Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 11
FRÉTTIR
Nýtt kennarafélag
í burðarliðnum
SAMÞYKKT var tillaga um að
halda áfram undirbúningi að sam-
einingu kennarafélaganna tveggja,
Hins íslenska kennarafélags og
Kennarasambands Islands á aðal-
fundi HIK um helgina. Þá voru
einnig samþykktar ályktanir um
kjaramál, drög að skólastefnu fyrir
nýtt kennarafélag og fleira.
Tillagan um sameiningu félag-
anna felur í sér að HIK skipai’ full-
trúa í sameiginlega milliþinganefnd
sem hefur það hlutverk með hönd-
um að vinna áfram með tillögur að
sameiningu kennarafélaganna.
Nefndin á að bera tilögur sínar um
stofnun nýs félags og uppbyggingu
þess undir fulltrúaráð félaganna eigi
síðar en í lok árs 1998 og hljóti þær
samþykki þar skal kynna þær fé-
lagsmönmim eigi síðar en í ársbyrj-
un 1999. í framhaldi af því fer fram
allsherjaratkvæðagreiðsla um það
hvort stofna beri nýtt félag og verði
tillagan samþykkt taki nýtt kenn-
arafélag til starfa í ársbyrjun 2000.
Rúmlega 5.000 manna félag
Tillögunni fylgja drög að lögum
og starfskipulagi nýs félags, drög að
skólastefnu, siðareglum og sameig-
inlegri stefnu í grunn-, framhalds-
og endurmenntun, auk hugmynda
um endurmenntunarsjóð í nýjum
kennarasamtökum.
I Kennarasambandi Islands eru
nærfelllt 4.000 manns og í HÍK
hálft þrettánda hundrað. Bæði fé-
lögin hafa innan sinna vébanda bæði
gi'unnskóla- og framhaldsskóla-
kennara.
Elna Katrín Jónsdóttir, formaður
HIK, sagði að auk sameiningar-
málsins sem borið hefði hátt á fund-
inum, hefðu verið samþykktar
kjaramálaályktanir, bæði um kjara-
samninga í framhaldsskólum og
einnig í grunnskólum. I fyrrnefndu
ályktuninni væri sá dráttur sem
orðið hefði á gerð þeirra samninga
gagnrýndur harðlega, en samning-
arnir voru gerðir í júní í sumar eða
utan starfstíma skólans. Þar væri
lögð megináhersla á að hækkun
dagvinnulauna væri brýnasta við-
fangsefnið. Þá hefði einnig verið
lögð mikil áhersla á að félagið ein-
beiti sér að því að leiðrétta strax
vinnumatið í prófakafla kjarasamn-
ingsins frá því í sumar.
Elna sagði að kjarasamningurinn
frá því í sumar hefði í för með sér
miklar breytingar á vinnutímakerfi
kennara og hefði ekki reynst alfull-
kominn. Það hefði valdið dálítilli
ólgu úti í framhaldsskólunum og
óvissu um ávinning af þessum þætti
samningsins. Því áréttaði aðalfund-
urinn að þeirri leiðréttingarvinnu
sem sé hafín verði hraðað, þannig
að þeir hópar sem telji sig koma illa
út úr vinnumati á prófatíma fái leið-
réttingu á sínum hlut. Þá ályktaði
fundurinn einnig um nýgerðan
kjarasamning í grunnskólunum,
sem alls ekki leiðrétti laun grunn-
skólakennara nægilega, og um
skólasamninga í framhaldsskólum.
Þar er varað við því að þeir verði til
þess að hagur minni framhaldsskóla
versni enn og að námsframboð í
framhaldsskólum minnki vegna of
þröngra skilyrða um stærð nem-
endahópa.
Erfiður fundur
í kjöri til stjórnar HÍK fékk Dan-
fríður Skarphéðinsdóttir, MR, flest
atkvæði eða 452 og Elna Katrín
Jónsdóttir, Kvennaskóla, næstflest
eða 441. 1.244 voru á kjörskrá og
greiddu 767 atkvæði eða 61,62%. I
formannskjöri fékk Elna Katrín 271
atkvæði en aðrir voru ekki í fram-
boði til formanns. Um leynilega alls-
herjaratkvæðagreiðslu er að ræða
sem fram fór í októbermánuði.
Elna sagði að ólgan og óvissan
vegna hins nýja kjarasamnings end-
urspeglaðist í þessu stjórnarkjöri að
hennar mati. Niðurstaðan ylli henni
mjög miklum vonbrigðum, því væri
ekki að leyna. Aðalfundurinn hefði
verið erfiður og menn haft mikla
þörf fyrir að tala út um málin.
Fundurinn hefði þó staðfest í öllum
aðalatriðum þá stefnu sem forysta
félagsins hefði rekið undanfarin ár.
„Eg met það svo að við stöndum
sterkari eftir aðalfundinn og að við
stöndum í raun kannski sterkari
heldur en úrslit í þessu stjórnar-
kjöri sýna. En ég dreg hins vegar
ekki dul á það að út frá mínum per-
sónulegu forsendum hefði mér
kannski verið skapi næst að afþakka
þennan heiður. Eg sé hins vegar
ekki að það sé sérstaklega stór-
mannlegt að ganga burt frá þessu
núna þegar við erum að byrja að
framkvæma alveg spánnýjan kjara-
samning og við erum jafnframt að
reyna að sameina kennarafélögin,"
sagði Elna Katrín ennfremur.
