. Er eitthvað erfið-
ara að búa til aðstöðu fyr-
ir snjóbrettafólk í Bláfjöll-
um en á skíðasvæði Dal-
víkinga eða í Kerlingafjöll-
um? Svar óskast.
Árlega er eytt milljónum
króna í forvarnir gegn
fíkniefnum hér á landi. Lit-
prentaður bæklingur með
ítarlegum leiðbeiningum
um samsetningu mismun-
andi fíkniefna og hvemig á
að nota þau, fylgt eftir með
„Segðu nei við fíkniefnum".
Sjálfsagt eru bæklingar
eðlilegur hluti forvamar-
starfsemi, en er ekki líka
mikilvægt að hvetja unga
fólkið til útivera, skapa því
þá aðstöðu sem þarf til að
„fara út að leika sér“. Hvet
að lokum forsvarsmenn
Bláfjalla tii dáða fyrir vet-
urinn og almenning til að
mæta betur í þessa útivist-
arperlu okkar.
Unnandi útivistar.
Leiði fá ekki að
vera í friði
ÁSLAUG hafði samband
við Velvakanda og sagðist
hún vera með leiði í Graf-
arvogskirkjugarði. Á leið-
inu hefur hún haft ljóslukt
og gerviblóm en þetta virð-
ist ekki fá að vera í friði,
það era alltaf einhveijir
sem taka þetta. Vill hún
lýsa yfir óánægjú sinni
með þetta.
Tapað/fundið
Gleraugu týndust
GLERAUGU týndust á
homi Glaðheima og Goð-
heima sl. þriðjudag. Þeir
sem hafa orðið varir við
gleraugun hafi samband í
síma 553-0929 eftir kl.
17.
Gleraugu fundust
GLERAUGU fundust
skammt frá Shell-stöðinni
við Garðatorg í Garðabæ.
Uppl. í síma 565-8761.
Dýrahald
Bröndóttur högni
í óskilum
FALLEGUR dökkgrábrön-
dóttur högni, með hvítan
blett undir hálsinum, hvítt
á loppum og kviði, en
ómerktur, fannst við Hva-
leyrarskóla í Hafnarfirði
föstudaginn 31. okt. Kisi
er kominn í Kattholt. Nán-
ari uppl. fást í síma
565-2383.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pctursson
STAÐAN kom upp í ís-
landsflugsdeildinni um síð-
ustu helgi. Áskell
Örn Kárason
(2.305) var með hvítt
og átti leik, en Sævar
Bjarnason (2.265)
hafði svart.
26. Hxd7! - Hxd7
27. Dh8+ - Ke7 28.
Dxc8 - e5 29. Rh7
og svartur gafst upp.
Um helgina: Taflfé-
lagið Hellir gengst
fyrir íslandsmótinu í
Netskák n.k. sunnu-
dag 16. nóvember kl
20:00. Tefldar verða
9 umferðir eftir
Monrad kerfi, 4 mín-
útna skákir með 2 sek-
úndna viðbót við hvern leik.
Verðlaun verða veitt í
þremur flokkum, íslands-
meistari, íslandsmeistari
áhugamanna (1800 stig
eða minna) og Besti byrj-
andinn (skákmenn án ís-
lenskra Elo-stiga). Gefandi
verðlauna er EIS-Einar J.
Skúlason hf. Teflt verður á
Evrópska skákþjóninum í
Árósum. Þátttökutilkynn-
ingar og fyrirspurnir
sendist til Halldórs Grétars
Einarssonar
(HYPERLINK mailto:
asbismennt.is) asbis-
mennt.is) . Nánari upplýs-
ingar á
http://rvik.ismennt.is/asb/
netskak97.htm.
Með morgunkaffinu
Áster...
o
(ú/X) 10-9
... aðganga sarnan eftir
lífsins vegi.
TM Heg U S P«t OK - an rtghta raaarvad
(c) 1897 Los Ang^M T«ia« Synðcata
Hann neyddist til að gift-
ast henni, hann hafði ekki
lengur efni á að bjóða
henni út.
