Morgunblaðið - 18.11.1997, Síða 1
120 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
263. TBL. 85. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Blóðugasta tilræði egypskra öfgamanna gegn erlendum ferðamönnum
Afsagnar
Tsjúbajs
krafíst
Moskvu. Reuters.
RÚSSNESKIR kommúnistar
blésu í gær til nýrrar sóknar gegn
Anatolí Tsjúbajs, aðstoðarforsætis-
ráðherra Rússlands, og sögðust
ekki ætla að taka þátt í umræðum
á þinginu um fjárlagafrumvarp
stjórnarinnar meðan hann gegndi
embættinu.
Tsjúbajs og nokkrir af sam-
starfsmönnum hans hafa sætt
harðri gagnrýni fyrir að hafa þegið
fyi-irframgreiðslur fyrir bók um
sögu einkavæðingarinnar í landinu.
Borís Jeltsín hefur þegar vikið
þremur embættismönnum frá
vegna málsins en hafnaði afsagnar-
beiðni Tsjúbajs um helgina.
Vegna yfirlýsingar kommúnista
þarf Jeltsín nú að fallast á frekari
tilslakanir í deilunni um fjárlögin,
víkja Tsjúbajs frá eða láta sverfa
til stáls gegn kommúnistum og
bandamönnum þeirra í Dúmunni,
neðri deild þingsins. Forsetinn hef-
ur vald til að leysa upp þingið og
boða til nýrra kosninga.
Vilja viðræður án Tsjúbajs
Kommúnistar hvöttu Jeltsín til að
ræða deiluna við Viktor Tsjerno-
myrdín forsætisráðherra og forseta
þingdeildanna tveggja. Kommúnist-
inn Gennadí Seleznjov, forseti
Dúmunnar, ræddi við Tsjernomyrd-
ín en honum tókst ekki að sannfæra
forsætisráðherrann um að víkja
þyrfti Tsjúbajs frá, að sögn emb-
ættismanna í Kreml.
„Tsjúbajs getur ekki starfað í
stjórninni þar sem enginn treystir
honum lengur,“ sagði Gennadí
Zjúganov, leiðtogi kommúnista. „I
ljós hefur komið að allir samstarfs-
menn hans og hann sjálfur eru
þrjótar."
Kaíró. Reuters.
FRÉTTASKÝRENDUR sögðu í
gær, að tilræði hryðjuverkamanna
gegn erlendum ferðamönnum í
Lúxor í gærmorgun, væri áfall fyrh-
stjórn Hosni Mubaraks, sem taldi að
samtök öfgasinnaðra múslima hefðu
verið gerð nánast óvirk nema á mjög
afmörkuðum svæðum syðst í Eg-
yptalandi. Sex vopnaðir menn a.m.k.
myrtu um 80 menn, þar af 69 er-
lenda ferðamenn og þó enginn hefði
lýst ábyrgð á hendur sér fullyrtu
vestrænir sendifulltrúar að þar
hefðu verið að verki öfgamenn sem
freista þess að knésetja ríkisstjóm-
ina og stofna íslamskt strangtrúar-
ríki.
Þjóðarleiðtogar um allan heim for-
dæmdu tilræðið og evrópskar ferða-
ski-ifstofur gerðu strax ráðstafanir
til að fljúga með umbjóðendur sína
úr landi í gær og dag. Aflýsti stærsta
ferðaskrifstofa Norðurlanda,
Fritidsresor, öllum ferðum til Eg-
yptalands um ókomna framtíð.
Tilræðið í Lúxor er hið blóðugasta
frá því strangtrúarmenn risu upp
gegn stjórn Mubaraks árið 1992.
„Stjórnin verður að endurmeta stöð-
una gagngert í ljósi atburðarins.
Hingað til hefur hún talið Lúxor
vera öruggt svæði og að umfangi á
tilræðið sér ekki hliðstæðu,“ sagði
vestrænn stjórnarerindreki í gær.