VÍ um ríkisfyrirtæki
í samkeppni
Fagráð-
herrar fari
ekki með
eignarráð
VERSLUNARRÁÐ íslands hefur
leitað álits Samkeppnisstofnunar á
því hvort það geti torveldað sam-
keppni ef ráðherrar fari bæði með
eignaiTáð í opinberum samkeppnis-
fyrirtækjum og reglugerðarvald á
viðkomandi sviði. Telur Verslunar-
ráð að það sé engin nauðsyn að eign-
arráðum opinberra fyrirtækja sé
komið fyrir hjá fagráðherrum þar
sem hin almenna regla sé sú að fjár-
málaráðherra eigi að fara með þau.
í erindi VÍ til Samkeppnisstofnun-
ar er bent á að áhersla í réttarþróun
undanfarinna ára haíi verið á jafn-
ræði, hlutleysi og samkeppni. „Það
verður að teljast í hæsta máta
óheppilegt að sami aðili eigi bæði að
fara með æðsta vald í fyrirtæki sem
hluthafi og setja síðan almennar
leiki-eglur sem gilda eiga fyrir alla
aðila á markaði. Slíkt býður þeim
hættu heim að stjórnvaldsreglur taki
mið af hagsmunum eins aðila um-
fram annan, en slíkt er til þess fallið
að verka letjandi á samkeppni," seg-
ir m.a. í erindi Verslunan'áðs.
---------------
Óbreytt fjárveiting til
kaupa á lesefni í HI
Engin bók
keypt í raun-
vísindadeild
KAUP á bókum og tímaritum fyrir
deildir Háskóla Islands munu drag-
ast mjög saman á næsta ári, að mati
Þorleifs Jónssonar, forstöðumanns
aðfangadeiidar Landsbókasafns ís-
lands.
I fjárlagafrumvarpinu er gert ráð
fyrir sömu upphæð og á síðustu fjár-
lögum til kaupa á öllum bókum og
tímaritum fyrir Háskólann. Þorleifur
telur hins vegar nærri lagi að áætla
að áskriftargjöld tímarita hafi hækk-
að um 15%. Því verði að skera niður
kaup á bókum og tímaritum. Þetta
kemur fram í fréttabréfi Háskólans.
Deildir Háskólans geta miklu ráð-
ið um hlutfall tímarita og bóka og
hafa almennt viljað halda sem mestu
af þeim tímaritaáskriftum sem eftir
eru. Vegna hækkana áskrifta minnk-
ar þá fé til bókakaupa. Verst er
ástandið í raunvísindadeild þar sem
engar bækur verða að óbreyttu
keyptar.
Nicoretté innsogslyf
Þegar líkaminn saknar nikótins og hendurnar sakna vanans.
Ef þú reykir þekkir þú líklega vandamál er
geta komið upp þegar þú hættir að reykja;
líkaminn saknar nikótínsins sem hann er
vanur að fá og hendurnar sakna vanans sem
skapast við það að halda á sígarettu.
A stundum sem þessum gæti nýja
Nicorette® innsogslyfið hjálpað þér.
Rör sem inniheldur nikótín er settí í munnstykkið.
Smellt saman og sogið.
Nicorette® innsogslyfið inniheldur nikótín
til að draga úr löngun í sígarettu en urn leið
fá hendurnar verkefni. Enn ffeinur kemur
enginn reykur og þú ert laus við tjöru og
kolsýring.
Rétt handbragð skrefi nær. Ef þú ákveður
að hætta að reykja prófáðu þá nýja
Nicorette® innsogslyfið.
NICDRETTE
Njóttu lífsins - reyklaus
Nicorette® innsogslyf. Hvert rör inniheldur: Nikotín 10 mg. Lyfiö kemur í staö nikótíns viö reykingar og dregur þannig úr fráhvarfseinkennum og auöveldar fólki aö hætta aö reykja. Nicorette®
innsogslyf er því hjálpartæki þegar reykingum er hætt. Innandaður skammtur af nikótíni fellur aö mestu út í munnholi og loöir viö munnslímhúö. Þaö nikótínmagn sem fæst úr einu sogi af
Nicorette® innsogslyfi er minna en úr einu sogi af sígarettu. Til aö fá sem mest magn af nikótíni úr innsogslyfinu skal nota þaö í 20 mínútur. Nicorette® innsogslyf má nota í lengri tíma þaö er
háö þeirri tækni sem beitt er hverju sinni viö notkun. Algengur skammtur er 6 rör á dag en þó ekki fleiri en 12 á dag. Það er mikilvægt aö meöferöartími só nægilega langur. Mælt er meö aö
meðferð standi yfir í a.m.k. 3 mánuði. Aö þeim tíma liðnum á aö minnka nikótínskammtinn smám saman á 6-8 vikum. Venjulega skal Ijúka meðferðinni eftir 6 mánuði. Nicorette® innsogslyf
getur valdiö aukaverkunum eins og hósta, ertingu í munni og hálsi. Höfuöverkur, brjóstsviði, ógleöi, hiksti, uppköst, óþægindi í hálsi, nefstífla og blöörur í munni geta einnig komiö fram. Viö
samtímis inntöku á gestagenöstrógen lyfjum getur, eins og viö reykingar, veriö aukin hætta á blóðtappa. Nikótín getur valdið bráöum eitrunum hjá börnum og er efnið því alls ekki ætlað bömum
yngri en 15 ára nema í samráöi viö lækni. Gæta skal varúðar hjá þeim sem hafa hjarta- og æðasjúkdóma. Þungaöar konur og konur meö barn á brjósti ættu ekki aö nota lyfiö nema í samráöi
viö lækni. Lesið vandlega leiöbeiningar sem fylgja hverri pakkningu lyfsins.Markaösleyfishafi: Pharmacia&Upjohn, Danmörk. Innflytjandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2, Garöabæ.