Hann getur þvi miður
ekki búið hjá okkur
Snati. Þú veist að ég á
nóg af börnum fyrir.
ryksugan elskan?
Víkveiji skrifar...
ÞAÐ er fróðlegt að fletta nor-
rænu tölfræðibókinni, sem
kemur út árlega á vegum norrænu
ráðherranefndarinnar. Þar eru ýms-
ar tölulegar upplýsingar um ísland,
Noreg, Svíþjóð, Finnland, Dan-
mörku, Grænland og Færeyjar.
Árbókin fyrir árið 1997 er ný-
komin út og eru nýjustu tölurnar
frá árinu 1996. Eftir að hafa flett
henni sér Víkveiji ekki betur en
að íslendingar komi ágætlega út
úr samanburði við þessar ná-
grannaþjóðir. íslenskir karlmenn
verða til dæmis elstir á Norður-
löndum, búast má við að nýfætt
sveinbarn geti náð 76,5 ára aldri.
Búast má við að nýfætt íslenskt
stúlkubarn nái 80,6 ára aldri, en
þar hafa Svíar og Norðmenn vinn-
inginn: Búast má við að sænskar
stúlkur nái 81,5 ára aldri og norsk-
ar 80,8 ára aldri.
xxx
GRÆNLENSK sveinbörn geta
hins vegar aðeins búist við
að ná 62,3 ára aldri og stúlkubörn
68,3 ára aidri. Víðar í bókinni má
fínna upplýsingar um slæmt ástand
mála á Grænlandi, samanborið við
hin Norðurlöndin. Þar eru langflest
sjálfsmorð og það er einkum yngra
fólk sem styttir sér aldur. Þar er
áfengisneysla mest, mæld í alkó-
hóllítrum á mann, en minnst á ís-
landi. Og tölur um fóstureyðingar
á Grænlandi eru hreint ótrúlegar,
en samkvæmt bókinni var á árun-
um 1991-95 framkvæmdar rúm-
lega 800 fóstureyðingar miðað við
hver 1.000 börn sem fæddust, og
rúmlega 2.000 fóstureyðingar á
hvetjar 1.000 konur! Á hinum
Norðurlöndunum eru þessi hlutföll
um 200 fóstureyðingar á hver
1.000 fædd börn og 4-500 fóstur-
eyðingar á hveijar 1.000 konur.
Það er einungis á íslandi og
Grænlandi, sem fleiri flytjast brott
árlega en flytja inn í landið. Á síð-
asta ári fluttust 444 fleiri brott frá
íslandi en fluttu inn, og á Græn-
landi fluttu 483 fleiri út en inn. Það
er hins vegar búist við að hlutfalls-
leg fólksfjölgun verði einna mest á
íslandi, Grænlandi og í Noregi á
næstu áratugum. í tölfræðibókinni
er því spáð, að íslendingar verði
árið 2020 orðnir 312 þúsund eða
23% fleiri en þeir voru árið 1990,
og Grænlendingar verði 62 þúsund,
eða 11% fleiri en árið 1990. Sam-
bærilegar tölur fyrir önnur Norður-
lönd eru 4,8 milljónir í Noregi sem
er 13,9% aukning, 9,2 milljónir í
Svíþjóð, 8,2% aukning, 5,57 milljón-
ir í Danmörku og 8,4% aukning,
5,2 milljónir í Finnlandi og 5% aukn-
ing, og 51 þúsund í Færeyjum og
5,9% aukning.
XXX
AF ÖÐRUM upplýsingum í
bókinni má nefna að á Islandi
eru hlutfallslega fleiri einkabílar
og leigubílar en í hinum löndunum,
miðað við hinn góðkunna mann-
fjölda, eða 0,44 bílar á mann, og
hefur svo verið a.m.k. þennan ára-
tug. Hins vegar eru útlán bóka á
bókasöfnum ekki mikil hér á landi,
miðað við Norðurlöndin, eða um 8
bækur árlega á hveija 100 íbúa.
Þessi tala er langhæst í Finn-
landi, eða 20 bækur á hveija 100
íbúa.