Hann bætti við að ástæða væri til
að ætla að samtökin Gama’a al-lsl-
amiya hefðu verið að verki. „Við vit-
um að þau eru orðin mjög sundur-
laus en augljóslega er eitt brot
þeirra ennþá mjög virkt og lögreglan
hefur ekki getað upprætt starfsemi
þess.“
Reuters
HERMENN bera fórnarlamb tilræðisins í Lúxor inn í Maadi-hersjúkraliúsið í Kaíró en þangað voru níu illa
særðir Egyptar og erlendir ferðamenn fluttir undir læknishendur.
Gama hefur einkum haft ferðaþjón-
ustuna sem skotmark til þess að
vinna ríkisstjórninni efnahagslegt
tjón en tekjur Egypta af erlendum
ferðamönnum nema þremur milijörð-
um dollara, 213 milijörðum kiúna, á
ári. Um 10 milljónir manna hafa
beina atvinnu af ferðaþjónustunni og
engin staiTsemi önnur skilar jafn-
miklum gjaldeyristekjum í ríkissjóð.
Að sögn lögreglu foldust tilræðis-
mennirnir í Hatshepsut-hofinu og
vógu þaðan. Byrjuðu þeir á því að
ræna rútu fullri af japönskum ferða-
mönnum og drápu þá alla. Þvi næst
rændu þeir annarri rútu sem í voru
einkum franskir og þýskir ferða-
menn, óku henni tveggja kílómetra
leið og myrtu alla í henni. Skutu þeir
einnig án afláts á hóp ferðamanna
við hofið en urðu sjálfir á endanum
undir í skotbardaga við lögreglu.
Lágu sex tih-æðismenn í valnum en
heimildir hermdu að þeir hefðu verið
allt að 11.
■ Tilræðið gæti lamað/26
Egyptar töldu alla öfga-
menn orðna óvirka
Ræða möguleika á að „lina
þjáningar írösku þjóðarinnaru
Islamabad, London, Moskvu, Langkavvi í Malaysíu, Sameinuðu þjóðunum. Reuters.
Yínið „held-
ur ungt“
London. Reuters.
ÞAÐ er ekki óvenjulegt að þrír
kaupsýslumenn eyði um 220 sterl-
ingspundum, eða um 25 þúsund ísl.
krónum, í kvöldverð á veitinga-
staðnum Le Gavroche í London. En
fáir kaupa vín fyrir 12.870 pund,
eða ríflega hálfa aðra milljón ís-
lenskra króna, og gera þjóninn þar
að auki afturreka með dýrasta vín-
ið sem fáanlegt er á staðnum - af
því að það var „heldur ungt“.
Reikningurinn hljóðaði alls upp á
sem svarar 1.560.000 krónur.
„Þetta er besti reikningur sem ég
hef séð á litlu borði þau 26 ár sem
ég hef unnið hér,“ sagði fram-
kvæmdastjóriim, Silvano Giraldin, í
gær. Ekki fylgir sögunni hverjir
þremenningamir vom, en þeir
kváðust vera að halda upp á af-
mæli. Alls pöntuðu þeir sex vín-
flöskur, kampavín, léttvín og
armaníak. Meðal annars létu þeir
bera sér flösku af rauðvíni frá
framleiðandanum Romanee Conti,
árgang 1985, sem kostar litlar 600
þúsund krónur. En eitthvað líkaði
þeim ekki vínið.
„Þeim fannst vínið helst til ungt
svo þeir spurðu hvort við vildum
klára úr flöskunni. Við héldum það
nú. Þetta var stórkostlegt vín,“
sagði Giraldin.
BANDARIKJAMENN, Bretar,
Frakkar og Rússar ræða nú um
möguleika á að gera „smávægilegar
breytingar" á áætluninni sem Irak-
ar fylgja við sölu á olíu fyrir mat-
væli, ef það mætti verða til þess að
hvetja þá til að leggja sitt af mörk-
um við lausn vopnaeftirlitsdeilunn-
ar sem nú stendur, að því er hátt-
settur, bandarískur embættismað-
ur greindi frá í gær.
Sagði hann að ef írakar færu að
fyrirmælum vopnaeftirlitsnefndar
Sameinuðu þjóðanna (SÞ) „værum
við reiðubúin að athuga möguleika
á að gera smávægilegar breytingar
á meginþáttum“ áætlunarinnar um
sölu á olíu fyrir matvæli.
Ræða við Frakka og Rússa
Breskir embættismenn tóku í
sama streng í gær og sögðu að vilji
væri fyrir því að „lina þjáningar
írösku þjóðarinnar“ ef stjórnvöld í
Baghdad færu að tilmælum SÞ um
að eyða gereyðingarvopnum sínum.
„Við höfum lagt fram hugmyndir í
félagi við Banda-
ríkjamenn og
[Robin Cook] ut-
anríkisráðherra
[Bretlands]
ræddi þær fytT í
dag við starfs-
bræður sína í
Rússlandi og
Frakklandi,"
sagði breskur
embættismaður.
Sendiherra íraka hjá SÞ gaf lítið
fyrir hugmyndimar og sagði þær
„andvana fæddar" sem leið til
lausnar á deilunni.
Samkvæmt áætluninni er írök-
um heimilt að selja olíu fyrir tvo
milljarða Bandaríkjadala á hálfs
árs fresti, en SÞ sér um að ráðstafa
afrakstrinum og fer hann til að full-
nægja nauðþurftum Iraka. Emb-
ættismaðurinn, sem vai- í för með
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði að
breytingarnar á áætluninni gætu
falið í sér hluti sem Irökum væri nú
óheimilt að kaupa og aukið magn
olíu sem þeir fengju að selja.
Bretar og Bandaríkjamenn
hvetja nú til eindrægni í andstöðu
við Irana á alþjóðavettvangi, eftir
að írakar ráku bandaríska meðlimi
vopnaeftirlitsnefndar SÞ úr landi í
þarsíðustu viku. Sögðu Irakar að
nefndinni væri velkomið að sinna
störfum sínum, svo fremi sem í
henni væru engir Bandaríkjamenn,
sem írakar sögðu ganga erinda
CIA, bandarísku leyniþjónustunn-
ar, og valda vandræðum í Irak.
Yfirmaður vopnaeftirlits SÞ,
Astralinn Richard Butler, sagði að
ekki yrði liðið að írakar mismun-
uðu eftirlitsmönnum á grundvelli
þjóðemis.
írösk stjórnvöld segja að ótölu-
legur fjöldi fólks í landinu hafi látist
vegna ykorts eftir að SÞ tók að
beita Irak viðskiptaþvingunum í
kjölfar innrásar íraka í Kúveit
1990.
Tareq Aziz, aðstoðarforsætisráð-
herra Iraks, lagði til í gær að til
greina kæmi að írakar leyfðu nefnd
SÞ að halda vopnaeftirliti áfram, að
því tilskildu að samsetningu nefnd-
arinnar yrði breytt. Stakk Aziz upp
á því að allar fimm þjóðirnar, sem
eiga fastafulltrúa í öryggisráðinu,
ættu jafn marga fulltrúa í eftirlits-
nefndinni. Bretar höfnuðu tillög-
unni og sögðu að ekki kæmi til
greina að Irakar segðu til um
hvernig vopnaeftirlitinu yrði hagað.
Rússar ræða við fraka
Rússar greindu frá því í gær að
þeir ættu í viðræðum við Iraka um
friðsamlega lausn á deilunni við SÞ.
Jevgeníj Prímakov, utanríkisráð-
herra Rússlands, sagði fréttamönn-
um að lausn yrði að fela í sér að
vopnaeftirlit í Irak gæti haldið
áfram.
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, sagði í gær að svo virtist sem
„einhver slökun" væri að verða í
deilunni. Sagði Chirac að Frakkar
væru „að sjálfsögðu" með öllu
hlynntir SÞ í deilunni við Iraka.
Tareq Aziz